Þjóðviljinn - 18.09.1981, Blaðsíða 11
Föstudagur 18. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA li
iþrottir[Aj iþrottir@ íþróttir
Boltinn liggur I netinu eftir þrumuskot Martinez og fyrsta mark Frakkanna staðreynd. Ljósm.: —gel.
UEFA-keppnin: Víkingur - Bordeaux 0:4
Leikur Frakkanna byggðist á
harfi'num sendingum og sóknar-
lotum sem samanstóðu af allt að
10 skiptingum. Þegar komið var
upp við markið voru þeir ótnilega
skotvissirog öll mörk þeirra voru
skoruö með þrumuskotum sem
Diörik Ólafsson, haltur i mark-
inuréö ekkertvið. Það fyrstakom
eftirrúman stundarfjórðung. Eft-
ir fallegan samleik upp völlinn
barst boltinn fyrir fætur Jean
Fernandez sem lét vaða á markið
við vitateigslinuna, þrumuskot
sem Diörik átti ekki minnstu
möguleika á að verja.
Mark nr. 2 tiu minUtum siðar.
Eftir skemmtilega sóknarlotu
hrökk boltinn frá einum vamar-
manni Vikings og Marius Tresor,
einn af mörgum landsliðsmönn-
um ifranska liðinu (sumir hverjir
voru á bekknum) sendi boltann
með þrumuskoti i netið, 2:0.
Þriðja markið var svo skorað tiu
minUtum fyrirleikhlé og það var
sennilega það fallegasta i leikn-
um. Hreint ótrUlega nákvæm
sending frá Martinez beint fyrir
fætur Albert Gemmerisch sem
tók boltann á lofti og negldi i net-
ið, 3:0. I fyrri hálfleiknum virtust
Frakkamir taka meira á og oft á
tiðum var hrein unun að horfa á
leik þeirra.
Baráttan víðsfjarri og
Víkingar steinlágu
Lánleysi Vlkinga i þau fáu skipti sem þeir komust I færi var algert. Hér var Lárus Guömundsson kom-
inn einn innfyrir vörn Bordeau en missti boltann of langt frá sér. Vonbrigöin leyna sér ekki.
Sjaldan hefur islenskt knatt-
spyrnuliö veriö leikiö jafn grátt
og islandsmeistarar Vikings þeg-
ar fyrri leikur þeirra gegn
franska liðinu Bordaux fór fram á
Laugardalsvellinum i gærkvöldi.
A öllum sviðuin knattspyrnunnar,
voru Frakkarnir svo langtum
betri, að langtimum saman
heyrðist ckki inúkk frá á-
horfendapöllunum, svo dolfallnir
voru menn yfir leikni gestanna.
Reyndar heföu Vikingar mátt
syna meira viönám, þeir gáfu
andstæöingum sinum alltof mik-
inn tíma til að byggja upp spil og
barátta einstakra leikmanna var
í lágmarki. Sá óþægilegi grunur
læddist hreinlega aö mönnum, að
í undirbúningi VíkingsUðsins fyr-
ir þennan leik hafi mótstööu-
mennirnir hreinlega gleymst, þvi
ekki er vitað að nokkuö hafi verið
gert að hálfu þjálfara og að-
standenda liösins til aö afla upp-
lýsinga um Bordeaux. Aö einu
leyti voru Vikingar þó óheppnir,
allar aöstæöur á Laugardalsvell-
inum voru eins og bestar geta
orðið á þessum árstíma, rokrass-
inn sem oft hefur hjálpaö islensk-
um liðum i keppni þessari lét
hvergi á sér kræla.
i þeim siöari sýndu Vikingar að
þeir geta leikið knattspymu gegn
liðum á mælikvarða þess franska.
Baráttan var öll önnur, sóknar-
lotur þeirra voru oftsinnis stór-
hættulegar, en þegar við markið
kom tók hinsvegar við algert lán-
leysi. Frakkarnir bættu við sínu
fjórða marki á 25 minútu hálf-
leiksins. Rene Girard tók við einu
af mörgum fráköstum i' vörn
Vikings og sendi boltann i netið.
011 mörk Frakkanna voru keimlik
og þeir voru ótrUlega skotvissir.
Seinni hálfleikur varannars held-
ur i daufara lagi, enda Urslitin
þegar ráðin.
Það er auðvitað dálitið erfitt að
meta leik tslandsmeistaranna,
þeir mættu ofjörlum sinum og
langtimum saman urðu þeir
hreinlega að horfa á eftir knettin-
um rUlla á milli mótstöðumann-
anna. Þaö var helst að finna viö-
nám ef ráfást var af hörku á bolt-
ann og Frakkarnir pressaöir upp.
Það gerðist því miður alltof sjald-
an. Bestur i liði Vikings var Jó-
hannes Bárðarson, hann var sá
eini sem barðist grimmilega all-
an leikinn.
Mjá Bordeaux var hvergi veik-
an hlekk að finna, þarna voru á
ferðinni menn sem greinilega
kunnu sittfag, knattmeöferöin og
skipulagið i leik liðsins hlýtur aö
hafa verið lærdómsrikt fyrir Vik-
ingspiltana. Margoft virtist leik-
urinn algerlega áreynslulaus og
fór það greinilega i skapið á
nokkrum Vi'kinga, sem gerðu sig
seka um óþarfa ruddaskap.
Dómari var enskur, Hugh Alex-
ander og leysti hann starfa sinn
vel af hendi
—hól.
Evrópumeistarar ’67
✓
...koma til Islands og leika gegn stjörnuliði
Hermanns Gunnarssonar
Pétur
skoraði 1
Póllandi
Pétur Pétursson lék sinn
fyrsta leik meö aöalliöi
Anderlecht. Anderlecht lék
viö Pólsku bikarhafana
Widzov Lodz og fór leik-
urinn fram á heimavelli
Pólverjanna i Lodz. Lauk
leiknum meö stórsigri
Anderlecht, 4:1 og skoraði
Pétur siöasta mark leiksins
alveg undir lok leiksins.
Asgeir Sigurvinsson lék
allan leikinn ineð liöi Bayern
Munchen sem vann sænsku
meistarana öster. Bayern
vann meö einu marki gegn
engu.
Knattspyrnuáhugamenn eiga
von á óvenjulegum knattspyrnu-
atburði. Næstkomansi sunnudag
munu lenda á þessu afskekkta
landi einkaflugvélar frá leigu-
flugi Sverris Þóroddssonar og
Flugfélagi Noröurlands. Inni i
þessum vélum veröa þeir kappar
skoskir sem unnu Evrópukeppni
meistaraliða áriö 1967. Þeir léku
þá meöhinu þekkta liöi Celtic og i
úrslitaleik sem fram fór i Lissa-
bon, unnu þeir Inter Milan meö
tveiinur mörkum gegn einu.
Þó þessir ágætu menn séu löngu
hættir að leika knattspyrnu i
nokkurri alvöru, koma þeir sam-
an annað slagiö, rifja upp gamlar
minningar o.s.frv. Meiningin með
komu þeirra er sU að leika viö Is-
lenska knattspyrnumenn sem áð-
ur gerðu garðinn frægan, menn
eins og Ellert B. Scram, „Rauða
ljóniö”, Hermann Gunnarsson,
Þorstein Friðþjófsson og fleiri.
Samnefnari þess hóps gengur
undir nefninu: „Stjörnulið Her-
manns Gunnarssonar”.
Leikur þessara liða á aö hefjast
kl. 15 á grasvellinum i Keflavik.
Þeir af leikmönnum Celtic sem
koma hingað til lands og léku viö
Inter Milan, voriö 1967 eru eftir-
taldir: Tommy Gemmil, Billy
McNeil, John Clark, Steve
Calves, Bertir Auld, Jimmy
Johnstone, Bobby Lemmox og
Jim Craig. Auk þess kemur hing-
aö hinn frægi framkvæmdastjóri
Jock Stein hingað til lands, en
hann hélt um stjórnvölinn þegar
Celtic vann Evrópukeppnina.
Til gamans má geta þess aö ár-
iö 1967 vann Celtic til allra þeirra
verðlauna, sem hugsast gat, auk
Evrópumeistaratitilisins. Liðs-
menn uröu skoskir meistarar,
skoskir bikarmeistarar, skoskir
deildarbikarmeistarar og unnu
auk þess titilinn, besta félagslið
heims i Urslitaleik við
argentinska liöiö Estaundios eftir
mikinn baráttuleik, þar sem sex
af leikmönnum var visað af velli.
— hól
Markaskyttan vinsæla, Hermann
Gunnarsson. Myndin var tekin á
sokkabandsárum hans.