Þjóðviljinn - 30.01.1981, Side 3
Föstudagur 30. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Akraborgin
stöövast í
þrjár
vikur
Mikil aukning
flutninga og ferða
á s.l. ári
Ferðir Akraborgarinnar leggj-
ast niður i uþb. þrjár vikur frá og
með sunnudeginum, en skipið er
nú að fara i meiriháttar klössun,
á ma. að skipta urn plötur á
siðum, taka upp vélar og fleira.
Verður siðasta áætlunarferðin að
sinni kl. 19 á laugardagskvöld frá
Reykjavik til Akraness.
Að sögn Helga Ibsens
framkvæmdastjóra varð mikil
aukning i flutningum Akra-
borgarinnar á sl. ári er hún flutti
samtals 60.109 bila, þe. fólksbila,
flutningabila og tæki, og 222.504
farþega. Árið 1979 urðu farþegar
um 153 þúsund talsins og farar-
tæki um 45 þúsund.
Ferðum var einnig fjölgað 1980
i fjórar á dag auk kvöldferða á
sumrin. Eftir reynsluna af kvöld-
ferðunum er ákveðið að fjölga
þeim enn á komandi sumri og
lengja timabilið, byrja strax i
april með kvöldferðir á sunnu-
dögum, sem standa fram i októ-
ber, mánuðina mai-júni og i
september verða kvöldferðir á
föstudögum og sunnudögum og i
júli og ágúst alla daga nema
laugardaga.
— vh
Herstööva-
andstæðingar
í Reykjavík:
Næstu fjórar vikurverður lögð
áhersla á skipulagsstörf á skrif-
stofunni að Skólavörðustig 1 A.
Dreifing er að hefjast á 3. hefti
Dagfara 1981, og haldið verður
áfram að efla styrktarmanna-
kerfið. Þeir sem vilja vinna um
helgina mæti klukkan 10 f.h. á
laugardag eða 14 e.h. á sunnudag.
Miðnefnd Samtaka herstöðva-
andstæðinga
Pétur Jónsson og Bjarki Eliasson taka við gjöf Jólakonsertsmanna af
Jóni ólafssyni — Ljósm.— eik —
Stór áfangi hjá Vernd:
Heimili fyrr-
verandi
Nú um komandi helgi munu
fyrstu sjö fyrrverandi fangarnir
flytja inn i húsnæði féiagsins
Verndará Ránargötu 10, þar sem
félagið hefur með aðstoð sjálf-
boðaliða innréttað fyrir þá
heimili til að búa á fyrsta timann
eftir fangavistina. Húsvörður á
Ránargötunni verður Jóhann
Viglundsson.
Margir hafa orðið til að aðstoða
Vernd, ma. aðstandendur Jóla-
konserts 1980, sem i gær afhentu
félaginu allan ágóða hljómleik-
anna, samtals nýkr. 40.800. Tóku
þeir Bjarki Eliasson varaform.
félagsins og Pétur Jónsson gjald-
fanga
keri við upphæðinni af Jóni Ólafs-
syni forstjóra Hljómplötuút-
gáfunnar.
Vernd er nú með i undirbúningi
annað heimili hér i borginni fyrir
fyrrverandi fanga, hefur fengið
leigt húsnæði hjá Sparisjóði
Reykjavikur á Skólavörðustig og
verður upphæðin hjá Jóla-
konsertsmönnum notuð til þeirr-
ar starfsemi.
Þá kom fram á blaðamanna-
fundi hjá Vernd i gær, að ætlunin
er að koma á áfengismeðferð
meðal fanga á Litla Hrauni, en
könnun sýnir, að um 90% fanga á
viö áfengisvandamál að striða.
Sfðasta hönd lögð á verk á Ránar-
götu 10. Um helgina verður flutt I
húsið. — L jósm. — eik —
Auk áðurnefndra eru nú i stjórn
Verndar Hilmar Helgason,
formaður, Jón Bjarnason ritari
og Jón Guðbjörnsson meðstjórn-
andi. — vh
íjohns Lennon minnst
!í Austurbæjarbíói
n.k. þriðjudagskvöld
I Minningarhljómleikar um
* John Lennon verða haldnir i
IAusturbæjarbiói á þriðju-
daginn, 3. febrúar kl. 21.00. Þar
munu þekktustu popparar
• landsins þ.á.m. Gunnar og Rún-
Iar i Hljómum, flytja 25 laga
Lennons, allt frá I want to hold
your hand og fram til laga af
j Double Fantasy, siðustu plötu
Lennons.
Aðgöngumiðasala er hafin i
Skifunni, Laugavegi 33,og Aust-
urbæjarbiói (kl. 16.00).
Óttar Felix Hauksson á
heiðurinn af þessu framtaki og i
Þjóðviljanum á morgun
(Helgarblaðinu) höfum við eftir
honum nánari upplýsingar um
minningarhljómleikana.
John Lennon.
Bruninn i
Kötlufelli 11
Kona hins
látna
handtekin
Eiginkona Sigfúsar Steingrims-
sonar, sem lést I eldsvoða að
Kötlufelli 11 i Reykjavik um sið-
ustu helgi, hefur verið handtekin,
grunuð um hlutdeild að eldsupp-
tökum. Hefur rannsóknarlög-
reglan farið framá að hún verði
úrskurðuð i gæsluvarðhald.
Þórir Oddsson vararann-
sóknarlögreglustjóri sagði i sam-
tali við Þjóðviljann i gær að lög-
reglan teldi sig hafa nægilega
sterk gögn i höndunum til að fara
fram á þennan gæsluvarðhalds-
úrskurð. Að öðru leyti vildi hann
ekki tjá sig um hver þau gögn eru.
Konan sem handtekin hefur
verið er 26 ára gömul. — S.dór.
Rikisverksmiöju-
deilan:
Mjakast
þótt
hægt fari
Sam ningaum Icitanir hafa
staðið yfir i rikisverksmiðjudcil-
unni svo nefndu undanfarna daga
og hefur mönnum þótt hægt
ganga. Guðjón Jónsson formaður
Málm og skipasmiðasambands
íslands, sagði i gær að undan-
farna daga hefði mikið verið
unnið i samningunum og að
heidur mjakaðist i samkomulags-
átt.
Sem kunnugt er átti verkfall að
skella á i rikisverksmiðjunum á
fimmtudagskvöldið i siðustu
viku, en þvi var frestað um óá-
kveðinn tima, þar eð 12 verka-
lýðsfélög sem aðild eiga að samn-
ingunum höfðu náð samkomulagi
aðeins eitt þeirra, Vélstjóra-
félagið, gat ekki unað niðurstöðu
samninganna hvað niðurröðun i
launaflokka snertir. Hefur verið
unnið að þvi undanfarna daga
m.a. að jafna þennan ágreining.
— S.dór
Konur í bókmenntum
— í Sokkholti
Helga Kress bókmennta-
fræðingur verður gestur
Rauðsokka i morgunkaffi i
Sokkholti á morgun, laugardag,
og ræðir um efnið „Konur i
bókmenntum”.
Morgunkaffi i Sokkholti er
fastur liður i starfsemi
Rauðsokkahreyfingarinnar, og
hafa margir góðir gestir komið
þangað og fjallað um ýmis
málefni. Sokkholt er að Skóla-
vörðustig 12, efstu hæð, og
morgunkaffið hefst kl. 12 á
hádegi.
— ih
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
l
■
L
Miðstj ór narfundur
6. og 7. febrúar
Miðstjórn Alþýðubandalagsins kemur saman til fundar föstu-
daginn 6. febrúar næstkomandi kl. 20.30 i fundarsal Sóknar að
Freyjugötu 27. Fundinum verður fram haldið á laugardag
samkvæmt nánari ákvörðun miðstjórnar.
A dagskrá fundarins er flokksstarfið, framkvæmdaáætlun f
orkumálum, stjórnmálaviðhorfið og þingmál.
■
J
Seinkun í prentun orsökin
Margan hefur undrað hve seint
skattskýrslurnar eru bornar út að
þessu sinni i gær 29. janúar var
ekki búið að bera þær út.
Ævar Isberg, settur rikisskatt-
stjórisagði isamtali við Þjóðvilj-
ann i gær að seinkun i prentun
væri orsök þessa. Hann sagði að
nú um helgina ættu allir að fá sina
skýrslu en skilafrestur er sam-
kvæmt lögum til 10. febr. nk. og
taldi Ævar óliklegt að hann yrði
framlengdur.
— S.dór
Opnirstjórnmálat'undir
Alþýðubandalagsins
Rætt um efna
hagsáætlun
stjórnarinnar,
þátttökuna i
ríkisstjórn og
flokksstarfið
Svavar Gestsson.
Ólafur Ragnar
Grimsson
k.
Skúli Alexanders-
son.
Akranes
Alþýðubandalagið á Akranesi
og nágrenni heldur opinn stjórn-
málafund miðvikudaginn 4. fe-
brúar kl. 20:30
Skúli Alexandersson og
Olafur Ragnar Grimsson mæta
á fundinum.
Egilsstaðir:
Alþýðubandalag Héraðs-
manna heldur opinn stjórn-
málafund i Egilsstaðaskóla
föstudaginn 30. janúar kl. 20:30
Svavar Gestsson ráðherra
mætir á fundinum.
Fundir verða haldnir á næst-
unni á Húsavik, Vestmanna-
eyjum, Selfossi og á Isafirði.
Alþýöubandalagið.