Þjóðviljinn - 29.04.1982, Síða 11
Fimmtudagur 29. april 1982 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 11
Mikael Appelgren frá Svíþjóð varð Evrópumeistari i borðtennis um siðustu helgi er hann sigraði ianda
íþróttir[/j iþróttirgj iþrottir
Frægur
júdó-
þjálfari
kemur í
sumar
Einn færasti júdóþjálfari
heims, Þjóöverjinn Wolf-
gang Hoffmann, er væntan-
legur hingað til lands i
sumar og ráðgert er að starf-
ræktarveröi æfingabúðir þar
sem hann leiðbeinir júdó-
fólki. Reiknað er með að öll-
um veröi heimil þátttaka og
fer námskeiðið liklega fram i
iþróttahúsi Kennaraháskól-
ans. —V S
ísland
S
i
á NM
blakí
í haust
fslenska karlalandsliðið f
blaki tekur þátt i Norður-
landamóti sem fram fer i
Sviþjóð 17.-19. september.
Landsliðshópurinn veröur
valinn innan skamms, og
kemur hann til með að æfa
vel f sumar.
Samningar viö Færeyinga
um áframhaldandi sam-
skipti um blaklandsleiki eru
i undirbúningi, og veröur
væntanlega samiö um tima-
biliö 1983-87. Þar er um að
ræöa landslið karla, kvenna
og pilta en áætlað er að
unglingalandslið stúlkna •
komiinn imyndina árið 1984.
•
Norrænt
námskeið
Dagana 16.-23. júlf n.k.
verður efnt til norræns nám-
skeiös fyrirunglingaþjálfara
og leiðbeinendur aö Laugar-
vatni. Það eru norrænu
• iþróttasamböndin, sem
standa fyrir þessu nám-
skeiði, en Unglinganefnd
I.S.Í. sér um framkvæmd-
ina.
Þátttakendur verða á aldr-
inuml8-30ára og erbúistvið
þátttöku allra Norðurlanda-
þjóðanna. Á námskeiðinu
verða flutt fræðileg erindi,
fariö f kynnisferöir og leiki
auk þess sem kvöldvökur
veröa. Má geta þess að ein
kynnisferöin verður I
Kerlingafjöll.
Unglingaþjálfarar og leiö-
beinendur, sem áhuga hafa á
að taka þátt f þessu náms-
skeiði, þurfa aö senda um-
sókn fyrir 25. mái n.k. á
skrifstofu t.S.f.,en þar munu
liggja frammi umsóknar-
eyðublöö. Ekkert þátttöku-
gjald verður.
Valdimar örnólfsson
iþróttakennari mun stjórna
námskeiðinu.
Fram náði
í aukastig
Fram krækti sér i aukastig
með þvi áö sigra Þrótt 3:0 i
Reykjavikurmótinu i knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Það eru
þvi Vikingur og Fram sem
berjast um sigur i mótinu en
þau mætast á laugardag.
Vikingur hefur 9 stig, Fram
8. í kvöld kl. 19.30 leika
Armann og Valur en á undan
eöa kl. 18.15 mætast KR og
Valur i kvennaflokki. _vs
Evrópukeppnin í körfuknattleik:
„Hefðum unnið þá
með eðlilegri hittni”
— sagði Einar Bollason. Jón Sigur;Syon meiddist og
óvíst hvort hann leiki meira í keppninni
,,Þetta var alls ekki nógu gott
hjá okkur”, sagðiEinar Bollason
landsliðsþjáifari i körfuknattleik f
'Austurríki-Ísland
91:77
samtali við Þjóðviljann i gær eftir
að Austurriki hafði sigrað tsland
91—77 í fyrsta leik C-riðils
Evrópukeppninnar sem nú stend-
ur yfir i Skotlandi. ,,Það var nógu
slæmt að missa Jónas Jóhannes-
son áður en keppnin hófst og ekki
bætti úr skák að Jón Sigurösson
meiddist iUa i baki i byrjun siöari
hálfleiks og óvíst er hvort hann
veröur meira meö. Þetta austur-
riska lið er ekkert sérstakt, mun
slakara en Englendingarnir, og
með eðlilegri hittni hefðum við
unnið leikinn. Hittnin var hins
SIMON ÓLAFSSON var lang-
bestur fslensku leikmannanna
gegn Austurriki I gær.
vegar hroðaleg, um þrjátiu
prósent”, sagöi Einar.
fslenska liðið byrjaöi leikinn
ágætlega og var yfir um miöjan
fyrri hálfleik, 22—17. Eftir þaö fór
að slga á ógæfuhliöina og Austur-
rikismenn náðu sex stiga forskoti
fyrir hlé, 39—33. I siöari hálfleik
var munurinn yfirleitt á bilinu
6—10 stig, Austurrikismönnum i
vil ogl4 stig þegar upp var staðið,
91—77 eins og áður sagði.
Símon Ólafsson barafi islenska
liðinu en var þó frekar seinn i
gang. Hann skoraði 29 stig en
TorfiMagnússon, sem lék sinn 75.
landsleik, kom næstur meö 14.
Idag kl. 14.30, 13.30 að islensk-
um tima, mætir Island Ungverja-
landisem taliö er sigurstrangleg-
asta liðið, enda þótti þaö regin-
hneyksli i Ungverjalandi þegar
það féll niður i C-riöil. Einar
Bollasontaldi að islenska liöiö án
Jónasar og Jóns Sig. ætti enga
möguleika iþeim leik ogsagði út-
litiö fremur dökkt. Það yrði hins
vegar aö vona þaö besta. —VS
Leeds skoraði 4 gegn Villa
— og Tottenham náði aðeins
jafntefli heima gegn Birmingham
Leeds fékk heldur betur byr
undir báða vængi I fallbaráttu 1.
deildar ensku knattspyrnunnar i
gærkvöldi er liöið sigraði Eng-
landsmeistara Aston Villa 4-1 og
það á ViIIa Park i Birmingham.
Lecds komst þar með úr fallsæti
en framundan virðist vera gifur-
leg barátta sjö liöa um að halda
sér I 1. deild.
Úrslit i gærkvöldi: 1. deild
Aston Villa-Leeds..........1-4
Tottenham-Birmingham.......1-1
2. deild
Charlton-Bolton..............1-0
Derby-Barnsley...............0-1
Orient-Cardiff...............1-1
3. deild
Oxford-Plymouth.............1-0
4. deild
Hartlepool-Blackpool........2-2
Staða neöstu liða 1.
Birmham
Leeds
Sunderland
Stoke
Wolves
W.B.A.
Middboro
37 8 13
36 9 10
38 9 10
37 10 6
38 9 9
35 8 11
37 6 14
deildar:
16 45:55 37
17 33:52 37
19 33:56 37
21 38:59 36
20 28:57 36
16 39:46 35
17 29:45 32
— VS
Halldór þjálfar Homfirðinga
Leifur Harðarson til Snæfells
Sindri frá Hornafirði, sem leik-
ur i NA-riðli 3. deildar í knatt-
spyrnu, hefur ráöið Eskfiröinginn
Halldór Arnason sem þjálfara
fyrir sumariö. Halldór, sem er 24
ára, hefur leikið með Austra
Eskifiröi og Fram en hefur átt við
meiðsli aðstriða undanfarin ár og
þvi litið getað leikið. Lið Sindra
hefur misst marga af burðar-
ásunum úr þeim hópi er komst I
úrslit 3. deildar i fyrra en á móti
kemur að mikiö er af efnilegum
leikmönnum á Homafirði og þvi
ekki ástæða til að örvænta.
Annaö 3. deildarliö, Snæfell frá
Stykkishólmisem leikur i SV-riðl-
inum, hefur verið að leita að
þjálfara undanfariö og liklega
veröur það Leifur Harðarson sem
fer vestur en hann hefur tilkynnt
félagaskiptiúr Þrótti R.i Snæfell.
— VS
sinn, hið 16 ára gamla „undrabarn” Jan-OIof Waldner, í fimm lotu úrsiitaleik. Mótiö fór fram f Búda-
pest og sió Waldner hinn fræga Stella Bengtsson frá Sviþjóö út i undanúrslitunum. Myndin aö ofan er af
Appegren i úrsiitaieiknum.
Jafntefli
Þó nokkuð var af upphit-
unarleikjum fyrir HM i
knattspyrnu i gærkvöldi.
Norður-Irar og Skotar skildu
jafnir i bresku meistara-
keppninni i Belfast, 1:1 John
Wark kom Skotum yfir á 32.
min. en Sammy Mcllroy
jafnaöi á 54. min.
Perúbúar unnu nokkuð
óvæntan sigur yfir Frökkum
i Paris, 0:1. Oblitas skoraði
eina markið i siöari hálfleik.
Austurrikisbúar unnu sinn
fyrsta sigur á Tékkum i 19
ár, 2:1, i Vin. Belgar sigruðu
Búlgari 2:1 i Briissel. Spán-
verjar sigruöu Svisslendinga
2:0 i Valencia og Alsirbúar
unnu athyglisverðan sigur á
Irum I Alsír 2:0. Þá tryggði
enska landsliðið undir 21 árs
sér sæti i úrslitaleik Evrópu-
keppninnar með jafntefii
gegn Skotum 1:1 en Eng-
lendingar unnu fyrri leikinn
1:0. Graeme Sharp skoraði
fyrir Skota en félagi hans frá
Everton, Adrian Heath, jafn-
aðifyrirEnglendinga. —VS
ísland
— Malta
á Sikiley
tslendingar mæta Möltu-
búum á hlutlausum velli en
ekki á Möltu i Evrópukeppni
landsliöa í knattspyrnu.
Möltubúar fengu tveggja
leikja bann á heimavelli
eftir skrilslæti á leik þeirra
viö Pólverja i undankeppni
HM i fyrra. Leikur Möltu og
tslands fer fram á Sikiley 5.
júnf i sumar en seinni leikur-
inn verður hér á landi ná-
kvæmlega ári siðar.
•
Fyrsta
golfmótíð
á Hettu
Fyrsta opna golfmót
sumarsins veröur haldið á
Strandarvelli á Rangárvöll-
um laugardaginn 1. mai og
er þar um aö ræða afmælis-
mót sem Golfklúbbur Hellu
gengst fyrir en hann á 30 ára
afmæli þann 22. júni i sumar.
Ræst verður út kl. 9-11 og 13-
•
Skólahlaup
UMSK
Ákveðiö hefur verið að
endurvekja skólahlaup
UMSK, en það hefur ekki
veriö haldið nú um árabil.
Skólahlaupið fer fram
næstkomandi sunnudag 2.
maikl. 3.00 við Garðaskóla I
umsjá Garöbæinga. 16
Grunnskólar eru á svæði
UMSK og er búist við þátt-
töku frá þeim flestum, fjöldi
hlaupara verður þvi mikill.
Keppt verður i 6 manna
sveitum oger hverjum skóla
heimilt að senda eina sveit
kvenna og aðra sveit karla i
hvern þeirra fjögurra flokka
sem keppt er i, en þeir eru
1,—-2. bekkur, 3.-4. bekkur,
5.-6. bekkur og 7.-9. bekk-
ur.
Verðlaunapeninga fá þrir
fyrstu piltarnir og þrjár
fyrstu stúlkurnar i hverjum
flokki auk þess sem allir
þátttakendur fá með eigin
nafni áritaö viðurkenningar-
skjal. Einnig fær sá skóli er
stigahæstur er glæsilegan
verðlaunabikar til varð-
veislu, fram að næsta skóla-
hlaupi. öll verðlaunin eru
gefin af Vélsmiðjunni Héðni.