Þjóðviljinn - 29.04.1982, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 29.04.1982, Blaðsíða 15
E) Hringið í síma 81333 kl 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum Réttur leigjenda fyrir borð borinn Réttur leigjenda er mjög fyrir borö borinn. Gróðasjónarmið margra leigusala ganga mjög nærri tilfinningum og sjálfs- virðingu leigjenda. Þeir hugsa um gróðann einan og helst má leigjandi hvorki hósta né anda án þess að mega sæta ofbeldi eða hótunum af hálfu þeirra sem húsum ráða. Það er varla að blankur leigjandi megi borða eða ganga til salernis án þess að þurfa að standa i einhverju stappi. Og náttúriega fylgir það þessu aö ekkert má gefa upp til skatts. Og hvað sem lög segja eru þau ekki virt, þvi ef leigjandi kvartar eða svarar fullum hálsi er gripið til of- sókna: það er fylgst grannt með þvi hve mörg desibel af hávaða leigjandi framkallar þegar hann kemur heim, segjum á tólfta timanum, sem þykir ekki óeðlilegur háttatimi. Gott ef ekki er ruðst inn á mann eða lögreglan komin á staðinn fyrr en varir hvað svo sem stjórnarskrá segir um persónu- frelsi. Eng,ulikara en leigjendur eða aðrir minnihlutahópar þurfi að vera keppnishæfir i einhverrij sjálfsvarnaraðferðinni til að vera við öllu búnir. H.G í tilefni 80 ára afmælis Halldórs Laxness: Meðan heimskan sperrir stél og skrattar ólmir hrina, þú hefur leikið listavel á Ijóðahörpu þina. Er mammons þræla tiskutál tólum dauðans lofið sungu, þú átti vorsins söng i sál og stuðlað hjartans mál á tungu. Lista i hæðir sálarsmæð steðja glæður hlýjar, meðan blæðir óðsins æð efni i ræður nýjar. H.ó. Halldór Laxness. (TfTTOO I y ^ irtl Danir eru manna hrifnastir af Lego-kubbnum svokallaða og þeim möguleikum sem hann hef ur upp á að bjóða. Hér sést eftirlíking af Amalienborg, dönsku kon- ungshöllinni —gerðúr Legó-kubbum. Barnahornið Fimmtudagur 29. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 15 Útvarp kl. 21.00 Eldhúsdags- umræður Beint útvarp frá Alþingi Beint útvarp frá Alþingi, svokallaöar eldhúsdagsum- ræöur, verða á dagskrá Útvarps i kvöld. Hefjast þær kl. 21 og standa a.m.k. 3 klst. Þingiö rennur nú sitt skeið á enda og verða þessar um- ræður með þeim siðustu sem fram fara i þingsölum. Fyrir- komulagið er með hefðbundnu sniði. Hver stjórnmálaflokkur fær 15 minútur i tvigang, en þeir sjálfstæðismenn sem styðja rikisstjórnina fá hins vegar 20 minútur allt i allt. Vegna eldhúsdagsumræðn- anna raskast dagskráin aö verulegu leyti og falla niður sex dagskrárliðir. Þar á meðal er samantekt leikar- anna Gunnars Eyjólfssonar og Baldvins Halldórssonar i til- efni af áttræöisafmæli Halldórs Laxness. 4. þáttur þeirra félaga, Hið ljósa man, færist yfir á næsta sunnudag og hefst kl. 14 eftir hádegi. Eini dagskrárliðurinn sem ekki fellur niður vegna um- ræðnanna er þáttur Sveins Einarssonar, Kvöldstund. Spjallað við útvarpsmanninn kunna Pál Heiðar Jónsson: Búkovskí minnisstæðasti viðmælandi minn Með þvi er vetrardag- skrá útvarpsins lýkur falla óhjákvæmilega nokkrir dagskrárliðir niður, sumir fólki hug- stæðari en aðrir rétt eins og gengur. Einn þessara dagskrárliða er Morg- unpósturinn, sem hefur um alllangt skeið verið i umsjón hins kunna út- varpsmanns Páls Heið- ars Jónssonar. Þjóðvilj- inn sló á þráðinn til Páls og spurði hann um ýmis- legt viðvikjandi þátta- gerðinni og einnig voru bornar undir hann þær sögusagnir að hann væri að hætta með þessa þætti: „ Jú, ég var að lesa það i ein- hverju blaöinu að ég væri að hætta með þessa þætti, væri orðinn leiður á þeim o.s.frv. Þetta er nú alveg úr lausu lofti gripið a.m.k. er ég ekkert orð- inn leiður á þessu. A hinn bóg- inn ákveður útvarpsráö hvort þessir þættir halda áfram eða ekki. Ákvarðanir þeirra manna sem i þvi ráði sitja hef ég ekkert með að gera,” sagði Páll. Ég byrjaði i þessu haustið 1978 með Sigmari B. Hauks- syni og nú eru þættirnir orönir rúmlega 650 talsins. Þættirnir eru byggðir upp i þvi sem kall- að er magasinformi, þ.e. þarna ægir öllu saman, en þess er gætt að málefni liðandi stundar sitji i öndvegi. Hug- myndin er upphafiega feng- in erlendis frá. Ég meö min- um samstarfsmönnum, sem eru orðnir æði margir hef farið út i ýmsar uppstokkanir á þáttunum. Stefnan hefur verið sett á að hafa hvert atriöi sem styst, en það krefst mikillar vinnu og oft alveg á mörk- unum að hægt sé að gera þannig að manni liki með I þeim litla mannskap sem stendur að þessu. Þættirnir Páll lleiöar Jónsson. eru sendir beint út, en stund- um þurfum við aö vera búin að taka upp efni á segulband og senda siðan út. Það hafa komiö ýmis vandamál i sam- bandi við menn sem ætla aö mæta i þáttin snemma morg- uns.l Þar má nefna að bill viö- mælanda okkar hefur ekki fariö i gang, aðrir hafa lent i árekstri og enn aðrir hafa hreinlega steingleymt þvi að þeir ættu að mæta. Þetta hefur skapað vandamál sem orðiö hefur aö leysa i grænum hvelli. Minnisstæðasla viðtalið? Tja, þaö er ekki svo gott að segja. Við höfum talað við svo marga, bæði innlenda sem er- lenda aðila. Sovéski flótta- maðurinn Búkovski verður mér alltaf minnisstæður. Afar sterkur persónuleiki. Hann ræddi vitt og breitt um lif sitt i Vladimir-fangabúðunum. Einn góðan veðurdag var svo knúið dyra hjá honum og nokkrir menn drösluðu honum út i bil. Það hélt hann væri endirinn. En i stað þess að vera sleppt og siðan skotinn á flótta sem hann hélt sin örlög yrðu, þá var honum komið fyrir i flugvél og sendur úr landi. Það hafa einnig komið til min þekktustu stjórnmála- menn þjóðarinnar og i þeim þáttum hefur þjóðfélagsum- ræðán borið borið á góma, at- vinnulif og sitthvað annað”, sagöi Páll.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.