Þjóðviljinn - 07.02.1981, Page 7
Helgin 7.— 8. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Hinn glæsi-
legi togari
BÚR skírður
eftir fyrsta
forseta ASÍ:
Ottó N. Þorláksson, hinn nýi og
glæsilegi togari Bæjarútgerðar
Reykjavikur var skirður við
hátiðlega athöfn i skipasmiða-
stöðinni Stálvik i gær að við-
stöddu miklu fjölmenni.
Margrét dóttir Ottós heitins
ÞorláksSonar, fyrsta forseta
Alþvðusambands fslands, gaf
skipinu náfn. Hún mælti við það
tækifæri: Megi gæfa og gengi
fylgja hinu nýja skipi.
Athöfnin hófst með þvi að Jón
Sveinsson, forstjóri Stálvikur
bauð gesti velkomna og lýsti
siðan hinu nýja skipi.
Nýtt skrokklag
Togarinn er alfarið hannaður af
islenskum tæknifræðingum undir
stjórn Siguröar Ingvasonar,
skipatæknifræðings.
Bæjarstjórn Garðabæjar færði Margréti Ottósdóttur blóm eftir að hún hafði skýrt togarann eftir föður
sinum, fyrsta forseta ASÍ. Frá vinstri, Gunnar Thoroddsen, Sigurjón Pétursson, Margrét Ottósdóttir.
Þvi miður þekkjum við ekki ungu stúlkuna sem afhendir blómin. Ljósm. —gel.
ARFELLSSKILRÚM
úr Ijósri furu og bæsaðri eik. Sérhörwuð fyrir yður — gerum verðtilboð.
Eflum atvinnulifið
i Reykjavik
Siðar i ræðunni sagði Björgvin:
,,A undanförnum áratugum
hefur sjávarútvegi hnignað mjög
i Reykjavik. Borgarstjórn
Reykjavikur hefur unnið að þvi
undanfarin ár að reyna að snúa
þessari þróun við. Skipakaup
Bæjarutgerðar Reykjavikur eru
liður i þeim aðgerðum að efla at-
vinnulifið i Reykjavik, þær eru
þáttur i þvi að efla sjávarútveg i
Reykjavik á ný.”
Það kom ennfremur fram hjá
Björgvini að gert er ráð fyrir að
skipið kosti um 50 miljónir nýkr.
og vonast er til að það geti hafið
veiðar i næsta mánuði.
Athöfnin endaði með þvi að Jón
Sveinsson færði Margréti Ottós-
dóttur gullnælu að gjöf til stað-
festingar þvi að hún hefði gefið
skipinu nafn. bó
Það sem einkum einkennir
hann er að skrokkur skipsins er
með nýju lagi, sem er hannað af
þeim Stálvikurmönnum. Við það
höfðu þeir sérstaklega i huga búr-
hveli, sem syndir allra hvala
hraðast. Þetta byggingarlag
hefur vakið mikla athygli hér
heima og erlendis og byggja for-
ráðamenn Stálvikur miklar vonir
við það. Hafa þeir skýrt það Búr-
lagið.
Það sem haft var i huga við
skipsbygginguna voru eftirtalin
þrjú aðalmarkmið:
1. Vandað skip sem henti til fisk-
veiða við island.
2. Betra skipslag sem leiði til
oliusparnaðar.
3. Öruggara skip, en togvirar
þess eru ekki á aðalþilfari.
íslensk smiði
Togarinn Ottó N. Þorláksson
RE-203 er ca. 499 brúttó
rúmlestir, 57 metra langur, 10,3
metra breiður og 7,3 metra
djúpur. Lestarrými er 660 rúm-
metrar og er hægt að kæla lest
niður i 0 gráður á C.
Skipið er skuttogari með búnaði
fyrir veiðar með botn- og flot-
vörpu, og er búið öllum fullkomn-
ustu siglinga og fiskileitar-
tækjum.
Stálvik annaðist alla stál- og ál-
vinnu, svo og niðursetningu véla
og tækja. Rafboði hf., Garðabæ
sér um raflagnir, Nökkvi hf.
Garðabæ annast innréttingar og
Börkur hf. Hafnarfirði einangraði
fiskilestar.
Togarinn er þvi algerlega
islensk smiði. Jón Sveinsson
þakkaði i lok ræðu sinnar sam
starfið við forráðamenn BOR,
sem hefði verið einstaklega gott.
Hann sagðist stoltur af hönnuðum
skipsins og einnig þeim sem að
smíði þess hefðu unnið. Hann
taldi að senn kæmi að þvi að hægt
yrði að selja skip af þessu tagi til
annarra landa og flytja út is-
lenska tækniþekkingu i fiski-
skipasmiði.
Heiðrum minningu
látins verkalýðsleiðtoga
Björgvin Guðmundsson
formaður Utgerðarráðs BGR, tók
þessu næst til máls. Hann sagði
m.a.:
Hér hefur i dag gerst ánægju-
legur atburður. Hinum nýja,
myndarlega skuttogara Bæjarút-
gerðar Reykjavikur, sem
smiðaður er hjá Stálvik, hefur
verið gefið nafn. Togarinn hefur
hlotið nafnið Ottó N. Þorláksson.
Þar fer vel á þvi,að þessi fyrsti
togari sem Bæjarútgerð Reykja-
vikur lætur smiða innanlands
skuli bera nafn fyrsta forseta
Alþýðusambands Islands. A s.l.
ári bættist Bæjarútgerð Reykja-
vikur nýr, glæsilegur skuttogari,
sem smiðaður var i Portúgal. Sá
togari hlaut nafnið Jón Bald-
vinsson, þ.e. nafn þess manns, er
var annar forseti Alþýðusam-
bands Islands. Ég tel við hæfi, að
BæjarUtgerðin skuli heiðra minn-
ingu látinna verkalýðsleiðtoga
með þvi að láta ný skip útgerðar-
innarbera nöfn þeirra. Bæjarút-
gerðin er eign Reykvikinga allra
og þar á meðal eign reykviskra
verkamanna og sjómanna.
Eins og ég sagði áðan, þá er hið
nýja skip sem við höfum skýrt hér
i dag hið fyrsta, er Bæjarútgerð
Reykjavikur lætur smiða hér
innanlands. Áöur hefur Bæjarút-
gerðin látið smiða 13 skip
erlendis. Það má þvi segja, að
með smiði þessa nýja, glæsilega
skips, sem við höfum skoðað hér i
dag og gefið nafn, séu þáttaskil i
stefnu Bæjarútgerðar Reykja-
vikur i togarasmiöi. Með þvi að
láta smiða þetta skip innanlands
vildi Bæjarútgerð Reykjavikur
efla innlenda skipasmiði.
Súðarvogi 28 — Sími 84630
Jón Sveinsson,
forstjóri Stálvíkur
Bindum
miklar
vonir
við
BÚR-
lagið
,,Við erum núna að hefja
smiði nýs togara fyrir
Hólmavik og Drangsnes,
með sama skrokklagi og
þetta nýja skip BOR”, sagði
Jón Sveinsson, forstjóri Stál-
vikur. ,,Við höfum enn-
fremur hannað fiskibáta sem
við viljum seriusmiða og
væntum mikils af þeirri
smiði. Við höfum fengið
mjög góðan stuðning við það
frá iðnaðarráðherra.
Ég vil benda á það að
mikið af bátum sem er i
notkun nú eru orðnir gamlir
og úr sér gengnir. Nú eru yfir
400 bátar i rekstri, sem eru
um eða yfir 20 ára gamlir.
Við bindum alveg sér-
stakar vonir við þetta nýja
Búr-lag bátanna. Hin virta
rannsóknarstöð sem annast
hefur prófun telur þetta
besta lag á skipi sem stöðin
hefur mælt af þessum
stærðarflokki”, sagði Jón.
Magnús Jósefsson, vara-
trúnaðarmaður i Stálvik, er
einn þeirra smiða sem unnu
við smiði Ottós. N. Þorláks-
sonar. Hann lýsti þessu nýja
BÚR-lagi svo að byrðingur
skipsins væri til muna
þykkari en bönd aftur á móti
færri. Hann kvaðst viss um
að það væri mjög traust-
byggt. Aðstöðu smiðanna
sagði hann hafa verið erfiða,
þar sem skipið væri alveg i
það stærsta sem hægt væri
að smiða i þessu húsi.
—BÓ
Ottó N. Þorláksson
sjósettur í dag
Merk nýjung í skrokksmíði hjá Stálvík