Þjóðviljinn - 18.09.1981, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. september 1981
Félagsmálastoinun Akureyrar
Fóstrur
Félagsmálastofnun Akureyrar óskar að
ráða fóstrur til starfa nú þegar til starfa á
deild og við forstöðu. Húsnæði verður út-
vegað ef þarf. Upplýsingar veitir dag-
vistarfulltrúi i sima 96-25880.
Félagsmálastjóri.
Frá Tónlistarskóla
Kópavogs
Skólinn verður settur laugardaginn 19.
sept. kl. 11 i Kópavogskirkju.
Skólastjóri.
Sálfræðingar - félagsráðgjafar
Okkur vantar sálfræðing — forstöðumann
— ráðgjafarþjónustu skóla á Norðurlandi
vestra.
Einnig vantar félagsráðgjafa sem starfs-
mann á deildina sem allra fyrst.
Mjög góð vinnuskilyrði og gott húsnæði á
staðnum.
Umsóknir sendist: Fræðsluskrifstofu
Norðurlands vestra, Kvennaskólanum 540
Blönduós.
Fræðslustjóri.
Aðalfundur
Islandsdeildar Norræna sumarháskólans
verður haldinn mánudaginn 21. sept. kl.
20.30 i Sóknarsal, Freyjugötu 27.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Blaðbera vantar strax!
Bergstaðastræti — Smáragata
Afleysingar i miðborg.
pjóDvium
HH FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
V'ISTl’N BAKNA, FORNHAGA 8 SIMI 27277
Starf forstöðumanns
Grænuborgar er laust til umsóknar.
Fóstrumenntun áskilin.
Laun skv. kjarasamningi borgarstarfs-
manna.
Umsóknarfrestur er til 4. október.
Umsóknir sendist til skrifstofu Dagvist-
unar, Fornhaga 8, en þar eru veittar nán-
ari upplýsingar.
III
MT
ÚTBOÐ
1*1
*N *VN ^N
.'N*'. <*S
1|>
Tilboð óskast i 40 MVA spenni fyrir
aðveitustöð 5 fyrir Rafmagnsveitu
Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað mið-
vikudaginn 4. nóvember kl. 11 f.h.
IIMNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Hvenær
er réttað?
Fyrir skömmu birtist hér i
blaðinu yfirlit um það, hvenær
réttað yrði i nokkrum réttum á
landinu nú i haust. Náði sií skrá til
og með 19. sept. Hér kemur við-
bót.
Fossvallarrétt við Lækjarbotna,
sunnudagur 20. sept.
Gillastaðarétt i Laxárdal Dal,
sama dag.
Kaldárrétt við Hafnarfjörð, sama
dag.
Kirkjufellsrétt i Haukadal, Dal,
sama dag.
Tungurétt i Svarfaðardal, sama
dag.
Skrapatungurétt i Vindhælis-
hreppi, sama dag.
Fellsendarétt i Miðdölum, Dal.,
mánudaginn 21. sept.
Gjábakkarétt i Þingvallasveit,
sama dag.
Hafravatnsrétt i Mosfellssveit,
sama dag.
HUsmúlarétt við Kolviðarhól,
sama dag.
Nesjavallarétt i Grafningi, sama
dag.
Reynisstaðarrétt i Skagafirði,
sama dag.
Silfrastaðarétt í Skagafirði, sama
dag.
Þingvallarétt i Þingvallasveit,
sama dag.
Þórkötlustaðarétt við Grindavik,
sama dag.
Amarhólsrétt i Helgafellssveit,
þriðjud. 22. sept.
Kjósarrétt i Kjós, sama dag.
Kollaf jarðarrétt á Kjalarnesi,
sama dag.
Laugarvatnsrétt i Laugardal,
sama dag.
Klausturhólarétt i Grimsnesi,
miðvikúdaginn 23. sept.
Langholtsrétt i Miklaholtshreppi,
sama dag.
Selflatarétt i Grafningi, sama
dag.
Selvogsrétt i Selvogi, sama dag.
Skaptártúngurétt i Skaptártungu,
sama dag.
Svarthamarsrétt á Hvalfjarðar-
strönd, sama dag.
Vatnsleysustrandarrétt á Vatns-
leysuströnd, sama dag.
öÍFusrétt i' ölfusi, fimmtudaginn
24. sept.
ölkeldurétt i Staðarsveit, sama
dag.
Landrétt i Landmannahr. Rang.,
föstudagur 25. sept.
Reyðarvatnsrétt i Rangárvalla-
hr. sama dag.
Stóðréttir:
Undirfellsrétt i Vatnsdal, laugar-
d. 26. sept.
Viðidalstungurétt i Víðidal,
laugard. 26. sept.
Auðkúlurétt i Svinadal, sunnu--
dagur 27. sept.
Laufskálarétt i Hjaltadal, Skag.
sunnud. 4. okt. —mhg
Fyrirlestur
um tölvur
Dr. Shalom Tsur, tölvufræð-
ingur frá Bell Laboratories
heldur i dag gestafyrirlestur er
hann nefnir „DSIS-A Database
System with rinterrelational
Semantics”. Dr. Tsur er kunnur
fyrir rannsóknir sinar á stjóm-
kerfum tölva og gagnasafns-
kerfum.
Fyrirlesturinn fjallar i stuttu
máli um nýtt fjölnotenda gagna-
safnkerfi, sem er á tilraunastigi i
Bell Labratories. Hann verður
haldinn f stofu 158 i húsi Verk-
fræði- og raunvisindadeildar og
hefst kl. 13.öIIum er heimill
aðgangur.
Ströndín blá
í skólaútgáfu
Námsgagnastofnun hefur gefið
út i skólaútgáfu skáidsögu eftir
Kristmann Guðmundsson,
Ströndin blá. Erlendur Jónsson
hafði umsjón með útgáfunni,
skrifar formála, semur verkefni
eða ihugunarefni með hverjum
kafla sem og orðaskýringar.
Ströndin blá kom fyrst út i
islenskri þýðingu höfundar árið
1940, en hann var þá fluttur heim
frá Noregi. Skömmu siðar las
Kristmann söguna i útvarp og
naut hún vinsælda.
Annar áfangi
tekinn í notkun
Síðastliðinn föstudag var annar
áfangi hitaveitunnar á Hólum i
Iljaltadal tekinn i notkun. Hefur
Hólastaður þar með verið
tengdur hitaveitunni og verður
vatnið leitt i hús þar jafnskjótt og
gcngið hefur verið frá þvi, sem
gera þarf þar innan veggja.
Að sögn Gisla Pálssonar, bónda
að Hofi i Vatnsdal, en hann er
st jórnarformaður Hitaveitu
Hjaltadals, verða nú einnig fjögur
bændabýli tengd hitaveitunni:
Hrafnhóll, Hlið og Hof I og II.
Áður höfðu Reykir fengið heita
vatnið. Búið er og að leiða vatnið
að barnaskólahúsinu. Alls verða
það 13 byggingar, sem nú
tengjast hitaveitunni. Gisli kvað
vatnið yfirdrifið. Er það 58 gr.
heitt og siðan borað var hefur hiti
þess fremur farið vaxandi en hitt.
Lengd lagnarinnar i þessum
öðrum áfanga er 5300m. en þar af
ersjálf stofnæðin 2500m. Heildar-
kostnaðurinn við hitaveituna er
orðinn um 5,5 milj. kr. og er þá
miðað við báða áfangana. Ef þau
hús, sem hitaveitan nær til nú,
væru kynt með oliu, mundi upp-
hitunarkostnaður þeirra nema
um 560 þús. kr. á ári og er þá
miðað við landsmeðaltal
kostnaðar við slika kyndingu.
Fiskeldisstöðin er þó ekki inni i
þvi dæmi.
Verktakinn við hitaveituna var
Norðurverk á Akureyri. Reyndist
tilboð þess aðeins vera 84% þess
kostnaðar, sem áætlaður hafði
verið við verkið. Fjölhönnun i
Reykjavík hannaði framkvæmd-
ina. Sagði Gisli á Hofi að sam-
starfið við þessa aðila báða hefði
verið með miklum ágætum ,og
þeir skilað verkum sinum með
hinni mestu prýði.
1 stjórn Hitaveitu Hjaltadals
eru nú Gisli Pálsson, bóndi á Hofi
i Vatnsdal, formaður, Ámi Kol-
beinsson deildarstjóri f Fjár-
málaráðuneytinu og Trausti
Pálsson, bóndi á Laufskálum i
Hjaltadal. —mhg
Við borholubúnað Hitaveltu Hjaldadals: Frá v.: Skúli Skúla-
son, yfirverkfræðingur hjá Fjölhönnun h.f. Gisli Pálsson,
stjórnarformaður Hitavei tunnar, Trausti Pálsson, i stjórn Hitaveit-
unnar. Mynd: GKG
Hitaveita Hjaltadals:
Námskeið dr. Werba:
Ljóðatónlelkar
Dr. Eric Werba hefur að
undanförnu leiðbeint söngvurum
og pianóleikurum i túlkun ljóða á
námskciði á vegum Söngskólans,
semlýkurikvöld með tónleikum i
Norræna húsinu kl. 20,30.
A tónleikunum koma fram
söngvaramir Asrún Daviðsdóttir,
Dóra Reyndal, Esther H.
Guðmundsdóttir, Hólmfriður
Benediktsdóttir, Signý Sæmunds-
dóttir, Valgerður J. Gunnars-
dóttir, Þuriður Baldursdóttur,
Stefán Guðmundsson, Kristinn
Sigmundsson og Sigurjón
Guðmundsson, og pianóleikar-
arnir Guðriður S. Sigurðardóttir,
Jónína Gisladóttir, Kolbrún
Sæ m u nd sd ó 11 i r, Soffia
Guðmundsdóttir, Vilhelmina
ólafsdóttir, Þóra Friða
Sæmundsdóttir, Bjarni Jónatans-
son, David Rosco og Reynir
Axelsson.
Námskeiðið stóð i hálfan
mánuð og voru þátttakendur af
Reykjavikursvæðinu, Akureyri
og Húsavfk, en auk söngvara og
pianóleikara sóttu það fjöldi
Eric Werba
áheyrenda. Þetta er i fimmta sinn
sem Dr. Werba er hér með
námskeið.
Fyrr i' sumar gekkst Söngskól-
inn fyrir námskeiði i raddþjálfun
og var kennari þar próf. Helena
Karusso frá Tónlistarskólanum i
Vinarborg. Þátttakendur voru 14
af Reykjavikursvæðinu eingöngu.