Þjóðviljinn - 13.03.1982, Qupperneq 19
... r < í' í'tr > t t«. .
Helgin 13.—14. mars 1982 ÞJÓDVILJINN — StÐA 19
Minning
UTBOÐ
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar
óskar eftir tilboðum i einangrun og klæðn-
ingu stálgeyma við Stórakropp, Seleyri og
Akranes.
Heimilt er að bjóða i vinnu við hvern
geymi fyrir sig sérstaklega.
Útboðsgögn verða afhent gegn 1000 kr.
skilatryggingu á eftirtöldum stöðum:
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf.,
Ármúla 4, Reykjavik og
Berugötu 12, Borgarnesi.
Verkfræðistofan Fjarhitun hf.,
Borgartúni 17, Reykjavik.
Verkfræði og teiknistofan sf.,
Kirkjubraut 40, Akranesi.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu hitaveit-
unnar Kirkjubraut 40, Akranesi, föstudag-
inn 28. mars kl. 11:30.
ÍSSKÁPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
i frystiskápa.
Góð þjónusta.
REYKJAVÍKURVEGI 25 Hafnarfirði simi 50473
Úlfhildur Hannesdóttir
um fimir fingur, og mikil útsjón-
arsemi.
Úlla var ekki kona sem lét mik-
ið yfir sérné vildi láta mikið á sér
bera. HUn var kona sem hugsaði
fyrst og fremst um heimilið og að
þar væri allt einsog best varð á
kos ið.
Úlla fylgdist vel með öllu sem
var aö gerast, og hún hafði lesið
ótrúlega mikið og hafði ánægju
af bókum, og hún naut þess að
hlusta á Utvarp og fylgjast með
sjónvarpi. HUn kunni vei að velja
og hafna eftir eigin smekk, en
mestan áhuga hafði hún á öllum
gömlum fróðleik, sögum og sögn-
um. Húnhafði gottminni og kunni
vel að segja frá.
Núer hún gengin þá leið á enda
sem liggur fyrir okkur öllum, og
um leið vil ég færa henni innileg-
arkveðjur og þakklæti fyrir allar
þær ánægjuriku og hlýju stundir,
sem min fjölskylda áttum með
henni, og við munum sakna henn-
ar.
,,Þá verða öll orð tilgangslaus
— þá er nóg að anda
og finna til
og undrast.”
(Jóhannes úr Kötlum)
Sigmundur Andrésson
SAMBANDSVERKSMIÐJANNA Á AKCIREYRI
HEFST ÁMÁNCIDAG
í SÝNINGARHÖLUNNIBÍLDSHÖFÐA.
EKKERT KOSTAR AÐ LÍTAINN - OG LÍTTÐ MEIR PÓTT PÚ VERSUR
VBÐ NEFNUM: Gallabuxur, úlpur, peysur, sokka og skó,
bamafatnað allskonar og mokkafatnað
EINNIG: Herraföt og kvenkápur, kjóla, pils og tískuvörur úr ull.
PA:
buxnaefni ogkic
Fædd 3. des. 1898 — dáin 4. mars 1982
Gæði og ljúfmennska, eru þau
orð sem koma fyrst i huga minn
þegar ég minnist stjúpu minnar.
Úlla eins og hún var oftast kölluð,
var fædd á Stokkseyri dóttir hjón-
anna Þorgerðar Diðriksdóttur og
Hannesar Jónssonar formanns i
Roðgúl. HUn missir móður sina
níu ára gömul og flytst þá út á
Eyrarbakka til frændfólks sins,
þeirra Bjama Jónssonar og Guð-
rúnar Sigurðardóttur i Eyfakoti.
Hjá þeim er hún svo þar til hún
er orðin fullveðja stúlka og farin
að vinna allskonar störf bæði til
sjávar og sveita einsog gerðist á
þeim tima.
HUn giftist Haraldi Lifgjarns-
syni frá Rauðamel i Hnappadals-
sýslu. Þau hefja búskap á
Rauðamel og eignast þar 4 börn,
en svo slita þau samvistum. Nú
liggur leið hennar aftur á fornar
slóðirogmeð sérhefurhún aðeins
elsta barnið, Hrafnhildi.
En stuttu eftir að hún er komin
á Eyrarbakka þá verður hún fyrir
þeirri þungu raun ofan á allt ann-
að, hún missir þessa fallegu og
velgerðu stúlku aðeins 14 ára
gamla.
Á þessum árum hafði ég þurft
að dvelja á spitala i þrjú og hálft
ár, og sama árið og ég fer þangað
þá deyr móðir min.
Loks er ég mátti svo halda heim
þá var tilhlökkun min mjög svo
tregablandin, og mér var þungt i
huga. Nú var ókunn kona komin i
heimilið og farin að búa með föð-
ur minum, Andrési Jónssyni i
Smiðshúsum, og þau eignast tvo
drengi saman.
Eg vissi ei gjörla hvernig
bregðast skyldi , við þessum
breyttu högum? En með sinni al-
kunnu hlýju og góðmennsku tókst
henni að bægja á braut þeim kala
og þeirritortryggni sem ég bar til
hennar, bæði áður og eftir að
heim var komið. Og það leið ekki
langurtimiþartilhún hafði unnið
hug minn og kveikt hjá mér þá
væntumþykju og einlæga vináttu
er ég bar til hennar alla tið siðan.
Og eftirað ég fór nú að heiman
og fór sjálfur að búa og eignast
börn þá fundum við öll strax þann
kærleika sem hún bar til okkar,
enda voru börnin alltaf boðin og
velkomin i Smiðshús til dvalar
um lengrieða skemmri tfma þeg-
ar að svo stóð á, og þau fundu
fljótt að þarna áttu þau vissan
griðastað hjá afa og ömmu, og
þau litu alltaf á hana sem sina
einu og réttu ömmu og kölluðu
hana aldrei öðru nafni.
Úlla var sérlega dugleg og
velvirk kona að hvaða verki sem
hún gekk, og öll handavinna lék i
höndum hennar, og þær eru ófáar
flikurnar sem hún prjónaði á
barnabörnin og fleiri, og það er
ómælt það verk sem hún er búin
að skila á sinni löngu starfsævi.
Fyrstu árin sem hún bjó i
Smiðshúsum var ekki alltaf úr
miklu að spila og það kom sér vel
að hún var hög i höndum, og hún
gat gert ýmsa þá hluti úr svo litlu
efni að undrum sætti á stundum.
Og eftir að hún var komin á
dvalarheimili þá prjónaði hún og
heklaði margan dúkinn og jafnvel
heilu teppin, sem hún svo gaf vin-
um og kunningjum, og bera þeir
hlutir þess vitni að þar hafa farið
Aðalfundur
Iðnaðarbanka íslands h.f. árið 1982 verður
haldinn i Súlnasal Hótel Sögu kl. 14:00,
laugardaginn 27. mars, 1982.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðal-
fundarstörf i samræmi við ákvæði 18. gr.
samþykkta bankans.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhent-
ir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra i
afgreiðslu lögfræðideildar bankans dag-
ana 22. mars til 26. mars að báðum dögum
meðtöldum. Reikningar bankans fyrir
árið 1981, ásamt tillögum þeim sem fyrir
fundinum liggja, eru hluthöfum til sýnis á
sama stað.
Reykjavik, 15. febrúar 1982,
Gunnar J. Friðriksson,
form. bankaráðs.
Blikkiðjan
Asgaröi 7/ Garöabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI 53468