Þjóðviljinn - 07.03.1981, Blaðsíða 6
(i SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 7. — 8. mars, 1981.
MOÐVIUINN
Málgagn sósfalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóðfrelsis
útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Ólafsson.
Uinsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guðjón Friöriksson.
Afgreiðslustjóri: Valþór Hlööversson
Rlaöainenn: Allheiöur Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir,
Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs-
son.
iþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson.
Þingfréttaritari: Þorsteinn Magnússon.
Útlit og höiinun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guðbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgrciðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir.
Simavarsla: Olöf Halldórsdóttir/Sigriður Kristjánsdóttir.
Bilstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6,
Reykjavik, simi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf..
Ekki mannréttindi —
aöeins vígbúnaö
• Á forsiðu Morgunblaðsins í gær gefur að líta þrjár
fréttir, sem allar fjalla um athafnir hinnar nýju ríkis-
stjórnar Reagans Bandaríkjaforseta. Engin skoðun
kemur fram hjá blaðinu á þessum fréttum.
• Fyrsta fréttin er um það að forseti Bandaríkjanna
stefni að því að auka hernaðarútgjöld um 38% á skömm-
um tíma, og að líkur séu á að bandaríska þingið muni
fallast á þessa stefnu.
• Hér er um meiri aukningu hernaðarumsvifa Banda-
rikjamanna að ræða heldur en þekkst hef ur á f riðartim-
um um langt skeið, en á sama tíma boðar hin nýja
Bandaríkjastjórn stórfelldan niðurskurð á hvers kyns
félagslegri þjónustu, sem þó hefur verið í lágmarki í
Bandaríkjunum.Þannig hyggst stjórn Ronalds Reagans
skera ráðstöfunarfé opinberra aðila í Bandaríkjunum
niður um 500 miljarða dollara á þessu kjörtimabili, en
færa alla þá fjármuni í hendur fyrirtækjanna, og þá
fyrst og fremst þeirra auðhringa, sem mestu ráða í
bandarísku atvinnulifi.
• Öllum er kunnugt að bæði risaveldin ráða nú þegar
hvort um sig yfir kjarnorkuvopnabúnaði, sem dugar
margfaldlega til þess að leggja veröldina í rúst á örfáum
minútum og eyða öllu mannlífi. Þannig er talið að
heildarsprengikraftur núverandi birgða af kjarnorku-
vopnum sé um það bil einni og hálfri miljón sinnum
meiri en eyðingaraf I þeirrar sprengju sem varpað var á
Hiróshima í Japan í stríðslok 1945.
• Önnur fréttin frá Reagan á forsíðu AAorgunblaðsins í
gær var um það að ríkisstjórn hans vildi nú fresta undir-
ritun hins langþráða haf réttarsáttmála Sameinuðu þjóð-
anna, sem reiknað hafði verið með að nú yrði loks
undirritaður í vor.
• Svo sem kunnugt er hefur á síðari fundum hafréttar-
ráðstefnunnar mest verið deilt um réttinn til auðlinda
hafsbotnsins. Þar má ætla að um gifurleg auðævi sé að
ræða. Hin fátæku þróunarríki hafa viljað tryggja sér
nokkurn rétt yf ir þessum auðæfum, en átt þar að mæta
harðvítugum gróðasjónarmiðum hinna f jölþjóðlegu auð-
hringa. Nú var þó loks von á samkomulagi sem þróunar-
löndin gætu sætt sig við, en þá sýnast Ronald Reagan og
kumpánar hans ætla að grípa inn i og slökkva líka þessa
von.
• ,,Haft er eftir ýmsum fulltrúum á ráðstefnunni, að
stjórnir þróunarríkjanna, sem nú mynda hóp 121 ríkis á
ráðstefnunni, séu æfar af reiði yfir þessum málatilbún-
aði Bandaríkjastjórnar", segir í þeirri AP-frétt, sem
AAorgunblaðið birtir.
• Þriðja fréttin frá Reagan á forsíðu AAorgunblaðsins í
gær er líka frá hinni alþjóðlegu fréttastof u AP, og f jallar
um áhrif stefnu hinnar nýju Bandaríkjastjórnar í Suður-
Ameríku.
• Þar er til þess vitnað, að hinn nýi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Haig fyrrum hershöfðingi, hafi nýlega
látið svo ummælt að stjórn Reagans ætlaði að ,,draga úr
þeirri áherslu, sem verið hefði á mannréttindamálum",
en beita sér í stað þess gegn ,,hryðjuverkamönnum".
• í fréttinni segir: — „Ýmsum mannréttindahreyf-
ingum ber saman um að stefna Reagans Bandarikjafor-
seta í mannréttindamálum hafi þegar orðið til þess, að
herforingjastjórnir i S-Ameríku hafi hert á klónni. Er
m.a. bent á handtökur baráttumanna fyrir mannréttind-
um i Argentinu nýlega, handtöku Nóbelsverðlaunahafa
og dóm yfir verkalýðsleiðtoga i Brasilíu nýlega staðhæf-
ingu þessari til stuðnings."
— Já, nú hæfir ekki að nefna mannréttindi í höfuð-
stöðvum „hins frjálsa heims". Og þvi örsnauða fólki
sem byggir Suðurheim skal sýnt betur en nokkru sinni
fyrr hvar Davíð keypti ölið, hver það er sem á allan rétt
á þessari jörð, og hver engan. Og sérhver sá sem ekki
unir skiptingu heimsins milli örbirgðar hinna mörgu og
allsnægta hinna fáu, — hann skal heita réttlaus og rétt-
dræpur hryðjuverkamaður.
• AAorgunblaðið fagnaði ákaft kjöri ,,frjálshyggju-
mannsins" Reagans Bandaríkjaforseta, og lýsti fyrir-
fram mikilli aðdáun á stefnu hans. Enn hafa ritstjórar
AAorgunblaðsins ekki látið í Ijós nokkurn minnsta vott
efasemda um réttmæti þeirra viðhorfa til mannréttinda
og til allrar jafnréttisbaráttu, sem stefna núverandi
Bandaríkjastjórnar byggist á.
• Oft hefur verið kvakað af minna tilefni á þeim bæ.
Stundum talar þögnin reyndar hærra en mörg orð.—k.
* úr aimanak inu
Ronald Reagan hefur engu
gleymt og ekkert lært.
öfgafullur hægrimaður i sæti
innanríkisráöherra, James
Gaius Watt.
Nú má smáfólkið fara að vara
sig þvi aö tröllin hafa risið upp
og skekja vopn hvert aö öðru.
Einhver mestu ótiðindi um
margra ára skeið bárust út um
heimsbyggðina i nóvermber i
fyrra er það varö ljóst að gám-
all karlfauskur austan úr
Kaliforniu hafði verið kosinn i
valdamesta embætti heimsins.
Sá heitir Ronald Reagan og sit-
ur nú vestra sem forseti
Bandarikjanna.
Hann er fulltrúi þeirra afla
sem Eisenhower forseti varaði
Afturgöngur kalda
stríðsins
við i siðustu ræðu sinni i
embætli árið 1960 að gætu oröið
lýðræðinu hvaö hættulegust.
Það er bandalag hernaöarafla
og stóriðju. Eftir að Reagan tók
við embætti hafa viðsjár i heim-
inum stóraukist. Hernaður og
hótanir eru i fyrirrúmi en allt
sem horfir til velferðar og betra
mannlifs er sett til hliöar.
Ronald Reagan er eins og
fleiri óþokkar sem hafa komist
til mikilla valda misheppnaður
listamaður. Hann var leikari
sem sló ekki i gegn. Siðan fór
hann út i pólitik og gekk til liös
við öfgasinnuð hægriöfl með út-
belgda þjóðernis- og stórveldis-
hyggju á stefnuskrá sinni. Hann
tók þátt i herferð hins illræmda
McCarthy gegn „kommúnista-
samsærinu” i byrjun 6. ára-
tugarins (var þar á sama báti
og Nixon) og hafði sig i frammi
fyrir ýmis önnur öfgaöfl. Árið
1962 var hann kosningastjóri ná-
unga að nafni Lloyd Wright sem
bauð sig fram i Kaliforniu og
heimtaði tafarlaust striö gegn
Sovétrikjunum. Arið 1964 var
hann stuðningsmaður Barry
Goldwater, sem var forseta-
frambjóðandi Republikana-
flokksins, og haföi það m.a. á
stefnuskrá sinni aö beita kjarn-
orkuvopnum i Vietnam. Þegar
Reagan náði kosningu sem
rikisstjóri Kaliforniu árið 1966
var það upplýst að meðal öflug-
ustu stuðningsmanna hans voru
leiðtogar Ku Klux Klan.
Þetta er maöurinn sem kom-
inn er á forsetastól i Bandarikj-
unum og hefur liklega enginn
jafn sótsvartur setið þar á þess-
ari öld nema ef vera skyldi
vinur hans Richard Nixon. Og
vist er um þaö að Ronald
Reagan hefur engu gleymt og
ekkert lært. Hann er dæmi-
gerður fulltrúi þeirra manna
sem blómguðust i kalda striðinu
fyrir aldarf jóröungi siðan,
afturganga frá liðinni tið.
Ekki þarf annað en lita á ráð-
herralista hans til aö sjá hvers
kyns er. Það er afskaplega
gæfuleg hjörö. Utanrikisráð-
herrann er Haig hershöfðingi,
að sjálfsögöu með annan fótinn I
Pentagon, sem löngum hefur
veriö eins og riki i rikinu. Nú fá
herforingjarnir langþráða ósk
sina uppfyllta um ótakmarkað
fé til hermála þó aö hernaðar-
mátturinn sé orðinn svo gifur-
legur að hægt er að eyða öllu lifi
á jörðinni svo að segja i einu
vetfangi. Bak við stendur
hernaðariðnaðurinn. Byrjað er
að hóta til allra átta og jafnvel
gefa út yfirlýsingar um beina
ihlutun i málefni annarra rikja.
Þar er E1 Salvador besta dæmið
og reyndar prófdæmi á hina
nýju stefnu. Engu máli skiptir
þó að herforingjastjórnin þar sé
einhver sú illræmdasta i heimi
og ekki heldur hvaö ibúar lands-
ins vilja. Þar ætlar hákarlinn að
ráða. Ausið er fé i herforingja-
stjórnina svo aö hún geti haldið
áfram að berja á ibúunum og
reyndar er þegar kominn dulbú-
inn bandariskur her til hjálpar.
Þá er gefið grænt ljós á nýtt
kjarnorkuvopnaæði sem hæg-
lega getur leitt til þiiöju heims-
styrjaldarinnar áður en varir.
Varnarmálaráðherrann heitir
Caspar Weinberger og hann
hefur orðað umbúöalaust hvað
fyrir bandalagi hernaðar og iðn-
aðar vakir. Hann segir: „Trúin
á þaö að minni útgjöld til
varnarmála séu efnahagslifinu
holl er röng vegna þess að hún
dregur úr mætti og virðingu
Bandarikjanna og grefur undan
ýmsum iöngreinum sem eru
burðarásar efnahagslifsins”.
Einhver ógæfulegasti náung-
inn i þessari stjórn er innan-
rikisráðherrann, James G.
Watt. Hann er frægur fyrir and-
stöðu sina við umhverfisvernd
og hefur verið i forustu félags-
skapar efnaöra kaupsýslu-
manna sem nefnist „Mountain
States Legal Foundation”.
Þetta ihaldsfélag hefur einkum
haft á stefnuskrá sinni aö beita
sér gegn þvi sem Watt nefnir
„öfgafull umhverfisverndar-
sjónarmið sem hafa komið i veg
fyrir eðlilega nýtingu landsins i
þágu atvinnuveganna”.
Og nú hefur Ronald Reagan
mótað efnahagsstefnu sina. Hún
er i stuttu máli andstæð öllu þvi
sem lifsandann dregur en hliö-
holl öflum dauðans. Stóraukin
eru útgjöld til hermála, eins og
fyrr segir, en fjárveitingar til
velferðar og þurfandi manna á
að skerða um 14—15 miljarða
Guðjón
Friðriksson
skrifar
Hershöfðinginn Haig i sæti
utanrikisráðherra.
dollara á þessu ári, 40—50 milj-
arða dollara á næsta ári og enn
meira árið 1983. Það á að taka
matarmiða af fátæklingum,
stórskerða útgjöld til niður-
greiðslna á mat á dagvistar-
stofnunum i og skólum, stór-
minnka greiðslur rikisins á
lækniskostnaði fátæklinga og
draga úr atvinnubótum. Einnig
verður dregið úr hagkvæmum
lánum til bænda og dreifbýlis-
fólks. Þá verður stórdregiö úr
mengunarvörnum, framlög til
lista og mennta minnkuð um
helming, lagðir verða niður
námsstyrkir til barna verka-
manna sem eru á eftirlaunum,
örkumla eða látnir. Þá má einn--
ig nefna að dregið verður mjög
úr greiðslum til öryrkja.
Þarf frekari vitnanna við og
er nokkur furða þó að heimur-
inn skjálfi á beinunum um
þessar mundir? Meðan þessu
fer fram lifir Ronald Reagan og
hyski hans i dýrlegum föginuði i
Hvíta húsinu.
En það eru viöar nátttröll við
völd en vestur i Washington
D.C. Bak við Kremlarmúra hýr-
ist gamalmennaklúbbur og
bruggar launráð sin. Skuggar
kalda striðsins risa nú hærra en
þeir hafa gert um langt árabil. 1
þeim hildarleik sem fram undan
er verður hver ærlegur maður
að halda ró sinni og skynsemi og
standa fast á mannréttindum
fyrir sig og aðra. í þvi liggur
von okkar allra.