Þjóðviljinn - 12.12.1981, Side 7

Þjóðviljinn - 12.12.1981, Side 7
Helgin 12.— 13. desember 1981 Sigurjón Pétursson skrifar um borgarmál — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 4. grein Fyrirtækin flúöu ráöleysi og dugleysi meirihluta Sjálfstæöisflokksins, og m.a. reis upp öflugt iönaðarhverfi viöborgarmörkin ilandi Kópavogs. borgina I valdatið Sjálfstæðisflokksins hafa nú þegar snúiö aftur eöa sýnt áhuga á aöflytja aftur til borgarinnar. Fyrirtækin flúðu borgina en eru nú aftur á heimleið Traust atvinnulif er undir- staða velmegunar i hverju sam- félagi. Það var þvl verulegt áhyggjuefni fyrir Reykvik- inga hvernig atvinnuuppbygg- ing þróaöist i Reykjavik i stjórnartiö Sjálfstæðisflokks. Atvinna viö framleiöslu og úr- vinnslu dróst stöðugt saman. Fyrirtæki fluttu i stórum stil úr borginni. Viö borgarmörkin i landi Kópavogs reis upp öflugt iðnaöarhverfi, sem að megin- uppistööu byggist á fyrirtækj- um, sem flúðu ráðleysi og dug- leysi meirihluta Sjálfstæðis- flokksins. Það eina, sem blómstraði i atvinnumálum Reykvikinga var viðskipti og þjónusta. Á sviði atvinnumála beið þvi mikiö og erfitt verkefni núver- andi meirihluta. Slikri öfug- þróun og áöur rikti verður ekki snúið við í einu vetfangi, slikt tekur langan tima. Ýmislegt hefur þó verið gert. Bæjarútgerö Reykjavikur hefur verið stórlega efld og er nú meðal traustustu útgerðarfyrir- tækja landsins. Aöbúnaður starfsfólks hefur veriö bættur. vinnutimi er reglulegri og tekjur þess eru betri en áður var. Samtimis hefur hagur fyrirtækisins sjálfs stór-batnað og siðustu ár hefur það verið rekiö með hagnaði sem var óþekkt fyrirbrigði áður. Um þessar mundir er staða fyrir- tækisins slæm eins og allra út- geröar- og fiskivinnslufyrir- tækja landsins og þó hvergi nærri eins vonlaus og margra annarrá. 1 dag dettur engum i hug aö leggja þetta fyrirtæki niður eöa selja það öðrum eins og iöulega heyrðust raddir um i valdatið Sjálfstæöisflokksins. Vinnubrögö atvinnumála- nefndar borgarinnar undir for- ystu Guömundar Þ. Jónssonar hafa einnig stóriega breyst til batnaöar. 1 stað þess að setjast niður um þaö bil einu sinni i Ýmis af þeim fyrirtækjum sem flúöu mánuði og lesa skýrslu um at- vinnuleysisskráningu i Reykja- vik eins og áður var, þá hefur nefndin haft frumkvæði að þvi að stofna ný fyrirtæki og aö þvi að styrkja önnur á sviði nýiðn- aðar. Undirbúningur að stofnun fyrirtækja á sviði nýiðnaöar tekur langan tima og þess er tæpast aö vænta aö störf at- vinnumálanefndar siðastliðin 3—4 ár beri ávöxt fyrr en á næsta kjörtimabili borgar- stjórnar. En vist er að vegna starfa at- vinnumálanefndar borgarinnar þá horfa Reykvikingar fram á að atvinnulif i borginni treystist á næstu árum við raunhæfar framleiðslu- og úrvinnslu- greinar og það er mikill ávinn- ingurfrá þróun siöustu áratuga. Hly skinn, ilmandí vídur Klub stólar aðeins kr. 254. Hlýr mokkafatnaður aðeins 1000 kr. útborgun. Gjafavörur: franskt postulín, trévörur og jólaskraut. Lundia hillukerfið er úr óendanlega uppsetninga möguleika. Við bjóðum fjölbreytta vöru fyrir alla aldurshópa. Falleg hönnun sameinar gagn og gildi. Gott verð og afborgunarskilmálar, þar að auki erum við í miðju Bankastræti. .... í fáum orðum sagt, Gráfeldur býður þérgleðileg jól. ^ GRÁFELDUR **\ Þingholtsstræti 2, Reykjavík Símar: 26540 og 26626

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.