Þjóðviljinn - 07.03.1981, Side 8

Þjóðviljinn - 07.03.1981, Side 8
8 Úfák — ÞJóbVlLÍtðto riélgin 7. — 8. mars, 1981. Reykiavik Hafnarf jörðu Banvænt geislavirkt úrfelli myndi dreifast um allt höfudborgarsvæðið miðað við ríkjandi háloftavindaátt Hafnir A þessari teikningu er dregin upp mynd af áhrif- um 100 kilótonna atóm- sprengju. Skýringar við teikninguna er að finna i texta greinarinnar. 'V - »< m ■ i- : '' f - ,, '„"t V* 'i, ... ■ Sennilegast stærð atómsprengju á herstöðiná ér 100 kílótonn 8 sinnum stærr! en Hiroshima-sprengjan Æ f leiri eru þeirrar skoðunar að viðbót við það forðabúr atómvopna sem til eru i heiminum, um 50 til 60 þúsund sprengjun með samanlagðan sprengi- kraft sem jafngildir 400 tonnum af TNT á hvert mannsbarn á jörðinni/ muni ekki tryggja aukið öryggi.heldur þvert á móti aukna tortimingarhættu. Þeirri skoðun vex einnig fylgi að kjarnorkuvopna- laus Evrópa tryggi öryggi og líf íbúa álfunnar betur heldur en nýjar tegundir árásarvopna og atóm- sprengja. 1 takmarkaðri kjarnorku- styrjöld í Mið-Evrópu, þar sem einungis hernaðarmannvirki yrðu sprengd meö atómsprengj- um, myndu tólf sinnum fleiri al- mennir borgarar farast heldur er) hermenn. Samkvæmt varfærnum áætlunum mundi slik atóm- styrjöld deyöa 6 til 7 miljónir al- mennra borgara og 400 þúsund hermenn. Einvígi í Evrópu Þetta er niðurstaöa úr skýrslu sem gerð var á vegum Sameinuöu þjóðanna um kjarnorkuvopn og lögö var fram á s.l hausti. Ef að striösaðilar beindu sprengjum sinum aö borgum og þéttbýlis- stöðum yröu tölur um mannfall að sjálfsögðu af allt annarri og enn hrikalegri stærö. Þannig er þaö ekki í þvi dæmi sem sett er upp i skýrslunni. Gert er ráö fyrir aö báöir aöilar reyni aö hlifa al- menningi eftir þvi sem unnt er. í forsendum skýrslunnar er miöaö viö aö striðsaöilar i Evrópu hafi hvorir um sig á að skipa 50 til 100 hersveitum. Kjarnorkuvopnin nota aðilar fyrst og fremst til þess aö granda atómherstöðvum báöum megin viglinunnar. Þetta er semsagt einvigi milli tveggja kjarnorkuvopnaherja. 100 kílótonn á herstöðvar Atómsprengjum er miðað á stórskotaliðssveitir sem skotið geta atóm-,,handsprengjum”, á eldflaugasveitir, á flugvelli þar sem eru staðsettar flugvélar er grandað geta atómflaugum. Þvl til viðbótar er ráðist á skriö- drekasveitir andstæðingsins og herstjórnarbækistöðvar hans með atómvopnum. 1 dæmi Sameinuðu þjóða skýrslunnar nota striðsaöilarnir tveir 1700 kjarnorkusprengjur. Þeim er misskipt milli aðilanna. Annar, það er aö segja NATÓ, notár 1000 sprengur sem eru að meðalstyrkleika 1 kilótonn (en það jafngildir þúsund tonnum af TNT). Varsjárbandalagiö brúkar hinsvegar 500 atómbombur sem hver um sig er að meðaltali 5 kíló- tonn (samsvarar 5 þúsund tonnur af TNT). Þessu til viðbótar brúka hvorir tveggja 100 atómsprengj- ur, sem eru 100 kilótonn (eöa 100 þúsund tonn TNT) fyrst og fremst til árása á herstöövar. Gjöreyðingar- stríð 1 siðari heimsstyrjöldinni voru notaðar svokallaðar hverfis- sprengjur upp á 500 kiló. Ein ein- asta kjarnorkusprengja upp á 1 kilótonn er 2000sinnum orkumeiri en þessar bombur frá seinni heimsstyrjöldinni. I dæmi Sam- einuðu þjóöanna tekur hið tak- markaða kjarnorkustrið tæpa viku, og samtals eru notuð 23.5 megatonn i sprengjukastið, eða sem svarar 23.5 miljónum tonna af TNT. En þetta er aðeins örlitið brot af þvi atómsprengjumagni sem risaveldin hafa yfir að ráða i forðabúrum sinum. 1 Sameinuðu þjóða skýrslunni eru látnar i ljós mjög eindregnar efasemdir um að hægt sé að halda atómstyrjöld innan einhverra marka, til að mynda eins og þeim sem gefnar eru upp i forsendum dæmisins. Helst hallast sérfræðingar þeir sem unnu skýrsluna að þvi að slik takmörkuð „átök” myndu magn- ast upp i endanlega hólmgöngu risaveldanna — gjöreyðingar- striö. Geislavirkt úrfelli Tvennt vekur athygli íslend- ings sem les um skýrslu Samein- uöu þjóðanna. Annarsvegar að stærðargráða atómsprengja sem ætlað er að granda herstöðvum er álitin vera 100 kilótonn eins og áð- ur sagði. Til samanburöar má geta þess að kjarnorkusprengjur þær sem varpað var á Hiroshima og Nagasaki voru 12.5 og 20 kiló- tonn. Hér er þvi um 5 til 8 sinnum stærri sprengju aö ræöa, en mun minni en t.d. dr. Agúst Valfells reiknaði með i sinni skýrslu. Astæöan kann að vera þróaðri miðlunartækni, en að sjálfsögðu skal ekkert um það fullyrt hér hverslags bombur það eru sem herstöðinni I Keflavik er ætlað, og hvort sömu örlög biðu Stokksnes- stöðvarinnar i atómstrlði. Hitt er almennt álitiö aö herstööin á Mið- ■nesheiði sé forgangsskotmark i kjarnorkuvopnaátökum. Hitt kemur og fram i skýrslunni aö slikum bombum sem ætlað er að leggja herstöðvar i rúst er ætl- að aö springa á jörðu niðri, en við það eru þaö geislunarahrifin fyrst og fremst, sem skapa hættu er frá dregur skotmarkinu. Manntjón af völdum loftsprengingar myndi hinsvegar aðallega stafa af högg- og hitaáhrifum, en geislavirks úr- fellis litt gæta, gagnstætt þvi sem væri við yfirborðssprengingu. Suðurnesja- menn fyrstu fórnarlömbin A korti sem hér er dregið upp eru sýndarhugsanlegar afléiðingai 100 kilótonna sprengju sem spryngi i miöri herstöðinni á Miö- nesheiöi. Innan innsta hringsins yröi eyðileggingin algjör og innan ytri hringsins yrði engu lifi eirt. tbúar Keflavikur og Njarðvikur, færust allir af völdum þrýstings, hita, bráðrar geislaveiki eða ann- arra geislunaráhrifa. Utan hringjanna yrðu óveru- legar eða engar skemmdir og myndu Hafnir og Sandgeröi sleppa tiltölulega vel ef vindur væri þeim frástæöur. Rikjandi háloftavindátt á þessu svæði er vest-suð-vestur og þvi er ekki frá- leitt að ætla að geislunarkeilur út frá sprengingunni teygöust I átt til Reykjavikur, yfir Arnessýslu og inn á miöhálendiö. Geislun innan hálf- tíma í Reykjavík Afarskær eldsúla yröi fyrsta sjáanlega tákn sprengjunnar, en inni i henni væri þrýstingur sem nemur miljónum loftþyngda og tugmiljóna gráða hiti. Eftir 10 sekúndur yröi eldhnötturinn mun stærri en sólin og minnsta kosti 100 sinnum bjartari til að sjá úr Reykjavik, og allir þar Og i ná- grenni sem litu i átt til Keflavikur myndu blindast. Eldsúlan færi marga kilómetra I loft upp og háloftavindar sæju um aö dreifa mekkinum um land- ið. Þeir ráða mestu um stefnu og stærð geislageiranna, en vindátt og vindhraði i neðri loftlögum hefði áhrif á breidd þeirra. Miðað viö 60 km vindhraða og rikjandi háloftavindátt, vsv, myndi geislavirks úrfellis fara að gæta i Reykjavik innan hálftima. Hætt- an af geislun vegna geislavirks úrfellis er tviþætt. Annars vegar bráð veikindi, geislaveiki, vegna mikillar geislunar á skömmum tima, og hins vegar siðbúnar af- leiöingar litillar geislunar um lengri eða skemmri tima, svo sem aukin tiöni illkynjaöra æxla, og erfðagalla. Gífurleg geislunaráhrif Engir spádómar skulu hafðir uppi um þaö hér hversu margir tugir þúsunda Islendinga týndu lifi ef 100 kilótonna atómbombu yrði varpað á Keflavikurflugvöll. Aðeins skal á það bent að 1000 rem geirinn (rem er eining sem er jafngildi röntgeneiningar og tekur mið af mismunandi tegund- um geislunar) nær yfir stóran hluta Reykjavikur, Kópavogs og Mosfellssveitar. Fólk sem býr á þessu svæði ætti mjög erfitt með að verjast geislunaráhrifum jafn- vel i húsum sinum. I 500 rem geiranum deyja allir af völdum geislunar sem eru utanhúss og nær hann m.a. yfir Hafnarfjörð, hluta Kópavogs, Breiðholt og Sel- tjarnarnes. í 300 rem geiranum ferst um helmingur þeirra sem eru utanhúss, en sá geiri spannar allt höfuðborgarsvæðið og teygir sig um Þingvallasveitina og lengra upp um Árnesssýslu. Upplýsingar þær sem þetta dæmi um áhrif atómbombu er byggt á eru fengnar úr skýrslu sem Visindastofnun sænska hers- ins gerði fyrir Dagens Nyheter, en þar er m.a. lýst afleiðingum 100 kilótonna atómsprengingar á Skurup herflugvöllinn á Skáni. (DN —22. febr. ’81). —ekh

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.