Þjóðviljinn - 06.04.1982, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 06.04.1982, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. aprll 1982. viðtalið Gef ekki kost á mér j áfram — segir dr. Ingimai Jónsson, forseti Skáksambands ✓ Islands ,,Ég er búinn að segja stjórn- armönnum i Skáksambandi ts- lands aft ég muni ekki gefa kost á mér áfram sem forseti Skák- sambands tslands. Ég hef verið i stjórn Skáksambandsins i 4 ár og finnst það eiginlega kapp- nógur tími. Auk þess finnst mér ástæða til að gefa nýjum og ferskum mönnum tækifæri. Ný- ir vendir sópa best.” Svo fóiriust dr. Ingimar Jónssyniforseta Skáksambands tslands orð. Aðalfundur Skák- sambandsins verður haldinn 29. mai næstkomandi og þar verður kosið um nýja stjórn sambands- ins. Undanfarin ár hefur hrikt i stoðum skákhreyfingarinnar og kosningar, einkum um forseta sambandsins, hafa verið með hatrammara móti. Þar er skemmst að minnast siðustu kosninga er fylgismenn Einars S. Einarssonar stóðu fyrir um- fangsmikilli smölun sem náði inn fyrir veggi óliklegustu stofn- ana s.s. Heimdallar auk þess sem ýmsir þekktir menn sá- ustá blaði yfir nýja félaga i tafl- félögunum. ,,Ég á ekki von á öðrum eins slag og var f fyrra. öldurnar hefur lægt og á þessu starfsári Skáksambandsins sem er að liða, hefur vinnufriður verið góður og margar nýjungar séð dagsins i ljós í starfsemi Skák- sambandsins,” sagði Ingimar. „Við höfum gerbreytt tilhögun l)r. Ingimar: Séekki eftir þeim tlma sem i þetta hefur farið. alþjóðlega mótsins og fhugum nú hvort ekki megi halda þessi mót ár hvert. Þá tekur tsland i fyrsta sinn þátt i Evrópumeist- aramóti skáksveita. Þjálfari kom hingað til lands i fyrsta sinn og fræðslustarfsemin hef- ur stór aukist. Við sóttum um að halda Olympiumótið fyrir árið 1986 og mér sýnist það mál verði farsællega til lykta leitt. Reynd- ar er möguleiki á þvi að mótið verði haldið hér 1984, þvi aðeins tvær þjóðir eru á undan okkur i röðinni.og alls óvist hvort þess- ar þjóðir geti staðiö undir þessu móti. Þetta eru Libýa og Puerto Rico.” Aðspurður um eftirmann sinn i embætti forseta Skáksam- bandsins sagði Ingimar að allt væri á huldu hver það yrði. Hvort það yrði maður Ur ndver- andi stjórn Skáksambandsins eða ekki, kvaðst Ingimar ekkert geta um sagt. Enn einn heimsmethafinn. Þessi heitir John White og er breskur. Hann hefur slegið fyrri met i þvi að halda á lausum múrsteinum I láréttri stöðu. John White er þarna með tuttugu og einn múrstein og hann biður menn aö trúa þvl að það sé 1 sannleika erfitt að halda þeim svona. nJPfl 8 Ásgeir S. Björnsson IVI 1 Indridi Gislason GERÐA BOKiN Leiðarvisir 1 ritgerðasmíði Iðunn hefur gefið út Ritgerða- bókinaeftir Asgeir S. Björnsson og Indriða Gislason. Þetta er leiðbeiningarrit um samningu og frágang fræðilegra ritgerða og ætlað nemendum á öllum skólastigum. Bókin er af sömu rótum runnin og bæklingurinn Um rannsóknarritgeröir eftir sömu höfunda, en breytingar og viðbætur svo miklar að i raun er um nýja bók að ræða. V axblóm (Howeia) t Vaxblómum eru tvær rætur sem varla er hægt að skilja frá hvor annarri. Þetta eru vaxta- mestu plöntur sem við þekkjum. Þau lifa aðeins i skugga. Vanda þarf vökvunina, farið sparlega með vatnið. Aburöur er borinn á i hverri viku allt sumarið. ífÆr ) - u rVÍöíl, |B Svínharöur smásál /3 ^ Eftir Kjartan Arnórsson h u Hólmganga í biskupsskrifstofu Sumarið 1810 sendu Englend- ingar hingað út einskonar versl- unarræðismann, John Parker, konsúl. Skyldi hann fylgjast hér mcð verslun Englendinga og gæta hagsmuna þeirra. Lét Parker þegar mjög til sln taka en fór fram með þvi offorsi, að islendingar fengu á honum hinn mesta óþokka, enda höfðu Eng- lendingar, svo sem Savignak og fleiri slikir, mikinn yfirgang og ójöfnuö i frammi. Eitthvað lenti þeim saman Savignak og Gisla faktor Sim- onarsyni og skoraði hann Gisla á hólm. Gisli tók áskoruninni og lýsti sig reiðubúinn til hólm- göngunnar hvenær sem vera skyldi. Siðar, sama dag, sá Sav- ignak hvar Gisli fór inn i hús Vidalins biskups i Aðalstræti. Skundaði hann á eftir og kom að þeim Gísla og biskupi þar sem þeir sátu á tali i biskupsskrif- stofunni. Savignak dró þegar upp skammbyssur, fékk Gisla aðra og bjóst nú til að gera bisk- upsskrifstofuna að hólmgöngu- velli. Spenntu þeir „félagar” upp byssurnar en þá gekk bisk- up á milli og fékk komið á sætt- um. Siðan kom i ljós, að byssa Savignaks var hlaöin en Gisla tóm! Bar það vott um talsverða fyrirhyggju hjá þeim enska en kannski eitthvað minna hug- rekki. Um sumarið kom hingað ann- ar Englendingur, George Mac- kenzie barón. Ferðaðist hann um landið i þvi skyni að „kynna sér háttheldni manna úti hér”. Var ölafur nokkur Loftsson fylgdarmaður barónsins á ferð- um hans og „laug mörgu að honum um hagi og háttu landa sinna”, segir Espólin. Þótti bók sú sem Mackenzie skrifaði um þessa för sina, Travels in the Is- land of Iceland, og út kom i Éd- inborg 1812; renna stoðum undir þessi orð Espólins. — mhg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.