Þjóðviljinn - 05.03.1981, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 05.03.1981, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 5. mars, 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 íþróttir í/^j íþróttirg) íþróttir v J I Umsjón: Ingólfur Hannesson. J -■v mimri •I £2 si j*. ainriiirg^ , jjí \ Beðið í Frakklandi Það var margt annað sem menn tóku sér fyrir hendur í Frakklandi en að leika handknattleik og þær stundir tóku einnig á taugarnar. Á myndinni efst til hægri ieggja kapparnir upp i enn eina rútuferðina og er ekki annað að sjá á svip Þorbergs Atlasonar en að hann sé orðinn nokkur þreyttur á öllum flækingn- um. Það mátti finna aðdáendur islenska landsliðsins meðal áhorfenda. Þvi miður vitum við ekki nafn piltsins sem heldur á fánanum. Á myndinni neðar til hægri hvilir Sigurður Sveinsson lúin bein. Ef myndin prentast vel má greina skrámurá handleggjum hans. Siðasla myndin sýnir nokkra landsliðsmannanna á áhorfendabekkjunum, ekki ýkja glaðlega á svip. Þaö var Ingólfur Hannesson sem tók þessar myndir á milli striða i B-keppninni. Evrópukeppnín í knattspyrnu: Liverpool ger- sigraði CSKA V íðavangshlaupin: Gunnar Páll með forystu Pétur Pétursson og félagar hans i Feycnoord fóru enga frægðarför til Búlgariu i gær- kvöld.. Þeir töpuðu 2:3 fyrir Slavia Sofia, í Evrópukeppni bik- arhafa, eftir að staðan i háifleik hafði verið 1:1. Péturs var ekki getið i fréttaskeytum og því ekki vitað hvort hann lék með Feyenoord, en eins og kunnugt er þá er hann nýstiginn uppúr lang- varandi meiðslum. Standard Liege, liö Asgeirs Sigurvinssonar, varð að gera sér að góðu markalaust jafntefli i 8 liða úrslitum UEFA-keppninnar i gærkvöld. Leikurinn þótti af- spyrnuleiðinlegur á að horfa. Jafnteflið er, þegar öllu er á botn- inn hvolft, ekki svo slæmt fyrir belgiska liðið, þvi að i næsta leik nægir þeim jafntefli með fleiri skoruðum mörkum. Þriðji tslendingurinn sem var i eldlinunni i gærkvöld, Arnór Guð- johnsen, lék með liði sinu Lokaren gegn AZ’67 Alkmaar og lauk leiknum með sigri AZ’67, 2:0. Það voru þó að sjálfsögðu leik- irnir i Evrópukeppni meistara- liða sem mesta athygli vöktu og skal þá fyrstan telja leik Liver- pool og CSKA Sofia sem leikinn var i Liverpool i gærkvöld. Liver- pool sýndi mikla yfirburði i leikn- um og sigraði með fimm mörkum gegn einu eftir að staðan i hálfleik hafði verið 2:0. Graham Souness lagði grund- völlinn af stórsigri Liverpool með þremur glæsimörkum. Sammy Lee og Terry Modermott skoruðu svo sitt markið hvor. Með þessum sigri nær gulltryggðu Liverpool- leikmennirnir sig i 4 liða úrslitin, þvi að varla tekst búlgarska lið- inu að vinna upp fjögurra marka forskot. Þeir sigruðu Evrópu- meistara Nottingham Forest i siðustu umferð keppninnar. Bayern Munchen viröist einnig á sigurbraut eftir að hafa unnið Banik Ostrava, tékknesku meist- arana, með tveimur mörkum gegn einu. Staðan i hálfleik var 0:0. Að loknum átta viðavangs- hlaupum á vegum FRI hefur Gunnar Páll Jóakimsson tekið örugga forystu i stigakeppni þessara hlaupa. 5 efstu menn eru þessir: stig: 1. Gunnar Páll Jóakimss.íR 112 2. MikoHSmeíR 84 3. Agúst Asgeirsson ÍR 81 4. Óskar Guðmundss. FH 73 5. Magnús Haraldss.. FH 71 Konur 1. Guðrún Karlsdóttir UBK 75 I Moskvu áttust svo við Spartak Moskva og Real Madrid, það lið sem oftast hefur unnið Evrópu- keppni meistaraliða. Leiknum lauk með jafntefli, 0:0, og þar var á ferðinni best sótti leikur Evrópukeppninnar I gær, 80 þús. manns sáu leikinn. í Júgóslaviu léku svo Rauða stjarnan og Inter Milan og lauk leiknum með jafntefli, 1:1, eftir að itölsku meistararnir höfðu haft yfir I hálfleik. 1 Evrópukeppni meistaraliða urðu úrslit þessi, auk leiks Feyenoord: Jena (A-Þýskalandi) — Newport (Wales) 2:2, West Ham (England) — Dinamo Tiblisi (Sovétrikin) 1:4, Fortuna Dussel- dorf (V-Þýskaland) — Benefica (Portúgal) 2:2. UEFA-keppnin: Grasshoppers (Sviss) — Soschau (Frakklandi) 0:0, St. Etienne (Frakklandi) — Ipswich (England) 1:4. 2. Linda B. Loftsdóttir 63 3. Linda B. ólafsdóttir FH 58 4. Thelma Björnsdóttir Arm. 42 5. Hrönn Guðmundsd. UBK 41 1 drengjaflokki hefur Einar Sigurðsson forystu með 58 stie FráÍR islandsmeistaramót i frjáls- iþróttum innanhúss fyrir aldurs- flokkanna 15—18 ára (f. ’66—’63) fer fram i Reykjavik dagana 14. og 15. mrs n.k.. Athugið að um seinkun á mótinu er að ræða. i Keppnisgreinar verða samkvæmt reglugerð. Keppnin fer fram, sem hér segir: Laugardag kt. 11.00 i Laugardals- höll. Hástökk allir flokkar og stöng drengja. Laugardag kl. 14.00 i Baldurs- haga. 50 m. hl., 50 m. grindahlaup og langstökk allir flokkar. Sunnudagur kl. 11.00 i ÍR-húsinu. Atrennulausu stökkin allir flokkar. Kúluvarp drengja fer fram siðar. Þátttökutilkynningar berist til Guðmundar Þórarinssonar i siðasta lagi að kvöldi mánudags- ins 9. niars. Þátttökugjöld skv. ákvörðun stjórnar FRÍ. Frjálsiþróttadeild ÍR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.