Þjóðviljinn - 07.02.1981, Page 22
22. SUJA — ÞJÖÐVILJINN Helgin 7.-8. febrúar 1981
Minning:
Hákon Jónasson
Fæddur 11. okt. 1912—Dáinn 29. jan. 1981
Hann unni háttum hugumstórra
. byggða,
var hetjan mikla djörf og sterk.
Hann trúði á mátt og megin
fornra dyggða,
á miskunn guös og kraftaverk.
(Davið Stefánsson)
Hann Hákon er horfinn okkur
hérna megin lifs. Hann mun þó
lifa áfram i hjörtum okkar um
ókomin ár, enda fylgdi honum
ávallt birta og glaöværð, hvar
sem hann var og hvert sem hann
fór. Hann átti fáa sina lika.
Vinnusamari mann er varla hægt
að hugsa sér. Athafnasemi var
honum i blóö borin og voru
heiðarleiki og reglusemi hans
aðalsmerki. Þessir eiginleikar
hafa eflaust hjálpað honum mikið
til að sjá fyrir stórri fjölskyldu.
Við megum þó ekki gleyma eigin-
konu hans, Sigurborgu Karls-
dóttur, sem var hans styrkasta
stoð. Komu þau upp niu börnum.
Það var ekki hægt að hugsa sér
léttari og ræðnari mann en hann
Hákon. Við tölum nú ekki um, ef
hann fékk tækifæri til að taka
lagið i góðum hópi. Þá var hann
svo sannarlega i essinu slnu.
Eftirfarandi ljóðlinur voru hon-
um einkar hugleiknar:
ókviðnir skulum vér örlaga biða.
öruggir horfa til komandi tiða.
Ganga til hvildar með glófagran
skjöld,
glaðir og reifir hið siðasta
kvöld.
(Guðm. Guðmundss.)
Þykir okkur þær lýsa vel hans
innra manni.
Alltaf var gott að koma á
Skarphéðinsgötu 12. Voru oft
fjörugar umræður yfir kaffibolla I
borðstofunni. Avallt voru ein-
hverjar framkvæmdir framundan
sem þoldu enga biö, enda var ekki
verið að tvinóna við hlutina eða
slá þeim á frest. Nei, hann Hákon
var ekki mikiö fyrir slikt. A
sumrin átti sumarbústaðurinn
Borg hug hans allan, þar sem
hann undi sér vel með fjölskyld-
unni. Hann hafði stundum orð á
þvi, að hann hefði getaö hugsað
séraðgerast bóndi, enda var hann
fæddur og uppalinn i sveit, Borg i
Reykhólasveit. Börnin, tengda-
börnin og barnabörnin komu oft
saman um helgar I „Sumó”, eins
og bústaðurinn er oftast kallaður i
daglegu tali. Þá var oft glatt á
hjalla, sérstaklega hjá litlu afa-
börnunum.
En nú hefur Hákon blessaður
kvatt þennan heim. Það er varla
hægt að trúa þvi á þessari stundu.
Við heyrum ekki lengur munn-
hörpuhljóminn, sem kom öllum i
gott skap.
Megi minningin um glaðværð
og gáska okkar elskulega tengda-
föður vera fjölskyldunni huggun
harmi gegn. Með innilegri þökk
fyrir samveruna. ~ , ...
Tengdaborn.
Minning:
Guðjón Páll Amarson
— Dáinn 29. jan. 1981
Fœddur 9. des. 1967
„Dáinn, horfinn”! Harma-fregn'.
Hvílíkt orð mig dynur yfir!
En ég veit, að látinn lifir,
það er huggun harmi gegn.”
1 dag, laugardag 7. febrúar,
verður til moldar borinn frá
Hvammstangakirkju Guðjón Páll
Arnarson, er lést af slysförum
fimmtúdaginn 29.janúar aðeins 13
ára aö aldri.
Ég kynntist Guðjóni fyrst sem
og öðrum némendum minum er
ég réðst að Grunnskóla Hvamms-
tanga haustið 1979.
Hann kom mér strax fyrir
sjónir sem sviphreinn ungur
sveinn, þó örlitið dulur og fámáll,
en bros hans snart mann, frá þvi
geislaði hið bjarta, fagra og
barnslega sakleysi er yljaði um
hjartarætur.
Guðjón var prúður og háttvis
nemandi i orðsins fyllstu merk-
ingu. Minningar um góðan dreng
leita fram i hugann á þessari
sorgarstundu. Það er margs að
minnast, fátt eitt skal upp talið
hér, þær lifa. Ég minnist sam-
verustundanna er við áttum
saman i skólanum i starfi og leik,
þennan stutta tima er við áttum
saman hér á Hvammstanga.
Ahugamál hans voru fjölmörg
eins og annarra barna á mótunar-
skeiöi. Mér er þó efst i huga, að
hugur hans hafi leitað út á hið
mikla haf. — Ég minnist þess hve
augu hans urðu skær og leiftrandi
er talið barst að sjó og sjósókn. Út
á hafið horfði hann vonaraugum.
Nú er hann farinn yfir „móðuna
miklu” i þeim knerri er við öll
ferðumst með fyrr eða siðar.
„Einum of snemma,
hinn alvitri kallar”
NU er jarðvist hans
lokið, —- Guðjón Páll Arnarson er
horfinn sjónum okkar, ljósgeisli
augna hans slokknaður. En megi
það ljós, er þú tendraðir i brjóst-
um foreldra þinna, bræðra, skóla-
systkina, kennara, skyldmenna
og vina, verða að gróðursprota
fyrir betra mannlifi á þessari
jörð. Frá þeirri jörð er þú hvarfst
alltof fljótt, frá þeirri mold er
allir eru sprottnir frá og hverfa til
að lokum.
„Sá ungur andast
er ungur fullorðinn”
Ég undirritaður, nemendur og
starfsfólk skólans, vottum ást-
vinum hans okkar dýpstu
sarnúð, — Megi Guð styrkja þau i
hinni þungbæru sorg þeirra.
Hvfldu f friði
Eyjólfur Magnússon
skólastjóri
^ Hvammstanga.
Hann Guðjón er dáinn!Þessi
harmþrungnu orð, þó þau séu
ekki mörg, lama mann gjörsam-
lega og draga úr manni allan
mátt; ljósið hefur verið slökkt,
maður getur ekki mælt orð og
finnst sem lifið hafi tapað tilgangi
sinum, aðeins myrkur frám-
undan. En við verðum að vera
styrk og horfa fram á veginn,
biðja þann sem öllu ræður hér á
jörðu um styrk til að mæta þessu
áfalli sem kom svo skyndilega.
Guðjón var fæddur á Hvamms-
tanga 9. desember 1967 sonur
hjónanna Arnar Guðjónssonar
málarameistara og Siguróskar
Garðarsdóttur, var elstur af
þrem sonum þeirra. Mánaðar
gamall fluttist hann með foreldr-
um sinum til Bolungarvikur þar
sem þau voru vetrarlangt og faðir
hans stundaði sjómennsku en
fluttust siðan til Blönduóss og
bjuggu þar i nokkur ár. Fluttust
siðan til Reykjavikur þar sem
þau keyptu ibúð að Bergstaða-
stræti 64 þar sem fööurforeldrar
Guðjóns bjuggu þá, þau Kristin
ólafsdóttir og Guöbjartur Odds-
son málari. 1 Reykjavik áttu þau
siðan heima til 1973 er þau fluttu
til Hvammstanga og þar byggðu
Oddi og Sigga sér einbýlishús og
Oddi stofnaði sitt málningarfyrir-
tæki ásamt Vilhelm bróður sinum
og hefur starfað við það slðan.
Það sækja að mér ljúfar minn-
ingar um Guðjón, þennan mynd-
arlega dreng sem ég er búinn
að fylgjast með allt frá þvi er ég
flutti hann nýfæddan af sjúkra-
húsinu á Hvammstanga þegar
hann fæddist, i vondri færð út i
Hliö á Vatnsnesi þar sem móður-
foreldrar hans bjuggu þá. Ég sótti
lika þennan litla hnokka til
Reykjavfkur þegar foreldrar
hans komu frá Bolungarvik og
fluttu á Blönduós, og siðan 1975
hefur hann átt heima i næsta húsi
viö mig og verið daglega inni á
minu heimili. Oft kom hann til aö
spjalla eða fá eitthvað i hjólið sitt,
hann var börnunum minum
sannur vinur eins og öllum er
hann kyntist. Hann las mikið og
fékk ofthjá mér bækur til að lesa,
hann stundaöi iþróttir og vann til
verðlauna i hlaupum á siðasta
ári. Hann var rólegur en ávallt
kátur og brosandi, eyddi oft mikl-
um tima i að grúska ýmislegt eins
og titt er um unga drengi.
Sjórinn heillaði hann og fylgdist
hann mikið með útgerð hér á
staðnum. Oft fór hann með mér i
vörubilnum minum út um sveit-
irnar til Akraness eða þávestur i
Dali, hafði gaman af að sitja i
bilnum og ferðast og oft var hann
bUinn að rétta mér hjálaparhönd
við þessi störf eða þá við húsið
meðan ég var að byggjajvar alltaf
svo ljúfur og tilbúin að hjálpa.
Það er mikill harmur að okkur
kveðinn sem þekktum Guðjón, afi
og amma á Asbrautinni hafa
misst mikið, hann var svo mikið
hjá þeim, fór með þeim i ferðalög
i sumarfriunum þeirra eða þá i
fjárhúsin með afa þar sem hann
átti sina kind. Einnig amma og
stjUpafi sem hann var svo lengi
samvistum við á Blönduósi og i
Bergstaðastrætinu og þá ekki
siður Guðjón afi hans og nafni i
Gnoðarvoginumsem hann hélt
svo mikið upp á og allt hans fólk.
Ég bið guð að gefa foreldrum
hans og bræðrum styrk til að
mæta þessum harmi svo og öllum
aðstandendum og vinum, en ver-
um þakklát fyrir að hafa fengið
að vera með honum þó svo árin
yrðu aöeins þrettán. Nú skilja
leiðir um stundarsakir og eftir lif-
ir minning um góðan og elsku-
legan dreng.
Hvil þU i guðsfriði.
Eggert Garðarsson.
Áskrift
kynning
vió bjódum nýjum lesendum okkar
ÓKEYPIS ÁSKRIFT til næstu mánadamóta.
Kynnist bladinu af eigin raun, látió ekki
aóra segja ykkur hvaó stendur í
Þjóóviljanum.
sími 81333
DJOOVIUINN
Lækningastofa
Hef opnað lækningastofu i Domus
Medica, Egilsgötu 3, 5.hæð.
Viðtalspantanir i sima 15477.
Gunnar Valtýsson læknir
Sérgrein: Aljnennar lyflækningar, inn-
kirtla- og efnaskiptasjúkdómar (sykur-
sýki).
Miðsvetrargleði
Til fjáröflunar fyrir Hjúkrunarheimili aldraðra i Kópavogi held-
ur Kirkjufélag Digranesprestakalls miðsvetrargleði i Félags-
heimili Kópavogs (biósal) sunnudaginn 8. febrúar n.k. kl. 15.30.
Þeir sem halda uppi gleðinni eru:
Guðmundur Guðjónsson ásamt
Sigfúsi Halldórssyni.
Sigriður Hannesdóttir ásamt
Aage Lorange.
Grettir Björnsson.
Stefania Pálsdóttir.
Sigriður Magnúsdóttir.
Barnakór.
Unglingakór.
Kvartett.
Kynnir verður: Sigurður Grétar Guðmundsson.
Aðgöngumiðar verða seldir i Félagsheimilinu:
Laugardag kl. 14.00—19.00 og
Sunnudag frá kl. 14.00.
Sýnum samstöðu og mætum öll til styrktar
góðu málefni.
NEFNDIN.
Blaðberar
Þjóðvlljans!
Vegna Kvikmyndahátiðar verður þvi mið-
ur ekki hægt að sýna Blaðberabió um
þessa helgi. Vonandi verður hægt að bæta
ykkur upp missinn siðar !
DlOmiUINN Siðumúla 6 s. 81333.