Þjóðviljinn - 28.07.1982, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 28. júli 1982.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Ráðstefna um skólamál# Hallormsstað 6.-8. ágúst.
Tilefni ráöstefnunnar: Þörfin fyrir mótun skólastefnu AB ikjördæm-
um, sveitarstjórnum og á landsmælikvaröa.
Markmiö ráöstefnunnar: ,,að taka eittlitiö skref fram á við”.
I. Upplýsingamiðlun til félaga um skólakerfiö og stööu skólamála.
II. Umræður: hver/hvað mótar skólastarfið?
III. Undirbúningur að frekara starfi að stefnumótun i skólamálum.
Framsöguerindi: „Valdsvið skólastjóra, fræðslustjóra og ráðuneyt-
is”, „Kjaramál kennara”, „Skipan framhaldsskólans”, „Sálfræðideild
skóla”, „Starfssvið og valdssvið kennarans, nemenda, foreldra”, „Hin
dulda námsskrá”, „Tengsl menntunar og atvinnuuppbyggingar”.
Ilópstarf, umræöur, kvöldvaka fyrir alla fjölskylduna.
Þáttaka tilkynnist til:
Gerðar óskarsdóttur, Neskaupstað, s. 7616/7285,
Berit Johnsen, Hallormsstað, s. um Hallormsstað.
Kjördæmisráö Alþýöubandalagsins
á Austurlandi.
Inn við Hitarvatn, Foxul'ell nær Tjaldbrekka innst..
Sumarferð
Alþýðubandalagsins á
Norðurlandi-vestra 7.-8. ágúst 1982
Snæfellsness og Hítardalur
Lagt verður af stað á laugardagsmorgni frá Varmahlið i
Skagafirði og ekið um Laxárdalsheiði vestur i Hitardal.
Tjaldað verður að Hitarhólmi i túnfætinum hjá Birni
Hitdælakappaog siðan gengið upp á hólminn en þaöan er
gott útsýni ytir dalinn og vatnið. Að þvi búnu verður efnt
til kvöldvöku við varðelci.
Á sunnudag verður ekíð um Snæfellsnes eftir þvi sem
timileyfir og ekiö heim aftur gegnum Borgarnes.
bátttaka tilkynnist eftirtöldum, sem jafnframt veita
nánari upplýsingar:
Ester Bjarnadóttir, Hvammstanga S. 95-1435
Sturla Þórðarson, Blönduósi S. 95-4356 og 4357
EðvarðHallgrímsson, Skagaströnd S. 95-4685
Hallveig Thorlacius, Varmahlið S. 95-6128
Ingibjörg Hafstað, Vik, Skagafirði S. 95-5531
HuidaSigurbjörnsdóttir.Sauðárkróki S. 95- 5289
Einar Albertsson, Siglufirði S. 96-71614 og 71616
Þátttaka er öllum heimil.
Undirbúningsnefnd
Til sjós og lands
Hinar landsþekktu Sóló eldavélar
eru framleiddar í ýmsum stærð-
um og gerðum, með og án mið-
stöðvarkerf is.
Eldið á meðan þið hitið upp húsið
eða bátinn og fjölnýtið orkuna.
Eldavélaverkstæði
Jóhanns Fr. Kristjánssonar hf.
Kleppsvegi 62. — Simi 33069
Box 996 Reykjavik
Heimasími 20073
Auglýsingasíminn
er 8-13-33
1JOÐVIUINN
Kynnið
ykkur
verð
og gæði.
Söngur Kristjáns
vekur hvarvetna
djúpa hrifningu
Kristján Jóhannsson
óperusöngvari hefur gert
víðreist um landið og hefur
söngur hans vakið mikla
hrifningu áheyrenda.
Píanóleikari hans er Guð-
rún A. Kristinsdóttir.
Um siðustu helgi söng hann
fyrir Þingeyinga, bæði i Hnit-
björgum og að Ýdölum. Kristján
syngur á Akureyri á morgun,
miðvikudag, kl. 21 i íþrótta-
skemmunni. Tónleikaförinni
lýkur i Vestmannaeyjum 1. ágúst.
Á efnisskrá Kristjáns eru lög
eftir Bach, Bizet, Verdi, Hossini,
Arna Thorsteinsson og Sigvalda
Kaldalóns svo nokkrir séu
nefndir.
Kristján hefur hlotið mikinn
frama erlendis. Hann hefur nú
gert samning um söng aðalhlut-
Kristján Jóhannsson söngvari.
verks við „English National
Opera” sem mun vera ein virt-
asta ópera heims.
V erslunarmannahelgin:
„Nú er glatt í
hverjum hól”
Fjöl-
skyldu-
samvera
og æskulýðsmót að
Vestmannsvatni
Fjölskyldusamvera og æsku-
lýðsmót verður aö Vestmanns-
vatni um verslunarmannahelg-
ina.
Sunnudaginn 1. ágúst, kl. 13-17,
verður „opið hús” i Sumarbúðum
kirkjunnar við Vestmannsvatn i
Aðaldal. Gefst þá öllum kostur á
að lita við i sumarbúðunum,
skoða staðinn, fara i gönguferðir i
fallegu umhverfi, róa á vatninu
o.s.frv. Kaffiveitingar verða milli
kl. 15 og 16.
Kl. 17 veröur svo fjölskyldu-
samvera fyrir alla sem á staðn-
um verða. Verður sú samvera
hápunkturinn á æskulýðsmóti,
sem verður við Vestmannsvatn
30. júli til 1. ágúst. Yfirskrift
þessa æskulýðsmóts er: „Friður
guðs”.
— mhg
Nýtt
málgagn
kirkjunnar
kemur út
í haust
Útgáfan Skálholt hefur ákveðiö
að efna til samkeppni um nafn á
hið nýja blað, málgagn kirkj-
unnar, sem hefur göngu sina i
haust. Það mun koma út
mánaðarlega fyrst um sinn og
verða i timaritsbroti.
Hlutverk blaðsins verður eink-
um að flytja fregnir af þvi mikla
starfi, sem unnið er innan kirkj-
unnar og ýmsu tengdu þvi. I þvi
veður meðal annars að finna við-
töl og frásagnir i máli og mynd
um, frðttir af erlendum vett-
vangi, að ógleymdu efni fyrir
börnin, svo eitthvað sé nefnt. Og
að sjálfsögðu verður einnig slegið
á léttari strengi eins og vera ber.
Útgáfan leitar hér með eftir
hugmyndum um nafn á hið nýja
málgagn. Hið eina sem þátttak-
endur eru beðnir að hafa i huga
er, að nöfnin þurfa helst að vera
stutt og þjál. Og svo er þess bara
vænst að þær tillögur sem berast
verði sem flestar og fjölbreyti-
legastar.
Veitt verður viðurkenning fyrir
besta nafnið aö vali þar til
skipaðrar dómnefndar. 1 henni
eiga sæti: Guðmundur Einarsson
framkvæmdastjóri, Jónas Gisla-
son, dósent og Sæmundur
Guðvinsson fréttafulltrúi.
Tillögur þurfa að berast fyrir
15. ágúst næstkomandi, merktar:
Útgáfan Skálholt, Klapparstig 27,
Reykjavik.
Enn einu sinni er eitthvað nýtt á
seyði hjá Samhyggð. Og hvað er
það nú? Jú, þátttökuhátið i Þórs-
mörk um verslunarmannahelg-
ina.
Þarna geta allir verið þátttak-
endur, stórir sem smáir. Og
þarna verður „kyngimögnuð
reynsla i klettaborgum”, segja
þeir hjá Samhyggð.
Hátiðin stendur frá laugardegi
til mánudags, 31/7—2/8.
Dagskráin verður mjög fjöl-
breytt: útileikir, varðeldur,
Breski sállæknirinn David
Boadella heldur fyrirlestur um
likamssálarfræði Wilhelm Reich I
kvöld kl. 20.30 i Norræna húsinu.
Fyrirlesturinn ber heitið „Birth
and the Character of the Body”
og er hluti af námskeiðum sem
Boadella heldur hér á landi og er
jafnframt opinn þeim sem áhuga
hafa. t fyrirlestrinum gerir Boa-
della grein fyrir helstu uppgötv-
unum Wilhelm Reich varðandi
svokallaða „vöövabrynju”.
Kenningar Reich gera ráð fyrir
að einstaldingar noti vöðvakerfið
sem hemlakerfi til að stöðva
framrás tilfinninga sem ekki má
söngur og góngur, íeiKru og
sögur, hopp og hi. Hvað viljið þið
hafa Jiað betra?
Gestur hátiðarinnar verður
höfundur Bókarinnar um ham-‘
ingjuna, Pétur Guðjónsson.
Alla helgina verða ferðir i
Mörkina. Þátttaka tilkynnist Úti-
vist, Lækjargötu 6 Reykjavik og
Samhyggð.
Kjörorðið er: Gerum verslunar-
sýna. Þessar tilfinningar á siðan
að vera hægt að framkalla með
þvi að vinna beint með vöðva-
kerfið, s.s. með þvf að losa um
vöðvaspennuna og koma á eðli-
legri öndun.
Boadella mun einnig fjalla um
hveming fæðingarreynslan getur
haft mótandi áhrif á persónuleik-
ann. í lok fyrirlestursins verður
siðan fjallað um kynlifskenningu
Reich en hann var þeirrar skoð-
unar að meginorsök taugaveikl-
unar væri truflun á orkubúskap
einstaklinga.
1 -K Auglýsið í y Þjóðviljanum
Blikkiðjan
Asgaröi 1, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
mannahelgina mennska.
— mhg
Fyrirlestur
um líkams-
sálarfræði