Þjóðviljinn - 07.02.1981, Qupperneq 23
Sjötugur 8. febrúar
Runólfur Björnsson
Rundlfur Björnsson vann i
Prentsmiðju Þjóðviljans við
Skólavörðustig eitt af þeim
störfum; sem týnast vilja i
ágengni nýrrar tækni. Hann var
bræðslumeistari, sauð nýjar siður
úr þvi blýi sem við höföum notað
daginn áöur til að festa i orð boð-
skapinn.
En þvi fór fjarri að hann væri
einvörðungu hinn samviskusami
fulltriii efnafræðilegrar hring-
rásar i prentsmiöju sósialista-
blaðs. Hann hafði tilhneigingu til
að „bræða upp i fleiri en einum
skilningi þann boðskap sem var i
letur festur á efri hæðunum. Run-
ólfur var drjúgur þátttakandi i
þeim eilifðarumræðum um
ástand, markmið og leiðir, sem
alltafvorui gangi i Þjóðviljahúsi.
Hann hafði það fastahlutverk i
þeim málum að vara viö alls-
konar kratisma, sem laumast
gætium borð á hinnirauðu skútu.
Náttúrulega veröur það seint
rakið, og alls ekki hér, hver hafði
rétt fyrir sér i hverju einstöku
máli, en nú skal Runólfur hafa
þökk fyrir það, að hann hélt fim-
lega og skemmtilega á sinum
vopnum.
Og hann er maður vel fróður.
Runólfur er einn þeirra verka-
manna sem úr góðri greind,
þekkingu og áhuga á sögu og
marxisma, smfðaði sér lffsvið-
horf á timum harörar stétta-
baráttu. Það er mikils virði að
hafa kynnst slikum mönnum og
þar með öðlast, vonandi, nokkurn
skilning á þeirra kynslóð. Ég varð
að vísu aldrei lærisveinn Runólfs
eins og þeir Óli og Jörundur. En
hefi engu að siður góða ástæðu til
að þakka honum samstarf og
samtöl og einnig samveru i
austurvegi fyrir margt löngu.
Lifðu heill.
„Signdu blóðrauði
fáni vor
héluðu hár”
Árið 1955 ranglaði heldur ólán-
legur unglingur inn um gluggann
á húsinu númer 19 við
Skólavörðustig.
Það var að visu ekki alveg
óþekkt að menn bæri undarlega
að þessu húsi i ýmiskonar erinda-
gerðum, og hefðu þar langa við-
dvöl. Þannig var þetta með mig.
Eftir aldarfjórðung er ég enn við-
loða þá starfsemi sem þarna fór
fram.
Einn fyrsti maðurinn, ef ekki sá
fyrsti, sem ég kynntist i þessu
húsi var Runólfur Björnsson.
Þessi undarlega gefni Skaft- r
fellingur bar, og ber enn, mikinn
persónuleika. Menn urðu læri-
sveinar hans.
A þessu skeiði ævi minnar var
ég oröinn nokkurnveginn klár á
þvi að kommúnisminn væri betri
kostur en annað. Þó voru eftir i
mér nokkrar borgaralegar leifar
úr uppeldinu. Ég asnaðist til að
opinbera þessar pólitisku veilur
fyrir Runólfi, þegar ég sagði hon-
um að Benjamin Franklin og
H.G. Wells væru minir menn.
Aðdáun min á þessum
persónum var að visu ekki af
sömu rót. Benjamin dáði ég
vegna þess að hann drakk ekki
brennivin og á meðan félagar
hans i prentsmiðjunni þömbuðu
bjór i tima og ótima, þá drakk
Benjamin vatn og át rúsinur.
Þetta hafði þau áhrif að Benja-
min Franklin blés ekki úr nös þó
að hann hlypi milli hæða i prent-
smiðjunni með stóra pappirs-
hlaða i fanginu, en
bjórþambararnir voru hinir
mestu ónytjungar.
H.G. Wells dáði ég hins vegar
vegna þess að hann skrifaði
merkilega veraldarsögu og þessi
veraldarsaga var oftar en hitt
eitthvaðá dagskrá heima hjá mér
þegar heimilisfólkið sat að
snæðingi eða þreyði dimm
skammdegiskvöld.
Þessi ósköp öllsömul þótti
Runólfi Björnssyni vond latina og
hann kalíaði mig niður i pappirs-
kompu og eyddi miklum tima i að
útrýma þessum villukenningum.
Þegar upp var staðið reyndust
þessigoð min ekki vera annað en
ómerkilegir smáborgarar og
annar þeirrahafði meira að segja
talað við Lenin og ekki skilið upp
eða niður i neinu.
Runólfur Björnsson hélt svo
skipulega áfram að slökkva alls-
kyns villuljós og fækka
smáborgaralegum dyggðum bæði
SfS býr í
haginn við
Holtabakka
Nýlega samþykkti hafnarstjórn
Reykjavikur að hefija nú i ár
tæknilegan undirbúning að leng-
ingu Holtabakka við Holtagarða,
en þar hefur Skipadeild SIS að-
stööu. Samþykkt var og aö taka
lengingu bakkans inn á fram-
kvæmdaáætlun ársins 1982. Felur
þetta I sér að bakkinn, sem nú er
80 m, veröur væntanlega lengdur
um 100 m á næsta ári.
Að sögn Axels Gislasonar,
framkvstj. Skipadeildar, mun
deildin nd, I framhaldi af þessum
samþykktum, snúa sér að þvi að
undirbúa endurnýjun á vöru-
geymsluaðstöðu sinni og skipa-
flota í samræmi við þessar vænt-
anlegu aðstæður við Holtabakka.
Hefur deildin hug á að koma þar
upp nýtiskulegri aðstöðu, þar sem
nýtt verði nýjasta tækni við lestun
og losun skipa með stóraukinni
áherslu á gámaflutninga. Er nú
aö hefjast undirbúningur að
byggingu fyrsta áfanga af stórri
hafnarskemmu sem lengi hefur
' veriö áformaö að reisa þarna.
| — mhg
Arni Bergmann
Aðalfundur
Aðalfundur Styrktarfélags Breiðabliks
verður haldinn i Félagsheimili Kópavogs,
2. hæð, i dag kl. 12.
Stjórnin.
Styrkir til Noregsfarar
Stjórn sjóðsins Þjóðhátiðargjöf Norðmanna auglýsir eftir
umsóknum um styrkiúrsjóðnum vegna Noregsferða 1981.
Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins ,,að auð-
velda Islendingum aðferðast til Noregs. I þessu skyni skal
veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipulögðum
hópum ferðastyrki til Noregs i þvi skyni að efla samskipti
þjóðanna t.d. með þátttöku i mótum, ráðstefnum, eða
kynnisferðum, sem efnt er til á tvihliða grundvelli. Ekki
skal úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga, eða þeirra
sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.”.
1 skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að
veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en um-
sækjendur sjálfir beri dvalarkostnað i Noregi.
Hérmeðer auglýst eftir umsóknum frá þeim aðilum, sem
uppfylla framangreind skilyrði. 1 umsókn skal getið um
hvenær ferð verður farin, fjölda þátttakenda og tilgang
fararinnar. Auk þess skal tilgreina þá upphæð, sem farið
er fram á.
Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins, Forsætis-
ráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu, Reykjavik, fyrir 10.
mars 1981.
Lífeyrissjóður
bænda
íbúðabyggingalán
Á árinu 1981 eiga þeir sjóðfélagar sem
gera fokheldar byggingar á árinu rétt á
láni að upphæð allt að nýkr. 50.000 að þvi
tilskildu, að þeir hafi greitt iðgjöld til
sjóðsins frá 1977 og hafi náð 2,0 réttinda-
stigum. Lán verða til allt að 20 ára með
fullri verðtryggingu og 2.0% vöxtum.
óbundin lán
Á árinu 1981 eiga sjóðfélagar rétt á láni að
upphæð allt að nýkr. 50.000 að þvi tilskildu
að þeir hafi náð 5,0 réttindastigum og
skuldi ekki Stofnlánadeild landbúnaðarins
óuppgreidd lán vegna fyrrí
bústofnskaupa- eða ibúðabyggingalána.
Lán verða til allt að 15 ára með fullri
verðtryggingu og 2,0% vöxtum.
Nánari upplýsingar fást i sima 91-25444
hjá Lifeyrissjóði bænda eða Stofnlána-
deild landbúnaðarins.
Umsóknir ásamt veðbókarvottorði og fok-
heldisvottorði skulu sendar Stofnlána-
deild landbúnaðarins, Laugavegi 120, 105
Reykjavik.
Helgin 7,— 8. febrúar Íááf ÞJóÐVrLjÍNðl — SÍÐA 23"'
Jlfur er sjötugur á sunnudaginn.
Margt hefur breyst og mikið
vatn runnið til sjávar, ekki sist i
pólitikinni. Lærisveinar Runólfs
týndu tölunni og sumir trúnni.
Alls konar vangaveltur fóru að
koma yfir fólkið og það var ekki
nærri þvi eins gaman að lifa.
Einn var þó sá sem aldrei lærði
listflug hinnar pólitisku endur-
skoðunar og hefur ekki breytt um
skoðun það ég veit. Þetta er
Runólfur Björnsson. Ég tæki það
nærri mér ef ég þyrfti nokkurn-
tima að hlusta á kratasöng úr
hans barka.
Runólfur er einn úr þeirri
kynslóö, sem lagði lif sitt að veði
fyrir hugsjón verkamannsins.
Þessikynslóð safnast nú óðum til
feðra sinna. ósk min er sú að
Runólfur og allir hinir fái að lifa
allt til loka með þeirri reisn sem
þeir báru á árum baráttunnar.
Smá timaskekkja i mannkyns-
sögunni skiptir okkur engu máli
úr þvi sem komið er. Hinn rauði
fáni hafinn hátt og riki verka-
mannsins varð að veruleika.
Hrafn Sæmundsson.
Aðalfundur
Fiskeldls h/f
verður haldinn laugardaginn 21. febr. 1981
að Borgartúni 22, 3. hæð, kl. 13.30.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins fyrir árið 1980.
3. Lagabreytingar
a) Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum
félagsins um fækkun stjórnarmanna.
b) Tillaga frá einum hluthafa sem felur i sér aö
stjórnarmönnum verði fækkað, formaður kjörinn sér-
staklega og atkvæðafjöldi viö stjórnarkjör ráði verk-
efnaskiptingu stjórnar.
Nánari grein er gerðfyrir þessum tillögum i fréttabréfi.
Tillögurnar, skýrsla endurskoðenda og reikningar
félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins
14.-21. febr. 1981.
4. Kosning stjórnar ogendurskoðenda.
5. Akvörðun um greiðslur til stjórnarmanna og endur-
skoðenda fyrir störf þeirra á liðnu ári.
6. önnur mál.
Tll sölu einbýiishús á Hellu
Kauptilboð óskast i húseignina Freyvang 17 á Hellu, sem er
einbýlishús á einni hæö, auk bilskúrs.
Stærð hússins er 371 rúmmetri og bilskúrs 56 rúmmetrar. Bruna-
bótamat er kr. 475.620,-
Húsið verður til sýnis mánudaginn 9. febrúar og þriðjudaginn 10.
febrúar n.k. frá kl. 13—15:
Kauptilboð þurfa að hafa borist skrifstofu vorri fyrir kl. 14:00
e.h. föstudaginn 13. febrúar n.k.
ÍNNKAUPASTOFNUN RIKISINS
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Staða læknis
við atvinnusjúkdómadeild Heilsuverndar-
stöðvarinnar er laus til umsóknar. Æski-
legt er að umsækjendur hafi menntun eða
reynslu i störfum á sviði atvinnu-
sjúkdóma. Umsóknir með upplýsingum
um menntun og fyrri störf stilaðar á
Heilbrigðisráð Reykjavikurborgar, send-
ist til skrifstofu borgarlæknis fyrir 20.
febr. n.k.
Heilbrigðisráð
ReykjaVikurborgar.
niður á Skólavörðustig og ekki
siður i feröalögum og á samkom-
um starfsfólksins á Þjóðviljan-
um, en á þessum kaldastriöstima
var þarna ein fjölskylda á
ferðinni.
Tilefni bessarar ómerku rit-
smiöar er auðvitað það aö Run-