Þjóðviljinn - 29.09.1981, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 29. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Litið á konur sem varavinnuafl:
Láglaunahópur
krefst réttínda
1 ályktun frá ráöstefnu verka-
kvenna aö ölfusborgum segir aö
konur séu aö veröa um helmingur
vinnuafLs þjóöarinnar i atvinnu-
llfinu. Muni þær vera meirihluti
þeirra sem starfa aö verömæta-
sköpun. Telji konur um helming
félagsmanna I Verkamannasam-
bandinu, séu þrisvar sinnum
fleiri en karlar i Landssambandi
iönverkafölks og i sambandi
versiunarmanna séu þær nær
helmingi fleiri en karlar. Þá
vinna nær eingöngu konur sem
þjónustuliö viö sjúka, aldraöa og
böni.
Þá segir i ályktuninni aö all-
arþessar konur séu láglaunahóp-
ur i þjóöfélaginu. Þær séu rétt-
indaminnsti hópurinn, og aö litiö
sé á konur sem varavinnuafl.”
Yfir konur í fiskiönaöi ná ekki
landslög um uppsagnar frest,
þannig aö næstum fyrirvaralaust
er hægt aö láta þær hætta störfum
svo mánuðum skiptir.
Þrátt fyrir þessa miklu at-
vinnuþátttöku kvenna hafa áhrif
þeirra ekki aukist að sama skapi
og konur hafa litil áhrif i forystu
verkalýöshreyfingarinnar. Siö-
asta samningagerö Alþýöusam-
bandsins hefur oröið til þess aö
auka launamismun þar sem
lægstu hóparnir, konurnar fengu
einnig lægstu prósentuhækkun
þrátt fyrir yfirlýsingar og loforö
um hiö gagnstæöa.
Konur eru nú aö átta sig á þvi
hvaö skeö hefur i málefnum
þeirra og margt bendir til aö
stefnt muni aö hinu sama í fram-
tiðinni. Konur koma þv i saman til
aö móta kröfugerö sina og ræöa
stööu kvenna innan verkalýös-
hreyfingarinnar og á hvem hátt
þær geta beytt áhrifum sinum i
réttu hlutfalli við þátttöku i at-
vinnulifinu aö störfum og stjórn-
um og samningum verkalýðs-
hreyfingarinnar þar sem ákvarð-
anir eru teknar um laun og rétt-
indamál”.
Þá var samþykkt ályktun eöa
hvatning um aö „verkakonur
standi ekki upp, frá næstu
samningum fyrr ne kauptrygg-
ingasamningurinn veröi færöur i
það horf að konur hafi raunveru-
lega atvinnutryggingu eins og
annaö fólk í landinu.”
Meiri hlutdeild kvenna i
samningum
Þá samdi fundurinn eftirfar-
andi ályktun:
„Fundur haldinn aöfrumkvæði
Verkakvennafélaga viö Faxaflóa
og fl. i Olfusborgum dagana 26. og
27. september 1981 gerirþá kröfu
til forystu A.S.Í. aö í komandi
samningum veröi konur kvaddar
tilaö fjalla um sina sérsamninga
svo sem ræstingu, bonus, mötu-
neyti og kauptryggingarsamn-
inginn og verfs konur sem ger-
þekkja hvernig honum er beitt
fengið þaö verkefni.
Jafnframt gerir fundurinn
kröfu til að konur fái meiri hlut-
deild i samningagerö og ákvörö-
unum i kjaramálum en þærhafa
haft fram að þessu. Um leiö mót-
mælir fundurinn þvi aö i 54
manna nefndinni sem talinn er
vera samninganefnd séu aðeins
10 konur, og krefst þess að þær
veröi helmingur”.
Fyrsta sýning leikársins á Litla sviði Þjóðleikhúsins:
_
Astarsaga aldarmnar
Miövikudaginn 30. september
n.k. frumsýnir Þjóöleikhúsiö á
Litla sviöinu nokkuö óvanalega
leiksýningu. Er þaö sýning sem
byggö er á frægri samnefndri
ljóðabók finnsku skáldkonunnar
Márta Tikkanen. Þaö er Kristin
Bjarnadóttir leikkona sem hefur
þýtt verkiö og er hún jafnframt
eini ieikandinn i sýningunni,
(verkiö kom út i islenskri þýöingu
sl. vor)J Leikstjórnin er i höndum
Kristbjargar Kjeld, leikmynd og
búning gerir Guörún Svava Svav-
arsdóttir og David Walters sér
um lýsinguna. Helga Ingólfsdóttir
semballeikari valdi tónlistina viö
sýninguna, en hún er sótt til
danskra og finnskra tónsmiöa.
Þetta er liklega i fyrsta sinn i
islenskri leikhússögu, að leikrit er
sett á fjalirnar, sem byggir aö
öllu leyti á ljóðmáli. Þessi tilraun
er þvi einkar athyglisverö og á
vonandi eftir aö draga aö sér is-
lenska leikhúsunnendur. Sýningin
stendur yfir i 1 1/2 klukkutima
meö leikhléi.
Marta Tikkanen gaf Astarsögu
aldarinnar út I Finnlandi áriö
1978, en hafði áöur gefiö út fjórar
skáldsögur, m.a. Karlmönnum er
ekki hægt aö nauöga, sem Jörn
Donner kvikmyndaöi siöan. Er
skemmst frá aö segja aö bókin
vakti mjög mikla athygli fyrir
hispurslausa einlægni og hlaut
t.d. Norræn bókmenntaverölaun
sem kvennasamtök veittu árið
1979 til að mótmæla einokun karl-
manna á bókmenntaverðlaunum
Norðurlandaráðs. Einhver áhrif
hefur þessi veiting haft, þvi árið
eftir hlaut Sara Lidman bók-
menntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs fyrst kvenna. Annars er veit-
ing þessara verðlauna til Mártu
Tikkanen táknræn, auk þess að
vera verðskulduð, þvi henni er of-
arlega i sinni sú barátta sem hún
varð að heyja til þess eins að geta
sagt með reisn ,,Ég er rithöfund-
ur”, og vera laus við samviskubit
yfir að hún væri með ritstörfun-
um að stela tima frá heimili og
börnum.
1 Astarsögu aldarinnar lýsir
höfundurinn sambandi sinu og
eiginmannsins HenriksTikkanen,
sem er frægur teiknari og rithöf-
undur og einnig áfengissjúkling-
ur. Lýsingin á afleiöingum
drykkjusýkinnar er nærgöngul
mjög og hreinskilin, full af
gremju og jafnvel hatri og nist -
andi háöi, en jafnframt glóandi af
ást og samúð. Höfundurinn hatar
og elskar i senn og hefur tekist aö
miöla lifsreynslu sinni og gefa
henni þar meö gildi fyrir aöra.
önnur sýningin á Astársögu
aldarinnar veröur fimmtudaginn
1. október og þriöja sýningin
sunnudaginn 4. október. Sýning-
arnar hefjast klukkan 20.30 á
Litla sviöinu.
Þess má aö lokum geta, aö von
er á MSrta Tikkanen i heimsókn
til Islands i boöi Norrænæ hússins
Bókaútgáfunnar Iöunnar og Þjóö-
leikhússins: A þribjudagskvöldiö
n.k. mun hún svo lesa úr verkum
sinum i Norræna húsinu kl. 20.30
svo hér ber auösjáanlega vel i
veiöi fyrir ljóöelska leikhdssunn-
endur. — hst
Skýrslutæknifélag Islands og Stjórnunarfélag
Islands efna sameiginlega til námstefnu um
SKRIFSTOFU FRAMTiÐARINNAR.
Vegna gíf urlegrar aðsóknar er ákveðið að halda
námstefnuna í HÁTIÐARSAL HÁSKÓLA IS-
LANDS. Eru því fáein sæti enn óbókuð. Verður
hún haldin fimmtudaginn 1. október og hefst kl.
13.30.
Dagskrá:
13:30 Námstefnan sett.
— Hörður Sigurgestsson formaður Stjórn-
unarfélags (slands
13:40 Skrifstofa framtíðarinnar og skipulag
hennar — Martyn J. Harper, A.K. Watson
International Education Center, IBM
14:10 Sítenging ritvinnslu við stærri tölvur —
tölvuboðmiðlun
— Byron Jacobs, ADR Princeton, USA
14:40 Skrifstofutæki níunda áratugarins
— Gunther Jang, Wang USA.
15:10 Kaffihlé
15:30 Símatækni á skrifstofu framtíðarinnar
— Guðmundur Ölafsson verkfræðingur
15:50 Þróun á skrifstofu framtiðarinnar í ís-
lenskum fyrirtækjum
— Sigurjón Pétursson rekstrarhagfræð-
ingur
16:10 Tæknivandamál vegna íslenskra bókstafa
— Björgvin Guðmundsson verkfræðingur
16:20 Orðaskiptingar við ritvinnslu
— Árni Böðvarsson cand. mag.
16:30 Pallborðsumræður og fyrirspurnir
— Dr. Jón Þór Þórhallsson formaður
Skýrslutæknifélags (slands stjórnar um-
ræðum.
I lok námstefnunnar er þátttakendum
boðið að skoða sýningu á skrifstofutækjum
framtíðarinnar. Rútuferð verður frá Háskóla ís-
lands til Hótels Loftleiða með þátttakendur.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags Islands,
Síðumúla 23, sími 82930.
Skrifstofutæki
framtídarinnar
I tengslum við námstefnuna verður efnt til sýn-
ingar á skrifstofutækjum framtíöarinnar, og
verður hún í Kristalssal hótelsins. Á sýningunni
sýna 18 aðilar ýmsan búnað sem að líkindum
verður tekinn í notkun á skrifstofum á næstu
árum.
Sýningin verður opin almenningi dagana 2.—4.
október kl. 14:00—20:00.
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ISLANDS
STJÓRNUNARFÉLAG ISLANDS
Ráðstefna í dag:
Atvinnumál öryrkja
Formannafundur og ráöstefna
SÍBS hefst aö Hótel Esju kl. 9.30 i
dag.Tilumræðu veröa ýmsi innri
mál SÍBS svo sem: Kynningar-
starfsemi og félagsmál, Aldraöir
SÍBS-félagar og reykingavarnir á
vinnustööum. Frummælendur
veröa: Kjartan Guönason, form.
SÍBS, Haukur Þóröarson, yfir-
læknir og Björn ólafur Hall-
grimsson, formaöur SAO.
Kl. 10.30 hefst svo erindaflutn-
ingur um atvinnumál öryrkja,
stjórnandi Oddur Ólafsson.
Erindi flytja:
Gylfi Asmundsson: Rannsókn
og mat á vinnuhæfni öryrkja.
Steinar Gunnarsson: öryrkja-
vinna á MUlalundi.
Þorvaldur Jónsson: Oryrkja-
vinna á Akureyri.
Halldór Rafnar: Oryrkjavinna
Blindrafélagsins.
Björn Astmundsson: öryrkja-
vinna á Reykjalundi.
Að erindaflutningi loknum
veröa umræður og fyrirspurnir.
Fariö veröur i heimsókn i
MUlalund, ArmUla 34 kl. 15.00 og
þaðan i nýbyggingu aö HátUni-
— mhg
Þetta er auglýsing upp þannig sett
aö athygli vekur hún nána.
Ég yrki kvœði lipur og létt
um lifendur jafnt sem dána.
í
§
I
&
I
*
*
3
t
Ég sel mína vöru um dægrin dimm
sem dagsins bjartasta tíma. «|
í fjórum fimmtíu og tveim núllfimm <3
finniði mig í síma. 'JJ