Þjóðviljinn - 24.06.1981, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 24.06.1981, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 24. júni 1981 Námskeið RK í skyndihjáp Ekki komust allir aö sem vildu á skyndihjálparnám- skeið Reykjavikurdeildar Rauða krossins á sl. viku og verður þvi efnt til annars námskeiðs á morgun, fimmtu- dag, ef nógu margir þátt- takendur gefa sig fram. Til- kynna má þátttöku til bæki- stöðva Rauða krossins á öldu- götu 4. Eldsmiðurinn er Ámundason Þau leiöu mistök urðu i viötali við Loft Ámundason eldsmið i Landsmiðjunni i Þjóðviljan- um i gær, aö hann var rang- feðraður og sagður Ásmunds- son. Blaðið biöst velvirðingar á þessum mistökum. Hjörtur er hreint ekki að norðan Blaöamanni varð heldur betur á i messunni i h'-’ðinu i gær þegar sagt var frá r riöar- göngunni 1981. Þrátt fyrir mikinn ættfræöiahuga og sér- fræðinga i ættfræði hér á blað inu urðu þ • mistök að Hjört- ur Hjartarson sem tók lagið við Straum var sagður vera af þeirri söngelsku ætt frá Tjörn i Svarfaöardal, sem alið hefur margan góðan vinstri mann- inn og herstöðvaandstæðing- inn Hinn rétti Hjörtur býr á Selfossi og neitar alfariö að vera að norðan, heldur er hann fæddur i Hvitársiðunni. Þar sem ætið skal hafa það er sannara reynist leiðréttist þessi ruglingur hér með. Mjólkin við rétt hitastig Næstu daga koma á mark- aðinn hitamælar, sem fluttir hafa veriö inn á vegum „Mjóikurdagsnefndar” og veröa til sölu I öllum helstu matvöruverslunum landsins þar sem mjólkurvörur eru seldar. Tilgangurinn með sölu hita- mælanna erað stuðla aö því aö fólk geti fylgst meö hitastigi i kæliskápum. Veröa mælarnir seldir undir kostnaðarverði. Undanfarið hafa verið á markaðnum mjólkurumbúðir með leiðbeiningum um geymslu mjólkur. Segir þar m.a.: ,,Er þér kunnugt um að mjólk, sem stendur i stofuhita i u.þ.b. 3 klst. verður allt að 12 gr. heit? Sé hún siðar sett I kæli tekur það hana um 20 klst. að ná réttu hitastigi, sem er 4 gr. C”. Ef mjólkin er geymd við 4—5 gr. C þá er gert ráð fyrir aö hún haldist óskemmd nokk- uð fram yfir ástimplaðan sið- asta söludag. Það er þvi þýð- ingarmikið að geta fylgst nákvæmlega með hitastiginu i kæliskápnum. Eftirlit með gæðum mjólk- urinnar er mjög strangt hjá öllum m jólkurbúunum. Frá þeim á ekki að geta borist skemmd mjólk á markaðinn. I mjólkurbúunum og hjá bænd- um er mjólkin geymd við 4 gr. hita og er þannig send á mark- aðinn. Þá er komið að smásal- anum að gæta þess að hita- stigið sé rétt þar sem mjólkin er geymd og að lokum neyt- andanum, að setja mjólkina strax i kæli þegar komið er með hana heim. —mhg Fyrirtækið Snjóferðir hf. hefur nýlega hafið ferðir um Langjökul með vélsleöum. Fastar ferðir eru alla laugar- daga og sunnudaga frá Húsa- felli, farið með duglegum fjallabil aö jöklinum og þar stigið á sleðana. Siðan er ferð- ast vitt og breitt um jökulinn allan daginn, sumir aka sleð- unum en aðrir geta látið draga sig á skiðum. Á jöklinum er ýmislegt skemmtilegt að skoða eins og til dæmis Þursaborg, og Kirkjuna, fyrir utan það geysilega viðsýni sem er af jöklinum í allar áttir. Að kvöldi er svo ekið að Húsafelli þar sem gisting er fáanleg. Skiöalyfta er einnig starfrækt á jöklinum. Einstaklingar og fyrirtæki geta leigt sleðana hvaða daga vikunnarsem er ef leigðir eru minnst 5 sleðar. Vanur maöur frá Snjdferðum er með i öllum ferðum. Feröaskrifstofa rikis- ins veitir allar nánari upplýs- ingar. Vélsleðaferðir á Langjökul Félagshjúkrunarfræðingar ásamt starfsliði Nýja hjúkrunarskólans. Fremsta röð til vinstri: Auöur Sigurðardóttir, Gróa Sigfúsdóttir, Sigurveig Georgsdóttir, Jóhanna Brynjólfsdóttir, Bjarney J. Sigur- leifsdóttir, Sigriöur Brynja Einarsdóttir og Una O. Guðmundsdóttir. Miðröð frá vinstri: Þóra A. Arn- finnsdóttir, kennari, Sigriður Halldórsdóttir, kennari, Ragnheiður ó. Guömundsdóttir, Rannveig Sigur- björnsdóttir, Laufey Aðalsteinsdóttir, Svava Ingimarsdóttir, Guðrún Eygló Guömundsdóttir, Soffia Siguröardóttir, ritari og Maria Pétursdóttir, skólastjóri. Aftasta röð frá vinstri: Hanna Maria Kristjánsdóttir, Jónina Nielsen, Jóhanna J. Thorlacius, Auður Hauksdóttir, Auöur Angantýsdóttir og Laura Sch. Thorsteinsson, kennari. Nýi hjúkrunarskólinn: Fyrstu félagshjúkrunar- fræðingarnir brautskráðir Nám í öldrunarhjúkrun á næsta skólaári Fyrstu félagshjúkrunarfræö- ingarnir, öðru nafni heilsuvernd- arhjúkrunarfræðingar, útskrifuð- ust hér á landi nú i vor, alls 17 taisins, frá Nýja hjúkrunarskól- anum. Auk þeirra brautskráöust frá skólanum fyrr á vorinu 8 geö- hjúkrunarfræöingar og 12 Ijós- mæður iuku hjúkrunarnámi sinu. í lok þessa mánaðar verða síð- ustu nemendurnir brautskráöir á þessu ári og lýkur þar með 9. starfsári skólans, sem einkum annast framhaldsnám fyrir hjúkrunarfræðinga og hjúkrunar- nám fyrir ljósmæður. Samkvæmt þeirri viðleitni Nýja hjúkrunarskólans að starfa i samræmi við þarfir heilbrigðis- þjónustu og kröfur hvers tima til hjúkrunarfræðinga hefur veriö ákveðið að gefa næsta haust kost á sérfræðinámi i öldrunarhjúkr- un, enda ljós nauðsyn bættrar hjúkrunarþjónustu fyrir sjúk gamalmenni. Auk þessarar nýju greinar hefst að nýju i skólanum næsta haust nám i geðhjúkrun, gjörgæsluhjúkrun, hand- og lyf- Iækningahjúkrun, skurðhjúkrun og svæfingahjúkrun. Þess má geta til gamans að þar sem i skólanum er að ræða fram- haldsnám hjúkrunarkvenna og ljósmæðra, sem margar hverjar eiga lengri eða skemmti starfs- feril að baki, hafa nemendur skól- ans verið á öllum aldri, flestar mæður ungra eða stálpaðra barna og þó nokkrar ömmur sem höfðu mikla ánægju af aö verða barnabörnunum samferða i skóla og skiluðu engu lakari náms- árangri en þær sem yngri voru. Vilhjáimur Rafnsson Varði doktorsritgerð Rannsókn á blóðsökki — vh Varði doktorsritgerð í Uppsölum Jarðfræði Markarfljóts- svæðisins jmk Þann 3. júnl s.I. varði Hreinn Haraldsson doktorsritgerð til Fil. dr. prófs við Uppsalaháskóla i Svlþjóð. Heiti ritgeröarinnar er „The Markarfljót sandur area, southern Iceland: Sedimento- logical, petrographical and stratigrapical studies.” Ritgerðin fjallar um ýmsar jarðfræðirann- sóknir á Markarfljótssvæðinu á Suöurlandi, m.a. setfræðilegar og bergfræðilegar athuganir á fram- burði Markarfljóts, frá Þórsmörk til sjávar. Könnuð var jaröfræöi- og nátt- úrusaga svæðisins, bæði með rannsókn á gerö og landslagi berggrunnsins undir lausu setlög- unumogá upphafiog breytingum á gróðurfari á svæðinu, einkum I Austur-Landeyjum. Þá voru, með hjálp skráöra heimilda og rann- sókna á jarölögum, kannaðar breytingar á rennsli og farvegum Markarfljóts ILandeyjum frá þvi á landnámsöld þar til I dag, þar sem m.a. Njáls saga kemur viö sögu. Dr. Hreinn er fæddur i Reykja- vík 1949, sonur hjónanna Harald- ar Sigfdssonar og Ragnheiðar Jó- hannesdóttur. Hann lauk stddentsprófi frá Menntaskólan- Ilreinn Haraidsson. um IReykjavikl971 og B.S. prófi I jaröfræði frá Háskóla Islands 1974. Haustið 1975 hélt hann til framhaldsnáms við Uppsalahá- skóla og hefur dvalið þar siðan viö nám og störf nema á sumrin, þegar hann hefur unnið að rann- sóknarstörfum á Islandi. Dr. Hreinn er kvæntur Ólöfu Emu Adamsdóttur, kennara og eiga þau tvær dætúr. Hann mun bráð- lega hefja störf hjá Vegagerð rikisins. Hinn 27, mai siöast liðinn varði Vilhjálmur Rafnsson, læknir doktorsritgerö við læknadeild Gautaborgarháskóla. Ritgerðin heitir „The erythrocyte sedi- mentation rate. Observations in a population sample of women and male and female patients”, sem er í lauslegri þýðingu: Blóðsökk, athuganir byggðar á Urtaki kvennahóps, og sjúklinga bæði körlum og konum. Andmælandi var prófessor Lars Erik Böttiger, Karóllnska sjúkrahúsinu Stokk- hólm. Blóðsökk, eöa sökk er rannsóknaraðferö, sem notuö hefur veriö I meir en fimmtiu ár, og á enn tiltrú sjúklinga, og lækna. Það er alkunna að sökkið stigur við suma smitsjúkdóma og bólgusjúkdóma. Markmiðiö með þessum athugunum var að auka þekkingu á gildi blóðsökks við hóprannsóknir, svo og við rann- sóknir og umönnun sjúklinga. Niðurstööur doktors Vilhjálms hafa vakið mikla athygli i Sviþjóð og hefur verið greint frá þeim i dagblöðum og sjónvarpi. vil- hjálmur er sonur hjónanna Huldu Olgeirsson og Rafns Jónssonar tannlæknis. Hann lauk læknaprófi frá Háskóla Islands 1973 og er sérfræðingur i heimilislækning- um. Hann leggur um þessar mundir stund á atvinnusjúk- dómafræöi viö Sahlgrenska sjUkrahúsið i Gautaborg. Vil- hjálmurerkvæntur Onnu Ingólfs- dóttur og eiga þau þrjú börn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.