Þjóðviljinn - 30.01.1981, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.01.1981, Blaðsíða 5
Akureyri á sunnudag: ' Föstudagur 30. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Stofnad félag um jafnréttismál Nokkrar konur á Akureyri sem að undanförnu hafa undirbúið stofnun félags um jafnréttismál boða nií stofnfundinn nk. sunnu- dag, 1. febrúar á Hótel KEA kl. 14—17. Hvetja þær til að sækja fundinn jafnt þá sem áhuga hafa á jafnréttismálum og hina, sem ekki hafa hugleitt þau mái til þessa. Til þess að starfsemin geti orðið sem fjölbreyttust, er nauðsynlegt að sem flestir verði með, og stjórnmálaskoðanir skipta ekki máli. Ekki er gp-t ráð fyrir, að þátttakendur þurfi að kunna að halda ræður, þar sem ætlunin er að frjálslegar samræður og hópa- störf verði meginform fundarins. Jafnrétti kynjanna i reynd er fjarlægt markmið tilvonandi félags, en að finna aðferðir til að stuðla að þvf verður meginverk- efnið. Tillögur fundarboöenda verða settar fram á fundinum auk þess sem fundarboðendur geta komiðá framfæri eigin hugmynd- um og óskum. Gert er ráð fyrir, að starfsemin verði tviþætt. Annars vegar verði fjallað um misrétti i okkar nán- asta umhverfi, og reynt að hafa áhrif i jafnréttisátt. Hins vegar verði fjallað um vandamál kon- unnar sjálfrar, og reynt að stuðla að uppbyggingu sjálfstrausts og sjálfsvitundar hjá þeim, er þess leita, f þeim tilgangi að nýta betur þá hæfileika, sem i þeim búa. Við viljum stuðla að betra mannlifi fyrir alla, segir undir- búningshópurinn. — vh Alþýöubandalagið í Reykjavík: Skíðaganga á sunnudag Næstkomandi sunnudag ætiar ABR að efna til skiðagönguferðar ef snjóalög leyfa — ella drögum við fram gönguskóna. Vitað er að fjölmargir félagar eiga göngu- skíði og iðka skiðagöngu. Nú er ætlunin að gera tiiraun til þess að hittast á heiðum uppi. i þessari fyrstu tilraun er ætlunin að fara rólega f sakirnar þannig að aliir geti verið með, þótt ekki séu þeir þaulvanir. Menn geta farið mis- langt eftir þörfum. Ætluninerað ræsa bifreiðarnar i bænum kl. 10.30 og aka sem leið liggur upp á Hellisheiði. Ekið verður framhjá skiðaskálanum i Hveradölum og upp löngu aflið- andi brekkuna fyrir ofan skiða- skálann fyrir Stóra-Reykjafell, upp á jafnsléttu. Þar verður numið staðar og stigið á skiðin og haldið inn veginn milli hrauns og hliða. Þarna á háheiðinni er yfir- leitt nægur snjór. Reiknað er með 1—2 tima göngu allt eftir þörfum og miðað er við að hefja göngu klukkan 11.15. Njótum skemmtilegs . félags- skapar og látum veðrið ekki aftra okkur. Félagar sameinist um bif- reiðar og þeir sem eru billausir eru hvattir til að hafa samband við þá sem liklegir eru til að fara. Félagar úr nágrannabyggðum drifið ykkur með — og gaman væri að hitta Hvergerðinga og Selfyssinga á fjallinu. (Frétt frá ABR) Valgeröur Bergsdóttir sýmr Valgerður Bergsdóttir ér þekkt- ust fyrir grafikverk sin, en á sýningunni sem hún opnar i dag eru 14 blýantsteikningar. i Galleri Langbrók Valgerður Bergsdóttir opnar á hádegi i dag, föstudag, sýningu á teikningum i Galleri Langbrók, Amtmannsstig 1. Á sýningunni eru 14 blýants- teikningar, flestar unnar árið 1980. Valgerður stundaði nám við Myndlista- og handiðaskólann 1966—69, og siðar i tvö ár við Statens Kunstindustri- og Hánd- værkerskolen i Osló. Hún lauk teiknikennaraprófi frá MHl 1973. Valgerður Bergsdóttir hefur sýntgrafik og teikningar á mörg- um sýningum hér heima og erlendis, og hafa mörg söfn, bæði hér og erlendis keypt verk eftir hana. Sýningin i Galleri Langbrók verður opin virka daga kl. 12—18. Henni lýkur 20. febrúar. Herlögregia hefur skipað „grunsamlegum” unglingum að leggjast á grúfu. Einhverjir þeirra munu ekki sjást aftur á lifi. Leitað liðveislu við kúgunar- stjórn E1 Salvador Borgarastríðið er um leið barátta um sálir evrópskra sósíaldemókrata heitir hann. Forsetinn sem situr 1 skjóli morðsveita: Napoleon Uuarte Eitt af þvi sem hingaö til hefur haldiö aftur af Bandaríkjamönnum aö þvi er varðar beina íhlutun i borgarastyrjöldina i Mið-Amerikuríkinu El Salvador er afstaöa Alþjóðasambands sósialdemökrata/ en flestir flokkar innan þess hafa lýst yfir stuðningi við vinstrifylkinguna i landinu/ en þar er m.a. sósialdemó- kratiska flokksbræður að finna. Bandaríska utan- rikisráðuneytið hef ur hinsvegar unnið að þvi á bak við tjöldin að fá þennan stuðning afturkallaðan. Borgarastriöið i E1 SAlvador hefur um margt likst styrjöld- inni i Vietnam. Þyrlur hafa flog- ið yfir þorp og akra og brennt með bensinhlaupi hús og upp- skeru til þess að taka fyrir vistaöflun skæruherja. Reynt hefur verið að loka svæðum þar sem skæruliðar hafa sig mest i frammi og flytja ibúana nauð- uga á brott — að öðrum kosti verða þeir fyrirfram lýstir stuðningsmenn skæruherjanna oe drepnir begar færi gefst. Aætlanir af þessu tagi voru kall- aðar „friðunaraðgerðir” i Viet- nam, enda stjórna þeim banda- riskir sérfræðingar, sum kunna fagið. í borgunum hafa svo öryggis- sveitir þær sem i fréttum heita „sveitir hægrisinnaðra öfga- manna” myrt nokkra tugi stjórnarandstæðinga á degi hverjum, eða þá mannréttinda- fólk, eða blátt áfram þá sem einhver samviskulaus maður vill losna við: það nægir að hringja i ákveöin simanúmer og segja: hr. NN hefur samúð með þeim rauðu. Fyrir utan litinn hægriarm Kristilegra demókrata, eru flestöll pólitisk öfl i landinu i andstöðu við stjórnina: frá kristilegum, til sósialdemö- krata og byltingarsinnaðra skæruliða. Kirkjunnar menn hafa einnig tekið þátt i andófinu gegn stjórn hinna riku. Þessi samsteypa, FDR., Lýðræðis- lega byltingarfylkingin, hefur hvaðeftir annað fariö þess á leit að Bandarikin hætti stuðningi sinum við stjórn E1 Salvador — og meðal þeirra sem undir þá kröfu taka eru ýmsir helstu sósialdemókratarnir i Evrópu. Fróðlegar áætlanir Bandariska stjórnin heiur ab sinu leyti reynt ýmislegt til að fá m.a. vesturþýska sósialdemó- krata til að taka aðra afstöðu og hagstæðari valdhöfum i E1 Salvador, einnig spænska, portúgalska og breska sósial- ista. Sá sem stendur að þvi að senda „óháða óbreytta borg- ara” I áróðursferðir i þágu stjórnar E1 Salvador og styrj- aldar hennar gegn eigin þjóð heitir William Bowdler, sér- fræðingur utanrikisráðuneytis- ins i málum Rómönsku Amer- iku. Bowdler hefur unniö ýmis- leg fróðleg störf: hann hefur unnið að skipulagningu við- skiptabanns á Kúbu eftir bylt- inguna þar, að þvi að steypa vinstristjórn i Guatemala 1954 og að innrás bandariskra land- gönguliða i Dóminiska lýðveld- inu 1965. Einn af höfundum þeirrar áætlunar, að senda „fjóra óháöa menn” i Evrópureisu heitir Constantine C. Menges, sem hefur starfað við ihaldsvirki það sem kallast Hudson Institute. Menges er höfundur áætlana um það, hvernig megi með hófleg- um umbótum i sveitum Róm- önsku Ameriku koma i veg fyrir sókn vinstrihreyfinga þar i álfu. Meðal þeirra sem Menges mælti með við Bowdler var Michael Hammer. Hann hefur starfað i E1 Salvador fyrir AIFLD, (Ameriska stofnun um þróun frjálsra verkalýösfé- laga), sem er almennt álitin úti- bú frá CIA, og hefur einkum það verkefni að koma á fót i álfunni „gulum” verkalýðsfélögum, sem þægilegri séu i meðförum en þau „rauðu”. Annar er Roy Prostermann, sem kom við sögu „hreinsunaráætlunarinnar” Fönix i Vietnam: kostaði sá hernaður 45 þúsundir manns lifið. Það er rakið til hans, aö þegar fitlað var við jarðnæðis- skiptingu i E1 Salvador i fyrra, þá var helstu kaffibarónum landsins hlift. //Yfirsjón" Menges hefur i samtali við vesturþýska vikuritið Stern komist svo að orði, að SPD (Sósialdemókrataflokkurinn þýski) fremdi „mikla yfirsjón er hann gengur i bandalag við óvini lýðræðis, framfara og Bandarikjanna” — og á þar við vinstrifylkinguna i E1 Salvador. „Ef að þessu heldur áfram, þá getur það leitt til alvarlegra vandamála i samskiptum Þýskalands og Bandarikj- anna”. Og þetta var, vel á minnst, sagt áðuren Ronald Reagan tók við völdum og þeir ráðgjafar hans og ráðherrar sem hafa hátt um að „við skulum meöhöndla óvini sem óvini”. En hitt er vit- að, að enn hefur Alþjóðasam- band sósialdemókrata ekki horfið frá fyrri afstöðu: i gær mátti lesa það i Alþýðublaðinu, að alþjóðasambandiö „skorar á allar erlendar stjórnir að hætta öllum stuðningi, beinum og óbeinum við stjórn Duartes” i E1 Salvador. Og itrekaði i leið- inni stuðning við þjóðfrelsisöflin 1 landinu — áb. — ih

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.