Þjóðviljinn - 11.03.1982, Síða 8

Þjóðviljinn - 11.03.1982, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur IX. mars 1982 Viðtöl við fulltrúa á sveitarstjórnarráðstefnu AB „Svona ráðstefnur eru mjög nytsamlegar” — Þaövoru þrlr framboöslistar hjá okkur i kjöri viö siöustu sveitarstjórnarkosningar sagöi Örn Ingólfsson trésmiöur á Breiö- dalsvik. — Atvikaðist það þannig að sú hreppsnefnd, sem áður hafði setið við stýri klofnaði og kom fram með tvo lista. Við Al- þýðubandalagsmenn bættum svo þeim þriðja við, fengum einn mann kosinn og kom i minn hlut að gcgna „embættinu”, hélt Örn áfram máli sinu. — Eruð þið með sérstakt Al- þýðubandalagslélag á tíreiðdals- vik? — Já, við neínum það nú raunar Alþýðubandalagslélag tíreiödals- vikur og nágrennis en megin kjarni þess má segja að sé hér i þorpinu. Ég skal ekki segja hvernig framboðsmálunum hjá okkur veröur háttað núna en þaö mun skýrast á næstunni. — Er atvinna næg hjá ykkur á Breiðdalsvik? — Nei, hún er þaö nú engan veginn. En við teljum okkur hafa ástæðu til að vona að úr þvi rætist áður en langt um liöur þvi aö á Akureyri er verið aö smiða litið togskip fyrir frystihúsið hérna. Við bindum miklar vonir viö að það verði til þess að bæta at- vinnuástandið. Nú, um lramkvæmdir á vegum sveitarlélagsins er ekki ástæða til að hafa mörg orö. Til stendur þó að ný skólabygging veröi steypt upp i vor. Gamla skólahúsið hér er um 7 km. l'rá þorpinu og þaö er engan veginn nógu hagstætt. Þá er og á áætlun að koma upp verkamannabústöðum. — Hvað eru margir ibúar á Breiðdalsvik? — Þeir eru tæplega 400 og hefur heldur farið fækkandi upp á siðkastið. Veldur þar mestu um það öryggisleysi sem hér hefur rikt um afkbmu fólks, en eins og ég sagði væntum við þess að úr þvi rætist með tilkomu togskips- ins. — Helur þú setið svona ráðstefnu áður? — Nei, ekki landsráðstefnu en hins vegar hef ég mætt á ráð- stefnur um sveitarstjórnarmál, sem haldnar hafa verið innan kjördæmisins. En svona ráðstefn- ur eru áreiöanlega mjög nytsam- legar. Hér hittast menn sem eru Örn Ingólfsson: „Verið er að smiða litið togskip fyrir frysti- húsið hérna”. — Mynd: eik. að fást við sveitarstjórnarmál hér og þar um landið,meðþeim takast kynni og þeir lá innsýn i vanda- mál og viðfangsefni annarra sveitarfélaga. —mhg „Hvergi má slaka á um félagslegar framkvæmdir” — Við erum auðvitað komin á kaf i kosningaundirbúninginn, eins og vera ber. Bæjarstjórnin á Selfossi er skipuð niu mönnum og al' þeim er einn fulltrúi frá AI- þýðubandalaginu. Við seinustu bæjarstjórnarkosningar vantaði okkur aðeins örfá atkvæði til þess að fá tvo menn kjörna og við höf- um fullan hug á að láta það takast nú. Forval á frambjóðcndum hefur þegar farið fram hjá okkur og við það komu út scx nöfn. Að viku liðinni er hugmyndin að ganga endanlega frá framboðs- listanum. Þannig fórusl Kolbrúnu Guðna- dóttur, kennara á Sellossi orö er Þjóðviljinn hitti hana sem snöggvast aö máli á nýafstaðinni sveitarstjórnarráðstefnu Alþýöu- bandalagsins. — Öflugt félagsstarf hjá ykkur? — Félagsstarf er náttúrlega aldrei og hvergi nógu öflugt en við höfum hér baráttuglatt og bjart- sýnt liö. Félagiö okkar telur rúm- lega 50 manns og mér linnst þaö bara býsna starlsamt. Viö hölum töluvert að þvi gertað halda fundi Kolbrún Guðnadóttir: „Félags- legar aðgerðir og hvers konar samhjálp cr forsenda þess að hér gcti blómgast gott bæjarfélag.” — Mynd: -eik. bæði félagsfundi og almenna fundi og starl'andi er hjá okkur bæjarmálaráö sem ljallar sér- staklega um þau mál, sem á góma ber i bæjarfélaginu. — Ef við vikjum aðeins að þeim verkefnum, sem hæst hafa borið hjá bæjarfélaginu á siðasta kjör- timabili? — Jú, þar er nú sem betur fer af ýmsu að taka. Viö höfum t.d. komið á fót nýjum leikskóla en annar var fyrir. Byggðar hafa verið ibúðir fyrir aldraða, eins og fram hefur komiö i viðtali Þjóð- viljans við Sigurjón Erlingsson bæjarfulltrúa einmitt um þessa framkvæmd. Byrjað er nú á öðrum áfanga þeirrahúsa. Komiö hefur verið á heimilishjálp fyrir öryrkja og aldraða. tíyggt hefur verið við barnaskólahúsið, unnið að þvi að koma upp verkamanna- bústöðum, flutt hefur verið i nýja sjúkrahúsið en bærinn á að sjálf- sögðu hlut að þeirri byggingu og fleira mætti nefna. — Næsta kjörtimabil. Hvað heldurðu að komi til með að ein- kenna það að þessu leyti? — Það verður nú timinn náttúr- lega að leiða i ljós en mér sýnist brýn þörf á þvi að slaka hvergi á um hinar félagslegu fram- kvæmdir. Selfoss er vaxandi bær og þvi mikið að vinna á mörgum sviðum en félagslegar aðgerðir og hverskonar samhjálp er for- senda þess, að hér geti blómgast gott bæjarfélag. —-Eru atvinnumálin i góöu lagi hjá ykkur? — Nei, það finnst mér nú ekki vera, ekki nægilega góðu. Það vantar t.d. mjög vinnu fyrir kon- ur og margir Selfyssingar sækja sér vinnu til annarra staöa. Það örlar hér á atvinnuleysi siöan draga tók úr virkjunarfram- kvæmdum. — Hvað finnst þér svo um þessa ráðstefnu? — Það er auðvitað ákaflega ánægjulegt að sjá hvað hún er vel sótt og það er ekkert eíamál að svona ráðstefnur þar sem fólk hittist hvaðanæva af landinu, eru mjög gagniegar. Og mér iist al- veg sérstaklega vel á þá hug- mynd sem hér hefur komið fram aðgefin verði út sérstök handbók fyrir sveitastjórnarmenn. —mhg Ekki setið auðum hönd- um á kjörtímabilinu — Mér sýnist að kosningaað- staða okkar Alþýðubandalags- manna i Vestmannaeyjum ætti að vera góð ef tekið er tillit til þeirr- ar athafnascmisem rikthcfur hjá bæjarfélaginu á yfirstandandi kjörtim abili, sagði Kagnar Óskarsson, kennari i Vestmanna- eyjum. Af 9bæjarfulltrúum eigum við 2 og við ættum a.m.k. aö halda þeim. Meirihlutasamstarf hefur verið i bæjarstjórninni meðmkk- ur, Alþýðuflokks- og Fram- sóknarmönnum og hefur það gengið veli öllum megin atriðum. Forseti bæjarstjórnarinnar, Sveinn Tómasson, er okkar maður en Páll Zóphóniasson er bæjarstjóri, prýðilegur maður. — Mér skildist á oröum þinum áðan að þið hafið ekki aldeilis set- ið auðum höndum á kjörtimabil- inu. — Nei, það finnst mér nú ekki. Mesta átakiö hefur náttúrlega verið hraunhitaveitan sem nú er að komast um allan bæinn. Verið er að byggja skipalyftu, þar sem fram munu t'ara viögeröir og ný- smiði srnærri skipa. Er það mikið hagsmunamál i'yrir skipaílotann að fá slika starfsemi heim i bæjarfélagið auk þess sem skipa- lyftan kemur til með aö tryggja atvinnuíyrir iðnaðarmenn. Kom- iö hefur verið upp ibúðum iyrir aldraða og þær teknar i notkun. 1 þessum fyrsta áfanga eru 6 ibúðir og að sjálfsögðu verður haldið áfram með þær byggingar. Verið er að koma upp nýju húsi fyrir grunnskólann. Ersú bygging, enn sem komið er, að miklum hluta kostuð af bæjarsjóði þvi staðiö hefur á framlögum frá rikinu. Með það erum við að sjálfsögðu mjög óhressir þvi afleiðingin hef- ur orðið sú að við höfum hlotiö að halda að okkur höndum með aðr- ar brýnar framkvæmdir. Þá er i byrjun endurnýjun á gatnakerf- inu, gangstéttum og svo er ýmiss konar snyrting á umhverfinu. Við höfum hér grunnskóla með fjöl- brautasniði en vegna húsnæðis- skorts höfum við orðið að reka hann á tveimur stöðum i bænum. Úr þeim vandkvæðum bætist þeg- ar nýja skólahúsið verður tekið i notkun. Það er okkur bæði mikið áhuga- og hagsmunamál að geta veitt unglingunum sem mesta menntun heima fyrir. — Hvað er svo framundan, já. Við höldum auðvitað áfram með þær framkvæmdir, sem hafnar eru, eins og snyrtinguna. Þar er mikið verk að vinna i nýja vestur- bænum. i þeim bæjarhluta er einnig hugmyndin að koma upp skóladagheimili eða leikskóla. Þó að atvinnustarfsemi sé hér oft mikil þá er hún ekki nógu fjöl- breytt. Undir hana er þvi nauðsynlegt að renna fleiri stoðum. Þessvegna höfum við nú i undirbúningi byggingu svo- nefndra iðngarða. Og auðvitað verður haldið áfram með skóla- bygginguna. Nei, það verður vist enginn verkefnaskortur. Fremur er hætta á hinu, að ekki verði unnt að v inna að öllu þvi sem þörf er á Kagnar Óskarsson: „Nei, þaft verftur vist enginn verkefnaskort- ur. Fremur er hætta á hinu, aö ckki verfti unnt aft vinna aft öllu þvi, sem þörf cr á aft gera”. Mynd: -eik. að gera. Fjárhagsástæður sniða stakkinn á hverjum tima. En ég hygg að ekki verði með sanni sagt að bæjarstjórnarmeirihlutinn hafi haldið að sér höndum á kjör- timabilinu. Ég vil svo bara enda þetta með þvi, aö lýsa ánægju minni með þessa ágætu ráðstefnu. —mhg Trompetleikarinn Joe Newman. Djass í Djúpinu Bandariski trompetleikarinn Joe Newman hefur nú dvalið hér i nokkra daga og verið við kennslu i tónlistarskóla F.I.H. Tónleikar voru með Joe Newman i' Broad- way siðastliðinn mánudag, þar sem fór ekki framhjá néinum að hérer á ferðinni toppsvingleikari, eins ogmarka mátti á þeim áhrif- um, sem hann hafði á meðleikara sina. Heimsókn Joes Newman mun ljúka með tvennum tónleikum i Djúpinu v/Hafnarstræti i kvöld og annað kvöld. Þar kemur hann fram með triói Kristjáns Magnússonar. Einnig mun bandariski gitarleikarinn Paul Weeden koma fram þessi kvöld ásamt triói. Fyrirhugað er að þessum tónleikum ljúki svo með „djamsessjón”. Hliómfögur hvfld í hádeginu 13. Háskólatónleikar vetrarins verða haldnir föstudaginn 12. mars (á morgun) i Norræna hús- inu og í hádeginu eins og venja er orðin. Þá verður leikin Fantasie Con- certanteeftir brasiliska tónskáld- ið Hector Villa-Lobos og Trfö i B- dúr, op. 11 eftir Lúftvik van Beet- hoven. en eins og verknUmerið bendir til er þetta með fyrri verk- um meistarans, meðan hann er enn i æskumótun. Flytjendur eru Einar Jó- hannessonáklarinettu, Hafsteinn Guftmundsson á fagott og Svein- björg Vilhjálmsdóttir á pianó. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og standa i um það bil hálfa klukku- stund. öllum er heimill aðgangur fyrir vægt verð, 20-30 kr. j Leiðrétting I Missagt er þaft hjá blafta- * manni i vifttali vift Margréti IFrimannsdóttur á Stokks- eyri. sem birtisthér i blaftinu s.l. þiðjudag, aft Alþýftu- 1 bandalagift hafi ekki boftift Ifram vift sveitarstjórnar- kosningar á Stokkseyri fyrr en nú. Svo hefur verift ncma 1 1978. ISkakkt er þaft og, að búið I liafi veriftaft ganga frá fram- | boðslistanum. ■ ' Ogekki á Ur að aka. 1 blað- | Iinu i gær, miðvikudag, birtist I i lesendadálki „Athuga- | semd” frá Margréti, vegna , • skrifaSigurðarSveinssonar i | IÞjóðviljanum 5. mars s.l. I Þar er Margrét sögð for- | maður uppstillingarnefndar . * Alþýðubandalagsins á ■ ISuðurlandi. Það er rangt. I Hins vegar er Margrét for- | maður Kjördæmisráðs Al- ■ J þýðubandalagsins á Suður- I I landi, eins og raunar einnig I I kemur þarna fram. * Beðist er velvirðingar á ■ J þessum missögnum. J

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.