Þjóðviljinn - 24.06.1981, Page 3

Þjóðviljinn - 24.06.1981, Page 3
Þriöjudagur 23. júni 1981 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 3 Neytendafræðsla: 80 norrænir hússtjórnar- kennarar á námskeiði Norræn samstarfsnefnd um hússtjórnarfræðslu heldur nám- skeið um neytendafræðslu i skól- um. Einnig verður fjallað um við- horf atvinnurekenda og félaga- samtaka til neytendamála. Norræni menningarmálasjóður- inn styrkir námskeiðið, scm verð- ur I Menntaskólanum á Akureyri 29. jdni—3. jiíli n.k. og sækja það um 80 hússtjórnarkennarar frá öllum Norðurlöndunum. Aðalleiðbeinandi verður cand. merc. Hans Rask Jensen, lektor við háskólann i Arósum og aðal- fulltrúi Danmerkur i umhverfis- og neytendanefnd Efnahags- bandalags Evrópu. H.R. Jensen stjórnaði sl. ár rannsókn og kennslutilraun i neytendafræöum i 9. bekk grunnskóla bandalags- landanna. Auk H.R. Jensen flytja sérfræð- ingar frá öllum Norðurlöndum erindi á fundinum og fulltrUar isl. atvinnurekenda og félagasam- taka flytja erindi og taka þátt i umræðum. Norræna samstarfsnefndin hef- ur eflt Norræna HUsstjórnarhá- skólann, sem starfar i 2 löndum eins og er, deild i næringarfræði viðOslóarháskóla og i Gautaborg deild i textilfræði og sjUkrafræði. NU er unnið að þvi að koma á fót deild i neytendahagfræði. Visir að þeirri deild er nU þegar við há- skólann i Arósum. Hópur Grænlendinga er nú staddur hér á landi i kynnisferð og ætlar að feröast víða um og skoða ólíklegustu hluti. 1 gær hlýddu þeir á erindi um sjávarútveg á tslandi og um Samvinnuhreyfinguna á Hótel Esju áður en þeir héldu til Akureyrar. —Ljósm. — eik — Sameiginleg yfirlýsing: Borgaraflokkarnir norsku búa sig undir stjómarmyndun Þrir helstu borgara- flokkar i Noregi hafa ný- lega komið sér saman um yfirlýsingu um lág- markssamstöðu til undirbúnings þvi, að þeir myndi samsteypu- stjórn i haust ef þeim tekst að hnekkja veldi Verkamannaflokksins eins og skoðanakannan- ir benda reyndar til að þeim kunni að heppnast, Flokkarnir eru Hægriflokkur- inn, sem á mesta möguleika á að auka fylgi sitt, Kristilegir og Mið- flokkurinn. Þau helstu atriöi sem fram eru tekin i yfirlýsingunni eru reyndar sérstæð blanda af hægrisjónarmiðum og einhverju þvi sem á að milda miðjumenn eða reikula kjósendur Verka- mannaflokksins. Hægristefnan kemur skýrast fram i atriðum eins og þeim, að berjast skuli gegn verðbólgu m.a. með skatta- lækkunum, ekki skuli neinar breytingar verða á samsetningu stjórna fyrirtækja (andsvar við vinstrihugmyndum um atvinnu- lýðræði) og svo þvi, að Utgjöld til hermála skuli aukast á ári hverju um 4%, en Nató hefur óskað mjög eindregið að aðildarriki opni hernum fjárhirslurnar sem mest. Þá er lýst andstööu viö sam- þykktir Verkamannaflokksins um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum, með þvi að leggja áherslu á að ekki skuli Noregur eiga neinar sérviðræður um þau mál við lönd Austur-Evrópu. Aðrir kjósendur munu svo eiga að hugga sig við mjög almennt orðuð stefnumál eins og að gam- alt fólk, barnafólk, öryrkjar og sjUkir eigi að hafa forgang þegar skipt er Utgjöldum hins opinbera. (Byggtá Noriform) Skattskrá Vestjjaröakjördæmis: Byggð á Egilsstöðum: Þjónustumiðstöð fyrir þroskahefta Jón Fr. Einarsson og Hrönn hf. enn hæst Undirbúningi má nú heita lokið að opnun þjónustumiðstöðvar fyrir þroskaheft fólk á Austur- landi, sem nefnd er Vonarland og reist er á Egilsstöðum, á vegum Styrktarfélags vangefinna á Austurlandi. Byggingaframkvæmdir hafa verið undir yfirumsjón fram- kvæmdadeildar Innkaupastofn- unar rikisins en fjármagn til verksins hefur komið Ur Fram- kvæmdasjóði öryrkja og þroska- heftra, sem heyrir undir félags- málaráðuneytið. Mun Vonarland vera fyrsta stofnun sinnar teg- undar, sem frá byrjun býður upp á þjónustu i samræmi við lög frá Alþingi um aðstoð við þroska- hefta er tóku gildi 1. jan. 1980. Þjónustugreinar Vonarlands verða i' meginatriðum fjórþættar. Þar geta foreldrar þroskaheftra barna fengið ráðgjöf um meðferö og þjálfun barna sinna. Einnig, ef á þarf að halda, vistaö þau i dag- vist, skammtímavist eða lang- timavist, eftir þvi sem við á hverju sinni og samkomulag verður um. I dagvist er aðstaða til þess að taka á móti 10 einstaklingum á dag,i' langtimavist 6og i skamm- tímavist 4 hverju sinni. Hámarksdvalartimi I skamm- timavist eru 3 mánuöir á ári. Þannig geta verið allt að 20 ein- staklingar i þjálfun samtimis. Þau hds Vonarlands, sem nU veröa tekin i notkun, eru aöeins fyrsti áfangi þeirra hUsa, sem fyrirhugað er aö reisa til þjónustu við þroskaheft fólk á Austurlandi. Markmið Vonarlands er, að hæfa þroskahefta einstaklinga sem þar njóta þjónustu, að sam- félaginu eftirþvi, sem geta þeirra og aðstæður leyfa. Forstöðumaöur Vonarlands er Bryndi's Simonardóttir, þroska- þjálfi. —mhg Skattskrá Vestf jarðarkjör- dæmis 1980 hefur verið lögö fram. Nema heildargjöld einstaklinga miöað viö afgreiddar breytingar og kærur 6.672 milj. gkr., þar af 43 milj. gkr. hjá börnum. Hækkun heildargjalda'frá fyrra ári nemur 65.7% Barnabætur eru 717 milj. gkr. og er hækkun frá fyrra ári 74.8% og persónuafsláttur til greiðslu útsvars og sjúkratrygg- ingagjalds nemur 212 milj. gkr. Hækkun frá fyrra ári er 224.5%. Meðaltalsálagning i einstökum sveitarfélögum i kjördæminu er þessi: Bolungarvik 1.228.249 gkr., Isa- fjörður 1.183.206, Tálknafjörður 1.126.186, Flateyri 1.049.328, Suð- ureyri 1.048.267, SUÖavik 1.001.053 og Þingeyri 1.000.066 gkr. Hæstu gjaldategundir einstaki- inga eru tekjuskattur og útsvar en hjá fyrirtækjum tekjuskattur, aðstöðugjald og lifeyristrygg- ingagjald. Hæstu einstaklingar eru: Jón Fr. Einarsson, Bolungarvik Hrafnkell Stefánsson, Isafirði Siguröur Bernódusson, Bolungarvik Finnbogi Jakobsson, Bolungarvik Guðfinnur Einarsson, Bolungarvik Guðbjartur Asgeirsson, Isafirði Þórður JUliusson, Isafirði Vagn Margeir Hrólfsson, Bolungarvik Guðjón Kristjánsson, Isafirði Bernharööverby, Isafirði 21.0 milj. gkr. 16.2 milj. gkr. 12.8milj. gkr. 12.lmilj.gkr. 11.9milj.gkr. 11.9 milj. gkr. 11.8 milj. gkr. 11.3 milj. gkr. 10.7 milj. gkr 10.4milj.gkr. Fyrirtæki i Vestfjarðarkjördæmi sem bera hæstu gjöldin eru: Hrönn h.f., Isafirði 83.7 milj. gkr., IshUsfélag Bolungarvikur h.f. 83.3, Hraðfrystihús Tálknafjarðar h.f. 75.7, Hraðfrystihúsið Norðurtangi h.f., tsafiröi 71.6, Einar Guðfinnsson h.f., Bolungarvik 66.4, Samstarfs- félag, Jaröýtur h.f. og Gunnar og Ebenezer h.f. Isafirði 66.1, Miðfell h.f., Hnifsdal 55.0, IshUsfélag Isfirðinga h.f. 54.9, Kaupfélag Dýrfirö- inga 50.0 og Freyja h.f., Suðureyri 45.6 milj. gkr. Skattskrár annarra sveitarfélaga hafa einnig verið lagöar fram og liggja þær frammi frá 22. jUni til og með 6. jUli. Heildarskrá Vest- fjarðakjördæmis og skattskrá Isafjarðar liggja frammi á skrifstofunni Skólagötu 10 á venjulegum skrifstofutima. Hollond flug til Amsterdam 25. júní ISCARGO si* ; Cv-S' ' Austurstræti 3 Simar 1C542 og 12125

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.