Þjóðviljinn - 30.01.1981, Síða 11
Föstudagur 30. janúar 1981 þjöÐVILJINN — SIDA 11
S iþr6ttlrf7j íþröttir
/ ■ » ■t'msjén: Ingölfur Hannesson.
íþróttir
Rut æfir
í Kaliforníu
Hin efnilega hlaupakona Rut
Ólafsdöttir hefur að undanförnu
dvalist í San Jose i Kaliforníu við
æfingar og keppni. t San Jose
hafa einmitt fjölmargir tslend-
ingar dvalist á undanförnum
árum.
Rut tilkynnti fyrir nokkru
félagaskipti Ur FH yfir i KR og
mun þvi keppa með Vesturbæjar-
liðinu i sumar.
— IngH
Skólamót og
firmakeppni
Akveðið er að halda skólamót á
framhaldsskólastigi og firma-
keppni i handknattleik i febrúar
n.k.
Þátttaka tilkynnist til Hand-
knattleikssambandsins fyrir 31.
jan. n.k. Þáttökugjald I skólamót-
inu er kr. 650.00 fyrir hvert lið og i
firmakeppninni kr. 1000.00 fyrir
hvert lið.
Óskaðer eftir að þátttökuaðilar
tilnefni forsvarsmann fyrir hvert
lið.
Körfubolti
og pólitík
t gær og I fyrrakvöld fóru fram
2 leikir á milli israelska liðsins
Macabi og TSKA frá Sovétríkjun-
um og voru þeir liður i Evrópu-
keppninni i körfuknattleik.
Það var æði erfitt að finna
keppnisstað fyrir þessa leiki þvi
Sovétrlkin og Israel hafa hvorki
með sér stjórnmálalegt né
iþróttalegt samband. Þrauta-
lendingin varð þvi sú, að leikimir
fóru fram i Belgiu og var þar ansi
heitt i kolunum, þvi meðal áhorf-
enda voru margir landflótta
Sovétmenn...
-IngH
Franska handboltalandsliðið leikur sin» annan leik hér á landi
að sinni I kvöld i hinu nýja og glæsilega iþróttahúsi I Keflavik.
Hefst slagur Frakkans og landans kl. 20. Forleikur á milli 3.
deildar liös tBK og unglingalandsliðsins hefst kl. 18.45.
Frakkarnir sigruðu landann i fyrsta leiknum, sem fram fór i
Laugardalshöllinni i fyrrakvöld, með 22 mörkum gegn 21. Er
næsta vist að islensku strákarnir ætla að ná fram hefndum...
Þess skal getið, að leikurinn i kvöld er fyrsti handboltalands-
leikurinn, sem fram hefur farið i Keflavik.
[Þorbergur Aðalsteinsson er galdramanni Ifkastur þar sem hannj
læðir knettinum inn á linuna I leiknum i fyrrakvöld. Ekki ættu
islensku strákarnir að þurfa að beita fyrir sig svartagaldri til
þess að sigra i kvöld: yfirvegaður leikur og baráttugleði er allt.
sem þarf. — Mynd: — gel.
/
Island og
F rakkland
leika kl.
20 í kvöld
Fyrirliði Hauka í
herbúðir
Daniel Gunnarsson, fyrrum
fyrirliði knattspyrnuliðs Hauka,
sem lék i l.deild sl. sumar, hefur
tilkynnt félagaskipti úr Haukum i
Þrótt, Reykjavík.
Þróttar
Daniel var einn af máttar-
stólpum Haukaliðsins og kemur
þvi til með að styrkja Þrótt veru-
lega.
Hreinn og Óskar
á EM innanhúss
Kúluvarpararnir sterku, Hreinn
og óskar, munu keppa á EM inn-
anhúss.
Akveöið hefur verið að Hreinn
Halldórsson og óskar Jakobsson,
taki þátt I Evrópumótinu i frjáls-
um iþróttum, sem fram fer I
Grenoble i Fakklandi 21. og 22.
febrúar nk. Þeir Óskar og Hreinn
munu keppa I kúluvarpi og hafa
þeir undirbúið sig af kappi fyrir
keppnina. Þess má geta, að
Hreinn varð Evrópumeistari I
kúluvarpi innanhúss árið 1977, en
þá fór keppnin fram I San Se-
bastian á Spáni.
Þá er stjórn Frjálsiþróttasam-
bandsins að athuga þann
möguleika, að millivegalengda-
hlaupararnir Jón Diðriksson og
Ragnheiður ólafsdóttir keppi i
Grenoble, en ekkert hefur enn
verið afráðið i þvi efni. Jón og
Ragnheiður dveljasti Köln i Vest-
ur-Þýskalandi við nám og
æfingar og hafa náð mjög góðum
árangri á innanhússmótum und
anfarið. — IngH
Beniflca-leikmenn
í nær öllum stööum
Fyrir nokkru sigraði Portugal
tsrael i riðlakeppni HM i knatt-
spyrnu 3-0. Þessi sigur er þó
einungis merkilegur fyrir þá sök,
að 9 leikmenn portugalska liðsins
eru frá Benfica.
Þetta minnir okkur á sovéska
landsliðið fyrir nokkrum árum,
hvað eingöngu skipuöu leikmenn
frá hinu fræga liði Dynamo Kiev.
Oddur Sigurðsson og Aðalsteinn Bernharðsson eru meðal þeirra sem
hafa sagt skilið við KA að undanförnu. Oddur mun keppa fyrir KR og
Aðalsteinn fyrir UMSE.
Meginuppistaðan úr
karlaliði KA farin
Hætt er viö þvi, aö KA muni
eiga i erfiðleikum með að smala
saman karlaliði til þess að keppa
fyrirhönd félagsins i Bikarkeppni
Frjálsiþróttasambandsins næsta
sumar þvi 6 helstu keppnismenn
KA frá siðasta sumri eru horfnir
á braut. Hér er um að ræöa þá
Aöalstein Bernharðsson, Véstein
Hafsteinsson, Odd Sigurðsson,
Hjört Gislason, Egil Eiðsson og
Jón Oddsson.
Hjörtur, Jón og Oddur ákváöu
fyrir nokkru að keppa fyrir hönd
KR og hitta þeir þar fyrir geysi-
öflugan flokk afreksmanna, sem
hefur gengið til liðs við
Vesturbæjarstórveldið að undan-
förnu. Vésteinn tilkynnti félaga-
skipti yfir i sitt gamla félag, HSK,
fyrir áramót og verður hann þvi
gjaldgengur á Landsmóti UMFÍ i
sumar. Sama hugmyndin lá að
baki félagaskiptum Aðalsteins,
sem fór yfir i UMSE og Egils,
sem mun keppa fyrir UtA. Þeir
ætla sér að vera með á Lands-
mótinu á Akureyri.
Eftir situr KA með sárt ennið
og nær enga keppnismenn i frjáls-
iþró.ttaliðinu. Þess skal getið, að
einungis Hjörtur og Aðalsteinn
eru frá Eyjafiröi, hinir voru
aðkomumenn.
— IngH
Fótboltavalkyrjurnar tóku sig til og stofnuðu
Knattspyrnusamband
kvenna á Englandi
Ariö 1921 sá enska knatt-
spyrnusambandið (FA) ástæðu til
þess að senda frá sér ályktun þess
efnis, að knattspyrnuiðkun væri
alls ekki við hæfi kvenna og að
ekki ætti að hvetja þær til þess að
leika knattspyrnu...
Konur hafa leikið fótbolta á
Bretlandseyjum i rúm 100 ár, en
þær hafa ávallt mætt miklu and-
streymi hjá karlþjóðinni, sem er
vist ekki þekkt fyrir frjálslyndi i
þessum efnum. A árunum milli
1960 og 1970 jókst sá f jöldi kvenna
sem lagði stund á knattspyrnu i
Englandi hröðum skrefum og þær
reyndu allt hvað þær gátu til þess
að fá viðurkenningu Knatt-
spy-rnusambandsins, en komu
ávallt að lokuðum dyrum.
Þrautalendingin varð þvi sú að
árið 1969 var stofnað Knatt-
spyrnusamband kvenna i Eng-
landi (WFA) og voru fulltrúar 51
félags á stofnfundinum.
Vöxtur WFA á þeim 11 árum
Knattspyrnusamband Englands lét þau boð út ganga að fótboiti væri •
einungis ætlaður karlmönnum...
sem siðan eru liðin hefur verið
ævintýri likastur. Nú eru 280 félög
innan sambandsins með 6 til 7
þús. meðlimi. Þá hefur England
leikið 31 landsleik. Landsliðs-
konurnar lögðu hinar skosku
stöllur sinar að velli i fyrsta
leiknum, 3-1, og voru þá rétt 100
ár frá þvi að sömu þjóðir léku
sinn fyrsta karlalandsleik.
Munurinn var einungis sá, að nú
sigraði England. Þetta sveið
mörgum karlinum sárt...
— IngH
Badmintonmenn með fyrírtækja-
keppni til styrktar unglmgastarfinu
t byrjun febrúar veröur haldin
svokölluð „fyrirtækja- og
stofna nakeppni” á vegum
Badmintonsambands tslands.
Hér er um að ræða útsláttar-
keppni i tviliða- og tvenndarleik.
öllum ágóða verður varið til
þess að styrkja islenska unglinga
vegna þátttöku þeirra á NM ung-
linga, sem fram fer i Finnlandi.
Þátttökugjald er 300 nýkr. á liö.