Þjóðviljinn - 27.08.1982, Blaðsíða 3
Föstudagur. 27. ágúst. 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Ragnar Arnalds og Ólafur Ragnar Grimsson hjá Sláturfélagi Suðurlands við Skúlagötu I kaffitfmanum i
gær. Ljösm. -jsj Æ
Baidur óskarsson framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins dreifir
kynningarblaði AB fyrir utan hraðfrystihús BCR.Ljósm. eik
m 1 m ]
1 m :í \ ]
1 W W T JN 1 1
Verjum Island
gegn atvinnuleysi
Frá vinnustaðafundumþingmanna Alþýðubandalagsins
Þingmenn og ráöherrar Alþýðubandalagsins hófu
vinnustaöaheimsóknir i Reykjavik í fyrradag og héldu
þeim áfram i gær. Þar dreifðu þeir m.a. kynningarblaði
sem ber heitið ,/Verjum Island gegn atvinnuleysi".
//Þingflokkur Alþýðubandalagsins hefur á fundum i
sumar mótað viðtækar tillögur í efnahagsmálum", sagði
ólafur Ragnar Grímsson formaður þingflokksins í sam-
tali i gær.
„Þær voru lagöar fram i rikis-
stjórninni en jafnframt ákvað
þingflokkurinn að kynna þær al-
menningi i landinu með heim-
sóknum á vinnustaöi og vinnu-
staðafundum um land allt”.
— Er þetta upphaf kosninga-
baráttu?
— Sumir kunna að telja að
fundahöld af þessu tagi beri vott
um kosningaundirbúning en til-
gangur okkar er annar. Við telj-
um það sjálfsagða skyldu við
fólkið, hvort sem kosningar eru i
nánd eða ekki að kynna þann
mikla vanda sem við er að etja og
þær tillögur sem flokkurinn hefur
sett fram, jafnframt þvi sem
fjallað er um niðurstöður og
ákvarðanir rikisstjórnarinnar um
ráöstafanir I efnahagsmálum.
Slikar heimsóknir og fundahöld
eru þvi liður i hinni lýðræðislegu
umræðu i landinu. Við höfum út-
búiö kynningarblaö sem ber
heitið „Verjum Island gegn at-
vinnuleysi”. Þar er að finna
meginatriði hins mikla vanda
sem nú steðjar aö tslendingum
vegna erlendrar kreppu, mark-
aðslokana, söluerfiðleika stór-
iðjufyrirtækja, loðnubrests og
minnkandi þorskafla. Þar er
einnig lýsing i höfuðatriðum á
ýtarlegum tillögum Alþýðu-
bandalagsins um hvernig bregö-
astskuli viö þeim vanda sem uppi
er.
— Hvert verður framhald þessa
úthlaups?
— Þessar vinnustaðaheim-
sóknir hófust i Reykjavik á mið-
vikudag og fimmtudag i þessari
viku, og halda áfram hér á höfuð-
borgarsvæðinu og út um land
næstu eina til tvær vikurnar. Nú
þegar hafa þingmenn Alþýðu-
bandalagsins og ráðherrar hitt að
máli fólk i Isbirninum, Bæjarút-
gerð Reykjavikur, hafnarverka-
menn hjá Eimskip, starfsfólk
Saumastofu Karnabæjar og
haldið fund hjá Sláturfélagi
Suðurlands. A morgun, föstudag,
veröa fundir viða I höfuðborginni
og á Vesturlandi og á mánudag
verða vinnustaðafundir á Akur-
eyri og þannig áfram hringinn I
kringum landið.
— ekh
Ólafur Ragnar og Guðrún Heigadóttir ræða við afgreiðslumenn hjá Saumastofu Karnabæjar. Ljósm.
eik.
mm
•*»••*»>
iS
t saumastofu Karnabæjar Fosshálsi 27. Ljósm. eik
Svavar Gestsson afhendir starfsstúlkum hjá BCR lesefni með kaffinu.
Ljósm. eik.