Þjóðviljinn - 24.06.1981, Síða 14

Þjóðviljinn - 24.06.1981, Síða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN i Miðvikudagur 24. júnl 1981 TILKYNNING til diselbifreiðaeigenda Frá og með 1. júli n.k. fellur niður heimild til þess að miða ákvörðun þungaskatts (kiiómetragjalds) við þann fjölda ekinna kilómetra, sem ökuriti skráir, nema þvi aðeins að þannig sé frá ökuritanum gengið að hann verði ekki opnaður án þess að innsigli séu rofin, sbr. reglugerð nr. 264/1981. Af þessum sökum skulu eigendur þeirra bifreiða, sem búnar eru ökuritum, fyrir 1. júli n.k. snúa sér til einhvers þeirra verkstæða, sem heimild hafa til isetningar ökumæla, og láta innsigla öku- ritana á þann hátt sem greinir i nefndri reglugerð. Að öðrum kosti skulu þeir láta . útbúa bifreiðar sinar ökumælum, sem sér- staklega hafa verið viðurkenndir af fjár- málaráðuneytinu, til skráningar á þunga- skattsskyldum akstri. Fjármálaráðuneytið, 22. júni 1981. TILKYNNING um skattskrár í Vestfjarðaumdæmi, sbr. 2. mgr. laga nr. 40 1978. Skattskrár sveitarfélaga 1980 (vegna árs- ins 1979) liggja frammi 22. júni til og með 6. júli 1981. Heildarskrá og skattskrá ísaf jarðar liggja frammi á skattstofunni, Skólagötu 10, á venjulegum skrifstofutima. Skattskrár annarra sveitarfélaga liggja frammi á vegum hvers umboðsmanns, eins og hann auglýsir. ísafirði, 19/6 1981, Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir mai mánuð 1981, hafi hann ekki verið greiddur i siðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en siðan eru viðurlögin 4.5% til viðbótar fyrir hvern byrj- aðan mánuð, talið frá og með 16. júli. Fjármálaráðuneytið, 18. júni 1981 A Bílbeltin jf* hafa bjargað ||UMTERÐAR ^ Lausar stöður Nokkrar kennarastöður viö Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru lausar til umsóknar. Kennslugreinar sem um er aö ræöa eru: eðlis- og efnafræöi, liffræði, sagnfræði, sálfræði, stærðfræði og sérgreinar á vélstjórnarbraut. Æskilegt er aö umsækjendur geti kennt fleiri en eina námsgrein. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis- götu 6, 101 Reykjavik, fyrir 19. júli n.k. Umsóknareyðu- blöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 22. júní 1981. Staöa fræöslustjóra i Norðurlandsumdæmi eystra er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt itarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 15. júli n.k. Menntamálaráðuneytið, 23. júni 1981. Aðalfundur Skáksambandsins: Skorað á FIDE og sovéska skáksam- bandið Eftirfarandi tiilaga var sam- þykkt á aðaifundi Skáksambands tslands hinn 30. mai s.l.: „Eftirtalin skáksambönd, sem eiga aðild að Skáksambandi Noröurlanda minna á einkunnar- orð FIDE: „GENS UNA SUM- US”. 1 tilefni þess, að heims- meistaraeinvigiö i skák stendur senn fyrir dyrum og reglugerð þess kveður á um, að aðstaða keppenda skuli i hvivetna vera jöfn, lýsa stjórnir skáksamband- anna yfir þvi, að þær álita ekki, aö svo geti talist, á meðan banda- menn annars keppandans hefta fjölskyldu hins i að fara ferða sinna. Þvi skora skáksambands- stjórnirnar á FIDE og Skáksam- band Sovétrikjanna aö gera allt sem i þeirra valdi stendur til að tryggja áskorandanum leyfi til þess að fá fjölskyldu sina til sin, svo að hún geti búið saman þar sem hún kýs, og gera þar með heimsmeistaranum kleift að heyja einvigið við áskorandann við heiðarlegar og jafnar aðstæð- ur”. Tillaga þessi var fyrst lögð fram á stjórnarfundi Skáksam- bands Norðurlanda i Herning i Danmörku 7. mars s.l., og var henni þá visað til aöildarsam- bandanna. Skáksamband Islands hefur þvi nú samþykkt áskorun þessa einróma á aðalfundi sinum, eins og fyrr greinir, og hefur stjórn S.í. sent hana i enskri þýö- ingu til stjórnar Skáksambands Norðurlanda. Norska skáksam- bandiö hefur þegar samþykkt tillögu þessa. Sjálfur Sjóðurínn á sýnlngu Silfursjóðurinn, sem fannst á Miðhúsum i Egiisstaðahreppi sl. sumar, verður hafður til sýnis i afgreiðslu útibús Búnaðarbanka lslands á Egilsstöðum i sumar. Sjóðnum, sem er stangasilfur og skartgripir frá vikingaöld, er komiö fyrir undir glerhjálmi ásamt skýringum og verður til sýnis á venjulegum afgreiðslu- tima bankaútibúsins. Visnavinir á plötunni „Heyröu jVr/ yCjZ Heyrðu... með Vísnavinum Fyrir skömmu kom út þrettán laga hljómplata sem ber heitið Heyröu... Aö útgáfunni standa átta félagsmenn, þau Aðalsteinn Asberg Sigurösson, Bergþóra Arnadóttir, Eyjólfur Kristjáns- son, Gisli Helgason, Hjalti Jón Sveinsson, Ingi Gunnar Jóhanns- son, Jóhannes Hilmisson, og Orvar Aðalsteinsson. Oll lögin ut- an eitt eru samin af þeim félögum og er allur flutningur árangur samstarfs þeirra síðastliöinn vet- ur. Til aöstoðar viö söng og hljóð- færaleik var fengið eftirtaliö heiðursfólk: Bergþóra Ingólfs- dóttir, Egill Jóhannsson, Erna Guömundsdóttir, Helgi E. Kristjánsson, Kristján Þ. Stephensen, Pálmi Gunnarsson, Sigurður Karlsson, Sigurður Rún- ar Jónsson og Wilma Young. Visnavinir hafa starfað meö töluveröum blóma siðastliðin tvö ár og hafa haldið visnakvöld á Borginni i hverjum mánuði yfir vetrartimann. Ut hafa komið hjá þeim tvær snældur með tónlist sem tekin hefur verið upp á kvöldum þessum. Hljómplatan Heyrðu... var hljóðrituð i Stúdió Stemmu i dymbilviku 1981. Um hljóðritun sáu þeir Guðmundur Arnason og Sigurður Rúnar Jónsson. Knadspyrnuskóli Vals 1 gær hofst á vegum knatt- spyrnudeildar Vals, knatt- spyrnuskóli félagsins, en hann hefur verið haldinn nokkur undanfarin ár. A vegum skdlans verða haldin fjögur tveggja vikna nám- skeið og hofst það fyrsta i gær. Þeirsem vilja vera með eiga þrátt fyrir það hæg heimatökin, þvi annað nám- skeiöið hefst 6. júli og stend- ur til 18. júli, hið þriðja hefst svo 20. júlí og stendur til 1. ágústog það siðasta fer fram á tfmabilinu 4. — 18. ágúst. Hverju námskeiði er skipt í tvo hópa. Eldri hópurinn verður fyrir hádegi og munu börn fædd 1969, 1970 og 1971 verða i' þeim hóp en yngri hópurinn börn fædd 1972, 1973 og 1974 verða eftir há- degi. t knattspyrnuskólanum að þessu sinni verður farið i öll undirstöðuatriði knattspyrn- unnar og mun verða kennt á grasvelli allan timann. Þá verður notast við VIDEO- tæki við kennsluna og skoð- aðar myndir sem teknar hafa verið i leikjum með mörgum frægustu knatt- spyrnumönnum heims. Einnig verður fylgst með leik meistaraflokks i Is- landsmötinu og munu þátt- takendur heilsa upp á leik- menn og ræða við þá i bún- ingsklefa bæði fyrir og eftir leik. Skólastjóri og aðalleið- beinandi verður ólafur MagnUsson iþróttakennari og markvöröur meistara- flokks Vals. Meistaraflokks- mainirnir Guðmundur Þor- björnsson, Njáll Eiðsson og Hilmar Harðarson munu leiðbeina með honum. Einn- ig munu leiðbeina þeir Sævar Tryggvason, marg-reyndur unglingaþjálfari og Brynjar Nielsson. Verð fyrir hvert námskeið er kr. 180,00. Innritun fer fram daglega i Valsheimilinu við Hliðar- enda og i' sima 11134 milli kl. 16.00-18.00. ALÞVÐU b and al ag ið Sumarferð ABR Keflavík-Suðurnes Þeir Suðurnesjabúar sem vilja slást i för með félögum sínum úr ABR í Þórsmörk um helgina eru beðnir að skrá sig hjá Einari Ingimundarsyni í sima 1407. Áætlað er að bíll sæki farþega f rá Suðurnesjum kl. 7.00 á laugardagsmorgun á Rútustöðina í Keflavik, ef næg þátttaka fæst. Sláist í för með ABR í Þórsmörk um helgina. Skjót vióbrögð Þaö er hvimleitt aó þurfa aö biöa lengi meö bilaö rafkerfi, leiöslur eöa tæki. Eöa ný heimilistæki sem þarf aö leggja fyrir. Þess vegna settum viö upp neytendaþjónusluna - meö harösnúnu liöi sem bregöur skjótt viö. ATH. Nvff simanúmer: 8595b

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.