Þjóðviljinn - 23.01.1982, Page 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 23 — 24. januar 1982.
bridge
Reykjavíkurmót í sveita-
keppni hefst um helgina
Sennilega verður óbreytt smo
á mótinu, frá undanförnum ár-
um, 16 spilaleikir, allir við alla
og fjórar efstu sveitirnar heyja
siðan innbyrðis útsláttarkeppni.
Auk þess er keppt um Rvk.
titilinn, og slegist um rétt til
þátttöku i Stórmóti Flugleiða.
Ekki er umsjónarmanni kunn-
ugtum fjölda þátttökusveita, en
fastlega má reikna með 15 - 20
sveitum.
Frá Bridge-
sambandi íslands
Æfing fyrir yngri spilara (25
ára og yngri) verður laugardag-
inn 23. janUar i SlysavamahUs-
inu.Hjallahrauni 7, Hafnarfirði,
kl. 14.00.
Aliir spilarar iþessum aldurs-
höpi eru hvattir til að mæta.
Bridgedeild
Barðstrendinga
Mánudaginn 11. janúar hófst
aðalsveitakeppni félagsins með
þátttöku 10 sveita.
Staðan eftir 4 umferðir:
1. Viðar Guðmundsson 65 stig
2. Ragnar Þorsteinsson 64 stig
3. Gunnlaugur Þorsteinsson 52
stig
4. Sigurður Isaksson 48 stig
5. Sigurður Kristjánsson 45 stig
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Aö loknum fjórum umferðum i
aðalsveitakeppni BH. er staða
efstu sveita eftirfarandi:
stig
1. KristóferMagnússon 74
2. Aðalsteinn Jörgensen 66
3. SigurðurEmilsson 56
4.-5. Ólafur Torfason 54
4.-5. Guðni Þorsteinsson 54
6. SævarMagnússon 49
Næstkomandi mánudag kl.
hálf átta verður keppni svo
framhaldið. Spilað er i Félags-
heimilinu við iþróttahúsið á
Strandgötu.
Reykjanesmót
í tvímenning
Reykjanesmót i tvimenning
verður haldið helgina 30. - 31.
janúar i Þinghól i Kópavogi.
Spilaður verður Barometer með
tölvugefnum spilum.
Skrásetning fer fram hjá fé-
lögunum, en einnig er hægt að
skrá sig i sima 51647 (Stefán).
Keppnisgjaldi er stillt i hóf.
Reykjanesmót i sveitakeppni
verður siðan haldið innan
skamms.
Stjórnin.
Bridgefélag
Reykjavíkur
„Board a match” sveita-
keppni félagsins lauk sl. mið-
vikudagskvöld með sannfærandi
sigri sveitar Sævars Þorbjörns-,
sonar. Með honum i sveitinni
eru Þorlákur Jónsson, Jón Bald-
ursson og Valur Sigurðsson.
Þeir félagar hafa sannarlega
haldið vel á spilunum, það sem
af er þessari bridgevertið, og
verður áreiðanlega spennandi
að fylgjast meðsveitinni i kom-
andi Reykjavikurmóti og Is-
landsmóti.
Röð efstu sveita varð annars
þessi:
1. Sævar Þorbjörnsson.
2. Samvinnuferðir.
3.-4. Gestur Jónsson.
3.-4. örn Arnþórsson.
Skráning i næstu keppni fé-
lagsins, meistaratvimenning-
inn, stendur nU yfir. Hefst hún
n.k. miðvikudag kl. 19.30, i
Domus Medica, og stendur 5 - 6
kvöld. Kepnnisstjóri verður
Agnar Jörgenson.
Frá
Hjónaklúbbnum
Á siðasta spilakvöldi fyrir jól
lauk hraðsveitakeppninni og
urðu úrslit sem hér segir:
sv. stig
1. DrafnarGuðmundsd. 1922
2. Erlu Sigurjónsd. 1863
3. Dóru Friðleifsd. 1843
4. HulduHjálmarsd. 1822
5. Svövu Ásgeirsd. 1815
6. GróuEiðsd. 1773
7. Guðriðar Guðmundsd. 1768
8. ErluEyjólfsd. 1756
Meðalskor: 1728
„Barometer” keppni hófst
þann 12/1 með þátttöku 30 para
og er keppnisstjórn i höndum
Sigurjóns Tryggvasonar. Bestu
skor fyrsta kvöldið náðu eftir-
talin pör:
1. Ásta Sigurðardóttir —
ÖmarJónsson 110 stig
2. Dúa ólafsdóttir —
Jón Lárusson 89 stig
3. Hulda Hjálmarsdóttir —
Þórarinn Andrewsson 87 stig
4.-5. Valgerður Eiriksdóttir —
Bj arni Sveinsson 77 stig
4.-5. Dröfn Guðmundsdóttir —
EinarSigurðsson 77 stig
6. Ólöf Jónsdóttir —
Gisli Hafliðason 70stig
7. Friðgerður Benediktsdóttir
— Jón Isaksson
65 stig
8. Ásta Sigurglsladrtttir —
Lárus Amórsson 51 stig
Meðalskor 0
Frá Bridge-
félagi Breiðholts
Aðalsveitakeppni félagsins
hófst s.l. mánudag með þátttöku
niu sveita. Spilaðir eru 2 16 spila
leikir á kvöldi og stendur keppn-
in þvi 5 kvöld.
Að loknum tveim umferðum
er staðan afar jöfn og óljós, sök-
um yfirsetu, en forystu hafa þá
ótvírætt kornungir spilarar,
skráðir sem „Fjölbraut” (i
Breiðholti).
3. og 4. umferð verða á þriðju-
dagskvöld, ki. 19.30 STUNDVIS-
LEGA, og er spilað i húsi Kjöts
og Fisks, Seljavegi 54.
N.k. helgi er Húsvikinga von,
með 5 - 6 sveitir og hyggja gest-
imir vafalaust á hefndir.
Nánar siðar.
Frá Bridgefélagi
kvenna
Staðan i aðalsveitakeppni
Bridgefélags kvenna eftir fjórar
umferðir:
stig
Gunnþómnn Erlingsdóttir 65
Sigrún Pétursdóttir 65
GuðrUnEinarsdóttir 60
AldisSchram 57
Alda Hansen 52
VigdisGuðjónsdóttir 47
Matvælasýningin
í Bahrain:
íslenskar
vörur
vöktu
mikla
athygli
Fimmtudaginn 14. janúar lauk
matvælasýningu i Bahrain, en
þar á meðal var islenskur sýn-
ingarbás, sem vakti mikla at-
hygli. Telja forsvarsmenn Ót-
flutningsmióstöðvar iðnaðarins,
að athyglisverður markaður sé
fyrir ýmsar islenskar vörur og
þjdnustu i Bahrain og öðrum
arabaiöndum, ef dæma má við-
töikurnar.
Lýsihf. kynnti meðalalýsi aðal-
lega, en einnig fóöurlýsi. Þarna
vom gerðir sölusamningar og
skipaður umboðsmaður. Fyrir-
tækið Sól hf. kynnti ávaxtasafa,
sem hlaut góðar viðtökur, og er
nú verið að reyna að ganga frá
fyrstu sölu á þessari vöru. Sölu-
stofnun iagmetis kynnti niður-
suðu og virtust Arabarnir hafa
áhuga á allri mögulegri niður-
suðuvöru frá Islandi, segir i
fréttatilkynningu Útflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins. Þá kynnti
SIS lambakjötog hraðfrystan fisk
og er gert ráð fyrir að tilrauna-
sending af kjöti fari brátt til
arabalanda. Coldwater Seefood
Corp, tók einnig þátt i sýningunni
og létu fulltrUar þess fyrirtækis
vel af þátttökunni. Ýmis önnur is-
lensk fyrirtæki kynntu vöm og
þjónustu og láta allir vel af sér.
Lífeyrissjóður SÍS:
100% verð-
trygging
Lifeyrisgreiðslur úr Lifeyris-
sjóði SIS eru nú 100% verðtryggð-
ar. Stjórn sjóðsins ákvað, hinn 22.
des., að höfðu samráði við trygg-
ingafræðing, að taka upp fulla
verðtryggingu á öll áunnin lifeyr-
isréttindi samkvæmt reglugerð
sjóðsins, og kom það tii fram-
kvæmda frá og með 1. janúar s'.l.
Lifeyrisupphæðir munu fram-
vegis breytast ársfjórðungslega
og fylgja breytingum á hinum al-
menna launamarkaði. Eins og
kunnugt er hefur verið unnið að
þvi i áföngum undanfarin ár að
koma þessari verðtryggingu á. Á
siðasta ári var verðtryggingin
90%.
Þá hefur stjórn sjóðsins einnig
hækkað ibúðalánin, sem sjóðfé-
lagar eiga kost á. Þannig getur
frumlán til þeirra, sem greitt
hafa i sjóðinn i 5 ár, orðið 150 þús.
kr. en eftir greiðslur i 3 ár eiga
menn rétt á helmingi þeirrar upp-
hæðar, 75 þús. kr. Lánin eru til
allt að 25 ára, með 2% vöxtum og
byggingavisitölu.
Þá hafa endurlán verið hækkuð
i 100 þús. kr. að írádregnum þeim
lánum,sem menn hafa fengið áð-
ur. Endurlán get menn lengið 5
árum eftir að frumlán er tekið.
Eru þau veitt til 20 ára með sömu
kjörum og frumlánin. — mhg
Verðtryggðar
vátryggingar
Frá og með síðustu áramótum
eru tryggingaupphæðir allra
eigna-, slysa- og sjúkratrygginga
hjá Samvinnutryggingum verð-
tryggðar mcð þeim hætti, að þær
hækka i samræmi við hækkun
visitölu á þriggja mánaða fresti.
Hérerum hiðmerkasta nýmæli
aðræða, þvi að með þessu móti er
fólk verndað gegn verðbólgu-
hækkunum á mun öruggari hátt
en áður var. — mhg
Lausn á verðlaunamyndagátu
Geysileg þátttaka varð i verðlaunamyndagátunni, sem birtist i blaðinu á
gamlársdag. Dregið var úr réttum lausnum og hlaut Hlif Einarsdóttir,
Brunná, Akureyri verðlaunin.