Þjóðviljinn - 11.03.1982, Qupperneq 3
Fimmtudagur lt. mars 1982 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 3
Sinfóníu-
tónleikar
í kvöld
Verk Tschaikovskí
og Rachmaninoffs
skipa öndvegi
Sinfóniuhljómsveit islands
heldur si'na fjórtándu áskriftar-
tónleika i Háskólabió i kvöld og
hofjast þeir kl. 20.30. Á efnis-
skránni verður sinfónia nr. 4
eftir Tschakovski og pianókon-
sert nr. 2 eftir Rachmaninof.
Hljómsveitarstjóri á tónleik-
unum i kvöld er Vladimir Fedo-
seyev frá Leningrad i Sovétrikj-
unum, einn af þekktustu hljóm-
sveitarstjórum þar i' landi, hef-
ur stjórnað flestum stærstu
hljómsveitum Sovétrikjanna
auk unnið við óperu og ballett-
sýningar m.a. við Bolshoi og
Kirov leikhúsin.
Landi hans Rudolf Kerer
verður einleikari á tónleikunum
i kvöld. Hann er talinn einn af
stórpianóistum heims i dag
þrátt fyrir að hafa farið fremur
seint inn á braut einleikarans.
Hann var kominn yfir þritugt
þegar hann fór að koma reglu-
lega fram á tónleikum, óvenju-
legt en þó ekki einsdæmi.
t Sovétrikjunum hafa gagn-
rýnendur likt honum við stór-
meistara tónlistarinnar s.s.
Richter og Gilels.
Byggja hús á
brunalóðinni
Bandalag starfsmanna rikis og
hæja hcfur fest kaup á hiuta af ióð
Egils Vilhjálmssonar h/f Lauga-
vegi llfi-18. Lóð þessi liggur að
húsi BSRB við Grettisgötu 89 og
er þar um að ræða 1538 fermetra
eignarlóð og að auki 5353 fer-
metra tilleigu. Hefur sambandið
greitt lóðarverðið að fullu og
fengu eigendur afsal i hcndur 10.
febrúar s.l.
Með i þessum kaupum fylgir
teikningað húsi sem risa á frá nú-
verandihúsi BSRB og að húseign
rikisins.sem RARIK hefur skrif-
stofur. Er talið að neðsta hæð
þessa nýja stórhýsis verði seld
einhverjum, sem áhuga hefur
fyrir verslunarrekstri og einnig
er vitað að fleiri aðilum innan
BSRB verður gefinn kostur á að
vera með i' byggingaframkvæmd-
um þegar þar að kemur. Auk
BSRB eru 3 stærstu aðildarfélög-
in eigendur lóðarinnar.
Byggingaframkvæmdir við
þetta nýja hUs BSRB hefjast áður
en langt um liður.
AB ísafirði:
Opnar
kosninga-
skrifstoiu
Alþýðubandalagið á tsafirði
hefur opnað kosningaskrif-
stofu i Hæstakaupstaðarhúsinu
Aðalstræti 42. Verður skrif-
stofan opin þrjá daga i viku,
sunnudaga milli kl. 16og 19 og
þriðjudaga og fimmtudaga
milli kl. 20 og 22.
Fundir um bæjarmdlefni
verða haldnir vikulega á
þj-iðjudögum og hefjast þeir
kl. 20.30, Akveðnir frummæl-
endur verða á hverjum fundi.
Ætlunin er að á þessum fund-
um fari fram stefnumðtun fyr-
ir sveitarstjórnarkosningarn-
ar i' vor. Eru allir stuðnings-
menn Alþýðubandalagsins og
þeir sem áhrif vilja hafa á
stefnumótunina sérstaklega
hvattir til að mæta og láta álit
sitt i ljós.
ÍKosið í Háskólanum
Tekist á um námslánafrumvarpið
Stúdentar við Há-
skóla íslands kjósa i
dag 1.3 fulltnia til Stúd-
entaráðs og 2 fulltrúa
til Háskólaráðs. Kosn-
ingin er leynileg og fer
fram inilli klukkan níu
ogsex.
Nú eru i framboði þrir listar,
listi Félags vinstri manna — B-
listinn — listi Vöku og listi Fé-
lags umbótasinna. Hinir tveir
siðasttöldu hafa myndað meiri-
hluta i Stúdentaráði siðastliðið
ár.
t þessari kosningabaráttu er
einkum tekist á um frumvarp
um námslán og námsstyrki.
Vinstri menn gagnrýna hertar
endurgreiðslureglur, sem eink-
um munu bitna á tekjulágu
fólki. Ritstjórn Stúdentablaðs-
inshefur einnig verið gagnrýnd,
bæði af vinstri mönnum og um-
bótasinnum. Við birtum hér
lista vinstri manna. Fyrst 13
frambjóðendur til Stúdentaráðs
þá tvo tíl Háskólaráðs.
Munið að kjósa í dag — opið
milli niu og sex. —ast
1. Halldór Birgisson, lögfr.
2. Birna Baldursdóttir, liffr.
3. G. Pétur Matthiasson, alm.
bókm.
4. Margrci Guðmundsdóttir,
sagnfr.
5. Kristján Ari Arason, sálfr. fi. Björn Guðbr. Jónsson, liffr. 7. Þórður Ingólfsson, læknisfr.
8. Olina Horvarðardóttir, tsl.
9. Einar Guðjónsson, félfr.
10. Ilaukur Oddsson, verkfr.
Sigriður Magnúsdóttir,
hjúkrfr.
12. Jóna llálfdánardóttir, sálfr.
I. Guðvarður Már Gunnlaugsson
fsl.
2. Halldóra
guðf r.
Þorva rða rdóttir,
-J
13. Kristin Jónasdóttir, félfr.
Fræðslunefnd BSRB
Leshringastarf að hefjast
Út et* komin á vegum
B.S.R.B. fyrsta bókin i
leshringaefni fræðslu-
nefndar bandalagsins.
Heitir ritið: Vinnu-
staðurinn i brennidepli,
og er þar gerð tilraun til
að gefa starfsfólki stofn-
ana tækifæri til að ræða
um vinnustaðinn frá
ýmsum sjónarhornum.
Tilgangurinn er að örva
hóna á vinnustöðum til
að hugsa sin mál, taka
ákvarðanir og koma
með ábendingar.
Formaður fræðslunefndar
BSRB, Haraldur Steinþórsson,
sagði í gær á fundi með blaða-
mönnum að leshringastarf væri
þekkt á meðal grannþjóða okkar
enhér væri verið aðfeta nýja slóð
i fræðslustarfinu. Það eru liðin
rúm 2 ár siðan fræðslunefndin fór
að þreifa fyrir sér um heppilegt
efni til kynningar i leshringum og
iþeim tilgangi var m.a. leitað eft-
ir sliku efni á bókasöfnum, en það
reyndist ekki vera til i aðgengi-
legu formi. Þvf ákvað fræðslu-
nefndin að beita sér fyrir gerð
bæklings er nota mætti i fræðslu-
starfinu. Var hafinn undirbúning-
ur að gerð bóka um vinnustaðinn,
efnahagsmál og málefni
aldraðra. Fyrsta bókin hefur nú
litið dagsins ljós og kváðust
forráðamenn fræðslunefndar
BSRB vera ánægðir með árang-
urinn. t bókinni eru settar fram
hugmyndir um og spumingar til
að ræða og leita svara við.
Fræðslunefndin fékk aukið fjár-
magn frá rikinu til þessarar
starfsemi og hefur það haft veru-
leg áhrif.
Framhald á slikri útgáfustarf-
semi fræðslunefndar hefur verið
rætt og vonandi verður úr fram-
kvæmdum sem fyrst, sögðu
nefndarmenn á fundi með
blaðamönnum.
Skilyrði til þess að hægt sé að
stofna leshring og fá sent náms-
efni eru einkum þessi:
— Þátttakendur séu að
minnsta kosti 5, yfir 16 ára aldri.
— Timar séu alls 21—24.
— Timum sé dreift þannig að
þeir séu annað hvort tveir eða
þri'r isenn og ekkioftar en tvisvar
i viku.
— Skýrslu sé skilað i' lokin með
nöfnum og mætingum þátt-
takenda og helstu niðurstöðum
leshringsins.
Allar nánari upplýsingar um
leshringi BSRB veitir fræðslufull-
trúi bandalagsins, Kristín H.
Tryggvadóttir.
— v.