Þjóðviljinn - 14.05.1981, Page 2

Þjóðviljinn - 14.05.1981, Page 2
2 SÍÐA — bJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. mái 1981 KÆRLEIKSHEIMILIÐ viðtalið Þessi er ekki sjálfvirkur, þannig að þú verður að hreyfa hendurnar þegar að þú burstar. Ný sænsk gerð af „vinnukonum” Svona litur útbiinaðurinn út, slanga frá vatnsdælunni tengd viö þurrkublaðið og vatnið spýtist útum göt á blöðkunni. (Ljósm. —gel—). Hvaða bíleigandi kannast ekki við það vandamál sem oft kemur upp þegar reynt er að nota ,,rúðupissið" í roki og vatnið fýkur burt, kannski án þess að snerta framrúðuna. Og i þetta fer obbinn af vatni rúðu- geymisins. Nú hefur verið fundin lausn á þessu vandamáli, sænsk uppfinning, sem veldur byltingu. Asetning þurrkanna er afar einföld, tekur vart meira en nokkrar minútur. Skipt er um þurrkublöö á hefðbundinn hátt, siðan er gúmmislanga tengd við T-laga tengi, sem siðan er tengt við leiðslu frá vatnsdælunni. t flestum tilfellum er hægt að ganga mjög snyrtilega frá slöngunni. Óhætt er að fullyrða að mikill fengur er að þessum nýju rúðu- þurrkum hér á landi, þvi óviða mun þurfa að nota „rúðupiss” meira en einmitt hér á okkar vondu vegum i hinni islensku vætutíð. —S.dór Rabbað við Torfa Guðbrandsson skólastjóra á Finnbogastöðum ✓ í Arneshreppi á Ströndum Þykja tíðindi þegar vegurinn eropnaður I fyrradag var vegurinn milli Veiðileysisfjarðar og Reykja- fjarðará Ströndum opnaður, en hann hefur verið lokaður siðan um miðjan nóvember i fyrra vegna snjóa. Við höfðum sam- band við Torfa Guðbrandsson skólastjóra á Finnbogastööum i Reykjafirði i tilefni af þessu og spurðumst frétta. — Jú, það þykja tiðindi þegar vegurinn til okkar opnast, þeir eru margir sem hugsa hlýtt til okkar hér og þykir vænt um að bessir kommadjöflar vaða ofan i allt á landi hér. Nú eru þeir meira að segja farnir að spilla þroskavænlegu einkaframtaki bruggaranna i Garðabæ. heyra að vegasamband sé kom- iö á. Annars erum við ekki svo mjög einangruð þótt vegurinn lokist. Amarflug heldur uppi flugsamgöngum að Gjögri og strandferðaskipin koma hér við. Hvernig hcfur veturinn verið hjá ykkur? — Hann var harður, snjó- þungur og hvassviðrasamur. Svona harður vetur kemur vart nema einu sinni á 10 árum.Svo brá til hlýinda I apríl og siðla i þeim mánuði var byrjað að moka snjó af veginum, en svo brá til hins verra i byrjun mai og kyngdi niður snjó, og hætta varð mokstri þar til i þessari viku og nú er sum sé búið að opna veginn. Sem dæmi get ég nefnt að i' fyrra var vegurinn opnaður 17. april, enda var sá vetur mun betri en þessi sem nú var að liða. Enn eru skaflar á láglendi og sumstaðar i Reykja- firði eru snjóveggir meðfram veginum, jafnvel niður við flæð- armál. Leggst þessi cinangrun ekki þungt á fólk? — Nei, aldeilis ekki, við kunn- um henni ákaflega vel. Lifið gengur svo sem ekki með nein- um ofsa hraða hjá okkur, en i staðinn erum við laus við það „stress” sem virðist hrjá fólk i þéttbýlinu. Byggð er þannig hjá okkur að bæir standa gjarnan saman 3 til 4 svo þetta er ekki eins slæmt og það litur út fyrir að vera þótt dtki sé fært milli staða. Vanalega er nokkurt til- stand um jólin og menn heimsækja hverjir aðra, en að þessu sinni var minna um jóla- boð en oftast áður vegna þess hve snjóþungt var og erfitt að komast ferða sinna. Varla eru menn byrjaðir á vorverkum enn eða hvað? — bað getur varla heitið, sauðburður er að byrja, nú og menn hafa verið á grásleppu- veiðum og gengið vel þegar gef- iö hefur á sjó. Um önnur vor- verk er varla að ræða fyrr en snjór hverfur af láglendi. Hér sést ekki nál i túni enn sem komið er og menn óttast kal, sem þó verður ekki hægt að segja til um fyrr en fer að gróa. Af þvi að ég minntist á cin- angrun áðan, hvernig tekur ungt fólk henni? — Menn venjast þessu frá blautu barnsbeini hér, en aftur á móti er mikið um þaö að unga fólkið flytji burtu og helgast það af þvi, að hér vantar atvinnu fyrir það og einnig vegna þess að það þarf að sækja skóla. Ég held ekki að það flytjist burtu vegna einangrunar. Hitt er staðreynd að við ölum upp fólk til að fara suður. -rS.dór Ekki varð hjá þvi komist að vikja hestinum undan, og hlaut hann áfangastaðinn 22. — Rg6- e7.Helgisvararþvimeð 23. Hfi- ei og er þá staðan á þessa leið: bið eigiö leikinn og siminn er 81333, milli kl. 9 og 18 i dag. — eik — Nýr ræðismaður í Winnipeg Birgir Brynjólfsson, sem ásamt Jóhanni Sigurðssyni rekur fyrir- tækið lcelandic Trading í Winnipeg hefur verið skipaður ræðismaður (slands í Winnipeg. Frá- farandi ræðismaður er S. Aleck Þórarinsson. t frétt i Lögbergi-Heims- kringlu segir að Birgir hafi flutt til Výinnipeg frá islandi fyrir rúmum áratug. Hann lauk prófi frá Verslunarskóla íslands og hefur einnig próf i leiklist. bað er kannski ekki að undra, þvi hann er sonur hins mikilhæfa leikara Brynjólfs heitins Jó- hannessonar og Guönýjar Helgadóttur. Kona Birgis er Sylvia Jónsdóttir frá Mikley. tslensku konsúlshjónin i Winnipeg:Sylvfa og Birgir ásamt syninum Justin bór. Ljósm.: Lögberg-Heimskringla. Svia nokkrum hugkvæmdist að framleiða þurrkublöð með götum á og leiða uppi þau vatns- slöngu frá rtðusprautudælunni, Jjannig æib 'tratnið sprautast útUMn þfíHHÍjgöt og aðeins á þann flöt, sem rtíBuþurrkan fer yfir. Hreinsun rúðunnar verður betri, þurrkublööin slitna marg- falt minna og vatniö eða sá vökvi, sem notaöur er til að hreinsa rUfturaar endist lengur. Og nií er farið að f lytja þessar þurrkur til íslands, það er Heildverslun Arna Scheving að Vesturgötu 3 B sem flytur þær inn og þær eru tii sölu á flestum bensinsölum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.