Þjóðviljinn - 07.02.1981, Blaðsíða 30

Þjóðviljinn - 07.02.1981, Blaðsíða 30
30 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 7.-8. febrúar 1981 Skrifstoiustarf Viljum ráða hið fyrsta skrifstofumann til bókhalds- og endurskoðunarstarfa á aðal- skrifstofunni i Reykjavik. Starfsreynsla æskileg. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknum með upplýsingum um mennt- un, aldur og fyrri störf óskast skilað fyrir 14. febrúar n.k. Vegagerð ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavik. Styrkir til framhaldsnáms iðnaðarmanna erlendis. Menntamálaráðuneytiö veitir styrki til iðnaðarmanna, sem stunda nám erlendis, eftir þvi sem fé er veitt i þessu skyni i fjárlögum 1981. Styrkir verða fyrst og fremst veíttir þeim, sem ekki eiga kost á styrkjum eða námslánum úr Lánasjóði islenskra námsmanna eða öðrum sambærilegum styrkjum og/eða lánum. Heimilt er þó, ef sérstaklega stendur á, að veita viðbótarstyrki til þeirra er stunda viðurkennt tækninám, ef fé er fyrir hendi. Styrkirnirerueingöngu veittir til náms erlendis, sem ekki er unnt að stunda hér á landi. Skal námið stundað við viðurkennda fræðslustofnun og eigi standa skemur en tvo mánuði, nema um sé að ræða námsferð, sem ráðuneytið telur hafa sérstaka þýðingu. Styrkir greiðast ekki fyrr en skilað hefur verið vottorði frá viðkomandi fræðslustofnun um að nám sé hafið. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamála- ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 1. mars næstkomandi. Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 28. janúar 1981. F ramkvæmdas t j óri Hlutafélagið NORÍS, sem er nýstofnað fiskiræktarfélag, óskar að ráða fram- kvæmdastjóra til að annast daglegan rekstur. Þarf að hafa nokkra reynslu við rekstur fyrirtækja og þekkingu á einu norðurlandamáli og ensku. Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist h.f. NORíS Vestur- götu 17, Reykjavik, fyrir 1. mars n.k.. Fjalakötturinn: Sérstök kynning Um þessa helgi eru sérstök kynningarskirteini til sölu I Fjalakettinum og gilda á fjórar næstu sýningar klúbbsins. Verð þessara skirteina er kr. 50- Siðan verður hægt að framlcngja þau, þannig að þau gilda út starfs- veturinn, með þvi að borga 30 kr. i viðbót. Þetta eru þvi 20 myndir fyrir 80 krónur. Fastir sýningartimar Fjala- kattarins eru á fimmtudögum kl. 20, laugardögum kl. 13 og sunnu- dögum kl. 19 og 22. Sýningar fara fram i Tjarnarbiói. Herranótt: Sýningar hefjast A morgun hefjast að nýju sýn- ingar Herranætur á gaman- leiknum ,,Ys og þys út af engu” eftir nokkurt hlé, sem varð vegna illvigrar inflúensu. Nú eru allir búnir aðná heilsu aftur og albúnir að hefja leik af tviefldum krafti. Uppselt er á sýninguna annað kvöld, Kommúnista- samtökin Stefnu- skrá kynnt Kommúnistasamtökin halda fimmta og siðasta fund sinn til kynningar á nýrri stefnuskrá mánudaginn 9. febrúar kl. 20.30 i kaffiteriu Hótel Heklu við Rauð- árstig. Fundarefni er utanrikismál, — alþjóðasamstarf, hermálið, er- lend stóriðja og afstaða kommú- nista til þeirra mála. Talsmaður Kommúnistasam- takanna verður Magnús Snæland en Einar Karl Haraldsson, rit- stjóri Þjóðviljans er gestur fundarins. veggeiningar Star Ódýru Star veggeiningarnar. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem vottuðu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför Jóns Guðbrandssonar Höfða. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði Landspitalans, einnig kirkjukór Kálfatjarnarkirkju og öðrum félagasamtökum er vottuðu hinum látna virðingu sina. Guð blessi ykkur öll. Asta Þórarinsdóttir, Guðbrandur Jónsson Börn, tengdabörn, barnabörn. Loksins komnar á hagkvæmu veröi. Húsgagnadeild Jón LoftSSOn hf. Hringbraut121 sími10 600 VR er leiðandi afl í launþegamálum og innan þess er fólk úr meira en 70 starfsgreinum 1891-1981 Vissir þú að það eru 10 þúsund félagar í VR? Magnús Ag. Magnúston, fjármálastjóri skipafélags. Krwtín Brynjólf»dóttir, flugafgreiöslumaður. Haukur Haralduon, afgreiðslumaöur f kjötverzlun. Þau eru í stærsta launþegafélagi landsins, Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur Aaa Gunnaradóttir, símavörður á bifreiðastöð. Jón Magnúaéon, afgreiðslumaður í varahlutaverzlun. vióskipti &verzlun Lifeyrissjóður SÍS Stjórn Lifeyrissjóðs SÍS hefur samþykkt að hækka verð- tryggingu á elli-, örorku- og makaiifeyri úr 80% í 90%. Kom hækkunin til framkvæmda um áramótin. Eins og kunnugt er hefur sjóðurinn smám saman verið að hækka verðtryggingu á iifeyris- greiðslum sinum. Hófst það 1976. Var þá tekin upp sú regla, að verðbæta hann með 2% fyrir hvern mánuð frá töku lifeyris til ársbyrjunar 1977. Árin 1978—1979 námu verðbæturnar siðan 70% og á siðasta ári voru þær 80%. Þetta þýðir, að nú eru 90% af upphaflegum lifeyri að fullu verð- tryggð. Ef tekið er dæmi af fyrr- verandi deildarstjóra hjá SIS, sem hefði á sinum tima farið á ellilifeyri með full lifey.ris- réttindi, þá heföi hann fengið 13.283 gkr. úr sjóðnum á mánuði. Ef ekkert hefði verið gert i verð- tryggingarmálunum stæði þessi krónutala óbreytt en með 90% verðtryggingu fékk þessi lifeyris- þegi nú i janúar 4.882 nýkr. — Lifeyris hjá sjóðnum njóta nú rúmlega 300 manns. Til þess að koma á þessari breytingu varð að taka upp þá stefnu, að visitölubinda frá siðustu áramótum öll ný ibúðalán sjóðsins með 2% vöxtum. A siðasta ári námu lánin 4,6 milj. gkr. og gátu lántakendur þá valið um að taka þau óverðtryggð með hávöxtum, sem voru 38%, eða verðtrygð. En nú eru eingöngu veitt visitölubundin lán en á móti kemur, að lánsupphæðin hefur hækkað verulega. Þeir, sem greitt hafa i sjóðinn i 5 ár, eiga nú kost á lOO.OOOnýkr. láni, (10 m. gkr.) en upphæð hlutalána og viðaukalána hefur ekki endanlega verið ákveðin. —mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.