Þjóðviljinn - 30.01.1981, Page 16
MOÐVIUINN
Föstudagur 30. janúar 1981
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tíma er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn
blaðsins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að
ná i afgreiðslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur slma 81348
og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Fóstrur i Hafnarfirði, Kópavogi
og Seltjarnarnesi:
Segja
Fóstrur i Hafnarfirði, Garðabæ
og Seltjarnarnesi hafa ákveðið að
leggja inn uppsagnarbréf fyrir 1.
febrúar vegna óánægju með sér-
kjarasamninga. Um 500 börn eru
á dagvistarheimilum i þessum
sveitarfélögum en sem kunnugt
er hafa fóstrur i Reykjavik og
Kópavogi einnig sagt upp frá
sama tima og fóstrur á Akureyri
hætta störfum 11. febrúar n.k.
Ekki hefur enn verið gengið frá
sérkjarasamningum við fóstrur á
Seltjarnarnesi en þær hafa fregn-
að að þeim verði úthlutað sömu
kjörum og sérkjarasamningar i
upp
Reykjavfk, Hafnarfirði og Garða-
bæ kveða á um.
Þann 27. þessa mánaðar héldu
fóstrur úr þessum þremur bæjar-
félögum sameiginlegan fund i
Hafnarfirði og kom þar fram
mikil óánægja með niðurstöðu
þessara mála. Benda fóstrur á að
i lögum um byggingu og rekstur
dagvistarheimila eru ákvæði um
að forstöðumenn og starfslið sem
annast fósturstörf skuli hafa hlot-
ið fósturmenntun og munu upp-
sagnir þeirra þvi þýða að dag-
vistarstofnanir i þessum sveitar-
félögum munu ekki geta starfað
eftir 1. mai — ef ekkert verður að
gert. ai.
Eftírlit með
öllu vöruverði
Um þessi mánaðamót mun
Verðlagsstofnun að venju undir-
búa útreikning visitölu
framfærslukostnaðar með þvi að
safna saman verðlistum yfir allar
þær tegundir vöru og þjónustu
sem i visitölunni eru. 1 þetta sinn
verður verkefnið þó viðameira
þar sem einnig verður tekið upp
verðá vörum sem ekkihafa verið
undir verðlagseftirliti vegna
hertrar verðstöðvunar.
Georg ólafsson, verðlagsstjóri,
sagði i gær aö Verðlagsstofnun
hefði einnig safnað vörulistum
um áramótin, þegar verðstöðv-
unin skv. bráðabirgðalögum
rikisstjórnarinnar tók gildi, go
fæst nú samanburður og upplýs-
ingar um allar breytingar sem
orðið hafa frá þeim tima. Sagði
Georg að ef þær þættu óeðlilegar
að einhverju leyti yrði leitað eftir
skýringum á þvi en þessi auka-
lega verðúttekt 1. janúar er liður i
átaki stofnunarinnar til þess að
fylgja eftir lögum um herta verö-
stöðvun.
Georg lagði áherslu á að það
væru ekki aðeins þær vörur sem
eru inni i visitölunni sem væru
undir sjásjánni þessa dagana, —
einnig yrði fylgst með öðrum
vörutegundum þannig að jafnt
gengi yfir alla. Sin stefna væri að
halda þessum verðúttektum
áfram mánaðarlega svo lengi
sem verðstöðvunarlögin giltu.
— AI.
r
nýjun á
Vestur-
Nú stendur yfir gagn-
ger endurnýjun á húsinu
númer 29 við Vesturgötu,
eign Þorsteins Jónssonar,
forstöðumanns Listá-
safns AS(.
Hús Ottós N. Þorlákssonar að Vesturgötu 29. Þorkell Valdimarsson gaf
IVIFA húsið til minningar um Ottó, en þaö hefur nú verið selt og veröur
endurbyggt sem ibúðarhús. Siðast versiuðu hjónin Svava og Ingólfur
Guðmundsson i húsinu, eða til síðustu áramóta. — ljósm:Eik
Hendrik Ottósson hefur i
skrifum sinum sagt frá mörgum
merkum atburði tengdum
Vesturgötunni, eins og húsið var
jafnan kallað, meðal annars
telur hann i bók sinni Hvita
striðið að fyrsta stjórnmála-
félag sósialista á Islandi hafi
verið stofnað þar i janúar 1917.
Húsið er mjög illa farið, enda
hefur það verið forskalað beint
á tréð. En i ráði er að endur-
reisa það i upphaflegri mynd
sem ibúðarhús.
— Bó
götu
Gagn-
ger
endur-
■
✓
I byggingu á höfuðborgarsvæðinu:
Húsnæði fyrir nær 400
sjúkrarúm fyrir aldraða
Nú eru i byggingu á
höf uðborgarsvæðinu
sjúkrahús og stofnanir
fyrir nær 400 aldraða sjúk-
linga og hafa ríkið,
sveitarfélög og einstak-
lingar lagt til þeirra á
annan miljarð gamalla
króna í ár. Byggingarnar
eru misvel á veg komnar
og þrátt fyrir gífurlega
aukningu á framkvæmd-
um á þessu sviði er nauð-
synlegt að tryggja 50-100
rúm til viðbótar á allra
næstu misserum.
Þetta kom m.a. fram hjá Svav-
ari Gestssyni, heilbrigðisráð-
herra, i Morgunpósti i gær-
morgun en á þeim vettvangi
hefur að undanförnu verið fjallað
nokkuð um aðbúnað aldraðra á
höfuðborgarsvæðinu. Þjóðviljinn
ræddi við Svavar I gær og lagði
hann áherslu á að I þessum efnum
dygðu ekki fögur orö og upphróp-
anir heldur athafnir og fjármögn-
un.
Þetta er spurning um að hve
miklu leyti þeir einstaklingar I
þjóöfélaginu sem hafa fulla heilsu
og atvinnu, eru tilbúnir til þess aö
taka á sig aukna skattbyrði til að
Tryggja þarf 50-
100 rúm til
viðbótar,
segir Svavar
Gestsson,
heilbrigðisráð-
herra
bæta þjónustumöguleikana við
þessa kynslóð. Þetta er spurning
um pólitik og pólitiska afstöðu
manna, sagði Svavar.
— Hver er ástæðan fyrir þvi að
menn eins og vakna til vitundar
um þennan vanda á allra siðustu
árum?
Ein skýringin er sú að fyrir um
10 árum siöan litu menn svo á að
bættur aðbúnaöur aldraðra væri
verkefni einstaklinga og áhuga-
manna, sagði Svavar. Vaxandi
fjöldi ellillfeyrisþega á höfuð-
borgarsvæöinu umfram fdlks-
fjölgun á einnig þátt i þvi. Það eru
ekki nema nokkur ár siöan opin-
berir aðilar tóku við sér og áttuðu
sig á þvi að stefnumótun i þessum
efnum er verkefni þeirra. T. d.
hefur Reykjavikurborg á undan-
förnum árum gert verulegt átak i
húsnæðismálum aldraðra með
byggingu dvalarheimila sem
fjármagnaðar hafa verið með
ákveðnum hluta af útsvarstekj-
um.
Nú er vart deilt um það lengur
að þetta er i verkahring rikis og
sveitarfélaga og á fjárlögum
þessa árs er variö um 840 mill-
jónum gamalla króna til fram-
kvæmda við byggingar sjúkra- og
hjúkrunarheimila fyrir aldraða
sjúklinga. Auk þess vinnur heil-
brigöisráðuneytið nú að smiði
frumvarps um heilbrigðis- og
vistunarþjónustu fyrir aldraða og
miðar það m.a. að bættri nýtingu
þeirra bygginga sem þegar eru til
og nýju skipulagi á allri öldrunar-
þjónustu.
291 rúm
í augsýn
— Hvernig er ástandið i dag?
A landinu öllu eru 1918 rúm á
dvalarheimilum og hjúkrunar- og
endurhæfingardeildum fyrir
aldraða sjúklinga,en auk þess er I
byggingu hér á höfuðborgarsvæð-
inu húsnæði fyrir 291 rúm fyrir
utan Hjúkrunarheimili Reykja-
vikurborgar við Snorrabraut,
sem rúma mun tæplega 110
manns.
B-álma Borgarspitalans, sem
ljúka á uppsteypu við i haust mun
rúma 174 sjúkiinga. Verklok þar
eru áætluð i árslok 1984 en bygg-
ingin verður tekin i notkun i
áföngum fyrir þann tima.
Á dvalarheimili aldraðra,
DAS i Hafnarfirði er i byggingu
húsnæði fyrir 79 rúm og á
Hjúkrunarheimili Kópavogs
verða 39 rúm. Hjúkrunarheimilið
i Kópavogi verður tilbúið I árs-
byrjun 1982 og DAS I Hafnarfirði I
árslok 1983.
— Hvernig skiptast fjárveit-
ingar rikisins til þessara fram-
kvæmda i ár?
1 B-álmuna er veitt 635 miljón-
um gamalla króna til viðbótar við
framlag frá Reykjavikurborg. 1
DAS i Hafnarfirði er veiit 130
miljónum og 78 miljónum til
hjúkrunarheimilisins i Kópavogi.
Til samanburðar má geta þess að
á fjárlögum er til samans veitt
riflega 5 þúsund miljónum
gamalla króna til bygginga allra
sjúkrahúsa og heilsugæsiustöðva
i landinu og er það hæsta hlutfall
af fjárlögum miðað við fram-
kvæmdamátt siðan lög um heil-
brigðisþjónustu tóku gildi. Tæp-
lega 18% eða 840 miljónir fara til
framkvæmda fyrir aldraða
sjúklinga en allar þessar tölur
hafa hækkað verulega umfram
verðlag á milli ára.
Svavar Gestsson
— Nú segirðu að á dvalarheim-
ilum sé pláss fyrir 1918 manns, —
er ekki mikið af öldruðum
sjúklingum á venjulegum
sjúkrahúsum?
Menn giska á að á sjúkrahúsun-
um séu um 800 aldraðir langlegu-
sjúklingar. Þetta þýðir aö sam-
tals erum við með 2700 sjúkrarúm
fyrir aldraða og er það hærra
hlutfall en á hinum Norðurlönd-
unum. Þeir erfiðleikar sem við nú
stöndum frammi fyrir benda þvi
til þess að það sé fyrst og fremst
skipulag þessara mála, m.a.
nýting þessara rúma sem ekki sé
i nógu góðu lagi.
Vaxandi viðfangsefni
— Ennúmásamt betur ef duga
skal?
Já, — nú eru 19.800 Islendingar
67 ára og eldri og miðað við spár
Þjóðhagsstofnunar um mann-
fjölda fram til aldamóta má gera
ráð fyrir þvi að i þessum aldurs-
hóp fjölgi um tæplega 8000 á
næstu 20 árum. Það er þvi
augljóst að þó framkvæmdir við
þær byggingar sem ég nefndi
gangi vel, þá er hér um vaxandi
viöfangsefni aö ræða og menn
verða að gera það upp við sig að
hve miklu leyti þeir vilja leysa
það með nýjum byggingum eða
aukinni heimilisþjónustu.
Framhald á bls. 13