Þjóðviljinn - 14.11.1981, Síða 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 14.— 15. nóvember 1981
um helgina
Leikhús
islenski dansflokkurinn meö
góða gesti:
Ballettar eftir
Hlif Svavarsdóttur
Sunnudaginn 22. nóvember
n.k. verður fyrsta sýning hjá Is-
lenska dansflokknum i Þjóðleik-
húsinuá tveimurballettum eftir
Hlíf Svavarsdcíttur og er annar
dansinn saminn fyrir dansflokk-
inn og þvi frumflutningur. Það
sama kvöld dansar svo Auður
Bjarnadóttir og mótdansari
hennar Djinko Bogdanic úr
Munchenaróperunni tvö atriði
úr sigildum ballettum.
Hlif Svavarsdöttir hefur
starfað undanfarin ár við þjöð-
arballett Hollendinga f Amster-
dam, en hefur á siðustu árum
farið meira og meira út i að
semja dansa. Fyrri dansinn,
sem nú er fluttur hér, Fimm
myndir fyrir sjö dansara við
tónlist Oliver Messian, var
frumfluttur i Amsterdam fyrir
u.þ.b.ári.ensá sem frumfluttur
verður heitir „eða” og er
við tónlist eftir Anton Webern.
Fimm félagar úr Sinfóniunni
flytja þetta verk ásamt Snorra
Sigfúsi Birgissyni. Dansarar i
sýningunni eru 11, þau Birgitta
Heide, Guðmunda Jóhannes-
dóttir, Guðrún Pálsdóttir, Hel-
ena Jóhannsdóttir, Helga Bern-
hard, Ingibjörg Pálsdóttir, Jó-
hannes Pálsson, Katrin Hall,
Lára Stefánsdóttir, Ólafia
Islenski dansflokkurinn ásamt
höfundi dansanna Hllf Svavars-
dóttur sem er aftast lengst til
hæ gri.
Bjarnleifsdóttir og örn Guð-
mundsson.
Sýningar geta aðeins orðið
þrjár, vegna anna Auðar
Bjarnadóttur úti. Þær verða á
sunnudagskvöld, eins og áður
segir, en seinni sýningarnar
þriðjudaginn 24. og miðviku-
daginn 25. nóvember.
Góð aðsókn að
Þjóðleikhúsinu
Mjög góð aðsókn hefur verið
að Þjóðleikhúsinu ihaustog tala
leikhúsgesta þegar orðin tals-
vert hærri en bæði á sama tima i
fyrra og hitt-eð-fyrra eða rúm-
iega 18 þúsund.
Hótel Paradis verður sýnt á
laugardagskvöld. Aðsókn hefur
veriö góð og alltaf fullt um helg-
ar. Er þetta 19. sýning á leikn-
Dans á rósum hið nýja leikrit
Steinunnar Jóhannesdóttur
verður svo á fjölunum bæði á
föstudag og sunnudag. Leikur-
inn hefur vakið mikið umtal og
athygli og hefur verið uppselt á
hverja einustu sýningu til þessa.
Astarsaga aldarinnar verður
svo á þriðjudag, en þar fer sýn-
ingum að fækka úr þessu.
Nemendaleikhúsið
sýnir
Jóhönnu frá Örk.
Nemendaleikhúsið sýnir leik-
ritið Jóhönnu frá örk á sunnu-
dagskvöld 15. nóvember kl.
20.30 I Lindarbæ. Miðasalan er
opin frá kl. 17.00 I Lindarbæ,
simi 21972. Miðaverð er kr.
55.00.
Alþýðuleikhúsið um
helgina
Elskaðu mig eftir Vitu Ander-
sen, 4. sýning föstudag kl. 20.30,
5. sýning sunnudag kl. 20.30.
Stjórnleysingi ferst af slysför-
um eftir Darió Fo. Vegna
mikillar aðsóknar verður auka-
sýning á laugardagskvöld kl.
23.30. Ath. Allra siðasta sinn!
Sterkari en Superman, sunnu-
dag kl. 15, mánudag kl. 17.30,
uppselt.
Garðaleikhúsið sýnir
Gáldraland.
Garðaleikhúsið sýnir barna-
leikritið Galdraland eftir Bald-
urGeorgsi Tónabæá sunnudag-
inn 15. nóvember kl. 15.00.
Baldur og Konni koma i heim-
sókn.
Leikfélag Flateyrar
sýnir „Margt býr i þok-
unni”
Leikhópur Ieikfélags Flateyrar
ásamt leikstjóra.
í gærkvöidi ,föstudag, frum-
sýndi Leikfélag Flateyrar saka-
málagamanleikinn „Margt býr
i þokunni”,eftir William Dinner
og William Morum, i félags-
heimilinu á Flateyri.
Leikendur eru átta. Aðalhlut-
verk leika Aslaug Armannsdótt-
ir, Björk Gunnarsdóttir og Mar-
grét Hagalínsdóttir. Leikstjóri
erRagnhildur Steingrimsdóttir.
Leikritið verður sýnt i ná-
grannabyggðarlögum tvær
næstu helgar.
Myndlist
Tauþrvkk i
Langbrók
í Galleri Langbrók, Amt-
mannsstig 1 hefur verið tekin
upp sú nýung að hafa kynningar
á þvi sem félagar i Langbrók
eru sjálfir að gera þá stundina
án þess að um formlega sýningu
sé að ræða.
Fyrsta Langbrókarkynningin
stendur nú yfir og er þar um að
ræða ný mynstur i tauþrykki
eftir Röngu Róbertsdóttur,
þrykktarlengjur, púðar, hand-
klæði o.fl. allti svörtu og hvitu.
Kynning á vinnu Rögnu stend-
ur út næstu viku og Galleriið er
opið alla virka daga kl. 12—18
— Ljs. gel.
Guðmundur Karl sýnir
i Galleri 32
Guðmundur Karl við eitt verka
sinna. Ljósm. — gel.
I dag laugardag kl. 14 opnar
Guðmundur Karl Asbjörnsson,
listmálari myndlistarsýningu i
Galleri 32 nýjum sýningarsal
við Hverfisgötu 32. A sýningunni
eru milli 20 og 30 myndir, vatns-
litur og olia. Þetta er sjötta
einkasýning Guðmundar, en
siðast sýndi hann á Kjarvals-
stööum 1975.
Sýningin er opin alla daga frá
14 - 22 og sagði Guömundur i gær
að allir væru velkomnir á opn-
unina sem verður kl. 14 i dag.
Engin boðskort hafa verið send
út og aðgangur að sýningunni er
ókeypis.
Finnska listakonan Lisbet Lund
á sýningu sinni I Norræna hús-
inu. Hún er her stödd sem
styrkþegi Menningarsjóðs
tslands og Finnlands.
Finnsk grafik
i Norræna húsinu
Um þessar mundir stendur
yfir i Norræna húsinu sýning á
grafikmyndum finnsku lista-
konunnar Lisbet Lund, og er
sýning þessi komin frá Osló, þar
sem hún var sýnd i sýningarsal
norskra grafiklistamanna..
Lisbet Lund er fædd 1932 i
Helsingfors og stundaði nám i
Finnlandi og Danmörku. Hún
hefur haldið einkasýningar á
öllum Norðurlöndunum og i
Hamborg i Þýskalandi og tekið
þátt i samsýningum viða um
heim,ogeru myndirhennartil á
listasafnum f Finnlandi, Sviþjöð
og Þýskalandi. A sýningunni
eru 30 myndir unnar á siðustu
þrem árum. Flestar myndanna
eru akvatintur, en einnig eru á
syningunni nokkrar dúkristur.
Sýningin er opin i anddyri
Norræna hússins alla virka
daga kl. 9-19 og sunnudaga frá
kl. 12-19, og lýkur henni þann20.
növember nk.
Olga sýnir á Mokka
Um þessar mundir sýnir Olga
von Leuchtenberg I Mokka á
Skólavörðustig. Þar eru sýndar
28 vatnslita- og oliumyndir.
Þetta er önnur sýning Olgu hér
á landi, en hún sýndi áður i
Mokka árið 1979.
Olga er fædd I París árið 1931
og hóf þar listnám, en fluttist til
Bandarikjanna rúmi. tvitug og
lauk þar námi við Museum
School of Fine Arts i Boston.
Siðastliðin þrjú sumur hefur
Olga eytt sumarleyfum sinum
hér á Islandi, eins og margar
myndanna bera með sér.
Guernica i
Listaskála Alþýðu
í Listaskála alþýðu við Grens-
ásveg stendur nú yfir heimild-
arsýning á sögufrægasta mynd-
listarverki 20. aldar, „Guern-
ica” eftir Picasso. Sýningin er
opin daglega frá 14—22 fram til
29. nóvember n.k.
Sigurður Eyþórsson
sýnir i Djúpinu
I Galleri Djúpinu, Hafnar-
stræti 15 stendur nú yfir sýning
á málverkum, teikningum og
grafikmyndum Sigurðar
Eyþórssonar. Flestar myndirn-
ar eru til sölu og er aðgangur
ókeypis.
Galleri Lækjartorg
I Galleri Lækjartorgi, Lækj-
argötu 2, sýnir Haukur Hall-
dórsson um þessar mundir 39
myndlistarverk, kol og blýants-
teikningar ásamt einum skúlp-
túr, „Tröllalúku”. Sýningunni
lýkur 22. nóvember og er hún
opin frá 14—22 daglega.
Siðasta sýningarhelgi
hjá
Ágúst Petersen
A sunnudag 15. nóvember lýk-
ur i Norræna húsinu sýningu
Agústs Petersen. A sýningunni
eru 62 oliumálverk en hún er op-
in núna um helgina frá kl.
I 14—22.
Fleygir þú
peningum daglega
óafvitandi ?
Nýr Danfoss með minnispunkti
Enn er fjöldi fólks hér á landi sem
gerir sér ekki grein fyrir hve mikil
hitaorka fer til spillis í húsnæöi
þess, sem kostar það ómæld pen-
ingaútlát.
Verkefni Danfoss ofnhitastillanna
er einmitt aö nýta hitaorkuna og
auka þægindin til hins ýtrasta í
hverju herbergi.
Dragöu þaö ekki aö kynna þér
kosti nýju Danfoss ofnhitastillanna,
þaö kostar ekkert. En þú getur
sparaö þér fúlguna sem þú fleygir.
HÉÐINN
DANFOSS ráðgjafaþjónusta
Seljavegi 2, sími 24260