Þjóðviljinn - 12.12.1981, Qupperneq 28

Þjóðviljinn - 12.12.1981, Qupperneq 28
AUGLYSING LANDIÐ ÞITT — ÍSLAND Eftir Steindór Steindórsson og Þorstein Jósepsson. Annað bindi (H-K) hinnar stórglæsi- legu endurútgáfu þessa mikla ritverks. Bók er hefur að geyma sögu og sérkenni þús- unda staða, bæja, kauptúna, héraða og landshluta. Þegar fyrsta bindi bókarinnar kom út í fyrra komst einn gagnrýn- enda svo að orði að hér væri um sáttmálsörk lands og þjóð- ar að ræða og voru það orð að sönnu. Mikill fjöldi litmynda er í bókinni sem er lykillinn að vitneskju og fróðleik um land- ið okkar ÍSLAND. 220 GÓMSÆTIR SJÁVARRÉTTIR Eftir Kristínu Gestsdóttur. Myndskreytingar eftir Sigurð Þorkelsson. Bók sem lengi hef- ur verið beðið eftir, — bók sem sýnir að það er unnt að „gjöra góða veislu" úr fiski ekki síður en kjöti, ef hug- myndaflug og framtak er fyrir hendi. Þetta er bók sem breyt- ir fiskdögunum á heimilinu í veisludaga, og það án aukins tilkostnaðar. Auk uppskrifta af fisk- og sjávarréttum eru í bókinni fjölmargar uppskrift- ir af auðveldum sósum, brauð- um og öðru meðlæti sem ný- næmi er að. HVAÐ GERÐISTT Á ÍSLANDI 1980 Árbók íslands eftir Steinar J. Lúðvíksson. Annað bindið í bókaflokki er hefur að geyma ítarlega samtímasögu íslenskra atburða. Bókin er sett upp á mjög aðgengilegan hátt, og gefin heildarmynd af hverju máli fyrir sig. Bókin er því að- gengilegt heimildarit og mun verða ómetanleg þegar fram líða stundir og þeim skemmti- leg lesning sem vilja rifja upp heimildir um samtíma at- burði, sem þeir tóku sjálfir þátt í eða voru áhorfendur að. I bókinni eru á fjórða hundrað ljósmyndir. TOGARAÖLDIN Eftir Gils Guðmundssson. Fyrsta bindi ritverks er fjallar um mesta byltingarskeið ís- lenskrar atvinnusögu og var grunnur þess að Islendingar hófust úr örbyrgð til alls- nægta. Bókin ber undirtitilinn „Stórveldismenn og kotkarlar" og fjallar um upphaf togveiða viö ísland, fyrstu tilraunir ís- lendinga til slíkra veiða, sam- skiptum við erlenda togara- menn, landhelgisgæslumál og fl. Fjölmargar sögulegar ljósmyndir eru í bókinni, sem öll er litprentuð og glæsilega úr garði gerð. ÖRN&ÖRLYCUR Slðumúla 11, simi 84866 BÓKAÚTGÁFAN ÖRN OG ÖRLYGUR H/F, SlÐUMÚLA 11, SÍMI 81866 Þjóðlegar og fróðlegar ÞRAUTGÓÐIR Á RAUNASTUND Eftir Steinar J. Lúðvíksson 13. bindi Björgunar- og sjó- slysasögu íslands. Fjallar um atburði áranna 1900— 1902 að báðum árum með- töldum. Meðal frásagna í bókinni má nefna slysið mikla við Vestmannaeyjar á uppstigningardag árið 1901, frásögn um strand togarans Cleopötru í ársbyrjun 1901, Mannskaðaveðrinu miklá í september árið 1900 og frá- sögn um undarleg örlög hins svokallaða Sænska-Nilssons er varð tveimur mönnum að bana á Dýrafirði laust fyrir aldamót, en mætti svo sjálf- ur örlögum sínum við Grindavík árið 1902. ÞJÓÐSÖGUROG ÞÆTTIR ÚR MÝRDAL Eftir Eyjólf Guðmundsson frá Hvoli. Þórður Tómasson frá Skógum bjó til prentun- ar. Eyjólfur á Hvoli varð landsþekktur maður fyrir bækur sínar, einkum þó „Afi og amma“ og „Pabbi og mamma". Þegar Eyjólfur lést var mikið af óbirtum handritum í fórum hans og hefur Þórður frá Skógum farið yfir þau og valið til birtingar. Þetta er sannköll- uð óskabók allra þeirra er unna þjóðlegum fróðleik. STÓRA BOMBAN Eftir Jón Helgason, fjallar um það mál er hatramastar deilur hafa orðið um á ís- landi á síðari tímum — þeg- ai- Jónas frá Hriflu, þáver- andi dómsmálaráðherra var lýstur geðveikur. Jónas hóf gagnsókn sína með frægustu blaðagrein sem skrifuð hefur verið hérlendis. „Stóru bombunni" og á svipstundu var þjóðinni skipt í tvær fylkingar sem barðist hat- ramri baráttu með þeim bitrustu vopnum sem til urðu fengin. Þá skalf allt ísland og áhrifanna gætir jafnvel enn þann dag í dag. CharlesDarwin og þröun&rkenningin JohuChancellor Jrwnuiwr sögtmitar Charles Darwin - ný bók f flokknum frömuðir sögunnar Eftir John Chancellor í íslenskri þýðingu Steindórs Stein- dórssonar frá Hlöðum. Bókin er í hinum vinsæla bókaflokki um frömuði sögunnar og frömuði landafunda, en þó sjálf- stætt ritverk eins og fyrri bækur í flokknum: Áður hafa komið út: Kólumbus, Nelson, Scott, Francis Drake, Lewis og Clark, Magellan, Karluk og Livingstone, og eru þessar bækur flestar enn fáanlegar á góðu verði. Charles Darwin og þróun- arkenningin, segir frá hinum merku kenningum Darwins sem komu á sínum tíma miklu róti á hugi manna og voru mjög umdeildar. M Peter §' Beachiey QJUPIO I £(tir sama höfund ik°9hmmSbíekur-. ÓKiNDSN og EVJAN Magnaðar spennusögur Djúpið — eftir Peter Benchley, höfund bók- anna „Eyjan“ og „Ókindin", en þær bækur hafa báðar komið út á íslensku, og samnefnd- ar kvikmyndir, gerðar eftir sögunum verið sýndar í íslenskum kvikmyndahúsum. Peter Benchley hefur oft verið kallaður meistari spennusagnanna, enda efnistök hans yfirveg- uð og mögnuð og ber ekki keim þeirrar fjölda framleiðslu sem einkennir marga aðra spennusagnahöfunda. Djúpið fjallar um uhg hjón, áhugafólk um froskköfun, sem flækjast óvænt og óvart inn í atburði þar sem teflt er um líf og dauða, og óséð er fram undir sögu- lok hver málalok verða. Þetta er bók sem heldur lesandanum föngnum frá fyrstu til síðustu síðu. Þýðing bókarinnar er eftir Egil Stardal. Líf í Ijóma frægðar — eftir Rosemary Rodgers í íslenskri þýðingu Dags Þorleifssonar. Bókin er í tveimur bindum og fallegum gjafakassa. Þetta er hisþurslaus og djörf saga um líf og starf kvikmyndastjarnanna. Skyggnst er bak við tjöldin í kvikmyndaheiminum og kemur þá ýmislegt í ljós sem ekki blasir við áhorf- andanum á hvíta tjaldinu. Rosemary Rodgers er margfaldur metsöluhöfundur, bæði vestan hafs og eins í mörgum Evrópulöndum og þyk- ir hún kunna vel tökin á spennusagnaritun.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.