Þjóðviljinn - 02.06.1982, Síða 5
Miðvikudagur 2. júnl 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
i Stríðið við
\ Persaflóa
iranir hafa unniö aftur
hafnarborgina Khorramshar og
þar með endurheimt mestallt
það land sem her íraks tók I inn-
rásinni sem hófst haustið 1980.
Og nú biða menn þess i ofvæni
hvort Khomeini lætur þar við
sitja, eða hvort hann lætur her
sinn skálma inn I Irak og reyna
aðsteypa stjórn Saddams Huss-
eins f Bagdad.
Flestum nágrönnum striðs-
aðila væri mikill léttir að þvi, ef
nú yrði samið um frið á óbreytt-
um landamærum. En ef Khom-
eini reynir að flytja út hina is-
lömsku byltingu sina til Irak
geta farið af stað keðjuverkanir
sem geta orðið afdrifarikari-
fyrir heim allan en allir ráð-
herrafundir OPEC-rikja, og um
leið gera enn snúnari en áður
þau vandamál sem fyrir eru I
Austurlöndum nær.
Þverstæður
— Það er helst i Israel — fyrir
nú utan Iran — að menn hafa
fagnað þróun striðsins. Ekki
FRETTASKYRING
vegna þess að tsraelar séu vinir
ajatollanna, öðru nær — heldur
vegna þess, að þeir hafa litið á
írak sem helsta andstæðing sinn
meðal Arabarikja eftir að sér-
friður var saminn við Egypta-
land. Og sá skilningur hefur leitt
til þess að tsraelar hafa selt
trönum allmikið af vopnum.
Þau viðskipti eru ein af
mörgum þverstæðum sem
tengjast striðinu við Persaflóa.
Þvi að þegar keisaranum i tran
var steypt af stóli 1979 var fall
hans talinn ósigur ekki aðeins
fyrir Bandarikin heldur og tsra-
el. Núverandi ráðamenn i tran
fordæma hin ihaldssömu
Arabariki við Persaflóa og þá
Saudi-Arabiu, ekki sist fyrir til-
tölulega hófsama afstöðu þeirra
til ísraels. Og einu vinir klerka-
valdsins meðal Araba hafa
verið þeir sem eru harðastir
óvinir ísraels: Libýa, Sýrland,
Suður-Jemen. Khomeini krefst
þess, að furstadæmin og Saudi -
Arabia hætti við öll áform um
friðarsamninga við Israel og við
að taka upp aftur samband við
Egypta. Það er þvi enginn sér-
Herfangar frá trak syngja Khomeini iof og dýrö I Teheran
stakur vinur tsraels, sem tsra-
elar hafa hjálpað um vopn i
Persaf lóastriðinu.
Arfur keisarans
Enn ein þverstæða þessa máls
er sú, aö iranska klerkaveldið,
sem telur sig i einu og öllu and-
stæðu við keisarastjórnina,
hefur nú tekið við hlutverki
hennar i þvi að reyna að ráðsk-
ast með smærri og veikari riki
við Persaflóa. Keisarinn gætti
bandariskra hagsmuna og
ætlaði að skapa persneskt
heimsveldi I leiðinni, en ajatoll-
arnir byggja á hersskárri trúar-
vakningu: fyrirlitning beggja á
nágrönnunum er hinsvegar
ósköp svipuð.
Það er svo enn eitt dæmi um
spaugvisi aðstæðnanna, að hin
ihaldssömu furstadæmi við
Persaflóa (sem eru sem fyrr
segir tiltölulega varkár i afstöðu
til Israels) lita nú á hinn róttæk-
asta allra andstæöinga Israels,
Saddam Hussein forseta Iraks,
sem sinn helsta verndara gegn
hinni irönsku hættu. I stjórn-
málum og styrjöldum lenda
undarlegustu aðilar saman i
rúmi. Annað mál er, að fursta-
dæmin og Saudi-Arabia hafa
aldrei treyst of vel forsetanum i
Bagdad — eins og best sést á
þvi, að þau fara ekki að styðja
við bakið á honum fyrr en þau
voru viss um að hann gæti ekki
sigraö tran i striðinu...
Risaveldin
Persaflóastriðið er að þvi leyti
skylt Falklandseyjastriðinu, að
það verður ekki rakið til risa-
veldanna beinlinis og þau hafa
haldiö sig i nokkurri fjarlægð
frá þvi. t þeim skilningi er strið
trans og traks lika áminning um
að óþarft er að rekja öll deilu-
mál, heit og köld, til árekstra
austurs og vesturs.
áb tók saman
I
Matvælaástandið í Sovétríkjunum:
Landbúnaðurinn fær aukið
f jármagn — en dugir það?
Sovésk skrýtla segir, að
fíllinn hafi kviðslitnað
þegar hann reyndi að lyfta
sovéskum landbúnaði.
Matvælaskorturinn er
stærsta hvunndagsvanda-
mál hins sovéska borgara
og því von, að margir leggi
eyrun við, þegar miðstjórn
Kommúnistaflokksins fer
af stað með mikla og dýra
áætlun um f járfestingar og
umbætur í landbúnaði eins
og nú hefur gerst.
Brézjnef aðalritari gerði grein
fyrir áætlun þessari fyrir
skemmstu en samkvæmt henni á
að auka matvælaframleiðsluna
um 50% á næstu árum. Sovét-
menn hafa áður viðrað áætlanir
um stórátak I matvælafram-
leiðslu, sem ekki hafa tekist, og
þvi er ekki nema von að einnig
þessari sé tekið með ýmsum
fyrirvörum.
. Mikiðstendurtil
Áætlunin er fyrst og fremst
viðurkenning á þvi hve alvarlegt
ástandiö er. Samkvæmt henni á
landbúnaðurinn frá og með árinu
1985 að fá i sinn hlut um 30% af
öllu fjárfestingarfé. Fjárfest
verður I nýjum tækjabúnaði, i
rafvæðingu og áburðarfram-
leiöslan á að aukast um 70%.
Þetta á svo að gefa þann árangur
að kornframleiðslan fari upp i um
250 miljónir smalesta á ári (i
fyrra mun hún hafa verið 160—180
miljónir smálesta og var allmiklu
fyrir neðan meðailag).
Mikil sóun
Ekki var mikiö um það fjallað i
ræðu Brezjnefs hvaðan pening-
arnir ættu að koma sem hressa
eiga við landbunaðinn — en bjart-
sýnismenn leyfa sér að vona að
þær tilfærslur á fjármunum þýöi
m.a. að herinn fái ekki i jafn-
rikum mæli og nú að láta greipar
sópa um þjóðarauðinn. Hitt er svo
annað mál, að fjárfestingar og
framkvæmdir einar sér munu
ekki leysa vanda sovésks land-
búnaðar. Hann á við mörg kerfis-
læg vandamál að etja, sem Brésj-
nef vék reyndar að i ræðu sinni.
Eitt það helsta er blátt áfram
hin mikla sóun á verðmætum sem
verður i dreifingarkerfinu. Vegna
skorts á geymslurými, afleitrar
skipulagningar flutninga, skorts
á kælibúnaði og svo vegna út-
breiddrar fjármálaspillingar fer
gífurlegt magn af matvælum for-
görðum. t ræðu Bréfsjnefs var
þess t.d. getið að um 30% af
kartöfluuppskerunni eyðilegðist
vegna þess að rangt er staðið að
uppskeruvinnu, geymslu og
flutningum. Fátt er reyndar al-
gengara umræðuefni i sovéskum
blöðum en sú sóun sem á sér stað
i matvælaframleiðslunni — er sú
sorgarsaga orðin of löng til að
menn búist viö þvi að enn ein
samþykkt, enn ein áætlun frá
miðstjórn flokksins, breyti þar
miklu um.
Verðlagið
Ein er sú breyting sem Brésjnef
boðaði, sem gæti haft talsvert að
segja. Hann viðurkenndi að fasta-
verðið sem rikiö setur I inn-
kaupum frá samyrkjubúum væri
i mörgum greinum i engu sam-
ræmi við tilkostnað — og væri
ekki hægt að ætlast til þess að
búin legöu mikið á sig til að fram-
leiða vörur sem þau verða siðan
að selja með tapi. Nú er boðaö aö
frá og með næstu áramótum verði
um 16 miljörðum rúblna á ári
varið til aö hækka innkaupsverð á
ýmsum matvælum frá búunum.
Einkaskikar bænda
En I ræðu Bréznjefsogáætlunum
þeim sem nú eru boðaðar rikir
annars áberandi varfærni i að
hagga við þeim skipulagsformum
sem rikt hafa. Settar verða upp
nýjar samræmingarnefndir á
hverjum stað til að reyna að
koma I veg fyrir ofstýringu frá
miðju. En ekki þykir fróðum
mönnum ástæða til að ætla að
nefndir þessar breyti miklu, þvi
ekki munu þær skerða valdsviö
miðstýrðra áætlanastofnana. Þá
var ýmislegt jákvætt sagt um
„hjálparbúskapinn” en þar er átt
við þá smáskika lands sem sam-
yrkjubændur rækta sjálfir með
fjölskyldum sinum. A þessu til-
Biðraðirnar við matvælaverslanir eru stærsta hvunndagsvandamái
sovéskra þegna.
tölulega litla landi verður til ótrú-
lega stór hluti af þvi grænmeti
þeim eggjum og þeirri mjólk sem
á markað koma. A seinni árum
hefur heldur verið rýmkaö til
fyrir þessum einkabúskap, en
ekki er i hinum nýju áætlunum að
finna umtalsverða endurskoðun á
stööu hans.
Semsagt: hvað svo verður veit
nú enginn. En til dæmis að taka
um ástand það sem sovéskir
borgarbúar einatt mæta segir
Moskvufréttaritari Information,
sem hér er að verulegu leyti
byggt á, að grúsiskir ávaxta-
bændur selji nú i Moskvu fyrstu
jarðarber ársins á 20 rúblur kl-
lóið. Meðallaun i landinu eru 170
rúblur. ábtóksaman
KOND' í STUÐ
Þar færðu nefnilega:
• bestu kassetturnar
• bestu heyrnartólin
• Last-vökvann, sem gerir plötuna betri en nýja
• ódýrar brjóstnælur
• ókeypis STUOblaö
• ókeypis auglýsingaþjónustu
• falleg og þægileg gjafakort
• nýju Nínu Hagen-plötuna
• nýju Clash-plötuna
• Crass-plöturnar
• Lindsey Cooper
• Archie Shepp
• Posion Girls
• og allar aðrar góðar nýbylgjuplötur
Laugavegi 20 Sími27670