Þjóðviljinn - 05.08.1981, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 05.08.1981, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Miövikudagur 5. ágúst .1981 KÆRLEIKSHEIMILIÐ vidtalið „Kátur er óþekkur, mamma. Hann er að ganga á götunni." Þaö er fleira en túlipana og hass aö finna I Amsterdam. Hún Cindy er ættuö þaðan og aö sögn kunnugra mældi baövigtin eins 240 kg. þegar hún steig á hana siðast. mfíM Jr~rr~'—j Þetta mun heita skip-bot. Vissir þú? að þaö er ekki einungis vin sem er prófaö af sérstökum sérfræö- ingum, heldur eru stéttabræður þeirra einnig uppteknir við aö reyna gæði tesins. að meiri likur er á að þykkt glas brotni ef sjóðandi heitu vatni er hellt i þaö heldur en þunnt glas. að ameriski miljónamæringur- inn Paul Getty skrifaði eina bók. Hún hét, „Hvernig verður mað- ur rikur”. aö opinberar slysatölur sýna fram á að færri láta lifiö i flug- slysum en þeir sem eru slegnir til dauða af ösnum. Rætt við Maríu Birnu Arnardóttur 7 ára / A puttanum í sveitina Þaö er alltof sjaldan sem spjallað er við börn I fjölmiölum, það er eins og þau séu varla til, nema hvaö þeim er ætlaö eitthvcrt smáhorn til að glugga i. Til aö bæta úr þessu varhúnMaria Amardóttir 7 ára tekin tali, þegar hún kom að heimsækja mömmu sina á vinnustaö, en sá staöur er ein- mitt Þjóöviljinn. Þennan dag rétt fyrir verslunarmanna- helgina var Maria aö undirbúa þaö aö fara ásamt vinkonu sinni, I þaö minnsta 15 árum eldri, á puttanum vestur á Snæfellsnes. Viö Maria ræddum saman um lifið og tflveruna og hér kemur árangurinn af spjallinu. — Hvaö gerir þú á daginn Maria? Ég leik mér og fer i sund, en annars geri ég ekkert. — Finnst þér kannski leiöinlegt i Reykjavik? Já, það er ekkert hægt að gera. — Geturðu ekki lesiö eöa teiknað? Ég les svo illa, ég fékk bara 3 i lestri, en mér finnst gaman að reikna, ég fékk 8 i reikningi. Ég teikna þegar ég er inni. — Hvaö ertu aö fara aö gera á Snæfellsnesi? Fara til afa og ömmu i Hrisdal. — Finnst þér skemmtilegra í sveitinni en hér? Já, þar er hægt aö gera svo margt. — Eins og hvaö, eiga afi þinn og amma stórt bú? Já, þau eiga 8 kyr, ofsalega margarkindur, 20 hænsni, hund sem heitirLotta, hún eignaðist 4 hvolpa i vor, eina kisu og einn kettling. — Eru kannski mýs þarna I sveitinni hjá ykkur? Nehei. — Hvaö geriö þiö þá meö kött? Hann er bara þarna. — Hvaögcriröu þegar þú erti sveitinni? Svo margt. Ég sæki kýrnar, hjálpa til og tini ber, það er svo skemmtilegt. — Eru fleiri krakkar I Hris- dal? Já, en engar stelpur, bara miklu stærri strákar, sem eru að vinna. — i hvaöa skóla ertu? Laugagerðisskóla fyrir vestan. Ég fer I þriðja bekk og þá lærum við að hnýta. Mér finnst langskemmtilegast aó búa eitthvað tíl i skólanum og svo að reikna. — Segöu mér annaö, horfir þú mikiö á sjönvarp? Nei, ekkert voöalega mikið. Ekki þaö sem mér finnst leiöinlegt. — Hvað er leiöinlegt? Svona eins og Nýjasta tækni og visindi. — Hvaö er þá skemmtilegt? Tommi og Jenni, teiknimyndir og þaö sem er fyndið. — Horfirðu á auglýs- ingarnar? Já.stundum. Ég apa stundum eftir þeim, ég kann sumar utan að. Mér finnst gaman aö auglýs- ingum þegar þær eru nýjar. — Þú sagðir aö þú værir léleg f lestri. Finnst þér ekki gaman aö sögum, t.d. þjóösögum? Nei, ég verð hrædd. Þegar þjóðsögurnar voru leiknar i sjónvarpinu gat ég ekki sofnað. Mérfannsteins og þessar skess- ur væru að koma, þær voru svo ferlegar. — Ég var aö frétta aö þiö systurnar þú og Munda Sirrí væruð að hugsa um aö fá ykkur hund, er það rétt? Já, en við vitum ekki hvernig hann á að vera. Ég vil að hann sé hvitur, af þvi að við erum báðar með hvitthár, en Munda Sirrisegir að hann eigi að vera briínn af þvi að mamma er með brúnt hár. — ká. Þeir áttu ekki samleiö — eöa firring á hestbaki. Ekki var þaö nú merkilegt, „umtalaösta” tölublaö Alþýöu- blaðsins sem lesendur fengu loks aö lfta augum um helgina. < Q O ÞL. — Góöan daginn,litla mln. Er pabbi þinn heima? — Honum hlotnast sá heiöur aö vera valinn til aö prófa undralyfið „Nonflint”, þaö eina sem gagnar gegn hörgulsiúkdómum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.