Þjóðviljinn - 30.01.1981, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 30.01.1981, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. janúar 1981 fÚTBOЮ Tilboð óskast i að byggja undirstöður geyma á Grafarholti, 2. áfanga, fyrir Hitaveitu Reykjavikur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3, Reykjavik. Tilboðin verða opnuð á sama stað mið- vikudaginn 18. febr. kl. 11.00 f.h.. INNKAUPASTOFNUNREYK3AVIKURBORGAR Fnkirk|uvegi 3 — Sími 2S800 • r um Alþýðubandalagið i Reykjavik boðar til almenns féiagsfundar um nýsamþykkta fjárhagsáætiun Reykjavikurborgar og starfið að borgarmáium til loka kjörtimabilsins. Fundurinn veröur á Hótel Esju þriðjudaginn 3. febrúar og hefst hann klukkan 20:30 stundvislega. DAGSKRA: 1. Sigurjón Petursson, forseti borgarstjórnar flytur framsögu um nýsamþykkta fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar. 2. Umræöuhópar starfa. Að loknu framsöguerindi veröur fundin- um skipt upp i 4—6 umræðuhópa sem fjalla munu um megin- málaflokka borgarmála. i þessum hópum munu fulltrúar félagsins i nefndum og ráðum borgarinnar sitja fyrir svörum um sinn málaflokk og taka við ábendingum fundarmanna um starfið framundan. Fundargerðir þessara umræðuhóða Fundargerðir þessara umræðuhópa verða siöan sendar borgarmálaráöi félagsins til umfjöllunar. 3. Almennar umræður. Að loknu starfi umræðuhópa verða siðan almennar umræður um borgarmálin. Fundarstjóri: Hörður Bergmann Félagar fjölmennið og Velunnarar og stuðningsmenn takið meðykkur gesti Alþýðubandalagsins eru velkomnir. Stjórn Alþýðubandalagsins I Reykjavik Sigurjón Pétursson Hörður Bergmann, Staöa heyrnarfræðings (sérkennara sérmenntaðs I heyrnar- kennslu) er laus til umsóknar við Heyrnar- og tal- meinastöð íslands. Staðan veitist frá 1. april 1981. Usóknarfrestur er til 1. mars n.k.. Umsóknir sendist stjórn Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands, Háaleitisbraut 1, Reykjavik, pósthólf 5265. Simi 83855. Skúrkarnir yfirheyrðir. A þessari mynd má sjá hvernig sviðið hefur verið byggt fram I salinn á þrem- ur pöllum. — Ljósm.: —gel. Herranótt ber og allir lenda i sinu rétta hjónabandi. Þegar Þjóðviljinn skrapp út á Seltjarnarnes á þriðjudagskvöld stóð yfir fyrsta raunverulega búningaæfingin. Verið var að leggja siðustu hönd á sköpunar- verkið, — sviðsmynd, búninga, ljós og annað smálegt. Æfingin hafði staðið frá kl. 14 þegar skólanum lauk og bjuggust menn við að halda áfram langt fram á kvöld. Þannig hafa undanfarnar vikur liðið á þeim bæ. Nemendur hafa sjálfir unnið við búninga- og tjaldagerð en tjöldin útfærði Friðrik Erlingsson nemandi i Myndlista- og handiða- skólanum með aðstoð Karls Aspelund. Smiðum stjórnaði Guðmundur Magnússon og Vala Gunnarsdóttir saumaskap, en saumastofan var lengst af heima hjá leikstjóranum. Of langt mál yrði að telja upp alla aðstandendur sýningarinnar og leikendur og látum við þvi myndirnar tala sinu máli. Þær tók ljósmyndari Þjóðviljans — gel. Sýningar verða sem hér segir i Félagsheimilinu á Seltjarnar- nesi: 1 kvöld, frumsýning, á sunnudagskvöld, mánudags- kvöld, þriðjudagskvöld og mið- vikudagskvöld og hefjast þær allar kl. 20.30. Miðasala er i Casa Nova, nýbyggingunni á lóð Menntaskólans i Reykjavik—AI. Aðalfundur Samlags skreiðarframleiðenda fyrir árið 1979 verður haldinn i Lækjar- hvammi að Hótel Sögu i Reykjavik föstu- daginn 13. febr. n.k. og hefst kl. lO.f.h., Dagskrá: Samkvæmt félagslögum og lagabreyting. Stjórnin. Berta Arsælsdóttir i hlutverki hirðmeyjar. Hér má sjá sendiboöa tilkynna komu aðalsmanns tii borgarinnar, hirðmeyjar, lagskonur og hefðarmeyjarnar tvær Beatrice og Hero fylgjast með. i kvöld frumsýnir Herranótt, leikfélag Menntaskólans i Reykjavik, gamanleikinn Ys og þys út af engu eftir William Shakespeare i þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Leikstjóri er Andrés Sigurvinsson en leikendur eru milli tuttugu og þrjátiu talsins og úr hinum ýmsu bekkjum skólans. Sýnt er i Félagsheim- ilinu á Seltjarnarnesi. Eins og fleiri klassiskir gleði- leikir er Ys og þys út af engu vel við hæfi ungra áhugaleikara en Helgi þýddi leikritið fyrir um það bil tiu árum fyrir Kennaraskóla Islands. Mun það vera eina skipt- ið sem það hefur verið sýnt hér. Erlendis er þetta leikrit mikið sýnt, m.a. sömdu Rússar ballett upp úr þvi og var hann sýndur hér af islenskum dönsurum á sinum tima. Söguþráðurinn i Ys og þys út af engu er flétta af misskilningi á misskilning ofan og auðvitað allt út af ástarmálum. Við sögu koma aðalsmenn og skúrkar. hefðar- meyjar og lagskonur. Að lokum sigrar auðvitað ástin eins og vera Erna M. Kojic eða Milu eins og hún er kölluð situr hér við sauma, en hún fer einnig með hirðmeyjarhlutverk i leiknum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.