Þjóðviljinn - 21.09.1982, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 21.09.1982, Blaðsíða 10
10 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudasur 21. september 1982 íþróttir Umsjón: VíöirSigurösson Enska knattspyman: / An Robson og Muhr- en er Ipswich án sigurs Ipswich Town gengur illa að ná sér á strik í 1. deild ensku knattspyrnunnar eftir að hafa misst fram- kvæmdastjórann, Bobby Robson, og hollenska stjörnuleikmanninn Arnold Muhren í sumar. Ipswich fékk Stoke í heimsókn á laugardag og eftir 20 mínút- ur var Stoke komið í 0-2 með mörkum Micky Thom- as og Paul Maguire. Alan Brazil og John Wark svör- uðu fyrir Ipswich og staðan því 2-2 í leikhléi. í síðari hálfleik fékk svo Stoke vít- aspyrnu sem Maguire skoraði úr sigurmarkið og Ipswich situr nú eitt á botni 1. deildar. Liðið sem var í öðru sæti deiidarinnar í fyrra er nú það eina sem ekki hefur unnið leik í fyrstu sex umferðunum. Úrslit á laugardag: 1. deild: United á toppinn og Luton áfram á skotskónum Arsenal-Notts County 2-0 Birmingham-Coventry 1-0 Everton-Norwich 1-1 Ipswich-Stoke 2-3 Luton-Brighton 5-0 Man.City-Aston Villa 0-1 Nottingham For.-Watford 2-0 Southampt.-Manch. United 0-1 0-1 Swansea-Liverpool 0-3 W.B.A.-West Ham 1-5> 2. deild: Barnsley-Burnley 3-0 Blackburn-Leicester 3-1 Bolton-Wolves 0-1 Carlisle-Crystal Palace 4-1 0-1 Chelsea-Oldham 2-0 Leeds-Derby Middlesboro-Fulham 1-4 Q.P.R.-Sheffield Wed 0-2 Rotherham-Cambrigde 2-0 Shrewsbury-Newcastle Ian Rush skoraði tvívegis fyrir Li- verpool á Vetch Field. Manchester United er komið á toppinn í 1. deild eftir sigurinn í Southampton. Sigurmarkið í skemmtilegum leik skoraði Lou litli Macari sem kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik. í fyrri hálfleiknum misnotaði Alan Ball vítaspyrnu fyrir Southampton. Leikmenn Swansea réðu ekk- ert við Liverpool sem lék mjög vel á Vetch Field. Eftir 22 mínút- ur hafði lan Rush skoraði tvívegis fyrir Liverpool og Craig Johnston innsiglaði sigurinn með góðu skoti sex mínútum fyrir leikslok. Nottingham Forest var ávallt betri aðilinn í leiknum gegn Wat- ford sem var efst í 1. deild. Colin Walsh skoraði fyrir Forest á 28. mín. en síðan varði markvörður Forest, Flan s van Breukelen, vít- aspyrnu Luther Blissett. Garry Birtles tryggði síðan sigur Forest með marki í síðari hálfleik, hans fyrsta fyrir Forest eftir dvölina hjá Manch. Utd. Tottenham átti stórleik á Rok- er Park í Sunderland og heimalið- ið var heppið að sleppa með 0-1 tap. Gary Brooke skoraði eina markið á 26. mín. eftir að Ricky Villa, besti maður vallarins, hafði splundrað vörn Sunderland, og Tony Galvin misnotað upplagt færi. Luton skoraði fimm annan heimaleikinn í röð og nú varð Brighton fyrir barðinu á nýliðun- um, Brian Stein skoraði þrjú markanna, Dave Moss og Wayne Turner eitt hvor. Aston Villa vann góðan úti- sigur í slökum leik gegn Manc- hester City. Gary Shaw skoraði eina markið eftir undirbúning ný- liðans Mark Jones. Tony Evans tryggði Birming- ham sinn fyrsta sigur á keppnis- tímabilinu með marki gegn Co- ventry. Graham Rix í fyrri hálfleik og John Fíollins í þeim síðari sáu um mörkin í sigri Arsenal á Notts Co- unty. Sandy Clarke og Francois Van der Elst skoruðu tvö mörk fyrir West FJam á sömu mínútunni, þeirri tíundu, en Peter Eastoe minnkaði muninn fyrir WBA á 41. mínútu. Paul Haylock skoraði fyrii Norwich en Alan Irvine fyrir Everton á Goodison Park. Staðán: 1. deild: Garry Birtles kominn til Forest á ný og byrjaður að skora. Birmingham 6 1 1 4 3-17 4 IpswichTown 6 0 3 3 7-11 3 2. deild: Wolves 6 4 2 0 10-1 14 GrimsbyTown.... 5 4 1 0 12-3 13 Sheffield Wed 5 4 0 1 13-5 12 Fulham 1 5 : i : 2 0 11-3 1 Leeds United 5 3 2 0 7-4 11 Q.P.R : 6 3 1 2 8-6 10 Cheisea 6 2 3 1 5-3 9 Rotherham 6 2 3 1 9-8 9 Crystal Palace 5 2 2 1 8-8 8 Newcastle 6 2 2 2 7-8 8 6 2 1 3 12-8 7 5 2 1 2 9-7 7 Barnsley 5 1 3 1 7-5 6 Carlisle 5 2 0 4 10-14 6 6 2 o 4 8-13 o 5 1 2 2 3-5 *> Cambrigde 6 1 1 4 6-11 4 BoltonW 5 1 1 3 4-9 4 Derby County 5 1 1 3 4-10 4 Shrewsbury 5 1 0 4 3-7 3 5 1 o 4 4-13 3 Middlesboro 5 0 2 3 5-13 2 Brian Stein, Luton, er marka- hæstur í 1. deild með 6 mörk en Bob Latchford, Swansea, er í öðru sæti með 5. Oxford er efst í 3. deild með 13 stig, Lincoln hefur 12, Portsmo- uth 11, Bradford City og Sheffi- eld United 10 stig hvort. - VS. Manch. Utd Liverpool ....6 ....6 Watford ....6 StokeCity ....6 Manch.City ....6 WestHam ....6 Tottenham ....6 W.B.A ....6 Nottingham For... ....6 ....6 LutonTown ....6 Notts County ....6 Everton ....6 Sunderland ....6 Arsenal............6 2 t SwanseaCity........6 2 1 CoventryCity.......6 2 1 Brighton...........6 2 1 Norwich City.......6 13 Southampt..........6 1 1 Gary Shaw Aston Villa. skoraði sigurmark Islandsmótið í handknattleik: Fyrstl leikur deild- arinnar á Selfossi! Mynd: — gsm Gylfi fíirgisson, hin 17 úra gamla stórskytta úr Pór Vestmannaeyjum, sem skoraði fyrsta mark íslands'- mótsins í handknattleik og síðan fimrn mörk alls í leik Þórs og Hauka í 2. deild á föstudagskvöld- ið, hefur verið valinn til æfinga hjcí piltalandsliðinu, 20 úra og yngri, sem tekur þútt í Norðurlandsmót- inu hér ú landi í byrjun nóvember. Gylfi er húvaxinn ng efnilegur leikmaður sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. — gsm/VS „Leikur Stjörnunnar og FH í 1. deild karla á íslandsmótinu í handknatt- leik annað kvöld verður háður í íþróttahúsinu á Selfossi“, sagði Jón Erlendsson hjá HSÍ í samtali við Þjóðviljann í gaer. „íþróttabandalag Hafnarfjarðar tekur málið fyrir í kvöld (í gærkvöldi) en það verður leikið á Selfossi, hver svo sem úrslitin verða hjá þeim. Það er alltof seint að breyta nokkru um leikstað eftir þetta“, sagði Jón. Ásgarður, íþróttahúsið í Garða- bæ. er of lítið, að mati HSÍ, til þess að hægt sé að leika þar í 1. deild í handknattleik. Nýliðar Stjörnunn- ar hafa því verið í húsnæðishraki en fengu loks inni með heimaleiki sína í íþróttahúsinu í Hafnarfirði. Síðan ákvaðu Hafnfirðingar að Stjarnan fengi ekki að leika þar á miðviku- dagskvöldum vegna æfinga í hús- inu. Af þeim sökum uröu Garðbæ- ingar að leita fyrir sér annars staðar með þennan fyrsta „heimaleik" sinn í 1. deild. Selfyssingar reyndust tilkippilegir og í gær- kvöldi hélt Stjarrian austur á Sel- foss til að æfa þar og kynnast nýja heimavellinum, svo og til að aug- lýsa leikinn, sem að sjálfsögðu er fyrsti 1. deildarleikur sem háðurer fyrir austan fjall. Boðið að leika í Eyjum! En fleiri staðir en Selfoss kontu til greina. í samtali við Guðmund Jónsson, forntann handknatt- leiksdeildar Stjörnunnar í gær, kom í ljós að hússtjórn íþrótta- hússins í Vestmannaeyjum bauð Stjörnunni að leika gegn FH þar og var reiöubúin að greiða götu Gar- ðabæjarliðsins eftir bestu getu og vilja. Ekki varð þó af því og Eyja- menn verða að bíða 1. deildarleiks á sínum heimavelli enn um sinn. Keppni í 1. deild karla, sem verður sú umfangsmesta til þessa í íslenskum handknattleik, er nú að hefjast af fullum krafti og verður fram haldið á laugardag en þá leika Fram-Þróttur og FH-Víkingur. Á sunnudag mætast KR og Stjarnan og á mánudagskvöldið næsta Vík- ingur-ÍR og FH-Þróttur. Síðan verður leikið nánast á hverjum degi fram að 26. október og verður þá lokið átta umferðum. Þá verður mánaðarhlé, helgað landsliðinu, en síðan haldið áfram á fullu því umferðirnar í 1. deild í vetur verða alls 26. Og þá er bara að bíða eftir því að keppni í I. deild hefjist á Selfossi kl. 19.30 annað kvöld. — VS Tveir sigrar Vals Reykjavíkurmótið í körfu- knattleik hófst um helgina og voru leiknir fjórir leikir í meistaraflokki karla. A laugardag sigruðu Vals- menn lið Stúdenta 78-63 og Fram vann KR 110-94. Á sunnudag vann svo KR Stúdenta 97-77 og Valur fór létt með ÍR-inga, 84-58. Mótinu verður fram haldið í í- þróttahúsi Hagaskóla í kvöld. Kl. 19 leika ÍR og Fram og þar á eftir Valur og KR. Aftureld- ing unnu íslandsmótið í handknattlcik hófst á föstudagskvöldið með tveimur leikjum í 2. deild karla. Að Varmá vann Afturelding athyglis- verðan sigur á HK með 17 mörkum gegn 16. Sigurjón Eiríksson, Aftur- eldingu, og Hörður Sigurðsson HK, voru markahæstu lcikmenn li- ða sinna með 7 mörk hvor. í Vestmannaeyjum Iéku Þór Eyjum og Haukar og sigraði Þór 18-16. Gylfi Birgisson og Svíinn Lars Göran Anderson 5 hvor voru markahæstir Þórara en Hörður Sigmarsson, sem nú er byrjaður að leika með Haukum á ný, skoraði flest mörk Hafnarfjarðarliðsins, fimm talsins. -VS FH Reykja- nesmeistari Stúlkurnar úr FH urðu um helg- ina Reykjanesmeistarar í meistara- flokki kvenna í handknattleik. FH vann alla andstæðinga sína og hlaut 6 stig. Keflavík hlaut 4, Haukar 2 og HK ekkert stig. Lið Stjörnunnar dró sig út úr mótinu. Þjálfari FH er Þorsteinn Jóhannesson. — VS Rífa utan af húsgrunn- um og halda blngó til að komast til Svíþjóðar og Spánar ,,A síðasta ársþingi HSl var hafn- að beiðni um fjárveitingu til kvenn- alandsliðanna í handknattleik. Stúlkurnar þurfa því sjálfar að út- vega allt fjármagn til ferðalaganna til Spánar og Svíþjóðar í nóvember. Þœr hafa meðal annars verið að rífa utan af húsgrunnum og á fimmtu- dagskvöldið halda þœr bingó í Sig- túni sem hefst kl. 20.30", sagði Þor- steinn Jóhunnesson, sem á sæti í landsliðsnefnd kvenna, í samtali við Þjóðviljann í gœr. Unglingalandslið kvenna 19 ára og yngri tekur þátt í Norðurlanda- móti í Svíþjöð dagana 5.-7. nóv- ember og A-landsliðið verður á Spáni 11.-15. nóvember og leikur þar í móti ásamt Spánverjum, ítöl- um og Sovétríkjunum. - VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.