Þjóðviljinn - 12.12.1981, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 12.12.1981, Blaðsíða 21
Helgin 12.— 13. desember 19» ÞJÓDVILJINN — SIÐA 21 Gallenið Laugavegi 11 46. einkasýning Steingríms i dag laugardag kl. 14 opnar Steingrimur Sigurðsson listmál- ari 46.einkasýningu sina i galleri- inu Laugavegi 12. í samtali við Steingrim kom fram að staðurinn er m.a. valinn með tilliti til þeirrar fólksmergð- arsem er i miðbænum nú i jólaös- inni. ,,Ég vilvera mitt i hringið- unni”, sagði Steingrimur en auk þess sagðist hann halda mikið upp á eiganda gallerisins, Magn- ús Þórarinsson. A sýningunni eru 66 myndir, og er ein þeirra máluð 1955, löngu áður en Steingrimur fór að sýna. Annars eru langflestar myndirn- arnýjar af nálinni, — acryl, olia, Steingrimur Sigurðsson vatnslitir, pastel, kolkrit og teikn- ingar. Landslagsmyndirnar sem m.a. eru frá Þingvöllum og Stokkseyri og Eyrarbakka eru allar málaðar úti vitven á sýning- unni eru einnig myndir af gömlu Reykjavik, og úr örfirisey. Steingrimur sagði marga myndlistarmenn kvarta undan þvi að desembermánuður væri slæmur til sýningahalds, — fólk væri þá ekki að hugsa um menn- inguna heldur jólastúss. Ég sýni hins vegar i ótima, sagðihann, og vil taka þátt í slagnum! A boðskorti sem Steingrimur hefur sent Ut er litprentuð mynd af einu verkanna á sýningunni. Seljaútibú BÖNAÐARBANKANS tekur til starfa 11. desember Afgreiðslutími mánudaga til föstudaga kl. 09.15—16.00 Síðdegisafgreiðsla fimmtudaga ki. 17.00—18.00 ★ Við bjóðum Seljahverfinu alla innlenda bankaþjónustu ★ Við reynum að miða aðbúnað og þjónustu fyrst og fremst við einstaklinga og fjölskyldur ★ Starfsfólk reynir að sýna viðskiptamönnum lipurð og skilning í öllum afgreiðslum ★ Við bjóðum björt og notaleg húsakynni án hefðbundinnar formfestu ★ Við bendum á, að Búnaðarbanki íslands er annar stærsti viðskiptabanki þjóðarinnar og einn traustasti hornsteinn íslenzkra peningamála ★ Athygli er vakin á því, að útibúið starfar til bráðabirgða í núverandi húsnæði og bíður eftir aðstöðu í verzlunar- og þjónustumiðstöð Seljahverfis ★ Við bendum á, að Skógarsel hefur nýlega verið gert að aðalbraut og biðjum viðskiptamenn að gæta varúðar í umferðinni ★ Loks bjóðum við viðskiptamenn velkomna í útibúið. Það verður heitt á könnunni í skammdeginu. Samkeppni um hönnun jólafrímerkís Frímerkjaútgáfunefnd á vegum Póst- og síma- málastofnunarinnar efnir til hugmyndasamkeppni um „Jólafrímerki 1982“ í samvinnu við F.Í.T., Félag íslenskra auglýsingateiknara. Gert er ráð fyrir tveimur verðgildum með samstæðu þema og er frjálst að skila tillögum að öðru eða báðum. Stærð merkisins skal vera 26x36 mm. * Teikningum skal skilað í minnst fjórfaldri og mest sexfaldri stærð á karton að stærð A4. Teikningarnar skulu gefa sem gleggsta mynd af útliti merkisins. Merkin verða prentuð í allt að 6 lita djúpþrykki („sólprent”). Athygli skal vakin á því að sé negatívt eða hvítt letur látið ganga í gegnum marga liti, skapar það erfiðleika í prentun. Verðgildi merkisins verður þriggja stafa tala. Áletrun: ÍSLAND, Jól 1982. 2 Ritari og trúnaðarmaður keppninnar er * Rafn Júlíusson h já Pósti og síma við Austur- völl í Reykjavík (póstfang: Pósthólf 270, 121 Reykjavík) (sími 26000) og veitir hann nánari upplýsingar ef óskað er. Tillögum skal skilað fyrir 15. febrúar 1982 til * trúnaðarmanns keppninnar eða í ábyrgðar- póst áður en frestur er útrunninn og gildir þá póststimpill dagsins. Tillögur skulu merktar kjörorði og nafn höfundar og heimilisfang fylgja með í lok- uðu, ógagnsæju umslagi merktu kjörorði eins og tillögur. Dómnefnd stefnir að því að ljúka störfum * fyrir 15. mars 1982 og mun birta niðurstöður sínar fyrir 1. apríl 1982. Efnt verður til sýn- ingar á þeim tillögum sem uppfylla skilyrði keppninnar. C Veitt verða þrenn verðlaun að upphæð * kr. 47.500.- sem skiptast þannig: 1. verðlaun kr. 25.000 2. verðlaun kr. 15.000 3. verðlaun kr. 7.500 Verðlaunin eru ekki hluti af þóknun teikn- ara fyrir útgefið merki og verða laun að öðru leyti greidd í samræmi við laun fyrir önnur frímerki. Útgáfunefnd áskilur sér rétt til útgáfu á verð- * launuðum tillögum og/eða að kaupa aðrar tillögur til útgáfu en þær sem hljóta verð- laun. Dómnefnd skipa: Frá Frímerkjaútgáfunefnd: Hálfdan Helgason Jón Skúiason Frá F.Í.T.: Hilmár Sigurðsson Prostur Magnússon PÓSl~ (.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.