Þjóðviljinn - 27.08.1982, Side 16

Þjóðviljinn - 27.08.1982, Side 16
mmu/m Föstudagur. 27. ágúst. 1982. Aöa' fai Þjóöviljans er 81333 kl. 8-20 mánudag til föstudags. Utfc.i þess tima er hsgt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins f þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af greiöslu blaösins i slma 81663. BlaÖaþrent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöid. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81333 81348 afgreiðslu 81663 Stórhættulegur efnaiðnaöur inni i miðju ibúðahverfi, segir Guðrún Jónsdóttir. Umhverfið er einkar ógeðfellt fyrir bragðið á horni Selja- vegs og Vesturgötu, „Fylgjum málinu fast eftir” segir Guðrún Jónsdóttir, borgarráðsmaður Kvennaframboðs, um efnaverksmiðjumálið „Borgarstjóri hefur eflaust talið sig vera i laga- legum rétti til að undirrita framlengingu Ióðasamn- ings við Kolsýruhleðsluna en siðferðilegan rétt hafði hann engan þvi það var greinilegur vilji borgarráðs að ræða málið betur áður en frekar væri aðhafst í þvi”, sagði borgarráðsmaður Kvenna- framboðs, Guðrún Jónsdóttir, i samtali við Þjóðvilj- ann i gær. „Við kynntumst þessu máli fyrst i kosningabaráttunni og þá kom i ljós að fyrri meirihluti hafði samþykkt að eðlilegt væri að framlengja lóðasamningi við Kol- sýruhleðsluna sf. til 10 næstu ára. Það var gert á fundi ráðsins i nóvember 1981. Eftir að ég kom inn i borgarráð var umræðum um málið haldið áfram á þeim vett- vangi og það fékkst svo ákveðið á fundi 17. ágúst að fresta undir- ritun samnings þar til við hefðum rættþetta ofan i kjölinn. Við feng- um send öll gögn varðandi málið fyrir fund nú 24. ágúst en þegar átti að taka málefni Kolsýru- hleðslunnar á dagskrá upplýsti borgarstjóri okkur um að hann hefði þegar undirritað lóðaleigu- samninginn og gert það sunnu- daginn 22. ágúst. Hér er ekki að- eins um það að ræða að borgar- ráði hafi verið sýnd einstök litils- virðing heldur veitir borgarstjóri öllum borgarbúum kjaftshögg með þessari afgreiðslu sinni”, sagði Guðrún Jónsdóttir enn- fremur. — En hvað með rekstur verk- smiðjunnar Eims? „Það er ásetningur okkar hjá Kvennaframboðinu að fylgja kröfum ibúanna i þvi máli eftir af fullum krafti á vettvangi borgar- stjórnar. Eimur framleiðir kol- sýru og þar er um stórhættulegan efnaiðnað að ræða inni i miðju ibúðahverfi og við hljótum að styðja með öllum ráðum þá lág- Guðrún Jónsdóttir borgarráðs- maður Kvenna- framboðs: Afgreiösla borgarstjóra kjaftshögg á alla borgar- búa. markskröfu ibúanna að starfsemi fyrirtækisins verði flutt annað hið bráðasta”, sagði borgarráðs- maður Kvennaframboðs, Guðrú n Jónsdóttir, að siðustu. — v. Ennþá hækkar pósturinn Ný gjaldskrá fyrir póstþjónustu tekur gildi 1. september næstkomandi. Samkvæmt henni verður burðargjald bréfa af fyrsta þyngdarflokki (20g) innan- lands og til Norðurlanda 3,50 kr. til annarra landa 4.00 kr. og flug- burðargjald til landa utan Evrópu 7.00 kr. Burðargjald fyrir póstkort og prent' af fyrsta þyngdarflokki (20g) verður 3.00 kr. nema flug- burðargjald til landa utan Evrópu, sem verður 3,50 kr. Gjald fyrir giróþjónústu verður 4.50 kr. fyrir almennar póstávisanir 8.00 kr. simapóstávisanir 36.50 kr. og póstkröfur 15.00 kr. (10.50 kr ef um innborgun á póstgiróreikning er að ræða). Burðargjöld böggla innanlands verður sem hér segir: 1 kg. 17.00 kr. 3 kg 20.00 kr. 5 kg 31,00 kr. 10 kg 48,00 kr. 15 kg 70,00 kr. 20 kg 78.00 kr. Abyrgðargjald verður 7.50 kr. og hraðboöagjald 16.50 kr. MÁLAÐ Á POSTULÍN Lisbcth Hansen, postulinsmálari málar hið fræga mynstur „Empire” á postulinsdisk frá Bing og Gröndahl, en listsýning fyrirtækisins var opnuð I gær að Kjarvalsstöðum. Sýningin er aðeins opin i fimm daga, en þess má geta að munirnir á sýningunni sem sumir eru frá þvl fyrir aidamót, eru tryggðir fyrir 2 millj. danskra króna. Sýningin er opin daglega frá 14—22oger aðgangur ókeypis. Nýjar bækur frá Iðunni: Frá galdra-i málum til Hallæris- ! plans | ■ Iöunn gefur út meira en ■ hundrað bækur á þessu ári I og meðal þeirra eru ný verk I eftir Þorstein frá Hamri, , Svövu Jakobsdóttur. Anton i Helga Jónsson, Njörð, j Njarðvik og Flosa ólafsson. | Þrjár nýjar ljóðabækur , koma út hjá Iðunni. Spjóta- lög á speglinefnist bók Þor- steins frá Hamri og Ljóð vega gerð er þriðja bókin i flokki Sigurðar Pálssonar um „ljóðvegina”. Þá ■ kemur og út fyrsta ljóðabók | Guðrúnar Svövu Svavars- | dóttur myndlistarmanns og I nefnist „Þegar þú ert ekki”. • í frétt frá forlaginu segir að | höfundur segi „á hreinskil- | inn og einlægan hátt frá I sambandi sinu og Þorsteins ■ frá Hamri”. Hjá Iðunni kemur út safn I áður óbirtra smásagna eftir I Svövu Jakobsdóttur. Einnig ■ þriðja bók Auðar Haralds og | fyrsta skáldsaga hennar — Ævintýri fyrir I rosknar vonsviknar konur. ■ Út kemur söguleg skáldsaga | eftir Njörð P. Njarðvik sem I heitir Dauðamenn og fjallar I um galdramál sautjándu ■ aldar. Anton Helgi Jónsson | ljóðskáld er á ferð með 1 fyrstu skáldsögu sina sem I heitir Vinur vors og blóma. ■ Hallærisplanið heitir fyrsta I bók ungs höfundar Páls | Pálssonar, og segir eins og I nafniö bendir til frá ung- ■ lingalifi i Reykjavik. Iðunn gefur út heimilda- | þætti eftir Hannes skáld I Pétursson, frásagnir af sér- ■ stæðum persónum sem nefn- | ast Eriend andlit eftir Ingólf | Margeirsson og æskuminn- I ingar Flosa Ólafssonar sem ■ heita t Kvosinni. Eftir Einar | Braga kemur út Hrakfalla- | bálkurinn —viðtöl við Plum I kaupmann i Ólafsvik. ■ BHM mót- skerðingu verðbóta Launamálaráð BHM hefur sent frá sér ályktun þar sem harðlega er mótmælt þeirri skerðingu verðbóta sem felst i bráðabirgða- lögum rikisstjórnarinnar. Hér er einn einu sinni gengið á gerða samninga meö lagasetn- ingu, en slikar lagasetningar eru nú orðnar svo algengar að það er nánast öfugmæli að tala um að hér riki frjáls samningsréttur, segir I ályktuninni. Þá segir að sú vlsitöluskerðing sem ASl samdi um hafi nú verið lögfest gagnvart öðrum laun- þegum og er ASÍ I krafti stærðar sinnar þar með fenginn I hendur samningsréttur fyrir alla aðra launþega I landinu. Rikisstarfsmenn hafa þó ekki fengið þá launahækkun sem ASI samdi um, en hún er talin vera 9,5%. Þá segir i ályktuninni að stór hluti rlkisstarfsmanna innan BHM séu lðglaunamenn. Þeir hafi sýnt mjkið langlundargeð og verði ekkert að gert hljóti að koma til uppsagna.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.