Þjóðviljinn - 18.09.1981, Blaðsíða 3
Föstudagur 18. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Tálknfirðingar
óánægðir:
Fiugleyfi
hafnað
Nú i sumar hefur Arnarflug hf.
flogið reglubundið til Tálkna-
fjarðar vegna þess að verið var
að endurbæta flugvöllinn á Bfldu-
dal.Félagiðhefur nú sóttum leyfi
til þess að haida þessu flugi
áfram enda þótt flug verði á ný
tekið upp til Bfldudals. Þessari
umsókn mun Flugráð hafa lagt til
aþ samgönguráðuneytið hafnaði.
Pétur Þorsteinsson á Tálkna-
firði kvað íbúa þar vera mjög
óhressa yfirþessari afstöðu Flug-
ráðs. Til Patreksfjarðar, en
þangað flýgur Flugfélagið, — og
Bildudals, væri yfir fjallvegi að
fara og vegurinn yfir Hálfdán til
Bildudals gæti á stundum amk,
framhald á siðu 14
|^as
Vigdis Finnbogadóttir forseti ræðir við norska, sænska og finnska blaðamenn á Bessastööum i gær
ásamt Sveini Sæmundssyni blaöafulltrúa Fiugleiða. — Ljósm.: —gel—
Norrænir 1
blaðamenn |
í heimsókn
Þessa dagana eru i heimsókn
hér blaðamenn frá Sviþjóð og
Finnlandi. Eru þeir fimm frá
hvoru iandi og er heimsóknin
gerð i tengslum við fyrirhugaöa
ferð forseta islands, Vigdisar
Finnbogadóttur tii Norðurland-
anna.
1 næstu viku koma svo 6
norskir blaðamenn hingað til
lands af sama tilefni. Eru
blaðamennirnir i boði Flug-
leiða, Sambandsins, utanrikis-
ráðuneytisins og fleiri aöila.
Hinir finnsku og sænsku
blaðamenn hafa farið vitt um
landiö, um Suðurland til Gull-
foss og Geysis og auk þess i
réttir. Þá hafa þeir fariö til
Akureyrar og skoðað sig um
þar.
Svkr.
Mótun iðnaðar
og orkustefnu
Alþýðubandalagið með
ráðstefnu um helgina
1 fyrramálið hefst i Verkalýðs-
húsinu á Hellu ráðstefna á vegum
Alþýðubandalagsins um iðnaðar-
og orkumál. Það er iönaðarnefnd
miðstjórnar sem undirbúið hefur
þessa ráðstefnu og sagði
Guðmundur Magnússon verk-
fræðingur, formaður hennar að
tilgangurinn væri að kynna störf
nefndarinnar á undanförnum
mánuðum og fá fram ábendingar
og tillögur sem verða mættu til
stefnumörkunar I þessum mála-
flokkum fyrir flokksráðsfundinn i
haust.
Ráðstefnan er öllum flokks-
mönnum opin og farið verður frá
Reykjavik i hópferö frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 8 i
fyrramálið. A morgun laugardag
verða flutt 9 framsöguerindi og á
sunnudeginum verður unnið i
starfshópum, almennar
umræður, og niðurstööur dregnar
saman.
A ráðstefnunni verður m.a.
fjallað um orkuuppbyggingu og
orkunýtingu, vandamál iönaðar-
ins almennt, uppbyggingu
iðnaðar og hlut verkafólks og
verkalýðshreyfingar i þeirri upp-
byggingu, bæði hvað kjaramál
varðar og aðra félagslega þætti,
sagöi Guðmundur. Þannig mun
t.d. Bragi Guðbrandsson flytja
erindi um og hafa framsögu um
félagsleg vandamál og iðnþróun.
Guðmundur Þ. Jónsson og Þórir
Danielssonmunu fjalla um kjara-
mál i iönaði, starfsskilyrði verka-
fólks, áhrif iðnverkafólks á
stjórnun og uppbyggingu fyrir-
tækjanna. Einnig verður fjallað
um rekstrarform i iðnaði. Stór-
iðjan verður til umræöu i
tengslum viö orkunýtinguna og
munu t.d. Hjörleifur Guttorms-
son.ráöherra og Ragnar Arnason
hagfræöingur fjalla um þau mál
og Elsa Kristjánsdóttir oddviti
mun fjalla um iönþróun og
byggðastefnu og hlut sveitar-
félaganna i þeim efnum.
Að ofangreindu má sjá að
umræðuefnin eru næg og brýn og
rétt er að hvetja flokksmenn til
þess að sitja ráðstefnuna og taka
þátt i stefnumörkun Alþýöu-
bandalagsins i iðnaðar- og orku-
málum. Skráning fer fram hjá
flokksskrifstofunni, Grettisgötu 3.
—AI
Hjörleifur Guttor.nsson, iðnaðar-
ráðherra
Guðmundur Magnússon, formað-
ur iðnaðarnefndar Alþýðubanda-
lagsins.
Jafnréttisráð skorar á Ríkisútvarpið
Sýningum verði
hætt á innheimtu
auglýsingunum
Ekki í samræmi við jafnréttislögin
Jafnréttisráð hefur farið þess á
leit við Rikisútvarpið að hætt
verði sýningum á hinum frægu
auglýsingum innheimtudeiidar
útvarpsins. Jafnréttisráð telur aö
auglýsingarnar séu brot á jafn-
réttislögunum, þar sem segir að
auglýsendum sé óheimilt að birta
nokkrar þær auglýsingar i orðum
eöa myndum, er orðið geti öðru
kyninu til minnkunar eða litils-
virðingar.
Auglýsingar útvarpsins sem
hér eru til umræöu hafa vakið
nokkra athygli og blaöaskrif og er
skemmst að minnast athuga-
semdar Guðrúnar Helgadóttur
alþingismanns til útvarpsstjóra
vegna þeirra. 1 auglýsingunum
sem þegar hafa birst á skjánum
(fleiri eru sagðar tilbúnar) eru
tvær konur aö dilla sér kringum
karlmann sem áminnir útvarps-
notendur um að greiða afnota-
gjöldin. Hvaða samband er þarna
á milli finnst mörgum torskilið en
hönnuðurinn Rósa Ingólfsdóttir
gaf sinar skýringar sem Jafn-
réttisráð vitnar til i bréfi sínu.
Rósa sagði að karlinn væri ,,sem
nokkurs konar fulltrúi stofnunar-
innar, fastur og stöðugur, virðu-
legur eins og stofnunin” en um
konurnar „Stúlkurnar sveigja sig
og beygja til að mýkja formiö og
réttlæta þennan stirða texta” og
„Konan á að þora að vera kona.
Ég tala um karlmanninn sem
stólpa, aðalaflið i þjóðfélaginu og
konan er vafningsviðurinn, hún á
að standa honum viö hliö. Hún á
ekki að reyna að vera karl-
maður”.
Jafnréttisráð segir um þetta að
skoöanafrelsi hönnuðar beri aö
virða, en augljóslega sé verið aö
túlka úreltar hugmyndir um
stööu karla og kvenna i þjóöfé-
laginu. I framhaldi af þvi fer
ráðiðfram á að sýningum auglýs-
inganna verði hætt, og aö Rikisút-
varpið sinni betur, hér eftir en
hingað til hinu mikilvæga hlut-
verki sinu i baráttunni fyrir jafn-
rétti kvenna og karla. —ká
Framkvœmdastjóri Alþjóölegu endurhœfingarsamtakanna um fötlun:
Orsakir ólíkar eftir heimshlutum
Hér á islandi er nú i heimsókn
aðalframkvæmdastjóri Alþjóð-
legu endurhæfinga rsam takanna
(Rehabiltation International).
Hann kom hingað gagngert til
þess að afhenda forseta islands
stefnuskrá samtakanna fyrir ni-
unda áratuginn en hún varsam-
þykktá hcimsþingi samtakanna
i Kanada nú i sumar.
1 tilefni að komu Normans
Acton hélt öryrkjabandalag Is-
lands, sem er aðili að Alþjóð-
legu endurhæfingarsamtökun-
um, blaðamannafund,fgær, þar
sem framkvæmdatjórinn skýrði
frá innihaldi stefnskrárinnar,
sem er afrakstur þriggja ára
starfs samtaka og hópa viða um
lönd og greindi frá þeim árangri
er náðst hefur i málefnum fatl-
aðra á þvi Alþjóðlega ári fatl-
aðra er nú stendur yfir. Fram
kom hjá Ncrman, að baráttan
er tviþætt. Annars vegar er um
að ræða aðstoð við þá sem eru
fatlaðir svo og endurhæfingu
þeirra og hins vegar baráttan
fyrir því aö breyta samfélaginu
i þá veru, að það taki tillit meir
en raun ber vitni til sérstöðu
fatlaðra. Þar er bæði átt við
ytra borðið, svo sem aðstöðu
alla við hús og innréttingar
þeirra og þá fordóma sem
margt fólk geymir innra með
sér i garð margra sem af fötlun-
ar sökum eru frábrugðnir. Nor-
man Acton minntist einnig á
nauðsyn þess að fatlaðir fengju
meiri ítök og áhrifavald i sam-
félaginu.
Þaðkom framá blaðamanna-
fundinum, að fatlaðir (i þeim
skilningi sem Alþjóöa endur-
hæfingarsamtökin leggja i það
orð) eru taldir vera meira en
fimm hundruð miljonir manna i
heiminum i dag eða hart nær 1/8
alls mannkyns. I löndum þriðja
heimsins eru helstu orsakir fötl-
unar taldar vera örbirgð og
næringarskortur meðan fólki á
Vesturlöndum stafar helst ógn
af slysum og slæmum löstum,
s.s. reykingum.
ErNorman Acton var spurður
um þann ávinning er hann teldi
helstan af Alþjóöa ári fatlaðra,
sagði hann að erfitt væri að
kveða upp almennan dóm i þvi
máli, þvi viðbrögðin væru svo
misjöfn milli landa. Sums staö-
ar hafa verið fluttar nokkrar
ræður og þar við hefur setið,
annars staðar s.s. á Islandi
hefðu viðbrögðin verið meiri og
betri og mikið hefði hér áunnist
við að vekja athygli fólks á
vandamálum fatlaðra. Norman
sagði einnig að mikilvægt væri
að styrkja tengsl þeirra sam-
taka er vinna að málefnum fatl-
aðra við yfirvöld i hverju landi
og jafnframt við alþjóðastofn-
anir.
Norman Acton flutti opinn
fyrirlestur i Norræna húsinu á
miðvikudagskvöldið s.l. og i gær
fimmtudag afhentihann forseta
Islands stefnuskrá samtaka
sinna en í henni stendur m.a.
„Fátækt og strið valda ekki
aðeins fötiun, heldur draga lika
úr tiltækum úrræöum til þess að
koma i veg fyrir eða bæta hana.
Til þess aö ná markmiðum
þessarar stefnuyfirlýsingar
þarf þvi réttlátari skiptingu
auðlinda jarðar og samskipti
þjóða reist á skynsemi og sam-
vinnu.”
Norman Acton aðalfram kvæmdastjóri Alþjóðlegu endurhæfingarsamtakanna ásamt
stjórn öryrkjabandalags tslands.