Þjóðviljinn - 28.07.1982, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 28.07.1982, Qupperneq 7
Miðvikudagur 28. júlí 1982. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 elsta muninn á sýningunni er Amundi Jónsson, smiður. Hann var fæddur 1738, en altaristafla hans er frá árinu 1792. Unglingur- inn i hópnum er hinsvegar Sæm- undur Valdimarsson, fæddur 1918, og sýnir tvö verk, sem unnin eru i tré og ýsuroð. Alls sýna 32 menn ýmiss konar málarakdnst og handmenntir, og óhætt er að segja að sýningin sé afar fjölbreytt — og ekki má gleyma videósýningunni i fundar- sal Kjarvalsstaða, en þar eru sýnd vinnubrögð og starfshættir margs fólks viös vegar að af land- inu, en upptökurnar áttu sér allar stað heima hjá þvi fólki, sem tekið er til sýningar og viðtals, en það fólk á jafnframt muni á sýn- ingunni á Kjarvalsstöðum. Samfelldur sýningartimi videó- upptökunnar er þrjár klukku- stundir, en sá timi skiptist niður i 20 sjálfstæðar upptökur, þar sem sýndir eru og spjallað er við m .a. prjónakonur, tré- og málmsmiði, bátasmiði, útskurðarmenn, rennismiði, jurtalitunarkonu og marga, marga fleiri. En það gerist fleira innan veggja Kjarvalsstaða i tengslum við sýningu i tilefni árs aldraðra, en hér hefur þegar verið rakið. Auk hefðbundinnar myndlista- sýningar og videósýningar á handmenntun hefur þar einnig verið haldin siödegisvaka, sem landsamtökin Lif og Land stóðu fyrir, og er hér i opnunni greint frá henni. Og þá eru ótalin Mál- þingin, sem Samband lifeyris- þega rikis og bæja (SLRB) stend- ur að. Og siðast en ekki sist hanga uppi teikningar barna úr teikni- myndasamkeppni, sem Rauði kross Islands efndi til fyrr á þessu ári, og er verðlaunamyndin, eftir Svein Kristin Ogmundsson, 6 ára, prentuð á veggspjald, sem gefið er út i tilefni sýningarinnar og á forsiðu sýningarskrár. Það er þvi ljóst, að margt er um að vera á Kjarvalsstöðum þessa dagana, og vist er margt vitlaus- ara en að eyða þar stund — á tim- um hraða og tækni. — jsj. Þetta reiðhjól Siguröar Filipusssonar frá Hólabrekku i Austur-Skafta fellssýslu er orðiö vel þekkt eftir sjónvarpskvikmynd Friöriks Friö- rikssonar um Eldsmiöinn. Ingibjörg Tryggvadóttir frá Húsavik sýnir, hvaö hægt er aö gera meö jurtalitum, en á Kjarvalsstööum má sjá bönd i fegurstu litabrigöum Ef innfellda myndin prentast vel, má sjá mismunandi sterka liti i sama boganum. PHift ■ : ■ ' ... : Sigurður Magnússon flutti erindi um æsku og elli i breyttum þjóöfélagsháttum. (Ljósmynd. ast) Jóhanna Jóhannesdóttir sýnir listavel prjónuö iangsjöi og hyrnur úr handunnu þelbandi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.