Þjóðviljinn - 15.04.1982, Side 3
Fimmtudagur 15. aprll 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Margrét Frimannsdóttir.
Grétar Zóphaniasson.
Eifar Þóröarson.
Framboðslisti
Alþýðubanda-
lagsins i
Stokkseyrar-
hreppi
1. Margrét Frimannsdóttir, hús-
móóir.
2. Grétar Zóphaniasson, vara-
form. verkalýðs og sjómanna-
fél. Bjarma.
3. Elfar Þórðarson, kennari.
4. Þórður Guðmundsson, sjó-
maður.
5. Guðbjörg Birgisdóttir, hús-
móðir.
6. Guðjón M. Jónsson, verka-
maður.
7. Jenný Jónasdóttir, verka-
kona.
8. Guðbrandur S. Ágústsson,
kennari.
9. Sigriður Gisladóttir, verka-
kona.
10. Sigriður Valdórsdóttir, hús-
móðir
11. Katrin Guðmundsdóttir,
verkakona.
12. Þórður Guðnason, verka-
maður.
13. Björgvin Sigurðsson, fyrrv.
form. Bjarma.
14. Hörður Pálsson, sjómaður.
Framboð Alþýðubandalagsins
við fulitrúakjör i sýslunefnd Ar-
nessýslu, sem fram fer 22. mai.
Aðalmaður:
Dagbjört Sigurðardóttir, form.
verkalýðs og sjómannafélagsins
Bjarma.
Varamaður:
Grétar ZÓphaniasson, varaform.
verkalýðs og sjómannafélagsins
Bjarma.
!„Fleksnes” ;
| á íslandi I
• Hver man ekki eftir I
I,,Fleksnes” i norsku sjón- I
varpsþáttunum sem voru á |
dagskrá sjónvarpsins fyrir •
• nokkrum árum? 1 dag I
I verður leikarinn Rolv I
I Wesenlund, sá hinn sami og |
I lék Fleksnes, viðstaddur •
* frumsýningu á sænsku
Imyndinni „Bátarallýið” kl. 5 I
i Regnboganum. Þar verður |
einnig leikstjóri myndar- •
• innar,Hans Iveberg. Myndin I
Ier i Dolby Stereo, en aðrir I
leikarar eru Kim Anderzon *
, og Janne Carlsson.
Félagsfundur ABR að Síðumúla 27
Kosninga-
stefnuskrá
Alþýðubandalagið i Reykjavik boðar til félagsfundar i kosningamið-
stöð félagsins að Siðumúla 27 á morgun, föstudaginn 16. april kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosin kjörnefnd vegna stjórnar ABR
2. Stefnuskrá Alþýðubandalagsins i Reykjavik við borgarstjórnar-
kosningar lögð fram til samþykktar. Framsögu hefur Sigurjón
Pétursson.
3. önnur mál.
Kosningastjórn Alþýðubandalagsins I Reykjavik.
Sigurjón Pétursson.
Þessi mynd er af dönskum rækjutogara, sem var á veiðum fyrir norðan land á sundinu milli lslands og
Grænlands. Hann kom til Reykjavikur vegna bilunar, en haföi þó veriö I slipp hér fyrir einum mánuði. —
Takið eftir hvað brúin er lág. (Ljósm. gel)
Sinfóniuhljónisveitin er
okkar tónlistarháskólí
— segir Guðmundur Emilsson sem verður stjórnandi
á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í kvöld
Sinfóníuhljómsveit ís-
lands heldur sina 17.
áskriftartónleika i kvöld
og hefjast þeir kl. 20.30 i
Háskólabiói. Á efnis-
skránni verða verk eftir
Jean Philippe Rameau,
Magnús Blöndal Jó-
hannsson, Borodin og
Þorkel Sigurbjörnsson.
Verk Þorkels, sem er
sellókonsert er frumflutt
af Sinfóniunni i kvöld.
Einleikari með hljómsveitinni
er Hafliði Hallgrimsson, en
stjórnandi er Guðmundur Emils-
son. Guðmundur stundar nú nám
að doktorsprófi i hljómsveitar-
stjórn við Indiana University i
Bloom'ington. Þar hefur hann
verið undanfarin þrjú ár, en kom
úr Eastman School of Music i
Rochester, New York.
Guðmundur hefur undanfarið
verið önnum kafinn við æfingar
með Sinfóniunni fyrir þessa
tónleika, en gaf sér þó tima til að
spjalla litillega við Þjóðviljann:
„Þetta er ekki i fyrsta sinn sem
ég stjórna Sinfóniuhljómsveit-
inni. Tvivegis i fyrra, i júni og
Guömundur Emilsson.
desember, stjórnaði ég henni
þegar hún lét hljóðrita fyrir út-
varp verk eftir Atla Heimi
Sveinsson, Könnun, og Sinfóniu
nr. 2, eftir Sibelius. Vinnu hljóm-
sveitarinnar er þannig háttað aö
hún leikur annars vegar fyrir
hljómleika og hinsvegar fyrir
hljóðritun.
Þau eru orðin allmörg árin
siðan Sigurður Björnsson bauð
mér að stjórna Sinfóniunni en ég
hef ekki lagt út i það fyrr en nú
alveg nýlega. Það er svo sannar-
lega ekki hlaupið að þvi að standa
fyrir framan hóp atvinnumanna
og stjórna. Til þess þarf reynslu
og hana hef ég öðlast að einhverju
leyti i Indiana University sem er
örugglega einn stærsti tónlistar-
skóli i heimi. Þar eru um 1800
nemendur og 6 sinfóniuhljóm-
sveitirsem leika á hverjum degi.
llljómsveitin: Góð, prýöisgóð.
Hitt er svo annað mál að það þarf
að sinna henni betur og nýju lögin
sem liggja fyrir alþingi verða að
renna i gegn. Sinfóniuhljómsveit-
in er okkar tónlistarháskóli, eins
og Þjóðleikhúsið er háskóli leik-
listarinnar. Annars er ég hæstá-
nægður með að vera kominn
hingað til lands og sérstaklega
þakklátur vini minum og vel-
gjörðarmanni Þorkeli Sigur-
björnssyni fyrir að treysta mér
fyrir verki sinu. Verkefnin eru
mörg svo mikið er vist. T.d. verð
ég með tónleika á Listahátið á-
samt ungum tónlistarmönnum
innlendum. Svo fer ég út, en kem
aftur. Komið hefur til tals að ég
stjórni a.m.k. einum tónleikum
hjá Sinfóniunni næsta vetur.e.t.v.
fleirum,” sagði Guðmundur.
Þess má geta að Guðmundur er
sonur séra Emils Björnssonar.
- hól.
2. rit í ritröð
Öryggismálanefnd-
ar er komið út
Vígbúnaður
og friðarvið-
leitni við
Indlandshaf
Öryggismálanefnd
hefur gefið út rit eftir
Albert Jónsson um
friðlýsingu Indlands-
hafs, og ber það
nafnið Vigbúnaður
og friðunarviðleitní
við Indlandshaf.
Þetta er annað ritið i
ritröð Öryggismála-
nefndar, en mark-
miðið með henni er
að stuðla að aukinni
þekkingu íslendinga
á sviði öryggis- og
alþjóðamála og
skapa umræðum hér
á landi traustari
grundvöll, eins og
segir i frétt frá
Öryggismálanefnd.
Efni ritsins sem nú birtist
er að þvi leyti dálitið óvenju-
legtað fjallaðer um málefni,
sem við fyrstu sýn virðast
hafa litil tengsl við umræðu
um öryggis- og utanrikismál
hér á landi. 1 ákvæðum um
starfssvið öryggismála-
nefndar er henni m.a. falið
að fjalla um hugmyndir að
friðlýsingu og eftirliti i Norð-
ur-Atlanlshal'i. Aðeins á ein-
um stað, við Indlandshaf,
hafa íarið saman l'riðlýsing
og skipuleg starfsemi á al-
þjóðavettvangi i þá átt að
framfylgja henni og gera að
raunveruleika. Það þótti þvi
rétt að láta gera athugun á
friðlýsingu Indlandshafs,
eöli hennar, vandamálum og
annarri þróun mála henni
viðkomandi með það i huga
að draga mætti lærdóm af.
Jafnframt gafst tækifæri til
að fjalla um riki, landsvæði
og atburði sem hafa verið
mikið i sviðsljósinu á al-
þjóðavettvangi á siðustu ár-
um.
1 ritinu er greint frá tiiurð
friðlýsingar Indlandshafs og
þeim leiðum sem farnar hafa
verið til að reyna að fram-
fylgja henni, þannig að
heildarmynd fáist af
friðunarviðleitninni, póli-
tisku og hernaðarlegu um-
hverfi hennar, þeim þáttum
sem ráðið hafa ferðinni hing-
að til og stöðu málsins nú á
timum.
Vigbúnaðurinn og
friðunarviðleitnin við Ind-
landshaf hafa tengst mjög
náið þróun heimsmálanna á
undanförnum árum. Þvi er
fjallaðallitarlega i ritinu um
samskipti austurs og
vesturs, Miðausturlönd, Af-
ghanistan, Indókina og
Afriku, viðbrögð við atburð-
um á þessum svæðum og
áhrif þeirra atburða á al-
þjóðavettvangi.
Loks er greint frá tilraun
risaveldanna til að tak-
marka bæði hefðbundinn
vigbúnað og kjarnorkuvig-
búnað sinn á tilteknu hafs-
svæði, þ.e. Indlandshafs-
svæðinu, og þeim hertækni-
legu og pólitisku vandamál-
um sem fram komu i þeim
viðræðum.
Rit öryggismálanefndar
eru til sölu i Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar,
Bókaverslun Snæbjarnar,
Bókaverslun Máls og menn-
ingar og i Bóksölu stúdenta.
Þaumá einnig fá i póstkröfu
frá öryggismálanefnd,
Laugavegi 170 Reykjavik.