Þjóðviljinn - 05.08.1981, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 05.08.1981, Blaðsíða 15
Miövikudagur 5. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Ég er einn af þeim þúsundum Hafnfirðinga sem aka Reykja- vikurveginn á degi hverjum, á leið minni til og frá Reykjavik. Hve oft mér hefur komið til hugar að kvarta við bæjaryfir- völd i Hafnarfiröi vegna þessa vegakafla hef ég ekki tölu á,en liklegast er það i hvert einasta skipti sem billinn minn, ég sjálf- ur bilstjórinn og farþegar, ef nokkrir erú, tökum dyfur i þessu tungllandslagi sem á að heita aðalvegur i gegnum 12 þús. manna byggðarlag. Einkum er mér i huga ástand slitlags á gatnamótum Reykja- vikurvegar og Hjallabrautar, þar sem hver holan við aöra set- ur mark sitt á malbikið. Stendur ekki til að bæta úr þessu hörmu- lega ástandi vegarins, með þvi að fylla upp i þessar holur, eöa á aö láta viö svo búið standa og biöa eftir að einhver billinn gef- ur sig undan þessum holuskrött- um? Bilstjóri úr Firðinum. Björn Arnason bæjarverk- fræöingur i Hafnarfiröi sagðist kannast vel viö ástandið og von- andi yrði búið að kippa þessu i liðinn sem fyrst. Til stóð að laga þetta i siðasta mánuði en vegna anna gat verktaki ekki komið þvi i verk. Hins vegar sagði Björn að allar likur væru á að hafist yrði handa við úrbætur á þessum vegarkafla i þessum mánuði, auk þess sem á þessu ári verða hafnar framkvæmdir við endurbyggingu Reykja- vikurvegar. Hringid i sima 81333 kl. 9-5 alla virka daga, cda skriýid ÞjóóvUjanum lesendum Holóttir vegir í Hafnarfirði Þjóðleg sumarvaka í tali og tónum Að vanda veröur sitt af hverju tagi á „sumarvöku” hljóðvarpsins i kvöld. Fólk getur sest niöur i kvöld við viðtækið sitt og unaö sér við tal og tóna, eins og endranær. Þorsteinn Matthiasson flytur frásöguþátt sem hann skráði eftir Hirti Sturlaugssyni frá Snartartungu og nefnist þátturinn Attundi desember 1925. Oddny Guömundsdóttir frá Langanesi les kvæðabálk úr nýútkominni ljóðabók sinni Aldarháttur. Valborg Bents- dóttir flytur frásöguþátt sem hún nefnir Smalará roðskóm. Og ekki vantar tónlistina i þessa þjóölegu dagskrá sumarvökunnar i kvöld. Arnesingakórinn i Reykjavik syngur islensk lög, Jónlna Gisladóttir leikur með á pianó og Þuriöur Páls- dóttir stjórnar. En sumar- vakan hefst með einsöng Jóhanns Konráðssonar frá Akureyri. Hann syngur lög eftir Jóhann 0 Haraldsson, en Oddný Guðmundsdóttir les á sumarvökunni úr Ijóðabók sinni. Guðrún Kristinsdóttir leikur með á pianó. Frjálsar íþróttir Meistaramót Islands 1 frjálsum iþróttum fer fram i kvöld, á morgun fimmtudag og á föstudagskvöldið. Her- mann Gunnarsson segir frá keppninni i kvöld og annaö kvöld i útvarpinu. Skráðir keppendur á mótinu eru 138 frá 17 félögum og héraössam- böndum. Meöal keppenda eru flestir bestu frjálsiþróttamenn landsins og vænta menn þvi góðra afreka og fjörugrar keppni. Hermann mun i kvöld lýsa keppninni i m.a. kúlu- varpi karla og kvenna, undan- rásum i langstökki og spjót- kasti karla og spjótkasti og hástökki kvenna. Þá fer fram keppni i 100 m grindahlaupi kvenna og 400 metra grinda.- hlaupi karla. Þá fer fram 200 m hlaup karla og 800 m hlaup beggja kynja. Þá verður keppt i 4x100 m boðhlaupi karla og kvenna. Mótið i kvöld verður settkl. 19.00 en þaö gerir Þórir Útvarp kl. 22.35 Þetta er ekki griski kringlu- kastarinn eftir Myron heldur Ingólfur Hannesson iþrótta- fréttamaður á Þjóðviljanum. Máske verða sveiflurnar i þessum dúr á Meistaramóti islands i frjálsum iþróttum. Lárusson formaöur tR. Keppninni i kvöld lýkur um kl. 22.00 Úr Blandaða blaðinu Barnahornid

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.