Þjóðviljinn - 30.07.1981, Qupperneq 1
UOÐVIUINN
Fimmtudagur 30. júli 1981 —164. tbl. 46. árg.
Norðurlandaskákmótið
t sjöttu umferð I úrvalsflokki á Norðurlandaskákmótinu, sem
fram fór i gærkvöldi, sigraði Helmers Hans'en og Margeir sigraöi
Rantanen. Skák Guðmundar og Raaste fór i bið og hefur
Guðmundur skiptamun yfir og góðan möguleika á sigri. Skák Helga
og Schtlsslers lauk með jafntefli eftir aðeins 16 leiki, en skák Orn-
stein og Kristiansen fór i bið og er jafnteflisleg.
t kvennaflokki gerðu þær Áslaug og ölöf jafntefli. Sigurlaug sigr-
aði Grahm en skák Stewart og Assmundsson fór i bið.
Helmers er nú efstur i úrvalsflokki meö 4 1/2 vinning, en
Guðmundur á einnig fyrsta sætið vinni hann biðskákina.
Kæliskápar, þvottavélar, ryksugur og hrærivélar lækka í verði 1. ágúst .
Ragnar Arnalds: Löngu liðin tfð
að þessar vörur teljist til luxus-
varnings.
Vörugjald fellt mður
Fyrsta skrefið í þá átt að jafna opinber gjöld á ýmsum nauðsynjavörum
heimilanna, segir fjármálaráðherra
Fjármálaráðherra undirritaði I
gær reglugerð um niðurfellingu
24% vörugjalds af kæliskápum,
þvottavélum ryksugum og hræri-
vélum. Frá 1. ágúst lækka þessar
vörur sem þvf nemur.
Ragnar Arnalds fjármálaráö-
herra sagði i gær að þessi ákvörö-
un ásamt afnámi söluskatts af að-
gangi að sundstöðum, sem greint
er frá annarsstaöar á siðunni,
hefði fyrst og fremst verið tekin
til einföldunar og samræmis, en
jafnframt væri þetta að sjálf-
sögðu þáttur i viðleitni rikis-
stjórnarinnar til aö draga úr
verðbólgu i landinu og halda niðri
verðlagi.
,,bessi heimilistæki eru meðal
þeirra nauösynjavara heimilanna
sem bera óhæfilega há opinber
gjöld. bar má nefna 80% toll, 24%
vörugjald, og siðan 23 1/2% sölu-
skatt. Aðflutningsgjöldin ásamt
söluskatti nema i heild um 175%.
Einu sinni töldust þessar vörur
til lúxusvarnings, en það er að
sjálfsögðu löngu liðin tið. Við höf-
um tekiö ákvörðun um að fella
niður vörugjaldið af þessum há-
tollavörum, kæliskápum, þvotta-
vélum, ryksugum og hrærivélum,
sem fyrsta skrefið I þá átt að
jafna opinber gjöld á ýmsum
nauðsynjavörum heimilanna.
bessi niðurfelling mun kosta rik-
issjóð um 4.2 milljónir króna á
þessu ári,” sagði fjármálaráð-
herra i samtali við blaðið i gær.
— ekh
Lelkhúsin
Ferð frá
Reykjavík
Bandarisku herstöðinni á Stokks-
nesi við er að jafnaöi litill gaumur
gefinn. Hún er þó hlekkur i
hernaðarkerfi Bandarikjanna og
NATÓ á Norður-Atlantshafi. Her-
stööin er hluti af svonefndu
GIUK-hliði, sem er net
SOSUS-hlustunarstööva milli
Grænlands, tslands og Bretlands.
Einnig er hún hlekkur i keðju sem
nefnd er Distant Early Warning
System. Um eitt hundrað banda-
riskir hermenn hafast við i stöð-
inni.
Herstöðvaandstæðingar á
Austurlandi hafa ákveðið að efna
til friðargöngu frá Stokksnesi til
Hafnar 9. ágúst næstkomandi. Er
hún farin fyrst og fremst til þess
að vekja athygli á tengslum her-
stöðvarinnar á Stokksnesi viö
kjarnorkuvopnakerfi Banda-
rikjahers á Norður-Atlantshafi.
Ákveðið hefur verið að efna til
hópferðar frá Reykjavik 8. ágúst
á vegum Samtaka herstöðvaand-
stæðinga. Fariö verður frá
Reykjavik kl. 8 á laugardags-
morgni 8. ágúst, og haldið aftur
frá Höfn kl. 15.30 á sunnudaginn 9.
Herstöðvaandstæðingar sem ætla
af Reykjavikursvæðinu og
nágrenni i friðargönguna Stokks-
nes-Höfn eru hvattir til þess aö
skrá sig hið fyrsta i sima Sam-
taka herstöðvaandetæðinga 17966
frá kl. 5—7 e.h. alla virka daga.
/
Odýrara
að fara
í sund
Frá og með 1. ágúst verður 23
1/2% söluskattur afnuminn af
aðgöngu sundstaöa. Jafnframt
hefur sundstöðum I Reykjavik
verið hcimiluð 10% hækkun (báðu
um 20%), þannig að það mun
kosta um 11% minna að fara i
sund eftir mánaðamótin.
„betta er gert til samræmis og
einföldunar, og ekki siður meö
tilliti til þess að hér er um mjög
mikilvæga almenningsiþrótt að
ræða. 1 fyrra var felldur niður
söluskattur af tónleikahaldi og
leiksýningum og þvi er þetta
áframhald af þeirri viðleitni
rikisstjórnarinnar að styöja við
bakið á menningarstarfsemi i
landinu,” sagði Ragnar Arnalds
fjármálaráðherra af þessu tilefni
i gær.
Söluskattur hefur ekki verið að
Iþróttasýningum, kappreiöum,
skiöalyftum, eða leigu á iþrótta-
sölum, en greiddur hefur verið
aðgangur aö sundstöðum. Er þvi
sundið eina iþróttageinin sem
borið hefur söluskatt. Eftir 1.
ágúst er það einnig liöin tiö.
• — ekh.
Söluskattur afnumin
af gjmenningsíþrótt
undirbúa
Laxnesshátíð
Halldór Laxness veröur
áttræður á næsta ári, nánar
tiltekið 23. april. Heyrst hefur að
leikhúsin þrjú hér l borginni, hafi
öll i hyggju að heiðra Halldór með
þvi að flytja verk ýmist samin
eftir skáldsögum hans eða um
hann sjálfan. .
Leikfélag Reykjavikur ætlar að
setja sjálfa Sölku Völku á sviö,
bjóðleikhúsið að öllum likindum
verk samið upp úr sögunni um
Ólaf Ljósviking og Alþýðuleik-
húsið á von á nýju leikriti úr
penna ólafs Hauks Simonarsonar
um Amerikuár Halldórs. Eins og
lesendur Halldórs vita var hann i
Ameriku á árunum fyrir
kreppuna miklu og skrifaði
marga skarpa pistla um veruna
þar.
Stokksnesganga
Sjá síðu 6 og 14
Vegabréfaáritanir til Bandaríkjanna ræddar í ríkisstjórninni
Viimubrögð sendiráðs
óeðlileg og ósæmileg
segir Svavar Gestsson form. Alþýðubandalagsins
„Ég tel þessi vinnubrögö
bandariska sendiráðsins bæði
óeðlileg og ósæmileg og tel jafn-
vel að hér sé um brot á Helsinki-
sáttmálanum að ræða,” sagði
Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins i samtali við
bjóðviljann i gær, um þá starfs-
hætti bandariska sendiráðsins á
tslandi að veita félögum i Alþýðu-
bandalaginu ekkí vegabréfsárit-
un til Bandarikjanna.
,,Ég hef lent i þessu sjálfur fyr-
ir nokkrum árum og veit þvi vel i
gegnum hvað menn þurfa að
ganga i þessum efnum. t fram-
haldi af þvi máli sem kom upp nú
i vikunni, varðandi forseta Skák-
sambandsins, þá tók ég þetta mál
á dagskrá á rikisstjórnarfundi i
morgun. Aður hafði Hjörleifur
Guttormsson tekið upp hliðstætt
mál I rikisstjórninni I siöasta
mánuði, þegar opinberum starfs-
manni rikisins var neitað um
vegabréfsáritun til Bandarikj-
anna iopinberum erindagjörðum,
þar sem hann var félagi i Alþýðu-
bandalaginu”.
Svavar sagði að Ólafur Jó-
hannesson, utanrikisráðherra
hefði gefið skýrslu á rikis-
stjórnarfundinum um þær starfs-
reglur sem bandariska utanrikis-
ráðuneytið vinnur eftir i þessum
efnum.
„1 tilefni af þeim málum, sem
nú hafa komið upp, var utanrikis-
ráðherra falið aö taka þessar
starfsaðferðir sendiráðsins til
sérstakrar athugunar og i fram-
haldi af þvi mun rikisstjórnin
ákveða frekar um framhald
þessa máls”, sagði Svavar. — lg.