Þjóðviljinn - 17.06.1982, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. júni 1982
Fugl dagsins
Sníputuðra
Snipuduðra-Limnodromus
griseus er lik hrossagauk i
vexti, en dvelst andstætt honum
á bersvæði og i fjörum (dylst
ekki i gróðri). Hún er á öllum
timum árs auöþekkt á mjög
löngu beinu nefi, sem minnir
mjög á nef hrossagauksins, og
hvitu baki. A veturna getur
Snipuduðran verið torgreind frá
lyngsteik en er þó nokkru stutt-
fættari. Hún aflar sér ætis með
þvi að hjakka meö nefninu i
leðju með hrööum háttbundnum
hreyfingum.
Röddin er hratt ,,tú-tú-tú”
Kjörlendið er utan varptimans
við fjöruleirur og sjávarfitjar.
Snipuduöran er litið þekkt hér,
en flækingur i Danmörku og á
Bretlandseyjum.
ólafur meðeigin mynd af þeim félögum i Medúsu I ham. mynd-eik
Menuhin
á hausnum
Fiðlusnillingurinn Yehudi
Menuhin hefur ekki farið dult
með hrifningu sinni af ind-
verskri ihugunartækni. Hér
bregður hann á jógaleik i Berli'n
og stjórnar hluta af örlagasin-
fóniu Beethovens standandi á
höfði — og slær þá taktinn með
fótunum.
Svínharöur smásál
Eftir Kjartan
Arnórsson
ECr HCLOfíÐ Þl£> HfíFlÐ GCR.T MISTÖVC
É6r FÉKK HER SKfíTTfíRElkMNG
Oppfí 11? ró/LL-yöNlf? KRö/vó/A
Rætt við Ólaf
Engilbertsson
félaga í
súrrealistahópnum
Medúsa
Um þessar mundir stendur
yfir I sýningarsalnum
„Skruggubúð” aðSuðurgötu3a I
Reykjavik, sýningin „Medúsa
og gestir”. Þaö er súrrealista-
hópurinn Medúsa sem stendur
fyrir sýningunni og þeir sem
verk eiga á sýningunni eru þeir:
Tony Pusey, Þór Eldon, Sjón,
Ólafur Engiibertsson, Matthias
Magnússon, Einar Melax
Jóhamar og þau Ragna Björg
og Alfreö Flóki eru sérstakir
gestir. Til að forvitnast frekar
um þessa sýningu náðum við
tali af einum þeirra, Ólafi
Engilbertssyni.
— Það eru 7 félagar i Medúsa
núna. Þetta er samstarfshópur
sem hefur verið til frá þvi um
áramótin 1979-80. Við höfum
gefið út 4 ljóðabækur og veriö
með alls kyns uppákomur auk
þess sem viö hófum útgáfu
timarits i mars s.l. sem heitir
„Hinn súrrealiski uppskurður”.
— Hvernig varö þessi hópur
til?
— Við kynntumst allir i Fjöl-
brautarskólanum i Breiðholti á
sinum tima auk þess sem Tony
bættist siðar i hópinn.
— Er þessi sýning ekki ný-
mæli i islenskri listasögu?
— Jú þaö má segja það að
vissu leyti. Þetta er fyrsta sam-
sýning i'slenskra súrrealista.
Áður hafa þeir Jón Hjálmarsson
og Alfreð Flóki einir unnið aö
einhverju marki viö súrrealiska
myndgerö.
— Hvað er súrrealismi?
— Fyrst og fremst lifsskoðun.
Má skilgreina þannig að við
forðumst alla stöðnun i hugsun.
Sjáum si'fellt hlutina i nýju ljósi.
Utilokum aldrein neina mögu-
leika, t.d. það að borð gæti verið
ský. Halda verður öllum mögu-
leikum opnum.
Hafa súrrealistar átt erfitt
uppdráttar?
— Já ekki er hægt að neita þvi.
A millistriðsárunum þá voru
súrrealistar i slagtogi með
anarkistum og voru fangelsaðir
vegna ýmiss konar uppþota.
Súrrealistar hafa alla tið verið
misskildir. Að vissu leyti má
finna skyldleika milli ana-
rkisma og súrrealisma þar sem
er hiö absalút frelsi hugans.
— Eru þið I sókn hér heima?
— Það er erfitt aö segja til um
það. Við höfum komið á fót
timariti og undirtektir að sýn-
ingunnihafa veriðmeö ágætum.
Það segir kannski eitthvað.
Hvernig hefur fólki litist á
sýninguna?
— Yfirleitt vel, en auðvitað
misjafnlega eins og gengur og
gerist.
— Hvað kom til að þessi hópur
varð til i Fjölbrautarskólanum I
Breiðholti?
— Tilviljun eins og flest
annað. Vildi til aö við vorum
þarna til staðar á þessum tíma
og þessum stað.
— Hverjar cru framtiöaráætl-
anir hjá ykkur?
— Við höfum leigt okkur sýn-
ingarsal á Suðurgötu 3a til eins
árs. Á þessu ári er ætlunin að
gefa út þrjar ljóöabækur og auk
þess að halda áfram útgáfu
timaritsins, liklega tvö hefti til
viöbótar á árinu.
— Er Medúsa opinn félags-
skapur?
— Já, þetta er opinn hópur og
þeir sem hafa áhuga á súrrea-
liskri listsköpun eru eindregið
hvattir til að hafa samband viö
okkur. Sýningin verður opin
fram til 25. þessa mánaðar frá
kl. 17-22 virka daga og 14.-22 um
helgar.
— Er hægt að lifa á því að
vera súrrealiskur listamaður á
tslandi?
— Vonandi i framtiðinni.
Hingað til hefur þetta verið ein-
tómur minus.
-•g-