Þjóðviljinn - 05.08.1981, Síða 3
Miðvikudagur 5. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Opinberum starfsmanni neitað um vegabréfsáritun til Bandarikjanna
Sagður vera félagi í
hættulegum samtökum
Eins og sést á þessu skjali braut umsókn Péturs Reimarssonar I bága
við 28 inálsgrein 212 greinar laga um innflutningsleyfi og vegabréfs-
áritanir til Bandarikjanna.
i umræddri grein segir að óleyfilegt sé að veita nokkrum þeim vega-
bréfsáritun sem er eða hefur verið félagi i hættulegum félagssamtök-
uni, „proscribed organization”. Siðan segir orðrétt: Þar sein þú hefur
verið félagi i Alþýðubandalaginu frá þvi 1980 er óheimilt að veita þér
vegabréfsáritun.”
Þar fyrir neðan hefur sendiráðsstarfsmaðurinn bætt inn þessari setn-
ingu: „Mælt með undanþágu” en eins og kemur fram i viðtalinu við
Pétur þurfti fyrst að hringja til Frankfurt I Þýskalandi og fá leyfi fyrir
slikri „greiðasemi”.
„Brennunjálssaga”:
Frumsýning
og íímamóta-
tónleikar
Fimmtudaginn 6. ágúst kl. 21.
verður frumsýnd i Háskólabió
kvikmyndin Brennunjálssaga
eftir Friðrik Þór Friðriksson.
Friðrik hefur verið einkar at-
hafnasamur á sviði listmála
hérlendis um nokkurt skeið, —
nú siðast með_stofnun og starf-
rækslu kvikmyndablaðs.
Brennunjálssaga verður
aðeins sýnd i þetta eina skipti,
en af þvi tilefni hefur Friðrik
valið nýja leið við tónflutning:
Hljómsveitin Þeyr hefur verið
fengin til þess að sjá um alla
tónlist við kvikmyndina og
verður hún flutt „lifandi”
meðan á sýningu stendur. t þvi
sambandi verður kynnt frumút-
gáfa hins nýja hljóðíæris, sem
Guðlaugur Ottarsson liðsmaður
Þeys hefur hannað og kallar
„Fourier”. Hljóðfærið er skirt i
höfuðið á franska stærð-
fræðingnum Jean Baptiste
Fourier, en hann var einn af
frumkvöðlum stærðfræðilegrar
skilgreiningar hljómlistar.
Eftir að sýningu myndarinnar
lýkur, verða haldnir hljóm-
leikar þar sem hljómsveitin
Þeyr mætir þriefld til leiks eftir
hlé vegna hljómplötuupptöku og
æfinga. Hljómsveitin fylkir sér
að þessu sinni saman undir hug-
takinu „tónlist frá Trans-Plútó”
og kemur vafalaust á óvart sem
fyrr.
tslensku Kamarorghestarnir,
sem söfnuðust saman i hið
merkasta stóð i Danmörku,
koma ennfremur fram og frum-
sýna nýjan rokk-kabarétt,
ungum jafnt sem öldnum til
ánægju og upplýsingar. Það má
jafnvel búast við þriðju hljóm-
sveitinni á þessum hljómleik-
um, en nafni hennar og bak-
grunni er haldið leyndu.
Forsala aðgöngumiða verður
i Bókaverlslun Sigfúsar
Eymundssonar og i Fálkanum
að Laugavegi 24.
„Sendiráðsmaðurinn tjáði mér
að þar sem ég væri félagi I Ai-
þýðubandalaginu sem þeir felldu
undir „proscribed organization”
fengi ég ekki vegabréfsáritun til
Bandarikjanna. Þegar heim kom
fletti ég þessum orðum upp i
orðabók og gat ekki fengið annan
skilning i þau en að ég væri félagi
i hættulegum samtökum, sam-
kvæmt þeirra skilgreiningu,”
sagði Pétur Keimarsson starfs-
maður Vinnueftirlits rikisins i
samtali við Þjóðviljann.
í lok júnimánaðar sl. sótti Pét-
ur um vegabréfsáritun til Banda-
rikjanna hjá bandariska sendi-
ráðinu hérlendis,' vegna ferðar
sem hann þurfti að fara i opinber-
um erindagjörðum á vegum
Vinnueftirlitsins.
„Fyrst af öllu þurfti ég að
skrifa undir yfirlýsingu þess elnis
að ég væri hvorki kommi, hommi
né geðveikur, en þetta er allt
sett undir einn og sama hattinn.
Pétur Reimarsson: Veit ekki til
þess að hér séu nokkur samtök
starfandi sem eru hættuleg
Bandarikjamönnum.
Nokkrum dögum siðar var
hringt i mig og ég boðaður til við-
tals i sendiráðið. Varakonsúllinn
tók á móti mér og spurði hvort ég
væri sá sami Pétur Reimarsson
og sá er ætti sæti i stjórn Alþýðu-
bandalagsins i Reykjavik. Ég
neitaði þvi ekki og þá tilkynnti
hann mér að þar sem Abl. félli
undir þá skilgreiningu þeirra að
vera hættuleg félagssamtök fengi
ég ekki vegabréfsáritunina. Hins
vegar væru likur á þvi að ég lengi
undanþágu, en fyrst yrði hann að
hringja til Frankfurt og fá stað-
festingu á að svo gæti orðiö.
Ég fékk siðan undanþáguáritun
þar sem allt var tiundaö um mitt
ferðalag til Bandarikjanna.
Mér finnst einkum þrjú atriði
skipta mestu máli i þessu sam-
bandi. I fyrsta lagi það sem snýr
að einstaklingnum, að þurfa að
sitja undir yfirheyrslum um sinar
stjórnmálaskoðanir, og þá má
taka fram að það er ekki einungis
Alþýðubandaiagið sem talið er
vera hættuleg samtök hérlendis,
samkvæmt mati sendiráðsins.
1 öðru lagi snýr þetta mál að
þeim samtökum sem eru sögð
vera hættuleg aö áliti sendiráðs-
ins og bandariskra stjórnvalda,
þ.e. einhver lög sem segja til um
hverjir eru gjaldgengir tii Banda-
rikjanna og hverjir ekki. í þriðja
lagi er siðan sú staðreynd að hér
starfar erlendur aðili sem stund-
ar skráningu á skoöunum og
flokksþátttöku islenskra einstak-
linga. Slikt er algjör timaskekkja
og varðar við nýsamþykkt lög frá
Alþingi um bann við upplýsinga-
öflun um persónulega hagi ein-
staklinga,” sagði Pétur.
„Það hlýtur að vera krafa Is-
lendinga að öll þau innlend sam-
tök sem eru á þessum svarta lista
Bandarikjastjórnar verði klippt
þaðan út. Ég veit ekki til þess að
hér séu nokkur samtök staríandi
sem eru þjóðhagslega hættuleg
Bandarikjamönnum.”
Að sögn Péturs var mál hans
tekiðfyrir á fundi i stjórn Alþýðu-
bandalagsins i Reykjavik þaðan
var málið siðan borið upp i rikis-
stjórninni af Hjörleifi Guttorms-
syni. Þar sem utanrikisráðherra
var falið að kanna málið nánar.
„Það er auðvitað algjörlega óvið-
unandi að íélagar i Abl. séu undir
einhverju eftirliti sendiráðs
Bandarikjanna hérlendis, það
virtist enginn munur vera gerður
á þvi hvort ég væri venjulegur
túristi eða á vegum opinberra aö-
ila. Ég var hættulegur, þar sem
éger félagi i Alþýðubandalaginu.
Það má lika itreka þaö, að mér
finnst ekki óeðlilegt að banda-
riska sendiráðið safni islenskum
dagblöðum og haldi þvi til haga
sem birtist um bandarisk mál-
efni. Hins vegar er það i fyllsta
máta óeðlilegt að sendiráðs-
starfsmenn vinni kerfisbundið að
þvi að flokka niður og skrá ein-
staklinga eitir þvi i hvaða sam-
hengi þeir koma fram”. sagði
Pétur aö lokum. —Ig.
Að aflokinni Verslunarmannahelgi:
Slysalítil helgi
Rok hrakti Þjóðhátiðargesti úr Herjólfsdal
Samkvæmt venju var öllu rusli I landi Miðdals við Laugarvatn
brennt um verslunarmannahelgina. Var sungið og dansað langt
fram á nótt enda veður með eindæmuin gott. Ljósm —gel.
Verslunarmannahelgin er um
garð gengin og fór i alla staði vel
fram, þegar á heildina er litið.
Fjöldi fólks sótti samkomur víðs
vegar um landið i bliðskapar-
veðri, en I Vestmannaeyjum
gerði rok og rigningu á sunnu-
degi, sem olli nokkurri upplausn á
þjóðhátið þeirra Eyjamanna.
A hátiðinni i Eyjum voru um
fjögur þúsund manns þgar mest
var. Töluverð ölvun var á
svæðinu, en allt gekk þó slysa-
laust fyrir sig. t óveðrinu á
sunnudag lentu margir i vand-
ræðum og flúði fólk dalinn,
en dansleikur var haldinn i bæn-
um um kvöldið. Samgöngur
gengu erfiðlega fyrir sig á mánu-
dag þvi ekki gaf til flugs allan
daginn.
1 Galtalækjarskógi voru milli
fjögur og fimm þúsund manns,
aðallega fjölskyldufólk og fór
samkoman vel fram.
í Atlavik var þráðurinn tekinn
upp að nýju eftir niu ára hlé, og
voru þar saman komnir um fimm
þúsund samkomugestir, aðallega
ungt fólk, og var ölvun almenn á
svæðinu. Bliðskaparveður var i
Vikinni og á Héraði og umferð
mikil, en litið um umferðaróhöpp.
Á Suðurlandi var mikil umferð
um verslunarmannahelgina, en
allt mun þó hafa gengið stórslysa-
laust yfrir sig. Nokkur ölvun var
á Þingvöllum, Laugarvatni og I
Þjórsárdal, sem eins og fyrri ár
voru vinsælustu tjaldstaðir
sunnanlands þessa helgi. A föstu-
dagskvöld var ekið á mann viö
Arnes og slasaðist hann nokkuð.
Harður árekstur varð i Þjórsár-
dal á sunnudag, en engin slys
urðu á fólki. Jeppabifreið valt við
Skriðufell og slösuðust þrir far-
þegar og voru fluttir á sjúkrahús.
Ungur maöur var hætt kominn i
Krossá aðfaranótt laugardags.
Björgunarsveitarmenn er nær-
staddir voru komu honum til
hjálpar og varð honum ekki meint
af volkinu. Allmörg önnur smærri
óhöpp áttu sér stað og voru 46 bil-
stjórar teknir fyrir meinta ölvun
við akstur.
Hestamannamót var á Vind-
heimamelum um helgina og mikil
ölvun eins og titt er á slikum sam-
ko/num. Annasamt var hjá lög-
reglunni i Skagafirði en ekki mun
hafa komið til meiriháttar átaka.
Verslunarmannahelgin var
með rólegra móti i Reykjavik i
ár. Mikil umferð var út úr bænum
á föstudagskvöld og til baka á
sunnudagskvöld. Nokkuð var um
ölvun aðfaranótt mánudags og
mun Reykjavikurlögreglan hafa
tekið átta manns fyrir meinta
ölvun við akstur.
Annarstaöar á landinu fór
verslunarmannahelgin friðsam-
lega fram. Umferð var með
minnsta móti á Vestfjörðum og
svipaöa sögu er að segja af
Noröurlandi eystra. Laugahátiðin
i Reykjadal fór vel fram og var
litið eða ekkert um óhöpp. A
Akureyri urðu tvö minniháttar
umferðaróhöpp en engin slys á
fólki. Bifreið valt i Mývatnssveit
á föstudagskvöld, en einungis var
um minniáttar meiðsli á fólki að
ræða. —áþj
Dauða-
slys við
Kögunar-
hól
Dauðaslys varð i umferðinni
um kl. 21.00 á mánudagskvöld
vestan við Kögunarhól hjá
Ingólfsfjalli, er tvær fólks-
bifreiðir lentu i hörðum
árekstri.
Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi bar slysið að með þeim
hætti að litil fólksbifreið, sem
var á leið til Reykjavikur, og
Chervolet fólksbifreið á leið
austur skullu harkalega saman.
ökumaður litlu bifreiðarinnar
var einn á ferð og mun hann
hafa látist samstundis. Hjón
með eitt barn voru i Chervolet
bifreiðinni og voru þau öll flutt á
slysadeild Borgarspitalans. Að
sögn lögreglunnar mun konan
hafa fengiðaðfara heim eftir að
gert hafði verið að meiðslum
hennar en maburinn og barnið
eru enn á Borgarspitalanum.
Maðurinn sem lést hét
Sigurður Harðarson, fæddur
7. 1. 1958, til heimilis að
Fjölnisvegi 18 i Reykjavik. —áþj