Þjóðviljinn - 07.01.1982, Page 11
Fimmtudagur 7. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
íþróttir 0 í þróttir
STORSIGUR A
PORTÚGÖLUM
stigin i hálfleiknum og staðan 46-
42 i hálfleik fyrir Island.
uoum. jon Steingrimsson sýndi
góð tilþrif og er framtiðarleik-
ísland — Portúgal 92:71
„Ég hcfði ekki gctað óskað mér
betri afmælisgjöf en þennan stór-
sigur”, sagði Jón Sigurðsson
landsliðsfyrirliði i körfuknattleik
eftir stórsigur á Portúgölum. Jón
lék þarna sinn 100. landsleik fyrir
island og lék stórt hlutverk i 92-71
sigri.Mikil gleðirikti íherbúðum
islcnska liðsins eftir leikinn og
léku menn á als oddi. „Það er
ekki hægtaðfara fram á meira”,
sagði Einar Bollason landsliðs-
þjálfari og reyndi að hafa taum-
hald á ánægju sinni.
island fékk óskabyrjun þegar
Torfi MagnUsson skoraði eftir 8
sek. eftir fallega sendingu frá af-
mælisbarninu. Heldur var þó
leikur liðsins slakur í byrjun og
litið skorað. Sóknarvillur voru
með mesta mótihjá báðum liðum
og Rikharður var kominn með 3
villur strax á 4. min. Portúgal
hélt forystunni fyrstu 7 min., en
siðan var komið að tslendingum.
Þeir beittu „maður-á-mann”
vörn stift og voru komnir i 33-21
eftir 15, min. Þá kom slæmur
kafí, 41-40, minútu fyrir hlé en
Rikharður skoraði fjögur siðustu
Þegar staðan var 54-58 misstu
PortUgalar sinn langbesta mann,
Santos, útaf með 5 villur og þar
með var dauðadómurinn kveðinn
upp. Hann hafði þá skorað 22 stig
og oft leikið Islendinga grátt.
Ekki fór þó að draga virkilega
sundur með liðunum fyrr en
siðustu 5 minúturnar. A þeim
kafla skoraði islenska liðið 20 stig
gegn 6 og lokatölurnar þvi 92-71
eins og áður sagði, annar sigurinn
á Portúgölum i þremur leikjum
staðreynd.
Það fór aldrei á milli mála
hvort liðið var sterkara i þessum
leik. Aðeins Santos stóð jafnfætis
eða framar þeim Torfa, Simoni
og Jóni Sig. sem báru upp
islenska liðið að öðrum ólöst-
maður ásamt fleirum. Simon og
Torfi hirtu ógrynni frákasta,
einkum var barátta Simonar
athyglisverð. Jón Sig. er nú
loksins búinn að finna sig eftir ró-
legan vetur á hans mælikvarða og
þá er ekki að spyrja að.
Portugalska liðið féll m eð
Santos. Fyrirliðinn Luis reyndi
eftir mætti að halda uppi merki
hans en gekk illa.
Simon 27, Torfi 25, Jón Sig. 23,
Valur 6, Rikharður 4, Jón St.,
Kristján og AgUst 2 hver og Jónas
1 skoruðu fyrir Island en Santos
22 og Luis 17 voru stigahæstir
Portúgala.
Gunnar Guðmundsson og Jón
Otti dæmdu þokkalega, erfiður
leikur og þeir ekki öfundsverðir.
íslandsmótið í knattspyrnu:
Nýja 3. deildin
Eins og komið hefur fram i
iþróttasiðum dagbiaöanna var á
siðasta ársþingi KSt samþykkt að
stofnuð yrði 4. deild á tslandsmót-
inu i knattspyrnu og kæmi
breytingin til framkvæmda strax.
Næsta sumar verður þvi leikið i 4.
deild og með nýju fyrirkomulagi i
3. deild, timabær ráðstöfun, enda
átti tillagan gifurlegu fylgi að
fagna á þinginu.
Ljóst var að gamla 3. deildin
var ekki lengur raunhæf. Um 40
liö léku um tvö sæti i 2. deild, tak-
mark sem var mjög f jarlægt stór-
um hluta liöanna. Munurinn á
liðum i gömlu 3. deildinni var
einnig orðinn mikill: mörg félög i
henni gáfu neöri hluta 2. deildar
2,06 hjá
Unnari
Hinn efnilegi hástökkvari,
I Unnar Vilhjálmsson stökk
• nýlega 2,06 m i hástökki á
| inn anf clagsmóti tþrótta-
■ félagsins Hattar á Egils-
■ stöðum. Er það tslandsmet
* unglinga i hástökki innan-
Ihúss. Unnar átti einnig góðar
tilraunir við 2,12 m sem er
■ tveimur sm hærra cn ts-
| landsmet Jóns ólafssonar.
■ Þetta er þó ekki í fyrsta sinn
■ sem Unnar stekkur þessa
* hæð, á siðasta tslands-
Imeist ara móti sctti hann
unglingameti hástökki utan-
■ húss með þvi að stökkva 2,06
| m.
ekkert eftir á meðan önnur voru
nánast firma- og trimmliöjhöfðu
ekki minnsta áhuga á að leika i 2.
deild.
3. deild
1 nýju 3. deildinni leika 16 lið
skipt i tvo riðla eftir landfræði-
legri staðsetningu. Liðin af Suður-
og Vesturlandi saman i riöli og
liðin af Norður- og Austurlandi
saman. Vissir annmarkar eru þó
á þessari skiptingu þar sem eng-
inn veit fyrirfram úr hvaða lands-
hluta liöin sem falla úr 2. deild
verða. Þetta gæti leitt til mikillar
óvissu og jafnvel deilna um fall i
4. deild og sæti i 3. deild. En sú
staðreynd að skiptingin getur
ekki orðið knattspyrnunni til ann-
ars en góðs réttlætir hana full-
komlega. Siðar er möguleiki á að
breyta fyrirkomulagi 3. deildar,
t.d. með einni 10 liða deild.
Atta liö munu leika i hvorum
riðli 3. deildar og fara tvö efstu úr
hvorum i úrslitakeppni. Þau tvö
sem þar verða efst komast i 2.
deild. 1 4. deild fellur a.m.k. eitt
liðúrhvorum. riðli, jafnvel tvö
ef röskun verður á landfræöilegu
skiptingunni. Fjórða deildin
verður siðan með svipuöu sniði og
Frá KSl
Þátttökutilkynningar fyrir Is-
landsmótið i knattspyrnu utan-
hdss og innanhúss, i öllum deild-
um og flokkum, þurfa að hafa
borist skrifstofu KSl fyrir 20.
janúar nk. Innanhússmótið fer
fram 14. febrUar og 5.-7. mars en
Islandsmótið hefst væntanlega i
mai'.
Blikar
funda
Aöalfundur knattspyrnudeildar
Breiðabliks verður haldinn að
Blikastöðum laugardaginn 16.
janUar nk. kl. 14.
gamla 3. deildin, leikið i riölum i
hinum einstöku landshlutum.
Suö-vestur
1 suð-vestur riðli 3. deildar
verða eftirtalin félög: Haukar
Hafnarfirði, sem léku i 2. deild i
fyrra og 1. deild 1979, Selfoss.sem
einnig féll úr 2. deild 1981,
Grindavik, lið sem hefur verið
tiöur gestur i úrslitum 3. deildar,
iKKópavogi, ungt félag sem kom
mjög á óvart sl. sumar, Viðir
Garði, sem löngum hefur vantað
herslumuninn til aö komast i úr-
slit 3. deildar, HV, eða „Country
United” úr sveitunum kringum
Akranes, liö sem hefur aðeins
leikið tvö sl. sumur i deildakeppn-
inni og náð athyglisverðum
árangri, Snæfell Stykkishólmi,
félag sem virðist á mikilli uppleið
og Vlkingurólafsvik, sem lék eitt
ár i 2. deild fyrir nokkrum árum.
Norð-austur
Liðin i norð-austur riðlinum
eru: TindastóllSauðárkróki.hefur
tvivegis verið hársbreidd frá 2.
deild en setið eftir á markatölu i
bæði skiptin, KS Siglufirði sem
hefur leikiö i úrslitum 3. deildar
oftar en tölu á festir, Arroðinn
Eyjafirði, hefur oft verið nálægt
úrslitum 3. deildar undanfarin ár,
MagniGrenivik, sem lék i 2. deild
1979, HSÞMývatnssveit, sem hef-
ur leikið i úrslitum 3. deildar tvö
siðustu ár, Huginn Seyðisfirði,
öflugt félag sem oftsinnis hefur
lofaö góöu en aldrei uppfyllt þær
vonir sem bundnar hafa veriö við
það, Austri Eskifirði sem lék i 2.
deild 1978-1980 og Sindri Horna-
firöi, félag með geysilega gott
unglingastarf sem væntanlega fer
að skila sér.
Sextán sterk félög og ómögu-
legt er að spá nokkru um hvaða
tvöþeirra leika i 2. deild 1983. Vist
er að 3. deildin verður mjög sterk
og spennandi i sumar, auk topp-
baráttunnar verður fallbarátta,
nokkuð sem fæst liðanna hafa
reynt. 1 4. deild leika einnig nokk-
ur sterk félög og má þar nefna
Armann sem löngum hefur leikið
i 2. deild, Aftureldingu og Stjörn-
una.
—VS
StMON ÓLAFSSON skorar eina af fjölmörgum körfum sinum gegn
Portúgal i gærkvöldi. A innfelidu myndinni er JÓN SIGURÐSSON
ásamt Höllu eiginkonu sinni og tveimur börnum. Hann lék sinn 100.
landsleik i gærkvöldi. — Myndir: gel.
Manch. United
ekki á toppinn
Manchester United tókst ekki
að komast á topp 1. deildar ensku
knattspyrnunnar i gærkvöldi er
liðið varð að láta sér nægja jafn-
tefli, 1:1, á heimavelli gegn Ever-
ton. Reyndar munaði litlu að Ev-
erton hirti öll þrjú stigin i leiknum
en Frank Stapleton tókst að jafna
fyrir Manch. Utd. 8 min. fyrir
leikslok. Áður hafði Graeme
Sharp náð forystunni fyrir Ever-
ton.
Fjölmörgum leikjum var frest-
að i gærkvöldi en úrslit urðu
þessi:
l.deild
Manch. Utd.-Everton 1:1
3.deild
Reading-Portsmouth 2:1
Chesterfield-Preston 0:0
4. deild
Wigan-Tranmere 0:0
Enski bikarinn
Peterb.-Bristol C. 0:1
Scunthorpe-Hereford 1:1
Ipswich er efst í 1. deild með 35
stig, Manch. City hefur 34,
Manch.Utd. og Swansea 33 hvort.
VS
Valsstúlkur íylgja FH Eiim leikur fór fram I 1. dcild kvenna i handknattleik i fyrrakvöld. Þróttur og Val- ur léku i Laugardalshöll og sigruðu Valsstúlkurnar 19- 12. Staöan i 1. dcild kvenna er nú þessi: FH 7 6 1 0 132-99 13 Valur 7 5 2 0 116-79 12 Fram 5 3 1 1 89-69 6 KR 6 3 0 3 106-87 6 Vfkingur 7 3 0 4 116-108 6 Akranes 6 2 0 4 73-114 4 ÍR 5 1 0 4 76-90 2 Þróttur 7 0 0 7 91-153 0
Kissing kemur
í byrjun mars
■
I
i
■
I
Fritz Kissing, hinn þýski
þjálfari 1. deildarliðs Breiða-
bliks i knattspyrnu er væntan-
legur til landsins i byrjun mars
og tekur þá liklega við liöinu úr
höndum Haralds Erlendssonar.
Forráðamenn og leikmenn
Breiðabiiks voru mjög ánægöir
með störf Kissing á siðasta
sumri enda náði liöið góðum
árangri og aðeins herslumuninn
vantaði á að tslandsmeistara-
titillinn ynnist. Blikar hafa nú
endurheimt tvo leikmenn sem
áöur höfðu farið frá félaginu.þá
Ingólf Ingólfsson og Benedikt ■
Guðmundsson. Ingólfur hóf að I
leika með ÍBV sl. sumar en i
hætti þar fljótiega. Benedikt lék |
hins vegar með sænsku 3. ■
deildarliði.
Eins og kunnugt er dvöldu m
Helgi Bentsson og ómar Rafns ■
son hjá Hamburger SV i ■
V-Þýskalandi fyrr I vetur og í
Ómar er nú við æfingar hjá bel- |
giska félaginu Lokeren, liðinu ■
sem Arnór Guöjohnsen leikur |
með.
_________________