Þjóðviljinn - 30.07.1981, Side 5
Fimmtudagur 30. júlí 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Óeirðirnar
í Bretlandi
Enn blossa upp götu-
bardagar milli lögreglu
og ungmenna i borgum
Bretlands. t fyrradag
kom til átaka i Toxteth-
hverfinu i Liverpool og
voru sett upp götuvigi,
bensinsprengjum kast-
að og bæði lögreglu-
menn og borgarar
fluttir á sjúkrahús
vegna meiðsla.
Atburðir þessir hafa borið
nokkuð á góma i islenskum fjöl-
miðlum, einkanlega vegna
skrifa Visisritstjóra, sem túlkað
hefur atburðina sem kynþátta-
Bflar eyftilagðir. Óeirftirnar standa enn yfir i Toxteth-hverfinu i Liver-
pool.
Ilandtaka i Moss Side i Manchester
Ekki neitt „unglingavandamál”
deilur og unglingavandamál.
Við náðum tali af Arnþóri
Jónssyni, sem i fjögur ár hefur
stundað tónlistarnám (selló) i
Manchester, og báðum hann að
segja okkur fr'á sinni reynslu af
atburðunum, i Manchester og
almennt i Bretlandi.
— Þetta er ekkert unglinga-
vandamál og þótt þessar óeirðir
tengist kynþáttaerfiðleikum, þá
er fyrst og fremst um að kenna
þessu mikla atvinnuleysi núna i
Bretlandi. Það er rétt, að það er
aðallega ungt fólk sem hefur
staðið i þessum götubardögum,
en hinsvegar ekki sérstaklega
unglingar.
— Það fjölgar alltaf atvinnu-
leysingjunum, og þeir standa
fleiri og fleiri útá götu, hafa
ekkert að gera. Eg held að það
séu um þrjár miljónir atvinnu-
lausra, og sú tala hækkar þegar
fjölskyldur þeirra eru taldar
með. Þetta er allskonar fólk,
ungt og gamalt, hvitt og svart
og brúnt, allavega þar sem ég
bý, i blönduðu hverfi,
Longsight. Atvinnuleysið er þar
auðsætt, þrátt fyrir að það
hverfi sé ekki fátækrahverfi.
Toxteth
— Nú, það kemur sumar og
hitiog þaðfjölgará götunum, og
það er spenna i andrúmsloftinu,
og óánægjan brýst svo út af
minnsta tilefni. Þetta byrjaði i
vor fyrir alvöru i Toxteth-hverf-
inu i Liverpool, sem er byggt
negrum og indverjum að
meginhluta. Atvinnuleysi er
næstum algjört þarna.
Nasistarnir (National Front)
eru mjög áberandi i Bretlandi
núna, sérstaklega svokallaðir
skallar (skinheads), hópar af
ungu fólki gjarna atvinnulausu,
sem National P’ront tekur uppá
sina arma. Þeir krúnuraka sig
og ganga i stórum klossum i
fylkingu um göturnar.
Eftir einhvern fund hjá
nasistum voru tveir eða þrir
rútubilar fullir af sköllum
keyrðirinni.mitt Toxteth. Þarna
var beinlinis verið að ögra ibú-
unum og allt sauð uppúr.
Þessar óeirðir i Toxteth eru
einsog neisti i púðurtunnu, og
götubardagarnir breiddust
siðan útum allt Bretland.
Óeirðaraldan nær hámarki i
Brixtonhverfi i London, en þar
búa aðallega Djamækamenn,
þar á meðal margir svokaliaðir
rastar, sem menn þekkja
kannski frá Bob Marley og
reggiinu. Lögreglan virðist hafa
sérstakt horn i siðu þeirra og
stunda meira eða minna
ástæðulausar húsrannsóknir hjá
þeim og áreita þá á allan hátt.
Einn daginn eftir Toxteth-óeirð-
irnar eru svo settar upp götu-
segir Arnþór
Jónsson,
námsmaður
í Manchester
Arnþór Jónsson
tálmanir, bobbiarnir koma og
allt verður vitlaust.
Bæði hvítir
og svartir
— Þetta hefur gerst á svip-
aðan hátt allsstaðar. 1
Manchester voru óeirðirnar
aðallega i hverfi sem heitir
Moss Side. Þar eru innflytjend-
urnir flestir, fátæktin og at-
vinnuleysið mest. Lögreglan i
Manchester er mjög fjölmenn
og óvenju illvig, og átti þar tölu-
verðan þátt i að spennan á göt-
unum magnaðist upp i bardaga.
Þeir eru ekki með skotvopn, en
þegar óeirðir verða skjóta þeir
gúmmikúlum og leysa út ein-
hverskonar lömunargas.
Óeirðirnar i Manchester stóðu
i rúma viku, og þaö voru bæði
hvitir og svartir sem tóku þátt,
hvitir ekkert siður. Það var
kastað grjóti og bensinsprengj-
um, kveikt i bilum, verslanir
rændar og brenndar. Það var
raunar merkilegt, að ekki hvaða
verslun sem er fékk þessa
útreið, og ég heyrði af þeirri
skýringu eins þátttakandans, að
þeir brenndu hjá þessum af þvi
hann væri okrari, en ekki i kin-
versku búðinni við hliðina þvi að
konan þar væri almennileg,
þannig að þetta er ekki bara
taumlaus reiði.
— En það hefur ekkert borið á
myndun hópa með pólitiskar
kröfur, engir einstaklingar
gerst leiðtogar annarra svo að
séð verði. Það er enginn Lech
Walesa.
' Thatcher
— Thatcherstjórnin ætlar að
taka þetta föstum tökum, það
þýðir að hún ætlar að kveða
þetta niður, með hervaldi ef
annað bregst. Ihaldsmenn tala
um unglingavandamál og af-
brotahneigð.
— Það er ekki gott að segja
hvað gerist. Thatcher hefur
ságt, að úr þessu lari ástandið
að skána i bresku efnahagslifi.
Eg veit ekkert um það, en mér
sýnist þetta verða verra og
verra.
— Eg held að þetta sé ekkert
stundarfyrirbrigði sem þarna er
á ferðinni. Það er griðarlegt at-
vinnuleysi, og þar að auki búið
að kreppa mjög að almenna
skólakerfinu. Margir unglingar
ginnast af atvinnuauglýsingum
frá hernum sem hanga uppum
alla skólaveggi. Svo eru nasist-
arnir á höttunum eftir liðsafla.
— En þessir atburðir i Bret-
landi eru ekkert yfirborðslegt
unglingavandamál. Þetta er
fyrst og fremst fátækt fólk, sem
hefur engu að tapa. — m
Jens Evensen; förum af staft, svo geta fleiri bæst vift.
Nýtt frumkvæði Jens Evensens í afvopnunarmálum:
Býðst til að skrifa drög að
samningi um Norður-
iönd án kjarnorkuvopna
Jens Evensen sendiherra,
reyndasti samningamaftur Norft-
manna um alþjóðamái, hefur
boftist til aft gera drög aft samn-
ingi um Norfturiönd sem kjarn-
orkuvopnalaust svæfti. Tilboft
þetta gerfti Evensen á friftarhátift
norræns æskufólks, sem lauk i
Þrándheimi um helgina.
Það var að frumkvæði Jens
Evensens, að barátta fyrir kjarn-
orkuvopnalausu svæði komast á
stefnuskrá Verkamannaflokksins
norska.
Evensen telur aft kjarnorku-
veldin fimm verði aft vera aðili aft
samningi um þetta mál. Þaft ætti
einnig að halda þeim möguleikum
opnum aft önnur ríki i Evrópu
gerist aöilar aö samkomulaginu.
Riki án kjarnorkuvopna veröa, aö
áliti Evensens, aft skuldbinda sig
til þess aö hafa aldrei kjarnorku-
vopn né heldur taka vift kjarn-
orkuvopnum á sinu landi. A hinn
bóginn verfti kjarnorkuveldin aft
skuldbinda sig hátiftlega til aft
virfta stranglega stöftu rikja án
kjarnorkuvopna og hvorki beita
né hóta aft beita kjarnorku-
vopnum gegn þeim. Alþjóftleg
stofnun veröur aö hafa eftirlit
meft þvi aft samningurinn sé
virtur og bendir Jens Evensen til
fyrirmyndar á eftirlit þaft sem nú
er haft meft samkomulaginu um
kjarnorkuvopnalaust svæfti I
Suöur-Ameriku.
Framhaldiö
Jens Evensen getur hugsaft sér
eftirfarandi riki — fyrir utan
Norfturlönd — sem riki án
kjarnorkuvopna: Austur-Þýska-
land, Pólland, Tékkóslóvakiu,
Vestur-Þýskaland (efta hluta
landsins td. austan Rinar), Hol-
land og Belgiu, Sviss, Austurriki,
Júgóslaviu, Grikkland, Ung-
verjaland, Rúmeniu og Tyrk-
land — efta hluta Tyrklands.
Þegar fram i sækir mætti og
semja um kjarnorkuafvopnun
hafsvæfta, algjöra efta aft hluta til,
á 100-200 milna belti meftfram
ströndum Noröur-Evrópu og/eöa
i Eystrasalti.
Jens Evensen, sem hefur mikla
reynslu af þvi aö semja vift Sovét-
rikin, telur aft ýmislegt sem
þaðan hefur heyrst bendi til sam-
komulagsvilja og fúsleika til aft
koma til móts vift Norfturlönd, t.d.
meft þvi aft fækka efta fjarlægja
kjarnorkuvopn á Kolaskaga,
rétt viö landamæri Noregs i
noröri.
Norræn stefna
Flokksbróftir Evensens i
Verkamannaflokknum, Helge
Sivertsen, sem er formaftur af-
vopnunarnefndar þeirrar sem
stjórnin hefur skipaö meft full-
trúum hinna ýmsu flokka hvatti i
Arbeiderbladet á mánudag til
þess að utanrikisráftherra
Norfturlanda leggi á fundi sinum i
Kaupmannahöfn I september-
byrjun grundvöllinn aft norrænni
baráttulist á sviöi afvopnunar-
mála. Hann lagöi áherslu á aft þaö
væri efst á dagskrá aft utanrikis-
ráðherrarnir kæmu sér saman
um hiklausa stefnu aft því er
varftar kjarnorkuvopn. Noröur-
lönd verfta aft lyfta hátt friftar-
fána i alþjóftlegum stjórnmálum,
sagöi Helge Sivertsen ennfremur.
(byggt á Information)