Þjóðviljinn - 26.02.1982, Page 1
ÞJOÐVIUINN
Föstudagur 26. febrúar 1982 — 46. tbl. 47. árg.
Skeyti í gær:
jOliíimengun
jí Nauthólsvík
* Mikil oliumengun hefur stór-
I skemmt Nauthólsvikina og heita
I iækinn. Á myndinni sýnir Bergur
' Þór Rögnvaldsson okkur oliuna I
| heita læknum. Hann hafói kafaö
I út með ströndinni og sagði að þar
I væri einnig allt útatað. Ljósm —
| gel -_______________
| Sjó baksiðu.
1
■
I
I
J
Alusuisse mætir ekki!
Ögrandi framkoma við fullvalda þjóð -segir Hjörleifur
— Ég verö aö lýsa undr-
un og vonbrigðum með ein-
hliða ákvörðun af hálfu
Alusuisse að koma ekki til
þess fundar nú í marsbyrj-
un, sem þeir höfðu þó átt
hlut að að ákveða. Það
dylst auðvitað engum að
hér er um ögrandi fram-
komu að ræða af þeirra
hálfu til viðbótar við þá
mörgu fresti og tafir sem
þeir hafa staðið fyrir
gagnvart íslenskum
stjórnvöldum.
Þetta sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson, iðnaðarráðherra, þegar
viðræddum viöhann þá ákvörðun
Alusuisse að mæta ekki til fundar,
sem ákveðinn var i byrjun mars,
en skeyti þess efnis barst I gær til
formanns islensku álviöræðu-
nefndarinnar.
Iðnaðarráðherra sagði enn-
fremur:
— Þessi siðustu boð frá Alu-
suisse hljóta að þjappa mönnum
saman á bak við sanngirniskröfur
okkar um hækkun raforkuverös
og löngu timabærar lagfæringar á
álsamningunum. Rikisstjórnin
hefur margitrekað óskir sinar þar
að lútandi, og það er mikið
alvörumál með hverjum hætti
fyrirtækið bregst við i þessu máli
og leyfir sér að koma fram við
okkur sem fullvalda þjóð.
Þrír ráðherrar
með fullt umboð
1 fréttatilkynningu frá iðnaðar-
ráðuneytinu segir:
,,í framhaldi af bréfi Alusuisse
til rikisstjórnarinnar 1. febrúar
sl. fóru fram viðræður til að leita
frekari skýringa á svörum Alu-
suisse. Varð I framhaldi af þvi að
ráði milli aðila að halda fund i
fyrstu viku marsmánaðar, nánar
tiltekið 3. mars n.k. I Kaup-
mannahöfn.
Slðan hefur verið unniö að
undirbúningi fyrir þann fund af
íslands hálfu á vegum iðnaðar-
ráðuneytisins, m.a. I
álviðræöunefnd, svo og af hálfu
rikisstjórnar. Asamt iðnaðar-
ráðherra hafa forsætisráðherra
og sjávarútvegsráðherra fjallað
um máliö milli funda.
A rlkisstjórnarfundi sl. þriöju-
dag lagði iðnaðarráðherra fram
hugmyndir um málsmeðferð.
Voru þær ræddar I ráðherra-
nefnd, og á rikisstjórnarfundi i
morgun var iðnaðarráöherra,
sjávarútvegsráðherra og dóms-
málaráðherra veitt fullt umboö til
að ganga endanlega frá afstöðu
rikisstjórnarinnar á grundvelli
framkominna hugmynda og um-
ræðna.
Slödegis I dag barst hins vegar
ráðuneytinu skeyti, dagsett i gær
24. febrúar, frá Alusuisse til
formanns álviðræðunefndar, þar
sem fyrirtækið tilkynnir að það
geti ekki sent fulltrúa til umrædds
fundar af óviðráðanlegum
ástæðum og hr. Weibel geti ekki
komið til funda á næstu vikum.
Staða málsins veröur metin af
hálfu ráðuneytisins með tilliti til
margendurtekinna frestana á
viöræðum af hálfu Alusuisse.”
Nató-aðild
Spánar
samþykkt
28 þingmenn samþykktu á al-
þingi I gær ' aöildarbeiðni Spán-
ar að Nató. Við atkvæðagreiöslu
sat þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins hjá ásamt Guðmundi
Bjarnasyni og Páli Péturssyni úr
Framsóknarflokki. Sérstaka at-
hygii vakti að þingflokkur Al-
þýðuflokksins greiddi atkvæði
með Nató-aðild Spánar, en syst-
urflokkur Alþýðuflokksins, Só-
sialistaflokkur Spánar I alþjóða-
sambandi jafnaðarmanna barðist
ötullega gegn Natóaðild og fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu um máliö.
piHiHiiaiiaaiHiHiHiiaiiBiiHiMiaiiaiiaiiaiiMiMiaiiMiaiiMiBii ■■■ a *■■■■■■■■■ a^j|
i Þreföldun orkuverðs þýðir 160 miljónir króna á ári j
Biðlund er á þrotum
jeftir 14 mánaða þóf
júrslit verður að knýja fram með eða án samninga
i
Væri raforkuverðið til
álversins i Straumsvik
tvöfaldað úr um það bil 7
aurum í svo sem 14 aura
fyrir hverja kílówatt-
stund, þá þýðir það um 7
miljónir króna á mánuði
eða rösklega 80 miljónir
króna á ári i ný útgjöld
fyrir dótturfyrirtæki Alu-
suisse hér.
raforkuverð til
= Væri
verksmiðjunnar í
Straumsvík þrefaldað
yrði það um 20 aurar á
kilówattstund, en það
þýddi 14 miljónir króna í
aukin útgjöld hjá dóttur-
fyrirtæki Alusuisse á
hverjum mánuði eða um
160 miljónir á ári.
Ein höfuðkrafa islensku rlkis-
stjórnarinnar á hendur Alusu-
isse er að raforkuverðiö veröi
stórhækkað, en það er nú eitt-
■M ■■■■■■ ■■■■■■■■■■ Wl
hvert hið lægsta sem þekkist i
öllum heiminum og aðeins rösk-
ur þriðjungur af framleiöslu-
kostnaðarverði hjá nýjum
virkjunum hér.
Alusuisse hefur I 14 mánuði
neitað að gangatil alvarlegra
viöræðna um þessi mál og biður
um frest á frest ofan, nú siðast I
gær.
Þessar endurteknu frestunar-
beiðnir Alusuisse-manna ber
m.a. að skoða i ljósi þess hagn-
aöar, sem þeir uppskera dag
hvern út á hið smánarlega lága
I
m
I
■
I
m
I
■
I
orkuverö, svo sem tölurnar hér (
aö framan sýna. ■
En þeir háu herrar hjá Alusu- JJ
isse ættu strax I dag að gera sér ■
ljóst, að langlundargeði Islend- ■
inga eru takmörk sett. Sé vilji til Z
samninga ekki fyrir hendi hjá |
forráðamönnum Alusuisse, þá ■
eiga Islensk stjórnvöld þann |
kost einan að sækja okkar rétt ■
eftir öðrum leiðum. I
Timi til umþóttunar er ekki ■
ótakmarkaður-, úrslit þurfa að ■
fást hið allra fyrsta. I
-kj
■ ■■■■■■■■■■■■ «■■■■■ mm
FELAGSLEG UPPBYGGING GEGN IHALDI
G-listmn áveðinn 1 gærkvöldi
Kosningarnar í vor eru barátta á milli Alþýðubandalagsins og Sjálfstæðisflokksins
Framboðslisti Alþýöubanda-
lagsins I Reykjavik vegna
borgarstjórnarkosninganna I vor,
var samþykktur á félagsfundi á
Hótel Esju i gær með lófataki —
gegn einu mótatkvæði. Sigurjón
Pétursson efsti maður G-Iistans
sagði I ræðu að i kosningunum i
vorréðist hvort haldið yrðiáfram
að byggja upp félagslega þjón-
ustu I borginni cða hvort cinræði
ihaldsins yrði aftur komið á.
Kosningarnar yrðu barátta á
milli Alþýðubandalagsins og
Sjálfstæðisflokksins, þvl reynslan
sýndi að útkoma Alþýðubanda-
lagsins réöi mestu um hvort
myndaöur verði vinstri meirihluti
I borginni eða ekki.
Listinn sem samþykktur var I
gærkvöldi er þannig skipaður:
1. Sigurjón Pétursson, forseti
borgarstjórnar. 2. Adda Bára Sig-
fúsdóttir veðurfræðingur og borg-
arfulltrúi. 3. Guðrún Agústsdóttir
ritari. 4. Guömundur Þ. Jónsson,
formaður Landssambands iðn-
verkafólks og borgarfulltrúi. 5.
Alfheiður Ingadóttir,
blaðamaöur. 6. Sigurður G.
Tómasson, borgarfulltrúi. 7. Þor-
björn Broddason, dósent. 8.
Guðrún Helgadóttir, alþingis-
maöur og borgarfulltrúi. 9. ölöf
Rikharðsdóttir, fulltrúi. 10.
Tryggvi Þór Aöalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Menningar- og
fræðslusambands alþýðu. 11.
Kristvin Kristinsson, verka-
maður. 12. Sigurður Harðarson,
arkitekt. 13. Lena M. Rist,
kennari. 14. Arthur Morthens,
kennari. 15. Gunnar H. Gunnars-
son, byggingaverkfræðingur. 16.
Margrét S. Björnsdóttir, félags-
fræðingur. 17. Guðný Bjarnadótt-
ir, læknir. 18. Esther Jónsdóttir,
varaformaður og starfsmaður
Sóknar. 19. Ólafur Jóhannesson,
varaformaður Stárfsmanna-
félags rlkisstofnana. 20. Kristln
Jónsdóttir, bankastarfsmaður.
21. Guðjón Jónsson, formaður
Málm- og skipasmiðasambands
íslands, 22. Arna Jónsdóttir,
fóstra. 23. Arnór Pétursson, skrif-
stofumaður, formaöur íþrótta-
félags fatlaðra. 24. Hulda S.
ólafsdóttir, sjúkraliði. 25. Stefán
Thors arkitekt. 26. Steinunn Jó-
hannesdóttir, leikari. 27. Karl
Guðmundsson, stýrimaður. 28.
Bjargey Ellasdóttir, fóstra. 29.
Jóhanna G e i r h a rð ss o n ,
verkamaður. 30. Ragna
ólafsdóttir, formaöur Kennara-
félags Reykjavlkur. 31. Rúnar
Geir Sigurðsson, læknanemi. 32.
Hallgrimur Guðmundsson,
stjórnmálafræðingur. 33. Ellsa-
bet Þorgeirsdóttir, blaðamaður,
34. Sigurður Rúnar Jónsson
hljómlistarmaður. 35. Silja Aðal-
steinsdóttir, bókmenntafræðing-
ur. 36. Kristján Guðbjartsson,
varaformaöur Málarafélags
Reykjavikur. 37. Bergþóra Glsla-
dóttir, sérkennslufulltrúi. 38.
Grétar Þorsteinsson, formaöur
Trésmiðafélags Reykjavlkur. 39.
Þórunn Klemensdóttir, hag-
fræðingur. 40. Alfreð Glslason,
læknir. 41. Tryggvi Emilsson, rit-
höfundur. 42. Guðmundur Vigfús-
son, fyrrverandi borgarráðsfull-
trúi.
— ekh.
Viðtal
við Guðrúnu
Helgadóttur.
Sjá baksiðu.