Þjóðviljinn - 05.08.1981, Page 5
Miðvikudagur 5. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Franskir vinstrimenn gegn einokunarauðvaldi:
Strax eða aldrei
Mitterrand meft Khalid, konungi Sádl-Arablu. Þjóðnýti frakkar Pari-
bas-bankasamsteypuna er samningur um sameiginiegt franskt-sádl-
arabiskt fjárfestingarfyrirtæki i voða...
Pelsklædd frönsk yfir-
stéttarfrú kom mánudag-
inn eftir forsetakosning-
arnar í vor inní bankann
Credit Lyonais i París eilít-
ið fumandi og vildi taka
allt útaf reikningnum sín-
um.
Það kom fát á banka-
starfsmenn þegar þeir sáu
að innistæða frúarinnar
nam nokkrum milljónum
franka, og þeir spurja
hverju sæti.
— Jú, ég hef heyrt að
Mitterrand ætli að þjóð-
nýta bankakerfið!
Bankasalurinn lá afvelta
af hlátri. Credit Lyonais
hafði verið þjóðnýttur i
rúma þrjá áratugi.
Þessi saga er dæmigerð um
fyrstu viðbrögð franskra hægri-
manna eftir sigur franskra
sósialista i vor. En þó að pólitisk
völd séu nú i höndum vinstri-
manna hafa hægrimenn enn tögl
og hagldir um hin efnahagslegu
völd, og búast nú til varnar gegn
sóknaráformum rikisstjórnar
Mauroy i þeim efnum.
Vinstri áhorfendur að frönskum
stjórnmálum telja það brýna
nauðsyn að hefja strax viöamikl-
ar aðgerðir, einkanlega að hefjast
undireins handa um þær þjóðnýt-
ingar stórfyrirtækja, sem mest-
um deilum ollu i kosningabarátt-
unni. Þeim mun lengri tima sem
hægrimenn fá til varnar, þeim
mun erfiðara muni stjórninni
reynast að koma málum sinum i
gegn.
11 iðnfyrirtæki,
5 bankar
Enda hefur vinstri sjórnin
brugðist hart við og þegar lagt
fram á þingi frumvarp um þjóð-
nýtingu ellefu stórfyrirtækja, og
auk þess ætlar stjórnin sér að
þjóðnýta innan skamms fimm
banka og fjárfestingarsamsteyp-
ur.
Raunar er enn óljóst um ná-
kvæm tildrög þessara aðgerða.
Það hefur borið á deilum innan
franska sósialistaflokksins um
gildi þjóðnýtingar, og hefur helsti
keppinautur Mitterrands innan
flokksins, Michel Rocard, verið
mestur úrdráttarmanna i þeim
efnum. Sósialistar hafa lagt
áherslu á, aö stefna þeirra sé
þjóð-nýting, ekki rikis-nýting
(„nationalisation”, ekki
„étatisation”), og velta fyrir sér
ýmsum formum félagslegrar
eignar og þátttöku starfsmanna i
rekstri.
Meðal hinna ellefu „þjóðnýtan-
legu” fyrirtækja eru tvær vopna-
verksmiðjur, Dassault og Mat-
ras, en sósialistar hafa ákveðið að
draga jafnt og þétt úr vopnaút-
flutningi frakka sem nú eru þriðji
stærsti útflytjandi vopna i heim-
inum, næstir á eftir risaveldun-
um. Aðaláherslan mun þó lögð á
rafeindaiðnaðinn, vegna þróun-
armöguleika hans og samkeppn-
ishæfni á alþjóðlegum markaði.
Þjóðnýtingar frakka felast þvi
ekki i að taka við þrotabúum auð-
valdsins, heldur er ætlunin að
skapa rikisvaldinu lykilstöðu i
þeim iðnaðargreinum sem arð-
bærastar eru og liklegastar til
vaxtar.
Oft er bent á Renaultverk-
smiðjurnar til samanburðar. Þær
þjóðnýtti De Gaulle rétt eftir
striðið ásamt mörgu ööru þar á
meöal áðuráminnstum Credit
Lyonais-banka, og urðu þær
frönskum iðnaöi mikil lyftistöng
og stóðu sig vel i alþjóðlegri sam-
keppni allt fram á vora bila-
kreppudaga. Það má geta þess að
iðnaðarráðherra vinstristjórnar-
innar, Pierre Dreyfus, er fyrrver-
andi stjórnarformaöur i Renault.
Ef þjóðnýtingaráform franskra
vinstrimanna ná fram að ganga
mun franska rikiö eiga úrslita-
vald i tæpum þriðjungi banka- og
fjárfestingarkerfisins, ráöa öllum
simageiranum, hafa umráð yfir
40% af tölvuframleiðslu frakka,
35% af útvarps- og sjónvarps-
framleiðslu, og eiga helming af
framleiðslufyrirtækjum raf-
eindatækja til sjúkrahúsnota.
Ljón í vegi
En hér stendur ýmis þrándur i
götu. Það þarf aö ákveða um
stjórnarform hinna þjóðnýttu fyr-
irtækja og ganga þannig frá hnút-
um að ekki sé hægt að afhenda
auðvaldinu þau aftur með einu
pennastriki mögulegrar hægri-
stjórnar i framtiðinni. Það þarf
að afla f jármagns til að kaupa út
núverandi eigendur, en velta fyr-
irtækjanna ellefu árið 1980 var 256
milljarðar franskra franka (1
FF= 1,28 nýkr), og þau hafa nú
um 800 þús. starfsmenn.
Stærsta ljón i vegi þjóönýting-
armanna er talið munu verða
hagsmunir fjölþjóðahringanna,
ekki sist þar sem þeir standa nú
sterkt að vigi með hægrimanninn
Reagan við stjórnvöl bandarisku
þjóðarskútunnar. Meöal þeirra
fyrirtækja sem nú á að þjóðnýta
eru dótturfyrirtæki ITT og
Honeywell-Bull, þar sem móöur-
fyrirtækin eiga alltað helmingi
fjármagns, sjá um tækniráðgjöf,
hlutaframleiöslu og dreifingu að
töluverðu leyti. Bankasamsteyp-
urnar eru flestar fjármagnaðar
að hluta af svissneskum, bresk-
um og itölskum peningastofnun
um.
Þessir aðilar eru ekki kunnir
fyrir að láta sinn hlut sérlega
léttilega, og harkaleg viðbrögð
franskra stjórnvalda gætu leitt til
ýmislegs vanda i samskiptum við
rikisstjórnir þeirra landa sem
hringirnir hafa i aðalaðseturj
samband frakka við bandarikja-
menn hefur uppá siðkastiö skort
nokkuð fyrri hlýju.
Strax eða aldrei!
Vinstrimenn i Frakklandi eru
þó hvergi smeykir.
Andstaða franskra auðvaldsins
-gegn þjóönýtingaráformunum er
enn máttlitil, og 56% franskra
kjósenda eru samkvæmt nýjustu
könnunum fylgjandi áætlunum
stjórnarinnar.
Þessar aðstæður ber aö nota, og
það strax, eöa með orðum
Francois forseta Mitterrand:
„Auðvitað bera að gæta að þvi
sem morgundagurinn ber i skauti
sér. En þaö sem ekki verður haf-
ist handa um i byrjun, þaö verður
aldrei- gert. Ég er byrjaður aö
framkvæma mina stefnu, og hef
allan hag af þvi að vera snögg-
ur.”
(Inf ofl.)
—m
Kanadiskir indijánar krefjast réttar síns:
Buffalo Bill kemur til bjargar
Ef menn halda að ofbeldisárás-
ir á Indiánaþjóðir i þvi skyni að
ræna þær eigum sinum og llfsvið-
urværi séu nú einungis til I vestr-
um skjátlast þeim illilega.
11. júni siðastliðinn gerði 500
manna lið úr öryggislögreglu
Kvibek i Kanada, ásamt hjálpar-
sveitum, árás á land Micmac—
Indiana sem búa við Restgouche-
á i Suðaustur-Kvibek, skammt
frá landamærum Nýju-Brúnsvik,
Lögreglumennirnir komu
eldsnemma að morgni i bilum,
bátum og jafnvel þyrlum, svo að
þeir gætu örugglega umkringt
Indiánana sem eru aðeins 1600 að
tölu, og i þrjár klukkustundir
voru öll mannréttindi afnumin á
landi þeirra; ráðist var inn i hús,
Indánarnir voru lúbarðir með
kylfum hvar sem i þá náðist,
veiðarfæri þeirra voru eyðilögð
og 100 laxveiöinet — sem kosta
300 dollara hvert — voru gerð
upptæk. A höfðingja Indiánanna,
sem vildi ræða við lögregluna,
var ekki hlustað, heldur var hann
einnig laminn sundur og saman.
Tólf Indiánar voru handteknir.og
margir voru fluttir á sjúkrahús
illa útleiknir.
Veiöiréttindi
Astæðan fyrir þessum hrotta-
legu aðgerðum voru deilur um
veiðiréttindi. Micmac-Indiánar,
sem hafa búið á þessum slóðum
frá örófi alda, hafa aldrei látið
kúga sig til að láta af hendi þetta
landssvæði og þvi eiga þeirþað og
öllhlunnindi þess. Kjörþeirra eru
bág. Þeir lifa svo til eingöngu á
laxveiðum i Restigouche-á, og er
laxinn bæði aðalfæða þeirra og
söluvara. Ená siðustu árum hafa
þessi veiðiréttindi orðiö æ eftir-
sóttari: flnir veiðiklúbbar hafa
sett upp bækistöðvar sinar neðar-
lega i ánni, og einnig hafa al-
«HBr r 46
fW ~ wj§ W' •"
Frumbyggjar Ameriku. Allt þetta skal ég taka frá þér!
þjóðahringar, sem flytja út lax,
byggt þar verksmiðjur. Af
þessum ástæðum hafa
Indiánarnir orðið hvitum efna-
hagsyfirvöldum mikill þyrnir i
augum, og hafa þau lengi reynt að
takmarka veiðiréttindi þeirra og
setjaþeimreglur sem gerðu þeim
veiðarnar sem allra torveldastar.
Ifyrra bönnuðu þau Indiánum að
selja veiðisina, og þegar þeir mót-
mæltu þvi eftir að allar samn-
ingaviðræður höfðu reynst
árangurslausar gerðu hvitir lax-
veiðimenn árás á þá. 1 vor reyndu
Indiánamir enn að semja við
stjórnvöldin, en skyndilega var
öllum samningaviðræðum slitið
og þeim voru umsvifalaust settir
úrslitakostir: yrðu þeir að verða
á brott með öll sin net fyrir 10.
júni'. Þegar þvi var ekki hlýtt,
gerði lögreglan árás i dögun
morguninn eftir.
Þessir atburðir vöktu talsverða
athygliog var aðgerðum lögregl-
unnar mótmælt viða. A það var
lika bent að það væri heldur
napurlegt að Kvibekkbúar, sem
leitast viö að vernda sin eigin
þjóðarréttindi fyrir ásælni ensku-
mælandi Kanadamanna, skuli
svo neita Indiánum um sin eigin
þjóöarréttindi. En yfirvöldin
skelltu skollaeyrum við þessu
öllu, og til að sýna að þeim væri
full alvara og þau óttuðust engan
uppsteiti'Skrælingjum sendu þau
enn voldugra lögreglulið á vett-
vang 20. júni. Þá voru öll veiöi-
tæki hirt, og bann lagt við þvf að
Indiánum yrðu seld fleiri laxa-
net. Það er eins og úrslitin geti
aldrei orðiö nema á einn veg,
þegar Indi'ánar eiga einhver þau
hlunnindi sem hvltir menn
ágirnast.
e.m.f. (aðalheimildir: Le
Monde og Libération) emj.