Þjóðviljinn - 09.09.1982, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 09.09.1982, Qupperneq 16
WÚDVIUINN Fimmtudagur 9. september 1982 Aba' Imi ÞjóOviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. UU.i þess tlma er hægt aó ná I blaóamenn og aöra starfsmenn blaðsins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná I af- greiöslu blaösins 1 slma 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Kristin ólafsdóttir, umsjónarmaður Þjóöviljabássins á Heimilissýningunni afhendir vinningshafanum Gunnari llelgasyni farmiðann til Amsterdam meö Samvinnuferðum-Landsýn. Ljósm. -eik- Hlssa og himinlifandi segir verðlaunahafinn í Þjóðviljaget- rauninni, Gunnar Helgason, 16 ára „Ég var steinhissa og himinlifandi. Mér haföi ekki dottið i hug að ég myndi vinna"/ sagöi Gunnar Helgason, þegar hann leit við hjá okkur á ritstjórninni í gær, en hann vann fyrstu verðlaun í verðlaunagetrauninni i Þjóðviljabásnum á heimilissýningunni. Hann vann ferð til Amsterdam og „ætlar að reyna að skella sér sem allra fyrst". Gunnar er 16 ára gamall og nemandi i MS. Hann sagðist sjaldan taka þátt i getraunum, og fannst Þjóðviljagetraunin ekkert mjög erfið. „Það var helst þetta með borgarfulltrúa Kvennafram- boðsins. Ég þurfti að hugsa mig vel um áður.en ég krossaði við Guðrúnu Jónsdóttur”, sagði Gunnar. Hann var reyndar ekki sá eini sem þurfti að hugsa sig vel um áður en hann krossaði við Kvennaframboðsfulltrúann. Ýmsir krossuðu við Sólrúnu Gísladóttur eða Helgu Sigurjóns- dóttur. Gunnar sagði okkur að með honum hefðu verið tveir kunn- ingjar hans og þeir hefðu lika tekið þátt i getrauninni. Þeir ætla kannski að skella sér með honum út. „Við erum að vonast til að ná i hljómleika hjá Toto. Annars hef ég mestan áhuga á skiöum”. „Heldurðu að þú komist nokkuð á skiði i Amsterdam?” „Það væri þá helst að maöur kæmist á sjóskiði”. 2330 svör bárust viö getraun- inni, og voru um 20% þeirra rétt. 6 aukaverðlaun voru i getrauninni og voru nöfnin birt i blaðinu i gær. Þjóöviljinn óskar Gunnari góðrar ferðar og þakkar öllum fyrir þátt- tökuna i getrauninni. — þs Mikil biðröð á Karólinska sjúkrahúsinu Fyrir nokkru var i fyrsta sinni gerð tilraun til að lækna mann af Parkinson veiki með þvi að sprauta frumum sem teknar voru úr nýrnahettum hans inn i heil- ann. Enda þótt enn sé tvisýnt um árangur hefur Karolinska sjúkra- húsið i Stokkhólmi, þar sem að- gerðin var reynd, sctt á biðlista mikinn fjölda sjúklinga frá öllum heimshornum sem biðja um samskonar aðgerð. Aðgerö þessi varð fræg i frétt- um fyrir skemmstu og i fyrstu gekk allt vel. Frumurnar, sem sprautað var inn i heilann, virtust lifa af i nýju umhverfi, og i mænuvökva sjúklingsins fannst meira af dopamin en áður. En það efni var nýrnahettufrum- unum ætlað að framkalla, þvi Parkinsonsjúklingar þurfa að mynda sem mest af þvi. Sjúklingnum, sem er 55 ára gamall, hefur nú aftur versnað. En þótt úrslit séu tvisýn, verður aðgerðum haldið áfram i haust og er, sem fyrr segir, enginn skortur á þeim sem vilja reyna. Læknar Karolinska sjúkrahússins höfðu áður læknað rottur, sem höfðu verið gerðar Parkinsonveikar, með fyrrgreindri aðferð, en þeirri spurningu er enn ósvarað, hvort nýrnahettufrumur geta örvað heilann til að vinna bug á varan- legu tjóni sem taugakerfið hefur orðið fyrir. Þær rannsóknir sem sænskir læknar hafa unnið að á þessu sviði geta einnig opnaö nýja möguleika til lækninga á þeim sem hafa beðið tjón af eitrun eða i bil- slysum. (ByggtáDN) Enn er óvist hvort flutningar á frumum frá nýrnahettum til mannsheila lækna Parkinson- veiki Er hægt að lækna Parkinsonveikina? Enn er tví sýnt um árangurinn j Gunnarsmenn í bókun í ríkisstjórn: jErfitt að afla Ifjár í flugstöð i þarf þó til að taka við framlag- ■ inu samkvæmt stjórnarsátt- I mála og hefur Alþýðubanda- I lagið hafnaö þvi formlega, eins | og annarsstaðar kemur fram. • A fundi rikisstjórnarinnar I geröu forsætisráðherra, dóms- ' málaráðherra og landbúnaðar- J ráðherra sérstaka bókun um I flugstöð og kemur þar m.a. I fram að hefja þurfi hiö fyrsta ' byggingu flugstöðvar, en kostn- J aður Islendinga af henni sé nú I áætlaöur 300 til 400 milljónir I króna. Siðan segir orðrétt: Nú og á næstunni hlyti bygging flugstöðvar að draga úr framkvæmdum, m.a. í orku- og samgöngumálum IA fundi rfkisstjórnarinnar i gær kom fram aö bæði Gunnars- menn og Framsóknarmenn , vilja reisa flugstöð á Kefla- ■ víkurflugvelli samkvæmt fyrir- liggjandi teikningum og leggja áherslu á að „framlengja” veröi framlög sem bandarisk stjórnvöld hafa lofað, en fresturinn tii þess að taka við bandariska hagsmunafénu i flugstöðina er sagður renna út 1. október nk. samkvæmt banda- riskum fjárlagareglum. Sam- þykki rikisstjórnarinnar allrar „Með hliðsjón af þeim áföll- I um, sem þjóðarbúið hefur orðiö ■ fyrir og miklum viðskiptahalla ! verður erfiöleikum bundiö aö I afla fjár til þessara fjárfreku I framkvæmda nú og á næstunni 1 og hlýtur það að draga úr fram- J kvæmdum m.a. i orku- og sam- I göngumálum”. — ekh J Meirihluti í útgerðarráði: Vill stöðva togara BtíR Felldi tillögu Sig- urjóns Péturssonar Útgerðarráð Bæjarútgerðar Reykjavikur samþykkti i gær með atkvæðum Sjálfstæðismanna að taka þátt i þvi að stöðva flot- ann eins og Landsambahd is- ienskra útvegsmanna hefur boðað. Felld var tillaga frá Sigur- jóni Péturssyni um að BÚR tæki ekki þátt i þessum stöðvunarað- gerðum. 1 tillögu Sigurjóns var tekið undir þá kröfu að stjórnvöld tryggi útgerðinni viðunandi rekstrargrundvöll. Hinsvegar var minnt á það, að til BÚR var stofnað til að tryggja atvinnu- öryggi verkafólks i Reykjavik og hefði borgarstjórn oft veitt fyrir- tækinu rekstrarstyrki vegna þess meginmarkmiðs sem BÚR var ætlað að gegna. Tillaga Sigurjóns um að stöðva ekki skip BÚR fékk 3 atkvæði, en tillaga um að taka þátt i að- gerðum LIU fékk fjögur atkvæði. Sigurjón Pétursson lét þá bóka það, að hann harmaði að meiri- hluti útgerðarráðs skuli með þessum hætti leiöa atvinnuleysi yfir hundruð reykvisks verkafólks. Stjórn Sjómanna- sambandsins: Engln skerðingar- áform Stjórn Sjómannasambandsins telur sig hafa tryggingu fyrir þvi að engin skerðingaráform séu uppi af hálfu rikisstjórnarinnar á hlutaskiptakjörum, kemur m.a. fram i fréttatilkynningu sam- bandsins i gær. Þá lýsir stjórn sambandsins sig reiðubúna til samvinnu við stjórnvöld og Llú um leiðir til aö koma i veg fyrir stöðvun fiski- skipaflotans með tilliti til þess gifurlega vanda sem framundan er fyrir sjómenn og þjóðarbúið i heild, komi til stöðvunar. Landsþing sveitarfélaga sett í gær Landsþing Sambands islenskra sveitarfélaga, hið 12. i röðinni, var sett á Hótel Sögu I gær- morgun og stendur fram á föstu- dag. Landsþingið fer með æðsta vald I málefnum Sambands Isl. sveitarfélaga. A þinginu verður kosin 9 manna stjórn og 24 menn i fulltrúaráð, en það fer með yfirstjórn sambands- ins á milli landsþinga. 1 upphafi þings fluttu ávörp félagsmálaráðherra og forseti borgarstjórnar Reykjavikur. Lögð er fram skýrsla um starf- semi sambandsins undanfarin 4 ár.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.