Þjóðviljinn - 29.01.1981, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 29. janúar 1981
Skákþing Reykjavíkur:
JÓNL.
EFSTUR
Þó tefldar hafi verið 6
umferðir á Skákþingi
Reykjavikur 1981 hefur
mótið orðið að sæta þeim
afarkostum að fresta hef-
ur orðið fjölda skáka
vegna f lensuf araldurs
þess/ sem nú geisar um
bæinn og lagt hefur heilu
fjölskyldurnar i bælið. Er
ekki séð fyrir endann á
þessum ófögnuði þó mörg-
um finnist nóg komið og
mál að linni. Greinarhöf-
undur er eitt fórnarlamb-
anna og hefur það gert
stöðu efstu manna í meira
lagi óljósa en i augnablik-
inu er hún þessi:
1. Jón L. Árnason
4 v. + 1 biösk.
2. Bragi Halldórsson
4 v.
3. Helgi ólafsson
3 1/2 v. + 2frestaðarskákir
4. Þórir ólafsson
3 v. + 1 frestuð skák
5. Dan Hansson
3 v.
6. Karl Þorsteinsson
2 1/2 V.
7. Sævar Bjarnason
2 v. + 2 biöskákir
8. Björgvin Viglundsson
2 v. + 1 biðskák.
9. Hiimar Karlsson
2 v.
10. Ásgeir Þ. Árnason
1 1/2 v. + 1 biðsk.
11. Elvar Guðmundsson
1 v. + 2 biðsk.
og 2 frestaðar skákir
12. Benedikt Jónsson
1/2 v. + 1 biösk.
og 1 frestuð skák.
Einsog sjá má er ekki mikið að
marka stöðuna, en ætla má að
eitthvað fari að leysast úr hræri-
grautnum þegar liða tekur á.
Af þeim mönnum sem skipa
toppsætin hefur Bragi Hall-
dórsson verið sérlega fengsæll
enda iðinn við að kreista fram
vinning úr töpuðum töflum. Jóni
L. Arnasyni hafa verið nokkuð
mislagðar hendur og á t.a.m. i
vök að verjast i biðskák gegn
Sævari Bjarnasyni. í.gærkvöldi
var tefld 7. umferð og þá tefldu
saman: Asgeir og Bragi, Karl og
Björgvin, Hilmar og Dan, Sævar
og Benedikt, Helgi og Þórir og
Elvar og Jón L.
Einhver harðasta og jafnframt
skemmtilegasta baráttuskákin i
þessu móti er án efa sú á milli
greinarhöfundar og Karls Þor-
steins, en hann hefur teflt af mik-
illi hörku allt mótið og uppskorið
minna en til hefur veriö sáð:
Hvitt: Karl Þorsteins
Svart: Helgi ólafsson
Kóngsindversk vörn
1. c4-e5
2. Rc3-Rf6
3. Rf3-d6
4. d4-Rbd7
5. e4-g6
6. Be2-Bg7
7. 0—0-0—0
8. Hel-c6
9. Hbl-exd4
10. Rxd4-He8
11. Bf 1-Rc5
12. f3-d5
14. exd5
(Aðrir möguleikar eru 13. e5-
Rd7 14. f4* dxc4 15. Bxc4-Rb6 16.
Bfl-f6 o.s.frv. eða 13. cxd5-cxd5
14. e5-Rd7 I5.f4-Rb6 ásamt f7 - f6
við tækifæri. Hvitur velur
öruggasta möguleikann.)
13. ...-Hxel
14. Dxel-cxd5
(En ekki 14. -Rxd5 15. cxd5-
Bxd4+ 16. Be3-Df6 17. Hdl og
svarta staðan er hartnær töpuð.)
15. Be3-dxc4
16. Bxc4-Bd7
17. Dh4
(Betra var 17. Hdl.)
17. ...-a6
18. Hdl-b5
19. Bf 1-Hc8
(En ekki 19. -b4 20. Rc6!
o.s.frv.)
20. a3-Dc7
(Nú var hvitur þegar kominn i
gifurlegt timahrak. Fram að 40.
leik mótast baráttan nokkuð af
þeim timaskorti, þ.e. hvitur reyn-
ir að sleppa við fallöxina, en
svartur pressar á.)
21. Khl-Db7
22. Rc2-Re6
23. Rb4-Bc6
24. Df2-Bf8
25. h3-Be8
26. Rcd5-Rxd5
27. Rxd5-Bg7
28. Dh4!-Kh8
29. b4
(29. Bh6-Bxb2!)
29. ...-h5
30. Be2-Hd8
31. Rf4-Hxdl +
32. Bxdl-Dd7
(Svartur hefur loksins náð
frumkvæðinu.)
33. Bc2-Rd4!
34. Bbl
34. ...-Rxf3!
35. gxf3-Ddl +
36. Kg2-Dxbl
37. Dd8-Dc2+
38. Kg3-Dc6
39. Bd4-Kh7
40. Bxg7-Kxg7
41. h4-Dd7 (?)
(Svartur hugðist leika biskupn-
um til d7 sem vinnur létt, en fyrir
handvömm sem stundum hendir
skákmenn var drottningin allt i
einu komin á d7-reitinn.)
42. Dxd7-Bxd7
43. Rd3-f6 (?)
(43. -Kf6 gefur góða vinnings-
möguleika. Eftir textaleikinn er
staðan jafntefli.)
44. Rc5-Bc8
45. f4-Kf7
46. Kf3-Kg7
47. Kg3-Kf7
48. Kf3-Ke7
49. Ke3-Kd6
50. Kd4-Bh3
51. Rxa6-Ke6
52. Rc7+-Kf5
53. Ke3!
(En ekki 53. Rxb5-Kxf4 og
möguleikarnir eru svarts megin.)
53. ...-Bfl
54. Kf2-Bd3
55. Ke3-Bc4
56. Kf3-g5
57. fxg5-fxg5
— Jafntefli.
58. hxg5-Kxg5
59. Kg3-h4 +
60. Kh3-Bfl +
61. Kh2-Kf5
62. Rd5+
Kveðjuathöfn eiginmanns mins og sonar,
Jóns Guðbrandssonar
Höfða, Vatnsleysuströnd,
verður gerð frá Fossvogskapellu þann 31. janúar n.k. kl.
10.30 Jarðarförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju sama
dag kl. 14.00. Þeir sem vildu minnast hans láti Krabba-
meinsfélagið eða orgelsjóð Kálfatjarnarkirkjii njóta þess.
Ásta Þórarinsdóttir Guðbrandur Jónsson
börn og barnabörn.
Nýtt
leik-
hús
Breiðholtsleikhúsið sýnir
PLÚTUS
eftir Aristofanes
Leikstjóri:
Geir Rögnvaldsson
Þýðing:
Hilmar J. Hauksson
Búningar:
Hjördis Bergsdóttir
Nokkrir ungir fullhugar hafa
tekið síg til og stofnab leikhús
uppi i Breiðholti og er ekki
ástæða til annars en að þakka
þeim fyrir það framtak og óska
góðs gengis. Það væri vissulega
æskilegt að fleiri litil leikhús
gætu dafnað hér i borg — það er
til dæmis einkennilegt að ekki
skuli vera til áhugaleikhús i
Reykjavik utan framhaldsskól-
anna.
Breiðholtsleikhúsið hefur
valið sem fyrsta verkefni sitt
gamai, ^xkinn Plútus eftir frum-
kvöðul slikra leikja i vestrænni
menningu, sjálfan Aristofanes.
Leikur þessi fjallar um sigiit
efni, misskiptingu auðsins og þá
stabreynd að hann leitar
gjarnan á þá staði þar sem ekki
eru fyrir hinir réttlátustu og
heiðarlegustu menn. Aristó-
fanes skýrir þetta þannig að
Seifur hafi i reiðikasti slegið
Plútus, guð auðsins, biindu, og
þvi sé það að hann rambi i óviti
og geti ekki gætt þess að auður-
inn lendi þar sem gott fólk er
fyrir.
Leikritið greinir siðan frá af-
leiðingum þess að Plútus fær
sjónina aftur og sýnir okkur röð
skoplegra atvika sem afhjúpa
græðgi, hégómaskap og svik-
semi manneskjanna. Allt er
þetta vist enn i fullu gildi meðal
...fjörleg og skemmtileg sýning og margir leikenda bregða upp
skemmtilegum manngerðarlýsingum...
okkar þar sem maðurinn hefur
ekki tekið umtalsverðum sið-
ferðilegum framförum siðast-
liðin 2500 ár.
Mér sýnist leikstjórn Geirs
Rögnvaldssonar skynsamlega
unnin. Hann nýtir leiksvæðiö i
Breiðholtsskóla vel og smekk-
lega, þannig að leikurinn er ekki
staöbundinn heldur færist fram
og aftur um þetta tiltöiulega
rúma svæði og býður uppá
sifellt ný sjónarhorn fyrir áhorf-
endur. Hann leggur mikla
áherslu á ýktar handahreyf-
ingar og er það sjálfsagt skyn-
samleg stefna, þó að hitt sé
aftur annað mál að fæstir
leikaranna ráða yfir þeirri
tækni að geta gert slikar hreyf-
ingar eðlilegar og óþvingaðar.
Vankantar sýningarinnar
liggja fyrst og fremst, að ég
hygg, i reynsluskorti flestra
leikendanna, sem veldur þvi að
þá brestur tæknilegt öryggi til
að færa til sigurs sýningu sem
lögð er upp út frá þeim leikstil
sem hér er beitt.
Engu að siður er þetta íjörleg
og skemmtileg sýning og
margir leikenda bregða upp
skemmtilegum manngerðarlýs-
ingum,t.d. Sigrún Björnsdóttir i
hlutverki aldraðrar ástkonu,
Kristin S. Kristjánsdóttir sem
sidrukkin eiginkona Krem-
ylusar og Evert Ingólfsson sem
guðinn Plútus. Þrátt fyrir vask-
legaframgöngu fannst mér hins
vegar skorta á að Eyvindur
Erlendsson kæmi aðalpersón-
unni, Kremylusi, til skila á full-
nægjandi hátt.
Umgerð sýningarinnar var
þekkileg þegar á heildina er
litið, leikrýmið haganlegt og
búningar vel unnir. Hins vegar
þótti mér siður vel heppnað að
láta kórinn koma fram sem
samlestur úr hátalara. Það
verkaði hjákátlega og hefði átt
að sleppa.
Um þýðinguna er erfitt að
segja margt án þekkingar á
frumtexta en hún var viða veru-
lega hnyttin, þó að hún hins
vegar dytti niður i lágkúru á
köflum.
Sjálfsagt er að hvetja fólk að
sjá þessa sýningu og veita þessu
nýja leikhúsi stuðning. Á þetta
ekki sist við ibúa Breiðholts, og
þykir mér rétt að benda á að
sýningin er einkar hentug fyrir
eldri börn og unglinga.
Sverrir llólmarsson
Enn eitt námskeið í stillingu vatnshitakerfa
Olíukostnaður eins skóla
50 miljónir Gkr. á sl. ári
Einn skóli úti á landi fór á slð-
asta ári með um 50 miljónir Gkr. i
oliukostnað. En áætlað er af sér-
fræðingum, að aðgerðir einsog að
auka einangrun skólans og klæða
hann utan, auk þess að iagfæra
hitakerfið, setja sjálfvirka ofn-
loka og stilla kerfið.muni kosta
um 50—80 miljónir Gkróna. Að-
gerðin mundi þannig vinnast upp
á tveim til þrem árum i minni
olíukaupum fyrir utan þægindi og
velliðan.
Til samanburðar má nefna, að
allir ibúar Seltjarnarness, sem
eru rúmlega 3000 manns, greiddu
á árinu 1980 um 125 miljónir
Gkróna til upphitunar húsa sinna
og allra opinberra bygginga stað-
arins.
Þetta kom fram á einu nám-
skeiðanna i stiilingu vatnshita-
kerfa sem Byggingaþjónustan
hefur haldið úti á landi að tií-
hlutan Iðnaðarráðuneytisins, en
alls hafa nú verið haldin sex slik
námskeið, þrjú i Reykjavik og
þrjú úti á landi, á Akureyri,
Egilsstöðum og Isafirði. Þátttaka
hefur verið mjög mikil, eða rúm-
lega 200 manns, og hefur verið
ákveðiðaðhalda að minnsta kosti
eitt námskeið enn i Reykjavik
dagana 14. og 15. febrúar n.k.,
sem er laugardagur og sunnu-
dagur.
Þessi námskeið eru liður i
skipulögðum aðgerðum Iðnaðar-
ráðuneytisins tii orkusparnaðar.
Allir þátttakendur fá fræðslu og
þjálfun i stillingu vatnshitakerfa.
Þannig verður kostnaðurinn i lág-
marki við verkið sjálft, ef að-
gerða er þörf, og jafnframt eru
fleiri til þess að leiðbeina fólki
um, hvað það getur gert sjálft til
þess að spara orkunotkun sina og
annarra, eins og t.d. i opinberum
byggingum o.þ.h..
Þátttakendur i námskeiðunum
hafa verið pipulagningamenn,
vélgæslumenn, húsverðir og
starfsmenn hitaveitna. Leiðbein-
endur á námskeiöunum voru
Björn Marteinsson, verkfræð-
ingur, Þórður Búason, verkfræð-
ingur, Gisli Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri, Elvar Bjarnason,
pipulagningameistari, og Sig-
urður Grétar Guðmundsson,
pipulagningameistari. Stjórnandi
var Ólafur Jensson, fram-
kvæmdastjóri.
— vh
Upplýsmgar um
ísland í Vín
Austurrisk-islenska félagið I
Vínarborg opnaði nýlega upplýs-
ingaherbergi um lsland þar i
borg. Við opnunina flutti dr.
Björn Sigurbjörnsson erindi um
landgræðsluna á Islandi og sýndi
myndir.
Frú dr. Cornelia Schubrig,
ekkja fyrrv. aðalræðismanns ís-
lands i Austurriki,gaf allar inn-
réttingar i herbergið sem hr.
Helmut Neumann veitir afnot af i
tónlistarskóla sinum, Franz
Schubert Konservatorium.
Um 50 manns voru við opnun-
ina. Ætlunin er að safna til þess-
arar upplýsingamiðstöðvar bók-
um og öðrum hlutum frá tslandi,
myndum og blöðum. Heimilis-
fangið er 1020 Wien, Karmeliter-
platz 1/2 og verður opið á fimmtu-
dögum kl. 17—19.