Þjóðviljinn - 29.09.1981, Síða 5
Þriðjudagur 29. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Veikindi Kekkonens Finnlandsforseta:
K osnlngask j álfti er
hlaupin í flokkana
Frá síðasta afmælisdegi Kekkonens: Barnakór kom I heimsókn með
blóm.
FRÉTTASKÝRING
Stjórnmálaástandið í
Finnlandi er mjög spennt
um þessar mundir.
Aðalorsökin er hrakandi
heilsufar Urho Kekkonens
forseta, sem óneitalega
hefur þegar hleypt kosn-
ingaskjálfta í flokkana.
Flestir búast nú við for-
setakosningum í febrúar,
en nýr f orseti mun væntan-
lega taka við embætti 1.
mars, eins og venja er þar í
landi.
Forsetinn er nú i veikindafrii til
10. októver, en þá mun rikis-
stjórnin koma saman og f jalla um
heilsufar forsetans og meta
aðstæður út frá þvi sjónarmiði
hvort Kekkonen sé fær um að
gegna forsetaembættinu.
Það er ekki sennilegt að rikis-
stjórnin leggi i að ýta forsetanum
til hliðar, heldur eru allar likur á
aðliflæknar forsetans verði látnir
gera honum grein fyrir þvi að
hann verði að draga sig i hlé af
heilsufarsástæðum.
Baráttan um forsetaembættið
mun aðallega standa á milli
tveggja flokka, sósialdemókrata
og miðflokksmanna (svipar til
framsóknar á Islandi).
Forsetakosningar i Finnlandi
fara fram með þeim hætti að
þjóðin kýs sér 300 kjörmenn, sem
siðan velja þjóðinni nýjan þjóð-
höfðing ja.
Ef einhver frambjóðenda nær
yfir 50 af hundraði kjörmanna við
fyrstu umferö, nær hann kjöri,
annars verða umferðirnar 3 og sá
vinnur sem flest kjörmannsat-
kvæöi hlýtur.
Þegar Kekkonen var kosinn i
fyrsta sinn 1956 fékk hann 151 at-
kvæði gegn 149 atkvæöum Karl
August Fagerholm.
En frá 1956 eru 25 ár, og á þeim
tima sem liðinn er hefur stuðn-
ingurinn við Kekkonen forseta
farið jafnt og þétt vaxandi.
1978 var svo komið að forsetinn
var einróma sjálfkjörinn til ann-
arra 6 ára, eða til ársins 1984.
En siöan hafa veður skipast i
lofti og heilsu forsetans farið að
hraka, sjóndepra og heyrnar-
skerðing hafa háð honum nokkuð
siðustu árin, og nú er svo komið
að forsetinn er rúmliggjandi
vegna heilablæðinga, sem hafa
verið að ágerast siðustu daga.
A svo til hverri stundu er búist
við tilkynningu um að forsetinn
dragi sig i hlé, en gegn slikri
ákvöröun berjast borgaraflokk-
arnir öllu afli.
Koivisto næstur
Að þeirra mati yröi afsögn
Kekkonens nú sósialdemókrötum
mjög hagstæð, þvi að núverandi
forsætisráðherra og staðgengill
forsetans, Mauno Koivisto, verð-
ur væntanlegur forsetafram-
bjóðandi þeirra.
Frambjöðandi hægrimanna er
enn óviss, talað er um fyrri for-
mann hægriflokksins (Safnaðar-
flokksins) Harri Holkeri, en yfir-
borgarstjóri Helsingfors og mikill
atkvæðasafnari hér á árum áður,
Raimo Ilaskivi hefur einnig
heyrst nefndur.
Miðflokksmenn eru að dubba
upp fyrri utanrikisráðherrann
Ahti Karjalainen, en forseti
finnska þingsins, Johannes Viro-
lainen kemur einnig sterklega til
greina i þeim flokki.
Stærstu erfiðleikarnir i þessu
forsetamáli rikja innan
Lýðræðisbandalagsins, en
Kommúnistaflokkurinn er aðili
aö þvi.
Flokkurinn hefur um árabil átt
við mikil innri vandamál að
striöa, svipuð þeim sem herja á
Sjálfstæðismenn á tslandi, þar
sem varaformaður flokksins
hefur æfinlega verið i stjórnar-
andstöðu þegar formaöur flokks-
ins og meirihluti hans hefur verið
i rikisstjórn.
1 þeim herbúöum er ekki
hlaupið að þvi að sameinast um
frambjóðanda, en nöfn eins og
Paavo Aitio og Kalevi Kivistö
hafa heyrst.
Aito er fyrrum varaforseti
finnska þingsins og fjármálaráö-
herra, Kivistö er formaður Lýð-
ræðisbandalagsins og ekki félagi i
Kommúnistaflokknum.
Einnig getur svo farið að
minnihluti kommúnistaflokksins,
harðlinumennirnir, bjóði fram
eigin mann.
Granninn í austri
Einkennandi fyrir alla þá menn
sem hér hafa verið nefndir er að
allir hafa þeir góö tengsl við ná-
grannann i austri, Sovétrikin.
Sovétrikin munu þvi geta fylgst
með forsetakosningum i Finn-
landi i rólegheitum, engin hætta
erá aðstefna landsins i utanrikis-
málum muni breytast, og sovét-
menn hafa engar áhyggjur af
finnskum málefnum meðan svo
er.
Aftur á móti er tilvera Sovét-
rikjanna og tengs) landanna
notuð miskunnarlaust i stjórn-
málabaráttunni innanlands.
Nú þegar er hafin herferð i dag-
blaði miðflokksmanna gegn
Kovisto, þar sem sósialdemo-
kratar eru bornir þungum sökum
um óábyggilegheit i utanrikis-
Koivisto
málum og allt gert til þess ,að
koma höggi á forsætisráðherrann
Koivisto.
Vinsældir Koivisto um þessar
mundir eru mjög miklar i land-
inu, talið er aö ef kosið yrði nú, þá
mundi 80 af hundraði fylgja kjör-
mönnum Koivisto.
Hrossakaup
Kjörmannakerfið býöur þó upp
á ólýðræðisleg vinnubrögö, ef
enginn frambjóöandi nær meiri-
hluta kjörmanna.
Þá geta hafist hrossakaup
flokkanna, og með slikum aö-
ferðum getur svo farið að sá
frambjóðandi sem i kjörmanna-
kosningunum nær næstflestum
atkvæðum verði kjörinn.
Þannig fór 1956, þegar kjör-
menn kommúnista studdu
Kekkonen og ekki Fagerholm,
sem i upphafi hafði hlotiö fleiri
kjörmenn, en ekki náð meirihluta
þeirra.
Hvernig sem kosningar fara i
febrúar n.k., ef Kekkonen nær
ekki heilsu sinni aftur, sem varla
er við að búast, þá mun öll stjórn-
málabarátta i Finnlandi harðna á
næstu misserum.
Einnig er vafasamt að stjórn
Koivisto sitji mikið lengur, þvi
miðflokksmenn munu litt spennt-
ir fyrir þvi aö Koivisto gegni for-
setastörfum i forföllum Kekkon-
ens fram aö kosningum.
Borgþór S. Kjsernested
Kosningaslagur í Grikklandi:
Ertu með eða á móti
Andreas Papandreú?
Hinn helleniski sósialista-
flokkur Andreasar Papandreús,
PASOK, er liklegur til að vinna
mjög á i þingkosningum sem
fram fara i Grikklandi nú i októ-
ber miðjum. En óvist er samt
talið hvort hann fái hreinan
meirihluta, fremur en hinn stóri
borgaraflokkur Nýtt lýðræði,
sem nú fer meö völd. Þar með
þyrfti i fyrsta sinn siöan herfor-
ingjastjórninni var steypt árið
1974 að bræða saman sam-
steypustjórn á Grikklandi.
Það gæti orðiö erfitt. Sam-
starf stóru flokkanna tveggja,
PASOK og Nýs lýðræöis er afar
ósennilegt. Báðir gætu freistast
til að leita á náöir þess sem eftir
er af Lýðræðislega miðjubanda-
laginu, sem fékk um 12% at-
kvæða i siðustu kosningum. En
sú hreyfing er nú þriklofin, og
mun þvi fá næsta fá þingsæti ef
aðlikum lætur. Kosningakerfið i
Grikklandi er þannig, að það
stækkar þingflokk stærstu
flokkanna á kostnað hinna
minni. Það bætir t.d. verulega
hag flokks ef hann kemst yfir
15% eða 30% mörkin i kosning-
um.
Herinn aftur?
Kommúnistaflokkurinn KKE,
sem er Moskvuhollur, getur
komið til greina sem samstarfs-
aðili PASOK. Hanr. fékk 9% at-
kvæða i siðustu kosningum, og
er nú i nokkurri sókn — gæti
jafnvel fengið 15% atkvæða.
En þá vaknar sú spurning
hvort griski herinn mundi sam-
þykkja slika samvinnu. Um 2000
liðsforingjar luku sinu herskóla-
námi á tima hinna andkomm-
únisku herforingjastjórnar, og
sú beiskja sem borgarastriöið i
Grikklandi á fimmta áratugn-
um skildi eftir sig er sögð mjög
sterk i hernum. Það gæti enn
orðið freisting liðsforingjum að
steypa stjórn sósialista og
kommúnista — og er ekki að
efa, að þeir haukar sem nú ráða
rikjum i Washington mundu
sýna sliku valdaráni mikinn
skilning og umburðarlyndi.
1 hernum munu nokkuð
blendnar tilfinningar uppi i garð
Andreasar Papandreú. Fjand-
skapur hans við gamlan óvin,
Tyrkland, fellur þar i góðan
jarðveg, en miklu siður sá boð-
skapur hans, að hann vilji helst
halda Grikklandi utan hernaö-
arbandalaga og sem næst rikj-
um eins og Júgóslaviu.
Natóog Tyrkir
Papandreú telur sig fátt eiga
gott að þakka Bandarikjamönn-
um, sem hann ásakar oft um að
bera ábyrgö á smánarárunum
sjö þegar herforingjaklikan réði
lögum og mannslifum i landinu.
Hann hefur lengi boðað, að
Grikkir ættu að loka bandarisk-
um herstöðvum og segja sig úr
Nató. Hann er einnig þeirrar
skoðunar að Grikkir hafi gert
yfirsjón þegar þeir gengu i
Efnahagsbandalagið i janúar
leið.
Sem fyrr segir hefur hann
einnig skirskotað óspart til
fjandskapar og ótta við Tyrk-
land. Hann sakar hinn ihalds-
sama og um margt litlausa for-
sætisráöherra, Georg Rallis,
um linkind, hik og afsláttar-
stefnu gagnvart Grikkjum, sem
ekki geri annað en „hvetja
Tyrki til aðgerða sem eru eins
og sprengja undir friðarstóli á
Eyjahafi”.
Rallis hefur með samninga-
viðræðum og öðrum ráðum
reynt að bæta sambúðina við
Tyrkland, sem hefur verið mjög
stirð eftir að-Tyrkir lögðu und-
ir sig noröurhluta Kýpur
og gerðu fjöida griskættaðra
manna i eyrikinu heimilislausa.
Rikin hafa lika átt i illdeilum út
af skiptingu landgrunns á Eyja-
hafi, en nokkrar griskar eyjar
liggja mjög nálægt ströndum
Tyrklands: þegar olia fannst á
þessum slóöum var fjandinn
laus, sem búast mátti við.
Talar varlegar
Hitt er svo annað mál, að
Andreas Papandreú hefur feng-
iö orð á sig fyrir að vera ekki
sérlega stefnufastur. Þaö getur
verið nokkuð á reiki hvar hann
stendur i ýmsum málum. Eftir
þvi sem kjördagur nálgast hefur
hann dregið úr ýmsum staöhæf-
ingjum og reynir sem mest að
tengja nafn sitt viö hinn
„franska sósialisma” Francois
Mitterrand, sem hann hefur
Papandreú er hér að fara með trúarjátnií.guna fyrir klerka — og
mun varla skaða hann I kosningaslagnum, segir vikublaðiö sem
myndina birti.
reyndar lengi átt gott samband
við.
Nýlega hefur hann t.d. sagt,
að bandariskar herstöðvar i
Grikklandi séu samningamál —
má vera hann vilji selja Banda-
rikjamönnum dvalarleyfi ef
þeir i staðinn dragi úr hernaðar-
aðstoð við Tyrki. Hann er og
hættur að tala um Júgóslaviu
sem hina sósialisku og hlutleysu
fyrirmynd. Að þvi er varðar
Efnahagsbandalagið, segir
Papandreú nú, að hann muni ef
til vill biða i nokkur ár áður en
hann biður Grikki að fara úr
þeim félagsskap. En á meðan
ætlar hann að likindum að
brjóta ýmsar reglur EBE i þágu
griskra hagsmuna.
Lygar og svik
Kosningaslagurinn er mjög
harður og persónulegur. Orð
eins og lygar, svik og gjaldþrot
þjóta i milli, ásakanir og gagn-
ásakanir frá flokkunum fylla
fjölmiðla. Enginn kann betur að
leika á fjölmiðlana en Papan-
dreú með sinum harðskeytta
sóknarstil. Hann leikur óspart á
starengi ótta Grikkja við
margskonar erlend áhrif og
itök. Aöalandstæðingur hans,
Rallis forsætisráðherra, er
miklu dauflegri persónuleiki. '
En einnig hann leikur mjög á
strengi óttans — hann reynir
sem mest hann má að hræða
Grikki við afleiðingunum af þvi
að snúa baki við Vesturveldun-
um og taka upp „marxiskan
sósialisma”.
Jafnvel þótt Andreas Papan-
dreú fengi hreinan meirihluta á
þingi er stjórnarskrá landsins
honum nokkur fjötur um fót á
leið til valda. Eins og i Frakk-
landi er ekki ráð fyrir þvi gert,
að forseti landsins og forsætis-
ráðherra séu úr ólikum pólitisk-
um fylkingum. Hafi Papandreú
þingstyrk til að verða mynda
stjórn verður hann að byrja að
glima við helsta andstæðing
sinn fyrrum, Karamanlis, sem
nú er forseti.
áb tók saman.
I